Morgunblaðið - 31.03.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983
13
lengur í hreppsnefnd, er það
ekki?
„Jú, og ég verð því miður að
segja að hún er orðin neikvæðari
en var. Menn eru ekki eins sam-
hentir og það ber meira á sundr-
ungu. Það er engum til góðs. Við
verðum alltaf að gera okkur ljóst
að við erum eitt byggðarlag og
eigum að vinna saman en ekki að
vera með sundrung og vitleysu."
„Það er sú eina stefna
sem ég hef getað
fellt mig við“
„Mér hefur verið tamt að líta á
kosningabaráttu sem eitthvað
svipað og brunavarnir — maður
einbeitir sér að því að slökkva
þann eld sem er að glæðast, reyn-
ir að efla samhug fólksins því
sundrungin verður öllum til
skaða. Ég hef reynt að forðast að
draga fólk í dilka eftir því hvaða
skoðanir það hefur, eða hvort það
hefur sömu skoðanir og ég. Ég
hef alltaf reynt að útskýra mín
sjónarmið en aldrei látið það
móta afstöðu mína til fólks hvort
það fellst á þau eða ekki.“
Nú hefur þú fylgt Sjálfstæðis-
flokknum að málum alla tíð —
hvað varð til þess að þú valdir
hann fram yfir aðra flokka?
„Það varð nú eiginlega þannig
að þegar ég var að byrja að hugsa
um pólitík, þá stóð dagblaðið
Tíminn í því að rakka niður út-
gerðarmenn, og var þá sama
hvort útgerðin var stór eða smá í
sniðum — þeim var fundið allt til
foráttu og skammaðir eins og
hundar. Ég gat ekki gengizt inn á
þetta sjónarmið, sem allir sjá nú
að byggðist á skammsýni fyrst og
fremst, og gat ómögulega hugsað
mér að vinna með Framsóknar-
flokknum. Eins var það með Al-
þýðuflokkinn. Hann tók það fyrir
á þessum árum að ráðast á
Kveldúlf hf., sem var óviturlegt
því allir vissu að fyrirtækið var í
góðum höndum og vel rekið. Þeir
töpuðu mikið á þessu og viður-
kenndu meira að segja sjálfir að
þetta hefði verið heimskulegt
þegar frá leið. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur alltaf fylgt þeirri
stefnu að styðja framtak fólks,
hvort sem er í útgerð eða ein-
hverju öðru, og það er sú eina
stefna sem ég get fellt mig við.“
„Heiðarleiki og
drenglyndi í
samskiptum“
Nú hefur þú kynnzt mörgum
frammámönnum Sjálfstæðis-
flokksins í tímans rás — þú
þekktir t.d. Ólaf Thors vel.
Hvernig kom hann þér fyrir sjón-
ir?
„Hann var alveg í sérflokki sem
maður, og ég held að ég hafi aldr-
ei kynnzt hans líka. Hann var af-
ar heilsteyptur og heiðarlegur
fram í fingurgóma — og hann var
alltaf fulltrúi þeirra sem minnst
máttu sín og bar hagsmuni þeirra
fyrst og fremst fyrir brjósti. Þeir
forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins sem ég hef kynnzt hafa allir
verið mætir menn og kynni mín
af þeim hafa verið mér ákaflega
mikils virði. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur alltaf borið gæfu til að
draga að sér góða menn og það
hefur ekki breytzt þótt þjóðfélag-
inu hafi ekki farið fram í öllum
greinum sem skyldi."
En að lokum — hverjir eru að
þínum dómi höfuðkostir stjórn-
málamanns?
„Sömu mannkostir og vega
þyngst í skaphöfn fólks yfirleitt
— heiðarleiki og drenglyndi í
samskiptum. En því miður eru
þessir eiginleikar ekki metnir að
verðleikum nú eins og áður var.“
Viðtal:
Bragi Oskarsson
Frjálslyndi í fyrirrúmi
— eftir Eyjólf Kon-
ráð Jónsson, alþm.
Sjaldnast eru stefnuskrár
stjórnmálaflokka aðgengileg lesn-
ing, en kosningayfirlýsing Sjálf-
stæðisflokksins við Alþingiskosn-
ingar 23. apríl 1983 er auðlesin og
segir það sem segja þarf í stuttu
máli. Mikill fjöldi manna hefur
um langt skeið unnið að þessari
stefnumörkun og auðvitað er þar
um nokkra málamiðlun að ræða,
enda er hún aðalsmerki í samtök-
um sjálfstæðra manna, en grunn-
tónninn getur engum dulist: frá
upplausn til ábyrgðar — frá
ofstjórn til athafna. Þær eru
nefnilega tvíburasystur Ofstjórn
og Óstjórn. Það hefur mannkyns-
sagan rækilega sannað.
Stefnuskrá sú, sem nú birtist,
byrjaði að taka á sig ákveðna
mynd þegar við afgreiðslu fyrri
bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinn-
ar um efnahagsmál um áramótin
1980—1981. Þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins var þá sammála
um það, að ríkið yrði að slaka á
klónni og skila aftur nokkru af
þeim ránsfeng, sem það hefði til
Eyjólfur Konráð Jónsson.
sín tekið og tillögur voru um það
fluttar á Alþingi, að dregið yrði úr
neyslusköttum til að hægja á
hraða verðbólgunnar og kveða
hana í kútinn. Æ fleirum er nú
ljóst, að það dæmi getur ekki
gengið upp að fella gengið í sífellu,
en auka skattheimtu samhliða.
