Morgunblaðið - 31.03.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983
Fegurðarsamkeppni
íslands haldin í maí
ÁKVEÐIÐ hefur veriö aö halda Feg-
urðarsamkeppni fslands á Broadway
13. og 20. maí nk. Er þegar byrjað að
taka við ábendingum hjá Auglýs-
ingastofunni Gott fólk hf., Suður-
landsbraut 4.
Að sögn nýrra forráðamanna
Fegurðarsamkeppninnar hafa þær
stúlkur, sem tóku þátt í keppninni
á síðasta ári fengið tilboð um ýmis
störf erlendis og þá einkum mód-
elstörf, en ein þeirra hefur fengið
tilboð um að leika í kvikmynd, sem
aðstandendur óskarsverðlauna-
myndarinnar „Eldvagninn" stóðu
að. Tökur á þessari nýju mynd
hefjast eftir rúman mánuð og tal-
ið er fullvíst að í aðalhlutverkum
verði skærustu stjörnur popp-
heimsins í dag.
Lækkun á verði
Lignano-ferða
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Ferðaskrifstofunni Útsýn:
Ítalíukynningin, sem fram fór í
Reykjavík um síðustu helgi á veg-
um Útsýnar og ferðamálaráðs
Lignanoborgar, vakti mikla at-
hygli og var fjölsótt. Voru ítalirn-
ir svo hrifnir af móttökum íslend-
inga að þeir ákváðu að halda sér-
stakt boð fyrir alla Útsýnarfar-
þega í Lignano í sumar. Mesta
ánægju mun þó vekja, að sam-
ningar tókust um lækkun gisti-
verðs á nýjum gististað í háum
gæðaflokki, OLIMPO, sem stendur
á undurfögrum stað við snekkju-
höfnina í Lignano, en á hina hlið
er sjálf „gullna ströndin".
OLIMPO er rólegur, vandaður
gististaður með íbúðir í þrem
stærðarflokkum með öllum til-
heyrandi búnaði, þar sem íslenzkt
starfsfólk er til þjónustu bæði á
eigin skrifstofu Útsýnar og til að
annast eftirlit og ræstingu íbúða.
Á jarðhæð hússins er fullkomin
þjónustumiðstöð með verzlunum
og veitingastöðum, bankaþjónustu
o.s.frv. Á grundvelli þessara nýju
samninga mun Útsýn geta lækkað
ferðakostnað í flestum ferðum til
Lignano um 8%.
Þá hefur Útsýn einnig tekizt að
fá lækkuð gistiverð fyrir fjöl-
skyldur í vorferðinni til Costa del
Sol 10. apríl til 5. maí, sem er
nærri fjögurra vikna ferð. Hér er
um algjört sértilboð að ræða, þar
sem verðið ej aðeins frá kr. 7.900 á
mann, sé um 4 manna fjölskyldu
að ræða.
Rut Ingólfsdóttir
leikur einleik
FÖSTUDAGURIN langi er sorg-
þrungnasti dagur ársins. Þá eru eng-
in Ijós tendruð í kirkjum, og guðs-
þjónustur bera sterkan svip af at-
burðum þeim, sem minnst er. Við
messugjörðir mínar á þessum degi í
Sýning á Iist-
vefnaði
Litla-Hvammi, 30. ma.~s.
Sigrún Jónsdóttir opnar sýningu á
listaverkum sínum í samkomuhúsinu
Leikskálum Vík í Mýrdal, laugardag-
inn fyrir páska klukkan 16.00. Er hér
um að ræða allslags vefnað og út-
saum varðandi kirkjubúnað.
Sýningin stendur til þriðjudags-
ins 5. apríl og eru allir velkomnir.
- Sigþór.
Dómkirkjunni hefur á undanförnum
árum skapast sú hefð, að mjög mikið
er lagt upp úr flutningi fagurrar tónl-
istar og gjarnan fenginn þekktur
listamaður til „sólóhlutverks".
Að þessu sinni er það Rut Ing-
ólfsdóttir fiðluleikari. Hún leikur í
messunni kl. 11, en auk þess syng-
ur Dómkórinn hið fagra lag Moz-
arts „Ave verum corpus". Þá verð-
ur litanía sr. Bjarna Þorsteinsson-
ar sungin og einnig lag Páls ís-
ólfssonar við sálminn „Eg kveiki á
kertum mínum". Að sjálfsögðu
verða lesin lok píslarsögunnar og
flutt stutt hugleiðing.
