Alþýðublaðið - 20.08.1931, Síða 4
4
alþýðublaðið
reita af pér hvern eyri sem peir
geta, me'ðan pú ert að reyna að
útvega öllum mönnum góða skó.
Þú munt sjá að járnbrautin er
einstaklingseign, þú munt sjá að
skipið er einstaklingseign með
einn eða fleiri eigendur, og að
enginn af þessum mönnum lætur
sér nægja að fá að eins hæfilegt
endurgjald fyrir það, sem hann
leggur fram. Ef þú færir að rann-
saka imálið, myndir þú ef til vill
komast að raun urn að hinir
virkilegu eigendur járnbrautanna
Dg skipanna væru hlutafélög og
að arðurinn, sem pressaður er
út úr skónum fátæka fólksins,
rynni í vasa gamalla kvenna í
New Yorik, slæpingja í París,
velklæddra manna í klúbbunum
í Lundúnum, alls mögulegs „lux-
us“-fólks.“
Síðan lýsir Wells því, þegar til
Englands væri komið og ætti að
fara að setja upp verksmiðju.
En alt af og alls staðar koma
einstaklingarnir sem eiga og sem
heirnta ard af eign sinni. Landa-
og lóða-eigendur og húseigend-
ur. Maturinn, sem verkamennirn-
ir eta, fötin, sem þeir klæðast,
alt verður það að færa eigendun-
um arð.
(Meira.)
Bethlen fer —
Bethlen sitnr.
Budapest, 19. ágúst. U. P. FB.
Bethlenstjórnin hefir beðist lausn-
ar. Bethlen gerir tilraun til þ-ess
að mynda stjórn af nýju.
Síðar: Stjórnin sagði af sér
vegna fjárhagsvandræða.
Nýtt hnattflug.
Detroit, 19. ágúst. U. P. FB.
Flugmennirnir Preston og Col-
lington lögðu af stað í gær í
flugferðalag í rannsóknaskyni
fyrir Transcontinental Airlines
Oorporation. Fara þeir sömu leið
og Cramer og Paquette. Þeir
leggja enga áherzlu á að hraða
fluginu.
Síðar: Flugmennirnir komu til
Sudbuy kl. 6,40 í gærkveldi.
Dýrtíðarnppbótin.
Lagaákvæðin um, a'ð starfs-
mönnum ríkisins skuli greid d
Idýrtíðaruppbót, falla úr gildi um
næstu áramót, ef lögin verða ekki
framlengd. Þar eð engin ný skip-
un á launalögunum hefir verið
gerð né mun verða gerð á þessa
þingi, þá er sjálfsagt að dýrtíð-
aruppbót verði gneidd áfram.
Fyrir því flytur Jón Báldvins-
son frumvarp á alþingi um, að
dýrtíðaruppbótar-ákvæðin verði
framlengd til ársloka 1933.
Verkamannabústaðir.
Frumvarpið urn endurbætur á
verkamannabústaðalöigunum, eins
og þa'ð var samþykt við 2. um-
ræðu í neðri deild alþingis, er
nú kornið til efri deildar. Við
3. umræðjui í n. d. fluttu fulltrúar
Alþýðuflokksins þá viðbótartil-
lögu við það, að Lán úr veðdeild
Landsbankans til verkamannabú-
.sotoa sjtv'rau ganga íyrir ððrum
lánum úr veðdeildinni, án tillits
jtil þess, í hvaða röð lánbeiðnirn-
ar bærust bankanum. — Tillagan
var feld. Greiddu íhaldsflokks-
menn allir atkv. á móti henni og
fleiri „Framsóknar“flokksmienn
móiti henni en með.
Tóbakseinkasalan, til ágóða
fyrir byggingarsjóði verkamanna-
bústaða og Byggingar- og land-
náms-sjóð, hefir verið samþykt
við 2. umræðu í neðri deild, og
á hún þá ekki að eiga nema eina
umræðu eftir til þess að verða
lögtekin.
Lög frá alþingi.
