Morgunblaðið - 16.03.1983, Side 3

Morgunblaðið - 16.03.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983 51 Þórir H. Óskarsson, formaður Ljósmyndarafélags íslands: „Verðlagsstofnun svarað" Nú hefur enn ein verðkönnunin séð dagsns ljósog eru það ljós- myndastofurnar, sem skulu opin- beraðar. Þetta er í sjálfu sér ágætt og auglýsing fyrir fagið í heild sinni. Hins vegar kemst ég ekki hjá því fyrir hönd félags míns að gera nokkrar athugasemdir við könnun þessa. Könnun þess er framkvæmd nú eftir að Ljósmyndarafélag fslands ákvað sl. haust að gefa verðið frjálst m.a. til að binda ekki félags- menn við fast verð á sama tíma og utanfélagsmenn gátu haft það sem þeim sýndist. Verðlagsstofnun taldi ástæðu til að hafa uppi eftirlit með verðskrá félagsins en utanfélags- menn máttu vera f friði. Útaf fyrir sig er ekkert við verð- kannanir að athuga en þær þurfa að vera heiðarlegar og þá sérstak- lega hvað varðar þjónustu fyrir ákveðið verð. Kannanir þessar hjá Verðlagsstofnun hafa nær undan- tekningalaust fengið á sig mótmæli frá viðkomandi félögum eða ein- stökum aðilum, sem telja sig hafa orðið fyrir rangtúlkun. Það hættulegasta við þessar kannanir er það, að sumir fjölmiðl- ar slá þessu upp á stóru letri og vekja þá bara athygli á því hvar verðið er hæst og hvar lægst en síð- an er sagt dýrasti og ódýrasti. Ég vil eindregið vekja athygli á því, að ef fólk kynnir sér hvað hver einstakur hefur upp á að bjóða kann það að riðlast hver er dýrast- ur eða ódýrastur. Það fáránlegasta við þessa könn- un er hinsvegar það, að upp er sleg- ið myndatökum með inniföldum stækkunum svo ekki sé talað um postulínsplatta, en slíkt er fyrst og fremst sértilboð hjá þeim sem á annað borð vilja bjóða það, og er þá ekki verið að tala um slíkt sem skil- yrði? Það hlýtur að teljast mjög hæpið fyrir Verðlagsstofnun með sinn fjölda starfsmanna, að vinna ekki betur en svona eða ætlar Verð- lagsstofnun sér þá dul að ákveða hvaða þjónustu menn eiga yfirleitt að bjóða og þá jafnvel í formi þvingana? Sumar ljósmyndastofur hafa ekki einu sini boðið myndatökur með inniföldum stækkunum en Verð- lagsstofnun gefur sér þær forsend- ur og ákveður verðið hjá þeim, sem ekki vildu hafa þessa viðskiptapóli- tík með því að bæta verði á um- ræddum stækkunum ofan á venju- legt myndatökuverð og sér þá hver heilvita maður að slík verðkönnun er bara „húmbúkk". Sú myndataka, sem langalgeng- ust er er aftur á móti látin liggja milli hluta en það er myndataka með 12 myndum án stækkana. Þá er viðskiptavinurinn sjálfráð- ur um það eftir á hve margar stækkanir hann kaupir, ef hann þá kaupir nokkrar, því að fyrst þarf að koma í ljós hvort myndatakan er þess virði. Ég vil eindregið skora á allan almenning sem ekki hefur á annað borð bundið traust sitt við einhvern ákveðinn ljósmyndara að fara og kynna sér þjónustuna, ann- aðhvort með því að heimsækja ljósmyndarann eða þá að líta á myndir hans i útstillingu. Fyrir fullorðið fólk t.d. sem gott þætti að fara í myndatöku á 10—20 ára fresti hlýtur fleira að skipta máli en verðið. F.h. Ljósmyndarafélags íslands, Þórir H. Óskarsson, formaður. I3S.HD i jtji 3E3 ZES 331 63 M Ö Ö ss sm fy B O S LIFIÐER SALTFISKUR! og saltfiskvogin er Weigh-Tronix WEIBHTROHIX er viðurkennd fyrir nákvæmni. WEIGHTRONIX hefur varanlega verndarhlíf (vatnshelt og ryðfrítt stál). WEIGH-TRONIX eyðir aðeins 15 wöttum. WEIGHTRONIX er með 1,5 cm háa ljósastafi, afar bjarta og skýra. WEIGH-TRONIX er á sérlega hagstæðu verði og góðum greiðsluskilmálum. WEIGHTRONjX fylgir 2ja ára ábyrgð. WEIGH-TRONIX hentar jafnframt einstaklega vel í skreið og í móttöku á '”T!Ikassafiski. WEIGH-TRONIX er notuð af á 3ja hundrað aðilum hérlendis. Bilanatíðni er 0,0. Leitið nánari upplýsinga og biðjið um bæklinga. isvoi; Laugavegi40 S: 26707 - 26065 ný_ fersR aldinbragð suðrœnna pálma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.