Morgunblaðið - 31.03.1983, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 31.03.1983, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983 Björn Finnbogason, verzlunarmaður og fyrrum oddviti og fiskverkunarmaöur í Garði, verður áttræður hinn 3. aprfl nk. Hann hefur um ára- tuga skeið haft hönd í bagga með þeim málum sem til framfara hafa horft í þessu aðlaðandi byggðarlagi — ekki aðeins sem oddviti og hrepps- nefndarmaður, heldur hefur hann einnig staðið fyrir at- vinnufyrirtækjum sem hafa skipt máli hvað varðar atvinnumál og afkomu Garðsbúa. Kona Björns heitir Auður Tryggvadóttir og eiga þau tvö börn, Finnboga og Björgu, sem bæði búa í Garð- inum. Auður hefur verið organisti við kirkjuna í Garði um 50 ára skeið og formaður kvenfélags staðarins um ára- tugi. Þess má geta að Björn er eini heiðursborgari Garðs en þeim heiðri var hann sæmdur árið 1974. — Þegar Mbl. fór fram á viðtal við Björn í tilefni af áttræðisafmælinu tók hann fremur dræmt í það — sagðist ekki hafa neitt að segja sem merkilegt gæti talist. Ég var hins vegar á annarri skoðun og byrjaði á því að spyrja Björn út í uppruna hans og æviferil. Rætt við Björn Finnboga- son í tilefni áttræðis- afmælis Björn Finnbogason á heimili sínu að Gerðavegi 1. „Það er mann- gildið sem er og verður númer eitt“ Snæfellsnes og Gerðahreppur „Ég er reyndar fæddur hér í Gerðahreppi og var hér fyrstu ár- in til þriggja ára aldurs. Þá flutti faðir minn, Finnbogi G. Lárus- son, til Búða á Snæfellsnesi, þar sem hann stundaði búskap, út- gerð og verzlun," sagði Björn Finnbogason. „Þar var ég við fjárhirðingu og önnur bústörf öll mín æskuár og allt þar til ég var orðinn hálfþrítugur. Þetta var á árunum 1906 til 1927. Reyndar fluttist faðir minn hingað í Gerðahrepp í tvö ár á þessu tíma- bili, og rak hér verzlun árin 1914—16. Þá dó mamma, en eftir það undi hann sér ekki hér syðra og flutti vestur aftur. Það var svo 1927 að mig minnir sem Garðsmenn fengu mig til að taka að mér rekstur íshúss sem þá var nýbúið að reisa hér, ísfé- lag Gerða, eins og fyrirtækið hét. Ég tók við þessum starfa, þótt ég væri að ýmsu leyti vanbúinn til þess. Fljótlega setti ég svo á stofn saltfiskverkun hér í Garði sem ég rak ásamt íshúsinu. Hún lagðist svo niður þegar þeir fóru að sigla með fiskinn. Árið 1938 keypti ég svo þessa jörð og byrjaði að verzla hérna. Hversu jörðin var stór? Ætli hún hefði ekki fóðrað svona 4—5 kýr, annars skulum við láta það liggja milli hluta. Ég hóf verzlun í gömlu verzlunarhúsnæði sem ég keypti en reisti svo nýja um miðj- an sjötta áratuginn og rek hana enn. Nú, þetta er nú allt og sumt sem ég hef afrekað um ævina — og eigum við þá bara ekki að láta þessu lokið?" Þú munt hafa verið oddviti hér um áratuga skeið? „Ég var oddviti hér í fjörutíu ár samfleytt. Ég var fenginn til að vera hér í hreppsnefnd 1934, eiginlega þvert gegn vilja mínum en það var varla öðrum til að dreifa. Nú og svo gerðu þeir mig að oddvita 1938 og því starfi gegndi ég svo næstu fjörutíu árin og það var oft mikið starf. Það var margt ógert á þeim tíma sem ég hóf störf fyrir hreppinn og maður þurfti að vasast í öllu. Það þurfti að gera holræsi og leita að vatni, sinna vegagerð og láta leggja rafmagn. Á árunum eftir stríð var ráðizt í að stækka skól- ann og byggja leikfimihús. Og svona tók eitt við af öðru.