Því síður hafa þær kenningar geta
sannast að stjórnun á „peninga-
magni í umferð" eins og það er
kallað, nægði til að leysa mikinn
efnahagsvanda. Þar eins og ann-
ars staðar hefur ofstjórn leitt til
ófarnaðar og þess vegna hefur
þeirri leið verið hafnað.
Nú benda sjálfstæðismenn á, að
í 70—100% verðbólgu verði raun-
vöxtum ekki komið á, það er engin
lífsins leið að ná vaxtafætinum
upp fyrir verðbólguna, þess vegna
verður að ná verðbólgunni niður
fyrir hann, þannig að hann þrýsti
verðbólgunni niður í stað þess að
sparka henni í sífellu upp. Þetta er
grunntónn nýrrar frjálslyndis-
stefnu, sem fólkið skilur.
Enn heyrast að vísu raddir um
að verulegar skattalækkanir geti
leitt til halla á ríkissjóði, sem ill-
viðráðanlegur yrði. En sannleik-
urinn er nú samt sá, að ríkisút-
gjöldin eru svo til öll annað hvort
greiðslur vinnulauna eða notkun
gjaldeyris, þegar upp er staðið. Ef
unnt reynist að beita skattalækk-
unum þannig, að launagreiðslur
hækki minna, án þess að kjör séu
skert, og gengisbreytingar hægja
á sér, þá minnka útgjöld ríkisins
„Æ fleirum er nú ijóst,
aö þaÖ dæmi getur ekki
gengið upp aÖ fella
gengið í sífellu, en auka
skattheimtu samhliöa.
Því síöur hafa þær
kenningar geta sannast
að stjórnun á „pen-
ingamagni í umferð“
eins og það er kallað,
nægði til að leysa mik-
inn efnahagsvanda.“
nokkurn veginn samhliða tekju-
rýrnuninni.
Vextir geta lækkað þótt þeir
sem spara fái verðugt endurgjald
fyrir atorku sína eða útsjónar-
semi, en samhliða verða þeir
áhrifaríkasta tækið til að kveða
verðbólguna í kútinn. Og með
hjöðnun hennar lækka þeir og
verða bærilegir fyrir húsbyggj-
endur og atvinnuvegi, þannig
hverfum við frá upplausn til
ábyrgðar — frá ofstjórn til at-
hafna.
flö PIONEER
BÍLTÆKI — Viökynnum bíltækjalínuna
frá Pioneer, því nú er rétti tíminn til aö endurnýja
eöa kaupa traust og hljómgott tæki í bílinn
KP 7800 útvarpskassetlutæki
FM/MW/LW Fast stöðvaval
Lagaleitari. spilar beggja
megin. ATSC öryggikerfi
..Loudness ', 6.5w
KP 3300 útvarpskassettutnkl
FM/MW/LW, PNS truflanaeyðir
..Autoreplay ". ..Autoeject", 6.5w
GEX 63 ..Component"
FM/MW/LW útvarpstæki
15 fastar stöðvar, ..Loudness"
Tveir tónstillitakkar ,,PNS. ARC"
kr. 8.690
TS 162 Dx
Niðurfelldir, tvótaldir
40 —20 000 Hz 20w
KP 4800 útvarpskassettutæk!
FM/MW/LW PNS truflanaeyðir
spilar beggja megin
ATSC öryggiskerfi ..Loudness"
6,5w
KE 1300 útvarpskassettutæki
FM/MW/LW Fast stöðvaval
ARCF kerfi stjórnar móttokustyrk
snertirofar. „Loudness" 6.5w
CD 5 ..Component"
5 banda tónjafnari
TS 1644
Niðurfelldir, sérstaklega
þunnir (4 sm) Tvöfaldir „coaxial"
— 20 000 Hz 25w
KE 5300 útvarpskassettutækl
Quartz læstar stillingar
ARC móttökustillir
Sjálfvirkur stöðvaleitari
Fastar stöðvastíllingar
Quartz klukka „Loudness" 6,5w
KE 4300 útvarpskassettutæki
FM/MW/LW Fast stöðvaval
ARC-kerfi, stjórnar móttokustyrk
spilar beggja megin „Loudness"
GM 4 „Component"
2x20w magnari
Hz 30 — 30 000 Bjogun 0,06%
TST3
Alimdir (t.d. mælaborð, hurðir)
Tvöfaldir. stillanlegir
350 — 22.000 20w
Kex 33. „Component"
útvarpskassettutækl
FM/MW/LW 15 fastar stillingar
„Dolby, Metal, Chrome"
lagaleitari. „Loudness"
Tveirtónstillitakkar
stjórnar sjálfvirkum loftneti ofl.
KP 707 „Component"
„Metal, Dolby" kassettutækl
Tveir tónstillitakkar,
„Loudness"
GM 120 , Component”
2\60w magnari
Hz 30 —30 000 Bjógun 0 04%
<*■*
TS M6
Niðurfelldir 20 sm „Wooter"
28 —10.000 Hz 60w
TS 697
Nlðurfelldir, tvötaldir
m/sérstaklega kröftugum bassa
30 — 22.000 Hz, 60w
TS 2000
Tvöfaldir 20 sm „Woofer"
30 —21.000 Hz, 60w
BP 320
Kraftmagnari 2x20w
BP 720 sambyggður
Kraftmagnari og tónjafnari
60 — 10.000Hz 20w „Echo"
HUOMBÆR
HLJÐM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999-17244