Morgunblaðið - 31.03.1983, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983
Nýjar tillögur Reagans:
„Best er
‘ sem
eigi
W a.shington, 30. raars. AP.
Bandamenn Bandaríkjanna
innan NATO hafa lýst ánsegju
sinni með hinar nýju tillögur Ron-
ald Reagan Bandaríkjaforseta um
að draga úr kjarnorkuvígbúnaði í
að báðir aðilar
fæstar flaugar“
Evrópu. Sovétmenn hafa enn sem
komið er ekki tjáð sig um tillög-
urnar sem fela í sér að Banda-
ríkjamenn haldi við stefnu sína og
áætlun að koma fyrir hluta þeirra
Samstaða boðar
til göngu 1. maí
Varsjá, 30. mars. AP.
Samstöðuleiðtogar sem starfa með
leynd í Varsjá hafa hvatt stuðnings-
menn sína til að fjölmenna í göngu
um götur gamla borgarhlutans í höf-
uðborginni þann 1. maí nk. Göngu-
áskorun þessari fylgja einnig viðvar-
anir: „Látið ekkert og engan koma í
veg fyrir það.“
Undir þessa áskorun skrifar
Zbigniew Bujak og tveir aðrir leið-
togar Samstöðu, sem starfa með
leynd í höfuðborginni, en skjal
þetta er hið fyrsta sem af fréttist,
um ráðagerðir óháðu verkalýðsfé-
laganna varðandi 1. maí, sem er
dagur verkalýðsins í Evrópu.
Stjórnvöld hafa lýst því yfir að
þau viti um ráðagerðir Samstöðu í
byrjun maímánaðar.
Skjali þessu var dreift til vest-
rænna fréttamanna á sama tíma og
háttsettur embættismaður innan
kommúnistaflokksins lýsti því yfir
að óeirðir borgaranna gætu orðið til
þess að ástand í Póllandi versnaði
til muna.
f áskoruninni er lagt til að verka-
menn taki ekki þátt í opinberum
samkomum í Varsjá þennan dag
þar sem „þetta sé ekki dagurinn til
að sýna yfirvöldum lotningu".
Á síðastliðnu ári tóku um 50.000
stuðningsmenn Samstöðu þátt í
göngu óháðu verkalýðsfélaganna 1.
maí í Varsjá án þess að til árekstra
kæmi við yfirvöld.
5—600 meðaldrægra eldflauga í
Vestur-Evrópu, en Sovétmenn
minnki sambærileg vopnabúr sín.
„Best væri að báðir aðilar ættu
engar flaugar, en fyrst það virðist
ómögulegt er best að báðir aðilar
eigi sem fæstar flaugar. Sovét-
menn hafa yfirburði á þessu sviði
eins og er, þannig að nýju tillög-
urnar fela í sér jöfnuð, við verðum
að byggja okkar kröfur á afvopn-
un á sambærilegum vopnastyrk,
annars geta Sovétmenn ráðskast
með málið að vild sinni, „sagði
Reagan við fréttamenn í gær.
Hann bætti við, að þessi lausn
gæti verið stökkpallur að núll-
lausninni sem Bandaríkjamenn
hafa til þessa haldið sig við. Reag-
an undirstrikaði að þessar nýju
tillögur fælu síður en svo í sér
stefnubreytingu NATO, miklu
Nýkomið
Spónaplötur, finnskar, 1. fl.
Krossviður, sléttur og rásaður, (3 teg.).
Harðviður, ofnþurrkaður.
PÁLL ÞORGEIRSSON & CO,
Ármúla 27. — Símar 34000 og 86100.
fremur væri bandalagið að höggva
á hnútinn sem Sovétmenn hafa
hert fast að með óbilgirni sinni í
Genf-viðræðunum. Reagan sagði
það raunhæfa von að Sovétmenn
gætu fallist á tillögurnar, annað
hvort óbreyttar en þó frekar lag-
færðar.
Hlé hefur verið gert á viðræðun-
um í Genf, en reiknað er með því
að næsta lota hefjist þar í maí.
Viðræðunum lauk tveimur vikum
á undan áætlun, en það endur-
speglar þann litla árangur sem til
þessa hefur náðst. Bandarískir
embættismenn lögðu á það
áhersiu í gær, að tillögurnar nýju
höfðuðu ekki einungis til Vestur-
Evrópu. Þ.e.a.s. það yrði ekki látið
nægja að Sovétmenn færðu flaug-
ar sínar til, slíkt myndi stofna ör-
yggi annarra landa í hættu.
Jóhannes Páll páfi II sést hér
við dyr Péturskirkjunnar í
Róm sl. föstudag vegna vígslu-
athafnar í sambandi við ár
hjálpræðisins, sem kaþólska
kirkjan gengst fyrir.
Páskaguðsþjónustur
Fíladelfíu
Skírdagur kl. 14.00 safnaöarguösþjónusta. Kl. 20.00 almenn guös-
þjónusta.
Föstudagurinn langi kl. 20.00 almenn guösþjónusta.
Laugardagur kl. 20.30 páskavaka.
Páskadagur kl. 20.00 almenn guösþjónusta.
2. páskadagur kl. 20.00 almenn guösþjónusta.
Ræöumenn Árni og Urban Widholm frá Svíþjóö ásamt innlendum
ræðumönnum. Fjölbreyttur söngur.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía, Hátúni 2.
„711 BENIDORM A SPANI
FJÖGURRA VIKNA HRBB&
A ÞMGGJA
VIKNAVERM
Vorferð eldri borgara
Ferðamiðstöðin hefur undanfarin vor efnt til sérstakra ferða fyrir eldri-
borgara. Að þessu sinni er þessi ferð 28 dagar/fjórar vikur á sama verði
og þriggja vikna ferðirnar.
Hjukrunarfræðingur verður með í ferðinni. Styttið veturinn og njótið
vorsins á besta sumarleyfisstað Spánar — Benidorm.
Fjölskyldirferd Frítt fyrir bömin
Auðvitað er fjölskyldufólki boðið að taka þátt í þessari vorferð og til
þess að bæta þetta verðtilboð (fjögurra vikna ferð á þri|gja viku verði)
bjóðum við nú frítt far fyrir börnin.Góðar íbúðir eða hotel með fæði.
FM- Ferðakín
FERÐAMIÐSTÖÐIN býður upp á sérstök FM—ferðalán sem byggj-
ast á innlángreiðslum mánaðarlega fram að brottför, og síðan jöfnum
afborgunum í tiltekinn tíma eftir að heim er komið. Kynntu þér þessi
hagkvæmu greiðslukjör og staðgreiðsluafsláttinn.____
FERDAMIÐSTÖDIN
AÐALSTRÆTI9
SÍMI28133 11255