Morgunblaðið - 16.03.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983
53
sem útlendingar eru engir,
ágreiningsmenn engir og allar
bækur ritskoðaðar. Það eru ein-
ungis erlendar útvarpsstöðvar,
sem gætu hugsanlega veitt áróð-
ri kommúnistanna einhverja
keppni, en til þeirra heyrist nú
illa.
Almenningur á Vesturlöndum
lætur sér fátt um finnast áróður
einræðisríkja, en í Sóvíetríkjun-
um er hann öflugur skapandi
þáttur þess raunveruleika, sem
fólkið trúir, að fyrir hendi sé.
Sýnir reynzlan, að fréttir, sem
heyrast stöku sinnum og ógreini-
lega frá erlendum útvarpsstöðv-
um duga skammt til varnar gegn
tilbúningi af þessu tagi.
Lítáen er eitt af fáum svæðum
utan Moskvu og Leningrad, þar
sem unnt er að fá áreiðanlegar
fréttir. Menningarlíf er þar
blómlegt og fréttaþjónusta í
höndum neðanjarðarhreyfingar,
samizdat, sem einnig annast um
að koma óútgefnum bókmennt-
um á framfæri. Hreyfingin er
öflug og hefur tekizt að viðhalda
sterkum tengslum við Vestur-
lönd. Allmargir heimamenn geg-
na herþjónustu í Afganistan, og
það er einmitt frá Lítáen, sem
frásagnir hafa borizt um raun-
verulegt ástand í herbúðum'
Sóvíetmanna í Afganistan.
I landinu er gefið út dagblaðið
Ausra, sem merkir dögun, og
nokkur önnur samizdat-blöð eru
þar einnig gefin út, svo sem blað
kaþólsku kirkjunnar, sem hefur
haldið áfram að koma út, þrátt
fyrir að starfsmenn þess hafi
iðulega verið fangelsaðir.
I nýlegri grein í Ausra kemur
fram ósamræmið milli þess, sem
er að gerast í Afganistan, og
þess, sem greint er frá opinber-
lega í fréttum í Sóvíetríkjunum.
Segir greinarhöfundur frá við-
tölum, sem hann reyndi að eiga
við tvo hermenn, sem sendir „
höfðu verið heim frá Afganistan.
Var annar þeirra tuttugu og eins
árs gamall en í útliti „grár,
skjálfandi og gamall". Hann átti
erfitt um mál og gat lítið sagt
frá því, sem fyrir augu hans
hafði borið.
Hinn var öllu betur á sig kom-
inn og sagði frá því, hvernig her-
flokkur hans fór um þorp nokk-
urt og lét skotin dynja í allar
áttir. Sjálfur sagðist hann einnig
hafa skotið, — hefði ella verið
skotinn sjálfur. Minnist hann
þess með hryllingi, að hann hefði
hæft og drepið unga, fallega
stúlku. Afgönsku uppreisnar-
mennina sagði hann hafa verið
skotna í hópum, 20—30 í hverj-
um hóp, og stundum misþyrmt
fyrir aftökurnar.
Greinin í Ausra birtir einnig
útdrætti úr bréfum frá tveimur
litáískum hermönnum í Afgan-
istan, og kemur þar fram, að
Sóvíetmenn hafa jafnan látið sig
litlu skipta líf afganskra borg-
ara í styrjaldarrekstri sínum.
Markaði Salang-slysið þannig
enga stefnubreytingu að því
leyti.
Fyrra bréfið er dagsett 7.
marz 1980 og gefur nokkra
hugmynd um hið mikla mann-
fall, sem Sóvíetherinn getur
jafnan búizt við í viðureign sinni
við skæruliða. „Ég ætla að segja
þér frá einu atviki. Það var harð-
ur bardagi, og féllu 150 menn úr
herdeildinni frá Vitebsk. Ég veit
ekki, hvað verður um okkur ...“
Hitt bréfið er dagsett 29. apríl
1980 og lýsir átökum á öðrum
stað og nokkru nánar. „Við vor-
um samfellt 18 daga í leiðangri,
sultum og bárum lík.“
„Við skutum alla
íbúana“
„Þú getur gert þér í hugar-
lund, að það er ömurlegt að segja
frá því, hve margir féllu úr her-
deildinni okkar. Bezti vinur
minn var skotinn til bana.
Seinna leituðum við í húsunum
og skutum til bana alla, sem við
fundum, konur og börn. Ekki
veit ég, hvað um mig verður,
þegar ég sný heim aftur, taugar
mínar eru gjörsamlega farnar.
Og 3. maí verðum við að leggja
af stað í nýjan leiðangur. Nú er
barizt uppi í fjöllunum."