Ég vænti þess, að þeir sem
leggja leið sína til þessarar messu-
gjörðar á langafrjádag kl. 11 eigi
þar góða stund, ríka af andblæ
hins helga minningardags.
Þórir Stephensen.
Leikendur í uppfærslu Leikdeildar Umf. Skallagríms í Borgarnesi á
gamanleiknum Hvftu kanínunni ásamt Sævari Pálssyni leikstjóra.
Leikdeild Umf. Skallagríms í Borgarnesi:
Hvíta kanínan frumsýnd
LEIKDEILD Ungmennafélagsins
Skallagríms frumsýnir nú um
páskana gamanleikritið Hvítu kan-
ínuna f samkomuhúsinu í Borgar-
nesi.
Leikritið er eftir bandarísku
blaðakonuna og leikritaskáldið
Mary Chase og var það fyrst sett
á svið 1944 í Bandaríkjunum við
miklar vinsældir. 17 manns taka
þátt í uppfærslu leikdeildarinn-
ar, en leikstjóri er Sævar Páls-
son. Með aðalhlutverk fer
Hreggviður Hreggviðsson. Loks
má geta þess að leikritið var sett
upp í Þjóðleikhúsinu 1953 og þá
undir heitinu Harway.
Hátíð til
ágóða fyrir
sjónstöð
blindra
Á ANNAN í páskum verður mikil
fjölskylduhátíð í Laugardalshöllinni,
sem Kiwanisklúbburinn Esja stend-
ur fyrir og er til ágóða fyrir byggingu
sjónstöðvar í viðbótarbyggingu
Blindrafélagsins í Hamrahlíð 17 hér í
bænum.
Happdrætti hleypti klúbburinn
af stað fyrir nokkru og voru gefnir
út 12.000 happdrættismiðar, en
vinningurinn er Nissan Cherry,
bíll sem er að verðmæti 220.000 kr.
Á fjölskylduhátíðinni munu
skemmta fjöldi landskunnra
skemmtikrafta, flutt tónlist af
ýmsu tagi, farið með gamanmál og
einnig verður bingó. — Kíwanis-
klúbbsmenn segja að hápunktur-
inn í hátíðarhöldunum verði er
dregið verður í happdrættinu um
bílinn. — Hugsanlegt er að vinn-
ingshafi verði þá sjálfur staddur á
hátíðinni og getur hann þá ekið
heim í bílnum. En drætti verður
einnig útvarpað. — Um kvöldið
verður svo heljarmikill dansleikur
fyrir unglinga í Höllinni og eiga
Grýlurnar að sjá um stemmning-
una.
Boeing 737 ótvírætt
hagkvæmasti kosturinn
— segir Agnar Frið-
riksson, framkvæmda-
stjóri Arnarflugs
ARNARFLUG fékk sl. þriðjudag af-
henta nýja þotu af gerðinni Boeing
737—200, sem félagið hefur tekið á
leigu frá hollenzka flugfélaginu
Transavia. Agnar Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri félagsins tók við vél-
inni á Amsterdam-flugvelli, en hún
mun að hans sögn verða notuð til
áætlunar- og leiguflugs milli landa.
Um er að ræða svokallaða
„Kombi-vél“, sem hentar vel til
flutninga á farþegum og vörum
samtímis, en vélin er með sérstök-
um fraktdyrum, sem gerir vöru-
flutninga mjög auðvelda. „Eftir að
hafa skoðað alla möguleika kom-
umst við að þeirri niðurstöðu, að
Boeing 737—200 væri hagkvæm-
asti kosturinn. Viö fáum vél af
heppilegri stærð, en hún getur
tekið allt að 130 farþega, auk þess
sem hægt er að breyta henni á
skömmum tíma, þannig að hægt
sé að flytja í henni samtímis far-
þega og vörur. Þá er vélin einhver
sú sparneytnasta sem völ er á,“
sagði Agnar Friðriksson.
Agnar sagði, að vöruflutningar
félagsins hefðu farið stöðugt vax-
andi undanfarna mánuði og því
myndi þessi vél henta sérstaklega
Efni páskablaðsins
MORGUNBLAÐIÐ, sem er 112 síður í dag, skírdag, er í þremur
hlutum. Miðhlutinn (bls. 49—80) fylgdi Morgunblaðinu í gær, en í
dag fá lesendur í hendur það sem á vantaði (bls. 1—48 og 81—112).