I gær afgreiddi alþingi þessi
lög:
Um lendiiigarbœtur ú Egrar-
bakka. Ríkið kosti þær að h'álfu
og sé varið til þess alt að 80
þús. kr. úr ríkissjóöi þegar fé
verður veitt þar til í fjárlög-
um. Jafnframt er stjórninni heim-
ilað að ábyrgjast lán fyrir Ár-
nessýslu, er nemi jafnhárri upp-
hæð, til þeirra framkvæmda. Til
byrjunar á varnargarði, til þess
að bægja sandburði úr Ölfusá
inn á skipalieguna, er ríkisstjórn-
inni heimilað að verja ait að 20
þús. kr. gegn jafnmiklu fram-
lagi annars staðar að. — Mál
þetta sætti nokkurri andstöðu
bæði á síðasta þingi og á þessu
þingi. Hafa fulltrúar Alþýðu-
flokksins lagt sitt lið á báðum
þingunum til aö greiðia götu
málsins, þar eð nauðsyn mikil er
á því, að umbæturnar verði gerð-
ar áður en skipalegan' fyllist af
sandburði úr ánni. Og nú er
málið komið gegn um þdngið.
Heimild fijrir veddeild Lands-
bankans til ad gefa út nýjan ved-
bréfaflokk, að upphæö 6 millj.
kr.
Heimild fyrir stjórnina til ao
ábyrgjast rekstrarlán fyrir eitt
ár í senn fyrir Útvegsbankann,
alt að 150 þús. sterlingspundum
eða tilsvarandi fjárhæð í annari
erlendri rnynt.
Um fasteignamat. (Viðbót við
þau lög.) Stjórnin skipi þriggja
rnanna yfirmatsnefnd fasteigna,
til að endursko'ðia og samræma
nýja matið. Að þeirri endurskoð-
un liokinni láti stjórnin semja
fasteignamatsbók fyrir alt land-
ið. Giidi hið nýja mat frá 1.
apríl n. k.
Um gjald af jnnlendum toll-
vöriitegundum. Samkvæmt þeirn
lögum fær ölgeröin „Þór“ sönxu
ívilnanir um gjaldið eins og „Eg-
ill Skallagrímsson“ hefir nú. —•
En þau ákvæði gilda til ársloka
1935.
KJm d&fgimfi op vefgfrin<.
ST. DRÖFN 55 og unglingast.
Bylgja nr. 87 efna til berja-
farar að Selfellsskála næst-
ikomandi sunnudiag 23. þ. m.
ef næg þátttaka verður og veð-
ur leyfir. Farið verður af stað
kl. 10 árd. frá Góðtemplara-
húsinu í Bröttugötu. — Ætlast
er til að börn og fullorðnir
hafi með sér matarnesti, en
mjólk, kaffi og gosdrykkir fást
á staðnum. Farið verður í góð-
um bílum. Meðlimir stúknanna,
er vilja taka þátt í för þessari,
verða að hafa gefið sig fram
fyrir kl. 6 síðd. á föstudag,
við Hjört Hansson, Austur-
stræti 17, símar 1361 og 679,
eða Sigríði Árnadóttur, Sokka-
búðinni, sími 662. Félagar mega
bjóða með sér vinum og
v a n da m ö n n u m. Nefndirnar.
Skólastjóri Flensborgar-skóians
er settur Lárus Bjarnason
kennari í Hafnarfirði.
Árni Pálsson verður piófessor.
Ákveðið er nú, að Árna Páls-
syni verði veitt prófessorsemb-
'ættið í sögu. Er veitingin að eins
ókomin.
Pétur Jónsson
óperusöngvari syngur í kvöld
kl. 71/2 í Gamla Bíó, Þetta er
síðasta tækifærið til að heyra
þenna ágæta söngvara okkar, því
að hann er á förum til útlanda.
Jarðarför
Jóhönnu M. Eyjólfsdóttur, konu
Óskars Guðnasonar prentara, fer
fram i dag kl. 3 og hefst frá
heimili hennar, Tjarnargötu 47.