Jafnframt því að í Sóvíetríkj-
unum hefur verið svo til þagað
um styrjöldina í Afganistan,
hefur að sjálfsögðu verið reynt
að leyna þar mannfalli af
fremsta megni. Hafa særðir
menn, lýttir og bæklaðir, fengið
læknismeðferð á sjúkrahúsum í
Austur-Þýzkalandi og heilsu-
hælum við Svartahaf og hafa
ekki mátt sjást á almannafæri.
Þegar lík fallinna hermanna eru
send heim, eru þau send í lokuð-
um kistum og reynt að grafa þær
með leynd. Stundum tekst það
ekki.
Vinir Vladas Cereska í Lítáen
vissu, að von var á líkkistu hans
og héldu vörð á járnbrautarstöð-
inni í þrjá daga. Þegar hún loks
kom, tókst þeim að hrifsa hana
úr höndum hermanna og lög-
reglu og stofna til líkfylgdar um
bæinn með logandi kyndlum.
(Byggt á grein í Wall Street Journal)
Ný stjórn Framfara-
félags Breiðholts III
AÐALFUNDUR Framfarafélags
Breiðholts III var haldinn 22. febrú-
ar sl. í hinni nýju menningarmiðstöð
við Gerðuberg og var þá kjörin ný
stjórn. Stjórnina skipa 11 menn og 4
til vara.
Formaður var kosinn Gísli
Sváfnisson, Krummahólum 10.
Aðrir í stjórn eru Valdimar
Ólafsson, Viðar Ágústsson, Helga
Magnúsdóttir, Lena M. Rist, Vilm-
ar Pedersen, Ásta Björk Svein-
björnsdótir, Halldóra Björnsdótt-
ir, Pétur Ársælsson, Gísli Jónsson
og Jóhann Arnfinnsson. Vara-
menn eru Hlín Gunnarsdóttir,
Inger Halldórsdóttir, Anna Gígja
Guðbjartsdóttir og Guðmundur
Björnsson.
í frétt frá félaginu segir m.a. að
á aðalfundinum hafi eftirfarandi
ályktun verið samþykkt sam-
hljóða: „Aðalfundur Framfarafé-
lags Breiðholts III harmar að ekki
hafi verið unnt að veita fé til inn-
réttinga og bókakaupa til Borg-
arbókasafns Reykjavíkur við
Gerðuberg á yfirstandandi ári.
Fundurinn skorar á borgaryfir-
völd að endurskoða ákvörðun sína
og leita allra leiða til fjáröflunar
svo unnt verði að opna safnið á
þessu ári.“
Gestir þessa fyrsta aðalfundar
félagsins í menningarmiðstöðinni
voru Markús Örn Antonsson,
borgarfulltrúi og Elva Björk
Gunnarsdóttir, borgarbókavörður.
Frá aðalfundi Framfarafélags Breiðholts III í nýju menningarmiðstöðinni.
Bæjarþing Reykjavíkur:
Kjarnfóðurgjald
bráðabirgðalag-
anna ólöglegt
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnað-
arins, landbúnaðarráðherra og
fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkis-
sjóðs voru fyrir skömmu dæmdir í
bæjarþingi Reykjavíkur til að
endurgreiða Árna Möller, bónda á
Þórustöðum, 25.730 krónur vegna
álagðs kjarnfóðurgjalds á tímabil-
inu 8. júlí 1980 til 29. maí 1981.
Árna voru dæmdar 9.907 krónur í
vexti og stefndu greiða málskostn-
að, 12.000 krónur.
í júní 1980 voru sett bráða-
birgðalög um breytingu á lögum
um framleiðsluráð landbúnað-
arins frá 1979 þess efnis, að
heimilað var að sérstakt gjald á
innflutt kjarnfóður mætti vera
allt að 200% á innkaupsverð
vörunnar. I lögunum frá 1979
var fyrir heimild til framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins að leggja
gjald á innflutt kjarnfóður og
ráðstöfun þess. Gjaldtaka sam-
kvæmt þessu ákvæði kom þó
ekki til framkvæmda fyrr en 1.
júlí 1980 eftir að lögunum hafði
verið breytt.
Frá 24. júní til 30. september
samþykkti stefndi að framleið-
endur eggja, fuglakjöts og
svínakjöts fengju afgreitt
kjarnfóður með 50% álagi á cif-
verð. Gjaldið var lækkað á ali-
fugla- og svínafóðri í 40% frá og
með 5. ágúst 1980 og frá 1.
október 1980 hefur síðan verið
innheimt 33,33% á fóður til
allra búgreina.
Bráðabirgðalögin voru af-
greidd frá Alþingi 29. maí 1981,
en með þeirri breytingu að land-
búnaðarráðherra í stað fram-
leiðsluráðs áður var veitt heim-
ild til ákvörðunar á töku gjalds-
ins og ráðstöfunar á því.
