Morgunblaðið - 11.02.1983, Page 22

Morgunblaðið - 11.02.1983, Page 22
62 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983 ást er... ... að halda upp- teknum hætti eftir brúökaupiö TM Rh U.S. Pat 0(1-1* rtghts rnervid »1983 Lm Angetoe Tknai Syndlcate Þú ert heldur seint á ferdinni með blaðið í dag! HÖGNI HREKKVlSI Ætti að draga til- löguna til baka J.E. skrifar: „Heiðraði Velvakandi. Árið 1916 var auglýsing í amer- ískri raftækjabúð um ágæti ljósa- pera sem þar voru á boðstólum. Auglýsing þessi hljóðaði þannig: „Only surpassed by the sun“. Eða: Aeðins sólin lýsir betur. Að sjálfsögðu hafa orðið miklar framfarir í gerð ljósapera frá 1916, en sennilega engar umtalsverðar á sólinni. Samt held ég að flestir telji sólina bjartari, enn sem komið er. Samt hefur það hent sig að al- þingismaður nokkur virðist á ann- arri skoðun, því samkvæmt tillögu sem hann flytur á Alþingi nú, vill hann að allir ökumenn á íslandi verði framvegis skyldaðir til að aka með fullum ökuljósum, nótt sem dag, sumar sem vetur, í mistri og í glaða sólskini, alltaf. Ég tel að hann ætti að draga til- löguna til baka og einbeita sér fremur að því að kveikja á perunni í kollum þeirra þingmanna sem tapað hafa áttum, ef það mætti verða til þess að þeir fyndu götuna út úr þeim ógöngum sem þeir hafa leitt íslensku þjóðina í. Svo ætti að koma fyrir, á þaki Alþingishússins, svo sem einni gigawatt-peru (þegar einhverjum snillingi hefur tekist að finna hana upp). Hún mundi þá varpa verðugu ljósi á samningalipurð okkar i vissu máli og á árangur þann sem þar hefur náðst.“ Þessir hringdu . . Getur valdið misskilningi Ó.B. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Mig langar til að gera athugasemd við frétt sem Ómar Ragnarsson var með í sjónvarpinu í fyrrakvöld (þriðju- dag). Hann stóð niðri í Austur- stræti við brjóstmyndina af Tómasi Guðmundssyni og vitn- aði í kvæði hans um Austur- strætið: „Hvað varð um yður, Austurstrætisdætur?" Síðan hélt fréttamaðurinn áfram, eins og Austurstrætisdæturnar hefðu búið í Austurstræti (þar byggi nú aðeins einn maður) og sagði að þær byggju nú uppi í Rofabæ, minnir mig. En Tómas var ekki að tala um stúlkurnar sem bjuggu í Austurstræti, í kvæði sínu forðum, heldur ungu stúlk- urnar í Reykjavík almennt, sem þar gengu sér til skemmtunar. Ónákvæmni af þessu tagi getur orðið til að valda misskilningi, einkum meðal ungs fólks, sem hvorki þekkir kvæðið né baksvið þess. Slíkt er til óþurftar. Einum of lagt gengid L.Þ. Kópavogi hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Eg lýsi vanþóknun minni á öllu þessu vínsulli í dönskukennslumynd- inni Hildi. Mér finnst að ekki eigi að vera að sýna svona í kennslumyndum. Þarna virðist ekki vera neitt á boðstólunum annað en öl og vín, en þegar ég var í Danmörku var bæði drukk- ið kaffi og te. Mér finnst þetta einum of langt gengið. Einnig finnst mér afskaplega truflandi hávaði í bakgrunni, t.d. frá um- ferð, og gera fólki erfitt fyrir að greina orðin. Er ekki hægt að minnka hlut aðskotahljóða í myndinni? Yfirbókanir og réttur farþega til skaðabóta Flugfarþegi skrifar: „Velvakandi. Við íslendingar erum illa í sveit settir, varðandi samgöng- ur við útlönd. Farþegar eru ofurseldir duttlungum flugfé- laga, mestan part einu, sem sér um allar áætlunarferðir í lofti frá íslandi. Fyrir skömmu varð SAS-flugfélagið skandinavíska fyrir því, að einn farþegi þess, sem var einarðari en aðrir og lef ekki ganga á rétt sinn, ákvað að fara í mál við flugfé- lagið, eftir að það hafði vísað honum frá með fullgildan far- miða í hendi, vegna yfirbókun- ar. Farþeginn hefur haft með- byr frá tveimur dómsstigum í Noregi og SAS orðið að greiða kostnað, sem hlaust af því að farþeginn tók leiguflugvél til ákvörðunarstaðar síns. En hvernig snúa þessi mál að íslenskum farþegum? Og hvernig bregðast íslenskir far- þegar við, þegar þeir verða fyrir barðinu á hinum sjálf- skipuðu reglum flugfélaga? „Aldrei yfirbókað frá ís- landi“, hefur Tíminn eftir starfsmanni í kynningardeild Flugleiða, — og prentar svarið með rauðu letri. „ ... það er regla hjá Flug- leiðum að það er aldrei yfir- bókað héðan frá íslandi. Öðru máli gegnir hins vegar í Atlantshafsfluginu, — þar er yfirbókað hjá okkur, eins og hjá öllum félögum," segir starfsmaðurinn síðar í viðtal- inu við Tímann. Svo mörg voru þau orð. Þetta er hið kyndugasta svar, svo ekki sé meira sagt. Er kannski ekkert Atlantshafs- flug frá íslandi á vegum Flug- leiða? Sannleikurinn er sá, að þótt ef til vill sé minna um yf- irbókanir hjá Flugleiðum frá Islandi til Evrópu (ég segi minna, því farþegar hafa orðið fyrir óþægindum vegna yfir- bókana þar líka), þá er annað atriði, sem veldur þeim vand- kvæðum og það er hinar tíðu niðurfellingar á ferðum til Evrópu. Þegar flug eru felld niður hjá Flugleiðum er ástæðan oftast sú, að mjög fáir farþegar hafa verið skráðir í viðkomandi flug, og er varla að kenna yfirbókun- um þar! Allt annað er uppi á teningn- um í Atlantshafsflugi Flug- leiða, þar er iðulega um yfir- bókanir að ræða — frá íslandi og hafa íslenskir farþegar ósjaldan haft af þessu óþæg- indi. íslendingar eru hins vegar þannig gerðir, að þeir veigra sér gjarnan við að krefjast skaðabóta og af því njóta Flugleiðir góðs. Dómsúrskurðurinn í Noregi er allrar athygli verður fyrir íslenska farþega, sem lenda í því að komast ekki með sínu bókaða flugi, og fróðlegt er að sjá, hvort íslendingar láta bjóða sér þá framkomu, sem flest í „leyndarmálum" yfir- bókana hjá hálf-ríkisreknu flugfélagi landsmanna, Flug- leiðum."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.