Morgunblaðið - 16.03.1983, Side 15

Morgunblaðið - 16.03.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983 63 Þekktur jazzleik- ari í heimsókn DAGANA 16. til 23. mars verður staddur hér á landi saxófónleikarinn og útsetjarinn Ernie Wilkins. Hann kemur hingað á vegum Nordjazz og mun leiðbeina Stórsveit FIH og Stórsveit (bigbandi) Tónlistarskóla FÍH og kenna í þeim skóla. Þá kem- ur hann fram á jazzhljómleikum þeim sem Jazzvakning mun efna til 22. mars í minningu Gunnars Ormslevs. Þar mun hann stjórna fyrrnefndum stórsveitum og leika með hljómsveit Guðmundar Ing- ólfssonar. I fréttatilkynningu frá jazzdeild FlH segir: Ernie Wilkins á að baki langan og fjölbreytilegan tónlistarferil. Á fimmta áratugnum lék hann með hljómsveitum George Hudson og Earl „Fatha" Hines, 1951—55 lék hann með hljómsveit Count Basies og lék einnig á svipuðum tíma með Dizzy Gillespie. Á sjötta áratugn- um útsetti hann fyrir sveitir Count Basie, Tommy Dorsey og Harry James. Síðar starfaði hann mikið með Clark Terry. Wilkins hefur á ferli sínum útsett fyrir fleiri tugi tónlistarmanna og starfað með flestum þekktustu jazzmönnum vorra tíma. Fyrir nokkrum árum flutti hann til Kaupmannahafnar og þar hefur hann skrifað fyrir og stjórn- að Radioens Big Band og einnig verið með sína eigin hljómsveit, Ernie Wilkins Almost Big Band. Hún hefur leikið inn á 2 hljóm- plötur sem báðar hafa fengið drjúgt hrós, jafnt f bandarískum tónlistarblöðum sem evrópskum. Stjórn Múrara- félags Reykja- víkur sjálfkjörin MIÐVIKUDAGINN 9. febrúar sl. rann út frestur til að skila listum til kjörs stjórnar- og trúnaðarmanna- ráðs í Múrarafélagi Reykjavíkur fyrir árið 1983. Einn listi barst, listi stjórnar- og trúnaðarmannaráðs og var hann því sjálfkjörinn. Stjórn- og trúnaðarmannaráð skipa eftir- taldir menn: Formaður Helgi Steinar Karlsson, varaformaður Gísli Dagsson, ritari Rafn Gunn- arsson, gjaldk. félagssj. Örn Karlsson og gjaldk. styrktarsj. Óli Kr. Jónsson. Varastjórn Eiríkur Tryggvason, Jóhannes Æ. Hilm- arsson og Hörður Runólfsson. Trúnaðarmannaráð Gunnar M. Hansen, Gisli Magnússon, Ólafur Veturliðason, Jón G.S. Jónsson, Gunnar Sigurgeirsson og Jónas Garðarsson. Varamenn í trúnað- armannaráði: Trausti L. Jónsson, Sveinn Páll Jóhannesson og Guð- mundur E. Hallsteinsson. Hclgi Steinar Karlsson Arnþór Helgason: „Mér finnst æskilegra að vinna með fólki en á móti“ ÁKVEÐIÐ hefur verið að ráða Arnþór Helgason sem deildarstjóra náms- bóka Blindrabókasafnsins. Sem kunnugt er urðu miklar deilur er meiri- hluti stjórnar Blindrabókasafnsins hafnaði umsókn hans á þeim forsend- um að blindur maður gæti ekki sinnt þessu starfi. Sendi Arnþór máliö til cndurskoðunar í menntamálaráðuneytið og varð úrskúrður þess sá að Arnþór teldist hæfur í starfið og verður þvf ráðinn. „Ég er feginn að þessu skuli vera lokið," sagði Arnþór þeg- ar Mbl. heimsótti hann. „Þetta var prófmál fyrir fatlaða og er mikill áfangasigur. Yfir fjór- menningunum gæti ég þulið heila skammarræðu, en ég held að ég láti það ógert. Ég fæ ekki skilið af hverju þau köll- uðu umsækjendur ekki fyrir í viðtal, því ég er þess fullviss að hefði ég fengið að ræða við stjórnina áður en þau höfnuðu umsókn minni hefði ekki til þessa máls komið. Ég hefði getað útskýrt fyrir þeim í hverju starfið væri fólgið, en það ætti ég að vita manna best, þar sem ég var með í að búa til starfslýsingu fyrir starfið. Þegar ég sótti um vissi ég því fullkomlega hvaða kröf- ur voru gerðar. Ég hef starfað við safnið í mörg ár. Frá því að hljóðbóka- gerðin var stofnuð 1976 hef ég verið þar með annan fótinn og í föstu starfi frá 1980. Ég vil þakka menntamála- ráðherra og öllum þeim sem stóðu eins og þéttur veggur gagnvart fjórmenningunum og sýndu meiri skilning en ég átti von á, og Ingvars Gíslasonar verður lengi minnst fyrir þessa stöðuveitingu. Ekki vegna þess að ég átti í hlut heldur braut hann blað í sögu fatlaðra. Þetta mál hefur vakið mikla athygli enda er það hluti af jafnréttisbaráttu fatlaðra. Og þó búið sé að setja lög um jafn- réttið þá þýðir það ekki að jafnréttisbaráttunni verði ekki að halda áfram. Nú ber að snúa sér að því að tryggja hagsmuni þeirra blindu nemenda sem eru að hefja framhaldsnám, það er menntaskólanám. Verður að tryggja fjármagn til að hægt sé að útbúa sómasamleg náms- ögn fyrir þessa nemendur, en starf mitt verður m.a. einmitt fólgið í því að aðstoða fram- „Ég er feginn þvf að þessu er lok- ið.