Morgunblaðið - 01.03.1983, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.03.1983, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1983 ÚTSÝM SIKILEY TAORMINA — NAXOS Ef þig dreymir um kristaltæran sjó undir fagurbláum himni viö sífellt sólskin og náttúrufegurö í litum og línum, í landslagi og gróðri, sem vart á sinn líka í veröldinni, suörænt andrúmsloft og rómantík — þá er Sikiley staður fyrir þig. Stærsta, fegursta og sögufrægasta eyja Miöjaröarhafsins er hátt skrifuö sem takmark íslenzkra sól- og feguröardýrkenda eftir frábæra reynslu á síðasta ári. Veðursældin frá vori fram í nóvember, ilmandi litskrúð blóma og ávaxta, feguröin hvarvetna blasir viö augum og óteljandi minjar um sögu og glæsta menningu liöinna alda, allt frá því aö Sikiley var voldugri en sjálf Aþena — mótar ramma hins ákjósanlega og ógleymanlega sumarleyfis og höföar sterkt til íslenzkra feröamanna, sem næmir eru á fegurð umhverfisins jafn- framt því aö vera þyrstir í sól og ævintýr. Sikiley er ólík öllum öðrum eyjum Miðjaröarhafsins og sú lang mikilfenglegasta aö náttúrufari og landslagi. Þótt ítalska sé töluö þar og ítölsk áhrif ríkjandi, er hún sérstæö og ólík meginlandi Ítalíu um flest, enda hafa hér mætzt svo margir menningarstraumar, að Sikiley er sambland af Grikklandi og Ítalíu meö ívafi frá Normönnum, Spánverjum og Aröbum. Þessi blanda af menningu og lífsstíl margra þjóöa gefur Sikiley einstaklega heillandi yfirbragö, sem hrífur, gleöur og gleymist ei. TAORMINA — NAXOS Allt frá dögum Caesars hefur Ta- ormina verið eftirsóttur ferða- mannastaður. Borgarstæöið í 200—300 m hæö gefur henni sér- stæða reisn, og allt yfirbragð Ta- ormina er svo litríkt, myndrænt og lifandi að helzt minnir á leiksvið í ítalskri óperu. Hér opnast þér heimur Suöurlanda á nýjan og óvæntan hátt, líkt og flett sé HOTEL HOLIDAYINN Þekktur gististaður með flestum einkennum hins al- þjóðlega hótelhrings. Stað- sett alveg við ströndina á kyrrlátu svæði, um 1,5 km frá miöri Naxos, byggt 1974, undir sömu stjórn og Holiday Club. Rúm fyrir 600 gesti. Stór garöur, sundiaug og sólbaðsstétt með bar- þjónustu. Herbergi eru mjög rúmgóð og björt, loftkæld með svölum til sjávar. öll meö tveim 2ja manna rúmum, baði, síma, útvarpi og sjónvarpi. Rúm- góðir salir, máltíðir úti eða inni meö vali um rétti. Bar meö músík og dansi á kvöldin. Skrifstofa Útsýnar er í Holiday Inn myndum í ævintýrabók. Merkasti vitnisburöur fornrar frægðar er grísk-rómverska leikhúsið, þar sem enn fara fram leiksýningar og hljómleikar aö sumarlagi. Útsýniö er stórkostlegt með ströndinni í báðar áttir, enn ofar í fjallinu gnæf- ir miðaldabærinn CASTELMOLO og 5 km vestar er baöstrandar- bærinn NAXOS við „sítrónuströnd- ina“ undir hlíðum sjálfrar Etnu, klæddum skógi, aldintrjám og vínviöi. Hér var fyrsta byggö Grikkja á Sikiley, reist um 700 ár- um f.Kr., og hér er einnig okkar landnám á eynni. Útsýn hefur tryggt farþegum sínum nýtízku- búðir í „Holiday Club“ á undur- fögru, friösælu sumarhúsasvæði, sem reist er innan