“ „Þú ert einræðisherra“ „Annars má ég vera ánægður held ég, þetta gekk allt ljómandi vel. Það var líka meiri samhugur hjá fólkinu þá heldur en núna — það var minna um deilur og menn gátu einbeitt sér að framkvæmd- unum af alhug fyrir bragðið. Það er nefnilega leikur einn fyrir menn að framkvæma þegar ein- hugur ríkir, en togstreita og sundrung lamar allan fram- kvæmdavilja. Ég get reyndar ekki neitað því að stundum þótti þeim ég nokkuð ráðríkur í hreppsnefndinni: „Þú ert einræðisherra,“ sögðu þeir, en þetta var misskilningur hjá þeim. Ég sagði við þá á móti: „Það er ekki ég sem ræð, ég sé um að skipuleggja verkin, en þ?.ð eruð þið sem takið ákvörðun." En ég gætti þess líka að hampa því aldrei frá hverjum tillögurnar komu, okkur tókst að halda því leyndu fyrir utan hreppsnefnd- arfundina og þannig að halda þessu góða samstarfi. Það er nefnilega ákaflega oft þannig í svona samstarfi að það verður aðalatriðið frá hverjum tillögur koma en ekki hversu góð- ar eða skynsamlegar þær eru. Og ég held að mér hafi tekizt mikið betur en ella vegna þess að mér tókst að halda þessari aðferð — þó sjálfsagt hafi mig skort bæði menntun og hæfileika til þessa starfs." Telur þú þig hafa skort mennt- un? „Já, ég var enginn skólamaður, var að vísu einn vetur í Flens- borgarskóla í Hafnarfirði en svo nennti ég ekki að halda áfram námi. Menntun var ekki jafn nauðsynleg í þá daga og nú er og menn gátu slampazt áfram með flest fyrirtæki á þessum tíma án þess að hafa svo mikla menntun. Þessi skortur á menntun var ef- laust ekki góður en nú finnst Ljósm. Mbl./Arnór Ragnareson. manni jafnvel farið að hallast á hina hliðina, að full miklum tíma sé eytt í nám. Það er ekki nóg að mennta sig árum saman, ef þeir hafa svo ekki framtak til neins þegar þeir eru búnir að taka próf- „Að starfa í þágu fólksins og þjóðarinnar“ „Annars er ég þeirrar skoðunar að það sé hvorki menntun, pen- ingar né frami sem skipti mestu máli í lífinu, það er manngildið sem er og verður númer eitt.“ En hver er þá tilgangurinn? „Að vinna fyrir þjóðina, að starfa í þágu fólksins og þjóðar- innar. Ég hef einbeitt mér að því að stuðla að vexti og viðgangi þessa byggðarlags og vonandi tekzt að gera eitthvert gagn. Það hefur verið mitt markmið." Hvað heldurðu um framtíð byggðarinnar hér í Garði, held- urðu að þetta byggðarlag sé á uppleið? „Það verður bara að láta það vera á uppleið, það er algerlega undir Garðsbúum sjálfum komið hver framtíðin verður. En ég er bjartsýnn á framtíðina enda hef ég fulla ástæðu til. Það er mikið ágætis fólk hér í Garðinum og þess hef ég vissulega notið í mínu starfi. Það er helzt að tiltölulega mikið af fólkinu, sem hér býr, er ekki búið að finna sig hér ennþá — en það held ég að komi af sjálfu sér með tímanum." En hvað um pólitíkina hér í hreppsfélaginu — þú fylgist með henni ennþá þótt þú sért ekki - n i —* ----BOfiK -rwps wm í Miðbærinn í Garði — Verzlun Björns Finnbogasonar er til vinstri á myndinni 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.