Morgunblaðið - 31.03.1983, Síða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983
UM PÁSKANA?
Félagsheimili Ölfyssinga:
Sigurður Magnús
sýnir myndir unnar
úr íslenskum jarðvegi
Sigurður Magnús Sólmundarson
heldur myndlistarsýningu í félags-
heimili Ölfyssinga í Hveragerði dag-
ana 31. mars til 4. aprfl nk. Opið verð-
ur frá kl. 14 til 22 alla daga.
Þetta er fjórða einkasýning Sig-
urðar auk nokkurra samsýninga.
Allar myndirnar eru unnar úr ís-
lenskum jarðvegi, svosem gosefnum
hverasvæða, mislitu grjóti ásamt
timbri, járni og ýmsum gróðri.
Laugardaginn 2. apríl frá kl.
15—17 e.h. verður af og til flutt
steinaldarmúsík, leikin á grjót.
Flytjendur eru Jón Björgvinsson og
Kristrún Gunnarsdóttir, bæði úr
Revkjavík.
A sýniningunni verða ennfremur
til sýnis og sölu handunnir gripir,
gerðir úr tré.
Kaffiveitingar verða á boðstólum
meðan á sýningu stendur.
Hamraborg 12, Kópavogi:
Vestur-íslendingurinn Þór Magnússon sýnir
Nýlistasafnið:
Sýning Jóhönnu
Jóhanna Kristín Yngvadóttir, list-
málari opnar á morgun, fóstudaginn
langa, sýningu í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b.
Þetta er fyrsta einkasýning hennar.
A sýningunni verða tólf olíumálverk í
fígúratívum expressioniskum anda,
unnin á undanlorum þremur árum.
Jóhanna stundaði nám við Mynd-
lista og handíðaskóla Islands 1972
— ’76 og að því loknu fjögurra ára
framhaldsnám við Ríkisakademíuna
í Amsterdam.
Hún hefur áður tekið þátt í
nokkrum samsýningum og er það
helstar að nefna UM-sýninguna á
Kjarvalsstöðum og Gullströndin
andar í vetur.
Þór Magnússon heldur sýningu á
verkum sínum að Hamraborg 12 í
Kópavogi frá laugardeginum 2. aprfl
til 30. aprfl. Þór er Vestur-íslendingur
en hefur búið á íslandi sl. ár.
Þetta er fyrsta sýning Þórs hér á
landi, og sýnir hann bæði olíumál-
verk og teikningar. Sýningin verður
opnuð á laugardaginn kl. 13 og
stendur til 21 þann dag. Á sunnu-
dögum verður opið frá 14 til 18, en á
virkum dögum frá 9 til 18.
Sýningin er opin milli kl. 16—22
alla dagana. Henni lýkur 10. apríl.
Skruggubúð:
Fjörutíu súrrealistar sýna
í Skruggubúð, Suðurgötu 3a, verð-
ur opnuð á föstudaginn kl. 15 sam-
sýning súrrealista frá 10 þjóðlönd-
um.
Um 40 listamenn sýna, þar af 10
innlendir. Sýningin stendur til 26.
apríl og er opin frá 17 til 21 virka
daga, en frá 15 til 21 um helgar.
Lokað mánudaga.
FERÐALÖG
Ferðafélag íslands:
Sex ferðir yfir
hátíðirnar
Um páskana er Ferðafélag ís-
lands með sex ferðir, göngu- eða
skíðaferðir. 1) Á skírdag er farið kl.
13 í gönguferð á Vífilsfell og skíða-
göngu í nágrenninu. 2) Á föstudag-
inn langa er gönguferð á Grím-
mansfell og skíðaganga kl. 13. 3)
Laugardag fyrir páska kl. 13 er
gönguferð á Vatnsleysuströnd um
Keilisnes og Staðarborg. 4) Á
páskadag er skíðaganga í Bláfjöil-
um og gönguferð á Þríhnúka og er
brottför kl. 13 í báðar ferðirnar. 5)
Annan í páskum eru tvær ferðir, a)
kl. 10.30 gönguferð á Móskarðs-
hnúka og b) kl. 13 gönguferð á
Mosfell og skíðaganga á Mosfells-
heiði.
I allar ferðirnar er lagt upp frá
Umferðarmiðstöðinni og farmiðar
seldir við bíl.
Útivist:
Myndsköpun í Þórs-
mörk um helgina
í tengslum við ferðir Útivistar í
Þórsmörk um páskana verður
þátttakendum gefinn kostur á að
vera með í frjálsri myndsköpun í
skála Útivistar í Básum í Þórs-
mörk, og jafnframt að taka þátt í
útiteikningu ef veður leyfir.
Myndsköpunin í Þórsmörk um
páskana verður undir leiðsögn
Björgvins Björgvinssonar mynd-
listarkennara.
Víkulöiig
Frankfuitaiaveisla
8rM.mai.
Vddustjóri
Fríðrík Haraklsson.
Þátttökugjald er aðeins 8.900 krónur.
í fyrrasumar voru Flugleiða „Frankfúrtararnir" með ódýrustu
og bestu ferðatilboðum sem íslendingum buðust.
Friðrik Haraldsson stjórnaði líka frábærlega velheppnaðri
„siglingu" um Kölnarvatnið fræga.
Nú sameinum við Friðrik og Frankfúrtarana og bjóðum
vikulanga Frankfúrtaraveislu, með Friðrik sem veislustjóra,
fyrir aðeins 8.900 krónur.
Lagt verður upp frá Keflavík kl. 10:10 að morgni, 8. maí n.k
og flogið til Frankfúrt. Þaðan verður svo ferðast vikuna
út í glæsilegum hópferðabíl með viðkomu á flestöllum
fallegustu og skemmtilegustu stöðum suður Pýskalands.
Friðrik þekkir Pýskaland eins og lófann á sér og mun m.a. fara
„Rómantísku leiðina" milli Wurzburg og Munchen, líta inná
stúdentakrána í Heidelberg, svipast um í Svartaskógi, fara einn
hring á Ólympíuleikvanginum í Múnchen og sigla um Rín.
Gist verður á góðum hótelum í Wúrzburg, Húbertal,
Oberammergau (2 nætur), Lindau og Heidelberg. Þann 14. er
flogið aftur heim frá Frankfúrt.
Brottför: 8. maí. Heimkoma: 14. maí.
Verð: 8.900 krónur.
Innifalið: flugfargjald, akstur, gisting,
morgunverður og fararstjórn.
Ekki innifalið: Flugvallarskattur og frankfúrtarar.
Við bjóðum líka venjulega vikulanga
Frankfúrtara eins og í fyrra:
Flug og bíll, verð frá 5.863,- krónum á mann.
Flug, bíll og sumarhús, verð frá 6.960,- krónum
á mann.
Flug og húsbíll, verð frá 8.516,- krónum á mann.
Miðað er við að fimm ferðist saman.
Barnaafsláttur: 2-11 ára fá 2.500 kr. afslátt.
Yngri en 2ja ára greiða 800 kr.
Allar nánari upplýsingar gefa skrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn og ferðaskrifstofurnar.
Sölusími Flugleiða er (91 >-25100.
Miðað er við gengi 1. apríl.
FLUGLEIÐIR
Ferdaþjónusta