“ haldsnemendur, afla og láta búa til námsögn fyrir sjón- skerta. Mér dettur svona í hug, að eitt af því sem fjórmenn- ingarnir höfðu á móti mér var að ég ætti erfitt með að kom- ast á milli staða. Nú er það þannig að slíkt er ætíð talið eftir þegar fatlaðir eiga í hlut. Þú sem sjáandi blaðamaður ert aftur á móti með leigubíla- styrk og enginn sér neitt at- hugavert við það. Taktu eftir því. En þrátt fyrir allt og allt þá endurtek ég það sem ég sagði einu sinni, þegar írskur blaða- maður spurði mig hvernig er að vera blindur á íslandi. Ég svaraði: „It is very nice.“ Til- veran er ekki neitt myrkur fyrir blinda, það er mesti mis- skilningur. Myrkur held ég að sé aðallega sálræns eðlis. Að endingu vil ég segja að héðan í frá þegar ég sé að brot- inn er réttur einstaklings sem hægt er að rétta með sann- girni, þá er ég tilbúinn að demba mér út í baráttu, þó það kosti hörkuátök. Um leið og maður beitir sér fyrir rétti annarra er maður að tryggja eigin framgang. Ekki bara það að maður veit aldrei hvenær maður stendur í sömu sporum, heldur finnst mér æskilegra að vinna með fólki en á móti.“ m.e. Baldvin Ottóson afhendir Baldvin Þ. Kristjánssyni skjal um heiðursfélaga- nafnbótina. MorxunblaAid/ Krislján Einarsson. Frá fulltrúafundi landssamtakanna. Baldvin Ottóson formaður samtakanna í rædustól. MorgunbUðið Kristján Einarsson. Baldvin Þ. Kristjánsson kosinn heiðurs- félagi samtakanna Klúbbarnir öruggur akstur NÍUNDI fulltrúafundur landssam- taka Klúbbanna öruggur akstur var nýverið haldinn í Reykjavík, en þar voru flult mörg erindi um ýmislegt er vegum og umferð viðkemur, og einnig samþykktar margar ályktan- ir. Fundinn setti Baldvin Ottósson formaður samtakanna og við þaö tækifæri afhenti hann Baldvin Þ. Kristjánssyni fyrrverandi félags- málafulltrúa hjá Samvinnutrygging- um skjal til marks um það að sam- tökin hefðu gert hann að fyrsta heið- ursfélaga sínum. Baldvin Þ. Kristjánsson var frumkvöðull að stofnun Klúbb- anna öruggur akstur um land allt, en þeir eru nú 33 að tölu. Klúbb- arnir voru stofnaðir að tilhlutan Samvinnutrygginga og tilgangur þeirra er að stuðla að öryggi í akstri á hverjum stað. Meðal þess sem fulltrúaráðs- fundurinn ályktaði var áskorun á stjórnvöld um að frumkennsla í umferðarreglum fyrir bifreiða- stjórapróf yrði færð inn í skóla- kerfið, og að við endurnýjun öku- skírteina yrðu ökumenn að gang- ast undir hæfnispróf. Ennfremur benti fundurinn á nauðsyn þess að koma skipulagðri umferðar- fræðslu inn á stundaskrár skól- anna í landinu, og var aðstoð sam- takanna boðin fram í þeim efnum. Jafnframt að kennsla í meðferð léttra bifhjóla yrði kennd í níunda bekk grunnskóla sem valfag. Öku- menn slíkra hjóla verði að sýna lágmarkshæfni, sem könnuð verði árlega. Einnig að reglum um skráningu léttra bifhjóla verði breytt, einkum í því tilliti að erfið- ara verði að auka afl þeirra og hraða eftir skráningu, og að létt bifhjól, sem breytt hefur verið eft- ir skráningu og gerð aflmeiri og hraðskreiðari, verði skráð sem bifhjól. Ennfremur var skorað á um- ráðamenn og eigendur dráttarvéla og annarra vinnuvéla, að þeir sjái svo um, að stjórntæki vélanna séu ætíð í fullkomnu lagi. Skrán- ingarspjöld séu vel læsileg og lögboðnum tryggingum verði við haldið. Einnig að engar dráttar- vélar verði afhentar frá umboði til eigenda nema þær væru skrásett- ar og tryggðar. Þá var skorað á dómsmálaráð- herra að efla starfsemi Umferð- arráðs svo það gæti betur sinnt þeim verkefnum, sem gert væri ráð fyrir í umferðarlögum. Jafn- framt að leita bæri betur en gert hefði verið orsaka tíðra umferð- arslysa í dreifbýli og niðurstöður rannsókna birtar öðrum til varn- aðar. Auk þessa fagnaði fundurinn framkominni áætlun um lagningu varanlegs slitlags á stofnbrautir og skoraði á stjórnvöld að þær yrðu gerðar að aðalbrautum. Ennfremur að umferðaröryggi barna verði tryggt sem best við og í nágrenni skóla. Einnig að lögleg- ur hámarkshraði yrði ætíð miðað- ur við aðstæður hverju sinni, og að viðkomandi yfirvöld nýti heimild til að bre.vta hámarksökuhraða til lækkunar fyrirvaralaust með til- liti til aðstæðna hverju sinni. Loks skoraði fundurinn á stjórnvöld að hlutast til um að heildarendurskoðun umferðarlaga verði hraðað, því mikilsvert væri að umferðarlög fylgdu tímans rás hverju sinni. Einnig að haldið verði á árinu námskeið í umferð- arfræðslu fyrir kennara og leið- beinendur, og að bætt verði úr merkingum vega þar sem henni er ábótavant, t.d. við mjóar brýr og hættuleg ræsi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.