Bæjarstjórnarfundur
(er í d-ag.
Jón Þorláksson
var orðinn efnaður maður þeg-
ar hann hætti að vera landsverk-
fræðingur, og tók þó aldrei um-
boðsiaun af vörum, sem lands-
sjóður keypti. En hvernig stendur
á því, að Jón Þorláksson vill ekki
að öllam starfsmönnum hins op-
inbera sé bannað a'ð taka um-
boðslaun af viðskiftuim við ríkið?
Heimsendir?
Morgunblaðið kvartar í dag
undan því, hvað „mannréttinda-
og réttlætis-málin“ gangi treg-
Jega fram á þinginu. L;)að er önn-
ur öldin nú en þegar Moigun-
blaðið varði Hnífsdalssvikin forð-
um.
íhaldsmenn
bera sig mjög ilia undan því,
að heildsalaágóðann af tóbaki
eigi að taka handa verkamanna-
bústöðum og Byggingar- og
landnáms-sjóði. Kveina þeir og
gnísta tönnum bæði á þingi og í
»Mgbl.“
Bókmentaáhugi á Bretlandi.
Á undan förnum árurn hefir
mikið verið unnið að því að auka
áhuga manna á Bretlandi fyrir
því að nota bókasöfnin, sem nú
•eru í hverjum bæ og hverju hér-
aði landsins og mörg í sumurn.
Góðu skipulagi hefir verið komið
á starfsemi bókasafnannia. Geta
menn fengið þar lánaðar bækur
til fræði- og sikemti-lesturs: sér
að kostnaðarlausu. Skýrslur um
rekstur bókasafnanna koma út
við og við, og af skýrslum þess>-
um má fá ýmsar mikilvægar upp-
lýsingar urn bókmentaáhuga al-
þýðumanna, hvernig bókmenta-
smekkurinn er 0. s, frv. í hinium
ýmsu héruðum og borgum. Þann-
ig er nýlega útkomin skýrsla
um bókasafnið í Croydon, siem
er ein af útja'ðraborgum Lund-
úna. Bókaútlán þar gefa þvi góða
hugmynd um bókmentahuga
bnezkra borgarbúa, því Croydon-
búar eru eins og gengur og gerist
um íbúa annara brezkra borga.
Croydonbúar lána árlega eina
milljón bóka úr Alþýðubókasafn-
inu og skýrslurnar sýna, a'ð fólk
þar er að verða vandara í vali,
er það iánar bækur til lesturs.
Glæpa- og leynilögreglu-sögur
eru í langtum minni eftirspurn
en áður og eftirspurnin eftir
„styrjaldar“-bókmentunum mink-
ar einnig stöðugt. Hi'ns /vegar
eykst eftirspurnin eftir verkum
sígildu (klassisku) höfundanna.
Einnig eru þær bækur mikið
lesnar, sem fræða menn um
vandamál þau, sem rnest er um
deilt nú á tímum. Þar sem
skýrslur annara bókasafna benda
tótvírætt í söm.u átt, er talið víst,
að bókaútgefendur taki til greina
þær bendingar, sem i iskýrslunum
felast, og leggi aðaláherzluna á
útgáfu vandaðra bóka. Þá er
þetta og mikils vert að því leyti,
að ýmsir góðir höfundar njóta
góðs af því á marga vegu, að
verk þeirra eru meira metin en
áður var, er ruslbókmentirnar
vo.ru yfirgnæfandi. (Or blaðatilk.
Bretastj.)
Hvað er að frétta?
Nœturlœknir er í nött Sveinn
Gunnarsson, Óðinsgötu 1, sími
2263.
Brœdrafélag Fríkirkjusafnaðar-
ins hér í bænum fer í skemitiferð
til Bessastaða á sunnudaginn
kemur. Lagt verður af stað kl.
2 e. 'm.
Ritstjóri og ábyrgðannaður:
ÓLafur Friðriksson.
Alþýðuprentsmiðjan.