Morgunblaðið - 31.03.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983
7
Utankjörstaðakosning
Utankjörstaöaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins í Valhöll
Háaleitisbraut 1 — Símar 30866, 30734 og 30962.
Sjálfstæöisfólk. Vinsamlega látiö skrifstofuna vita um
alla kjósendur, sem veröa ekki heima á kjördegi.
Utankjörstaöakosning fer fram í Miöbæjarskólanum
alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22.
Sunnudaga kl. 14—18.
Gleðilega páska
SVARTA
PAmA!>
Hraðrétta vdtingastaður
í hjarta borgarinnar
áhomi ^
Tryggvagötu og Pósthússtrætis
Súni 16480
Gengi 7/2 '83.
Wallas 1200
Eldavél m/miöstöö. Verö
til báta kr. 9.420. Eyðsla
aðeins 0.15 I per klst.
CTX1200
VHF bátastöö. Verö til
báta kr. 4.814. 25 wött,
12 rásir.
Áttavitar í úrvali fyrir
báta og til fjallgöngu.
Verö frá kr. 747.
Polaris 7100
Tölvuleitarinn meö
stefnuvitanum. Verö til
skipa kr. 18.800.
BENCO
Bolholti 4.
S. 91-21945 og 84077.
Þá er hvíldardagurinn var liðinn, keyptu þsr
María Magdalena, María móðir Jakobs og Sal-
óme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. Og
mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólar-
upprás, komu þær að gröfínni. Þær sögðu sín á
milli: „Hver mun velta fyrir oss steininum frá
grafarmunnanum?" En þegar þær ifta upp, sjá
þær, að steininum hafði verið velt frá, en hann
var mjög stór. Þær stíga inn í gröfína og sjá
ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri
skikkju og þær skelfdust. En hann sagði við
þær: „Skelfíst eigi. Þér leitið að Jesú frá Nas-
aret, hinum krossfesta. Hann er upprisinn."
Maríurnar og Salóme
voru ekki vitnisbærar í Israel.
Þær voru bara konur.
En Jesús valdi þær
einmitt þær
til að vera vitni um mestu tlðindi heimsins.
Þær sendi hann með boðskapinn
um upprisuna.
Ó, Jesús.
Þú mazt konur svo mikils.
Hjálpaðu þeim til að meta þig
og halda áfram að vitna um upprisuna
vitna fyrir konum og körlum
vitna með konum og körlum
um upprisu þína.
Biblíulestur
óiJcuna 3.—9. apríl
Páskadagur 3. apríl: Mark. 16:1—7.
a) Getur verið, að Jesús hafi í rauninni risið upp frá
dauðum? Hvað bendir til þess — Hvað dregur úr
líkum þess?
b) I I. Kor. 15:14 og 20 fjallar Páll postuli um upp-
risuna. Lestu það — ertu sammála honum?
Mánudagur 4. aprfl: Lúk. 24:13—25.
a) Frásagnir annarra af upprisu Jesú nægðu þess-
um mönnum ekki.
b) Þeir gengu með Jesú, en þekktu hann fyrst í
brotningu brauðsins. Hvað segir það okkur um
samfélag okkar við Jesúm?
c) Taktu eftir því, hvernig þeir breyttust við að
uppgötva hver samferðamaður þeirra var. Breyt-
ir Jesús okkur?
Þriðjudagur 5. aprfl: Matt. 28:1—10.
a) V.8: Konunum lá mikið á að flytja gleðitíðindin.
En okkur?
b) óttist-ekki — hvað fela þau orð í sér af munni
Jesú?
Miðvikudagur 6. aprfl. Matt. 20:11—20.
a) Upprisan er ósönnuð og ekki afsönnuð. Hverju
trúum við?
b) Forsenda — skipun — loforð. íhugaðu þessa
þætti í v. 18—20.
Fimmtudagur 7. apríl: I. Mós. 12:1—13:1.
Abraham leggur af stað í trausti til loforða Guðs, án
þess að hafa sannanir fyrir nálægð Guðs í hvívetna.
Þorum við það?
Föstudagur 8. apríl I. Mós. 13:2—18.
Abram vægir frekar en að standa í illdeilum við
frænda sinn. Drottinn endurnýjar loforð sitt, og
Abram reisir honum altari.
Laugardagur 9. aprfl: I. Mós. 14:1—24.
Abram sigrar í baráttunni, af því að Guð er með
honum. Blessun fól í sér áþreifanlega nærveru
Drottins í öllu lífinu.
A DROrnNSWCI
JUMSJÓN:
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Gunnar Haukur Ingimundarson
Séra Ólafur Jóhannsson
Jesás er upprisinn!
— Hvað viltu að kirkjan geri
fyrir þig?
— Ég vil að hún segi mér
sannleikann um Jesúm. Ég er
viss um að sá sannleikur er
mikilvægari en allt annað í lífi
mínu.
— Hvers vegna segirðu það?
Er það ekki nóg fyrir þig að eiga
fjölskyldu, vinna skemmtilega
vinnu og hafa góða heilsu og allt
annað, sem þú nýtur?
— Þetta er allt gjöf frá Guði.
Það að ég á þetta allt bendir mér
einmitt á Guð. Ég vil þekkja
Guð, sem blessar mig svo mikið,
enn betur.
— Hver er þessi sannleikur
um Jesúm?
— Hann er upprisinn. Hann
lifir. Hann er nálægur og elskar
mig.
— Það eru margir, sem elska
þig. Og það er fullt af fólki sem
þykist vera eitthvað sérstakt og
hafa einhvern sérstakan boð-
skap að flytja.
— En enginn nema Jesús hef-
ur risið upp frá dauðum. Hann
reis upp frá dauðum af því að
hann var sá Frelsari, sem Guð
sendi. Hann var sjálfur Guð,
sem kom niður til okkar mann-
anna til að lifa við sömu kjör og
við. En hann þoldi allt, sem á
hann var lagt, án þess að drýgja
nokkra synd. Hann, sem drýgði
enga synd, dó fyrir syndir mínar.
Þess vegna eru mínar syndir
fyrirgefnar.
— Þú hefur nú samt oft sam-
viskubit og heldur alltaf áfram
að gera ýmsar vitleysur, sem þú
sérð eftir og verða þér og öðrum
til tjóns.
— Ég veit það. Það verður
alltaf þannig. Én mig langar til
að læra betur að treysta því að
Jesús fyrirgefur mér það, sem ég
geri rangt á hverjum degi. Ég
má byrja næsta dag í nýjum
krafti og gleði og hann hjálpar
mér til að vanda mig betur þann
dag.
— Hann hjálpar mér til að
hjálpa þeim, sem ég hef skaðað
og sært. Ég veit að kraftur upp-
risu Krists getur gert líf mitt
þannig, sem mig langar svo mik-
ið að það verði, líf í heilindum.