um blómstrandi aldintré, banana-, ólífu-, sítrónu- og appelsínutré, en einnig stendur til boöa gisting á þriggja og fjög- urra stjörnu hótelum á hagstæðu verði. Gististaöir Útsýnar eru skammt utan við sjálfan strand- bæinn Naxos. en mitt þar á miili er stærsta og glæsilegasta diskótek- iö, Maribu, aö mestu undir aldin- trjám og berum himni. Hér er hægt aö eyða sumarleyfinu í fögru og friösælu umhverfi í nánum tengsl- um við lifandi náttúru. Ef fólk lang- ar að leita tilbreytingar í mat og drykk frá sínum eigin gististað, er fjöldi smáveitingahúsa og nokkrir frábærir matsölustaöir í Naxos, auk þess sem skammt er inn til Taormina, sem auk veitinga- og al- mennra skemmtistaöa býður upp á árlega kvikmyndahátíö í júlí- ágúst. KYNNISFERÐIR OG SKEMMTANIR Á SIKILEY ★ Fyrsta daginn er upplýsingafundur hjá fararstjór- um. Fjölbreytt úrval kynnisferða er þá kynnt farþeg- um. ★ Skemmtileg ferð um hlíðar Etnu, eins frægasta eldfjalls í heimi. ★ Hálfsdags útsýnis- og kynnisferð til Taorminu, perlu Sikileyjar, og miðaldabæjarins Castelmolo þar rétt fyrir ofan. ★ Líparíeyjar eru nefndar systur sólarinnar. Siglt er til eyjunnar Vulcano, á vit goða og elds. Dagsferð er býöur upp á sól, sjó og leirböð. ★ Sýrakúsa var ein af háborgum grískrar menningar. Þar má enn finna miklar fornminjar, svo sem stóra gríska leikhúsiö. Dagsferð þar sem gamli borgar- hlutinn er einnig skoðaður. Agrigento er fyrsti áfangi í tveggja daga ferð. í dal hofanna er að finna fjölmörg hof frá dögum Grikkja. Um Selinunte er haldiö til Palermo, höfuðborgar Sikileyjar, þar sem gist verður. Borgin býður uþp á afarmarga áhuga- verða staði, eins og gamla miðbæinn, höll Nor- manna, katakombur og dómkirkjuna í Monreale. ★ Gljúfur Alcantara-dalsins eru stórbrotin náttúru- undur. Skoðun þeirra og næsta nágrennis Taor- mínu tekur eina morgunstund. ★ Kvöldferð á næturklúbb í Taormínu. ★ Hálfsdags verzlunarferö til Messínu. ★ Dagsferð til rómversku keisarahallarinnar í Casale og smáborganna Piazza Armerina og Enna í hjarta Sikileyjar. ★ Borgin eilífa, Rómaborg, er öllum ítalíuförum hug- leikin. Rómarferðir Útsýnar frá Sikiley njóta feikna vinsælda. ★ Kynnisferöir undir leiðsögn fararstjóra Útsýnar verða því aðeins farnar aö lágmarksþátttaka fáist. HOTEL HELLENIA YACHTING Þetta vistlega og vinsæla hótel stendur næst Holiday Inn og gengið er úr garðin- um beint á ströndina. Her- bergi eru hreinleg og þægi- leg, snyrtiherbergi meö sturtu, sími og loftkæling. Bar, setustofa og borðsalur allt mjög hreinlegt og snyrtilegt, þjónusta og mat- ur orðlögð. Sundlaug meö garði og sólbaðsaðstaðu. Byggt 1975 og rúmar 180 gesti. EY-Veöurfar apr. maí júní júlí ág. sept.okt. 14 19 20 22 24 24 20 20 23 29 31 31 28 24 sjávar á C lotts á C tólskins- Jag Ég þakka fyrir frábœra ferð til Sikileyjar. Ég vel örugglega Útsýnarferð nœst þegar ég fer út. Fararstjórn var frábœr og íbúðir alveg ágætar. Sem sagt frábær ferð. Árborg Ragnarsdóttir Lækjargötu 9, llvammstanga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.