Páskablaðið að þessu sinni spannar öldungis vítt svið; ferðasög-
ur, stjórnmál, viðtöl, og listir af ýmsu tagi svo að eitthvað sé
nefnt. Markmiðið var að gera blaðið sem fjölbreytilegast og er
það von Morgunblaðsins að allir lesendur finni þar eitthvað við
sitt hæfi.
Meðal efnis í páskablaðinu er:
BLAÐSÍÐUR 1-48
Það er manngildið sem er og verður númer eitt.
Bragi Óskarsson ræðir við Björn Finnbogason í tilefni
áttræðisafmælis................................... bls. 12
Sigur lífs yfir dauðanum. Sveinn Guðjónsson fjallar
um páskaboðskapinn og gildi hans fyrir íslenska trú . bls. 16
Inni sváfu hænur á prikum og yfír staðnum hvfldi ró.
Árni Johnsen ræðir við Sigurgeir Jónsson sjómann og
kennara í Vestmannaeyjum.......................... bls. 22
A hjara veraldar. Arnaldur Indriðason fjallar um nýja
íslenska kvikmynd sem verður frumsýnd um páskana ... bls. 24
„Við erum ennþá með svuntuna.“ Jóhanna Kristjónsdóttir
fjallar um stöðu ísraelsku konunnar .............. bls. 38
Strengbúinn silfurklæddi. Guðmundur Guðjónsson fjallar
um sögu Atlantshafslaxins ........................ bls. 42
BLAÐSÍÐUR 49—80
Kjarnorkubólan á íslandi sumarið 1980.
Björn Bjarnason rifjar upp atburði frá árinu 1980 um hvort
kjarnorkuvopn séu á fslandi ...................... bls. 50
Þar snerist heimurinn ekki hratt. Þórarinn Ragnarsson segir
Með vatnsliljunum hans Monets. Elín Pálmadóttir
Valli víðförli. Fríða Proppé segir frá ferðalagi rostungs
BLAÐSÍÐUR 81—112
Telexið í Taipai. Þorbjörn Guðmundsson segir frá
Blóðhundur Hitlers.
Guðmundur Halldórsson fjailar um Erich Koch sem var
Matreiðslubók landshöfðingjans.
Elísabet Jónasdóttir fjallar um matreiðslubókarskrif
Væri nánast tilgangslaust að byrja á verkinu núna.
Anders Hansen ræðir við Lúðvík Kristjánsson rithöfund
Við höldum okkar striki. Sigurður Sverrisson fjallar um
isiensku hljómsveitina Mezzoforte ...........
ÞJÓNUSTULIÐIR OG UPPLÝSINGAR:
bls. 58
bls. 64
bls. 74
bls. 86
bls. 90
bls. 98
bls. 100
bls. 110
bls. 95
Is. 6
bls. 40
bls. 10
bls. 37
bls. 18
bls. 68
■■■■
vel. „Við höfum t.d. ákveðið að
bæta fjórðu ferðinni við í viku á
Amsterdam í sumar, þar sem við
getum verið með blandað flug. Þá
gerum við ráð fyrir að fljúga
blandað flug næsta vetur til
Amsterdam og fjölga ferðum þá
úr tveimur í viku í þrjár," sagði
Agnar ennfremur.
Það kom ennfremur fram hjá
Agnari, að Arnarflug hefur verið
með Boeing 737—200 þotur í
rekstri síðan 1981, en félagið fékk
þá fyrst íslenzkra félaga slíka vél.
Önundur Jóhannsson, flugstjóri,
sagði í samtali við Mbl., að þessar
vélar hefðu reynzt mjög vel þau
tvö ár, sem félagið hefur haft þær
í rekstri. „Þetta eru mjög spar-
neytnar vélar, auk þess sem þær
eru mjög liprar og þægilegar í
meðhöndlun. Ég tel þessa vél
ótvírætt bezta kostinn fyrir félag-
ið,“ sagði Öndundur ennfremur.
Afmælisfund-
ur AA-samtak-
anna á morgun
Afmælisfundur AA-samtakanna
sem berjast gegn áfengisvandanum
verður haldinn að venju á fóstudag-
inn langa í Háskólabíói kl. 21. Þar
koma fram ýmsir AA-félagar og einn-
ig gestir frá samtökunum Al-Anon og
Ál-Áteen. Kaffíveitingar verða eftir
fundinn. íslensku AA-samtökin voru
stofnuð á róstudaginn langa 1954,
eða fyrir 29 árum. Nú eru starfandi
133 deildir á vegum AA-samtakanna
á íslandi og 2 á vegum íslendinga
erlendis, sem hver um sig heldur
a.m.k. einn fund í viku.