Morgunblaðið - 31.03.1983, Side 5

Morgunblaðið - 31.03.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983 5 .. ■ ■ Fálkinn óskar ykkur góðs gengis á skíðalandsmótinu um páskana Einar Ólafsson, ganga. Einar Úlfsson, alpagreinar. Ríkhard Sigurösson, alpagreinar. Árni Sæmundsson, alpagreinar. Ingólfur Jónsson, Guöbjörg ganga. Haraldsdóttir, ganga. Gottlib Konráösson, ganga. Jón Konráösson, ganga. Magnús Eiríksson, ganga. Stella Hjaltadóttir, ganga. Allir ofangreindir skíðakapp- ar keppa á Fischer skíðum^ Auk þess sem svigakapparn- ir keppa á DACHSTEIN skóm og TYRÓLÍA bindingum. ATH.: Verslunin er opin á laug- ardag fyrir páska kl. 9—12. Nicaraguæ V opnaflutningar til E1 Salvador? Tegucigalpa, Honduras, 30. mars. AP. STJÓRNVÖLD í Honduras héldu því fram í dag, að hermenn frá Nicaragua hefðu verið staðnir að því að flytja vopn til sksruliða í El Salvador um landsvsði Honduras. Sandinista- stjórnin í Nicaragua segir flugher sinn hafa gert loftárásir á flugvöll í Hond- uras, sem uppreisnarmenn þar hefðu notað við birgðaflutninga. Tomas Borge, innanríkisráðherra sandinistastjórnarinnar í Nicar- agua, sagði, að fundist hefði litill flugvöllur skammt frá landamærun- um við Honduras og ljóst væri, að uppreisnarmenn hefðu notað hann við öflun vista og vopna. Gerðar voru loftárásir á flugvöllinn og sagði Borge, að margir skæruliðar hefðu fallið, en nefndi þó engar töl- ur. Talsmaður ríkisstjórnarinnar í Honduras sagði í dag, að komið hefði verið að 12 hermönnum frá Nicaragua í Honduras og hefðu þeir verið að koma vopnum til skæruliða í E1 Salvador. Sandinistastjórnin f Nicaragua hefur ekkert sagt um þessar fréttir en hún hefur margoft neitað ásökunum um að hún sjái skæruliðum í E1 Salvador fyrir vopnum. VERSLANIR OKKAR VERÐA OPNAR LAUGARDAG FRÁKL. 10—12 KARNABÆR LAUGAVEGI 66 GLÆSIBÆ - AUSTURSTRÆTI 22 SÍMI FRA SKIPTIBORDI 85055 BNOC lækk- ar verðið London, 30. mare. AP. BRESKA olíufélagið BNOC staðfesti í gær, að það myridi lækka olíuverð sitt. Tunnan af hráolíu úr Norðursjó mun framvegis kosta 30 dollara, kostaði áður 30,50 dollara. Önnur Norðursjávarolía lækkar úr 30,50 í 29,75 dollara. Þetta nýja verð geng- ur í gildi 1. aprfl. Einkaumboð á Islandi, FÁLKIN N s: 84671, Suðurlandsbraut 8. FISCHER — DACHSTEIN — TYRÓLÍA TOPPMERKIN í SKÍÐABÚNAÐI Ný ríkisstjórn í V-Þýzkalandi Aðeins 2 af 16 ráðherrum eru nýir Bonn, 30. mars. AP. HIN NÝJA ríkisstjórn Helmut Kohl, kanslara í Vestur-lózkalandi, sór emb- ættiseið sinn í dag og Karl Carstens, forseti Sambandslýðveldisins notaði tækifærið, er hann bar fram heillaóskir sínar, til þess að minna nýju stjórnina á að taka til óspilltra málanna við að leysa efnahagsvandamál landsins. Þar ber hsst atvinnuleysið, en nú eru um Fá að heim- sækja graf- ir látinna ættingja Lundúnum, 30. mare. AP. ÍBÚAR Falklandseyja létu óánægju sína í Ijósi í gsr með þá ákvörðun bresku ríkisstjórnarinn- ar að leyfa argentínsku fólki að heimsækja eyjarnar til þess að votta sttingjum, sem féllu í stríð- inu á eyjunum f fyrra, virðingu sína. Þrátt fyrir óánægju íbúanna ákvað landsstjórnin að leggja ekki fram formleg mótmæli. Tony Peck, einn meðlima landsstjórnarinnar, sagði marga hinna 1.800 eyjarskeggja líta á ákvörðun þessa sem brot á loforði Margaret Thatchers þess efnis, að engir Argentínumenn skyldu stíga fæti sínum á eyj- arnar þar til Argentínustjórn lýsti því yfir opinberlega að óvild í garð Breta væri ekki lengur fyrir hendi. Landstjóri eyjanna, Rex Hunt, var hins vegar ekki á sama máli og Peck og taldi í lagi að leyfa Argentínumönnum að votta látnum virðingu sína, svo fremi sannað væri, að þar væru á ferð nákomnir ættingjar. Breska utanríkisráðuneytið tók í sama streng og Hunt. Samkvæmt breskum skýrsl- um eru 334 argentínskir her- menn grafnir á eyjunum. Nær tveir þriðju hlutar þeirra eru óþekktir, en 114 eru nafngreind- ir. Til stendur, að hópur 500 Breta leggi upp til Falklands- eyja þann 8. apríl nk. til að heimsækja grafir náinna ætt- ingja, sem féllu í stríðinu. Eru það einkum foreldrar ungra hermanna, sem létust. 2,5 millj. manna atvinnulausar þar f landi og því fleiri en nokkru sinni eftir stríð. Aðeins tveir nýir ráðherrar eiga sæti í nýju ríkisstjórninni, en hún er skipuð 16 ráðherrum alls. Af þeim eru 8 úr röðum kristilegra demó- krata (CDU), 5 úr hópi CSU, flokki Josefs Strauss í Bæjaralandi og loks 3 úr flokki frjálsra demókrata (FDP). CSU hefur einum ráðherra fleiri en áður. Það er Ignaz Kiechle landbúnaðarráðherra, sem kemur í stað Josef Ertl frá FDP, en sá síðar- nefndi hafði gegnt embætti landbún- aðarráðherra í 13 ár. Hinn nýji ráð- herra í stjórninni er Heimrich Windelen frá CDU, sem tekur við af Rainer Barzel, sem ráðherra fyrir samþýzk málefni. Hans-Dietrich Genscher verður áfram utanríkisráðherra þrátt fyrir andstöðu Strauss.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.