Aðalkrafa Árna var að honum
yrðu greiddar 49.536 krónur auk
vaxta. Þessi krafa var byggð á
því, að álagning gjaldsins hafi
verið ólögmæt, þar sem framsal
Alþingis á skatti samrýmist
ekki ákvæðum í stjórnar-
skránni.
Til vara krafðist stefnandi að
Harkan sex í
Austurbæjarbíói
„HARKAN SEX“ heitir ný amerísk
kvikmynd, sem Austurbæjarbíó er
að hefja sýningar á. Þetta er litmynd
frá Warner Brothers, sem heitir á
frummálinu: „Sharky’s Machine” og
er myndin gerð eftir bók William
Diehl.
Aðalhlutverk leikur Burt Reyn-
olds, Rachel Ward, Vittorio
Gassman o.fl. í umsögn kvik-
myndahússins segir, að myndin sé
spennandi en hún segir frá störf-
um lögreglumanns í fíkniefnadeild
lögreglunnar i Atlanta, stærstu
borg Georgiu-ríkis í Bandaríkjun-
um.
honum yrði endurgreitt kjarn-
fóðurgjaldið á tímabilinu frá
júlí 1980 til 29. maí, eða þar til
bráðabirgðalögin voru afgreidd, “
alls krónur 25.730 auk vaxta.
Varakrafan er byggð á því, að
álagning skattsins hafi verið
ólögmæt þar til lögin frá 29. maí
1981 hafi komið til fram-
kvæmda. Óheimilt sé að fram-
selja vald til álagningar skatta
til framleiðsluráðs landbúnað-
arins.
I niðurstöðum dómsins er að-
alkrafan ekki tekin til greina,
þar sem löglega hafi verið staðið
að framsali löggjafans á skatta-
ákvörðunarvaldi til ráðherra, en
í dómsniðurstöðum segir einnig:
„Þegar litið er til þess, að und-
antekningar þær frá meginregl-
unni um að skattar skuli álagðir
af löggjafanum hafa hingað til
lotið að handhöfum fram-
kvæmdavalds með ráðherra-
ábyrgð skv. 14. gr. stjórnar-
skrárinnar, sem bera stjórn-
málalega ábyrgð og eru háðir
eftirliti og reikningsskilum
gagnvart Alþingi, verður að
telja, að svo mikill munur sé á
slíku framsali skattlagningar-
valds og því, sem mál þetia
fjallar um, að of langt hafi hér
verið gengið. Því ber að fallast á
með stefnanda, að framangreind
bráðabirgðalög hafi falið I sér
óheimilt framsal löggjafans á
ákvörðun skatta og ráðstöfun
þeirra, og gjaldtaka stefndu hafi
því verið óheimil. Með lögum nr.
45, 29. maí 1981 var landbúnað-
arráðherra í stað framleiðslu-
ráðs áður veitt gjaldtökuheim-
ildin, sem einnig var breytt að
nokkru. Þar með verður að telja,
að lagfærðir hafi verið þeir
annmarkar, sem hér teljast hafa
verið á fyrrgreindu fyrirkomu-
lagi.“
Málið var höfðað með tilstyrk
réttarverndarsjóðs Verzlunar-
ráðs íslands.
Pólland:
Hundruðir í mót-
mælaaðgerdum
Varsjá, 14. mars. AP.
MILLI 1.000 og 1.500 manns söfnuð-
ust saman til friðsamlegra mótmæla
vid minnisvarða fallinna verka-
manna fyrir utan Lenin-skipasmíöa-
stöövarnar í Gdansk í gær, annan
daginn í röö, en á sunnudaginn voru
einnig mótmælagöngur stuönings-
manna Samstöðu í Varsjá, Wroclaw
og Kaliszn.
Aðgerðirnar fóru fram eftir að
dreifibréf hvöttu fólk til þeirra í
lok síðustu viku. Lögregluvörður
og hermenn fylgdust vel með því
sem fram fór og hvöttu fólk með
gjallarhornum til að hafa sig á
brott til síns heima. Því var jafn-
an svarað með bauli, milli þess
sem göngufólkið söng ættjarðar-
söngva.
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
ætlaði að taka þátt í mótmælun-
um í Gdansk á sunnudaginn, en
lögreglan stöðvaði bifreið hans og
vísaði honum á brott, að öðrum
kosti myndi hann sæta varðhaldi.
Walesa gerði síðan enga tilraun til
að taka þátt í aðgerðunum í gær.
Lögreglan handtók ótiltekinn
fjölda ungmenna í gær, en öllum
var sleppt eftir að aðgerðirnar
höfðu fjarað út.