Morgunblaðið - 31.03.1983, Page 14

Morgunblaðið - 31.03.1983, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983 an, og hér er það kostur, hve fjölbreytileg verkin eru. Sýn- ingarsalurinn er í mörgum hólf- um, og því sakar ekki, að blanda saman skúlptúr, olíumyndum, vatnslitum og vefnaði, eða hverju sem er. Þetta styður allt hvað við annað með þessum hætti." Skúlptúrar á háalofti? — Árni Páll, án þess að ég ætli að fara að dæma um list- rænt gildi verka þinna, þá sýnist mér sem þau séu frekar ólíkleg til að lenda inni á gólfi hjá ein- hverju fólki úti í bæ að sýning- unni lokinni. Hvað verður um þessi verk? „Ég vil ekki endilega útiloka það, að þessi verk fari heim til einhvers, fólk býr rúmt, og þau taka ekki svo mikið pláss! — Nú, ef í harðbakkann slær, þá má alltaf nota þetta sem yfirbreiðu á saumavél, eða setja gler yfir og nota sem sófaborð! — En í al- „Allt á aö seljast!“ T itið inn hjá ungum listamönnum í Listmunahúsinu „SÝNINGIN stendur fram yfir páska, þetta er sölusýning og allt á að seljast, — já, við erum bjartsýn á að það takist, þjóðin getur varla án þessara listaverka verið!“ — Þau sem svo hressilega mæla eru fjórir listamenn, sem þessa dagana sýna í Listmunahúsinu við Lækjargötu: Guðrún Gunnarsdóttir, Árni Páll, Daði Guðbjörnsson og Sigrún Eldjárn. Auk þeirra sýna á sýningunni þau Guðrún Auð- unsdóttir, Eyjólfur Einarsson og Ragna Róbertsdóttir. 9 Ur listalífínu ANDERSHANSEN „Fyrir túr á togara“ nefnir Árni Páll stærra verkið á þessari mynd, drög að bronsmynd, minkurinn er einnig eitt verka hans á sýning- unni. Myndirnar tók Ólafur K. Magnússon. Platónsk ást í myndunum — Þínar myndir, Sigrún, þær eru frábrugðnar því sem þú hef- ur gert áður, er ekki svo? „Þessar myndir eru gerðar með blandaðri tækni, vatnslitir, teikning og fleira, og svo hef ég límt inn á þær sumar, það er nýtt, það er rétt, ég hef ekki gert myndir af því tagi áður. Annars er þetta líklega ekki svo ýkja frábrugðið ýmsu sem ég hef gert áður. En ég hef mikið verið í grafík og teikningum, og nú þeg- ar þessari sýningu lýkur reikna ég með að ég snúi mér aftur að grafíkinni." — Myndirnar hafa sama heildarsvip sýnist mér, er þetta myndröð, eða alveg sjálfstæð verk? „Þær eru keimlíkar margar, það er rétt, en það kemur meira til af því að þær eru af sömu stærð og litirnir eru svipaðir en að um sé að ræða seríu. Mynd- irnar eiga allar að geta staðið alveg sjálfstætt." — En þú Ðaði, þú sýnir oliu- málverk? „Já, þetta eru allt olíumálverk, frekar litlar myndir sem ég sýni að þessu sinni, tíu myndir alls. Yrkisefnið er margvíslegt en þó skylt, ég er að fást við ástina og eitt og annað, mest bara svona skemmtilegheit, held ég.“ „Þetta eru allt ástarlífsmyndir hjá honum, það sér hver maður," skýtur Árni Páll inní. „Ástarlífsmyndir, já, það get- ur verið,“ segir Daði, „en ætli þær sýni þá ekki fyrst og fremst platónska ást, þetta eru varla mjög erótískar myndir!" — Og þú hefur sýnt áður? „Já, blessaður, ég hef sýnt áð- ur, bæði heima og erlendis! Ég hef til dæmis átt verk á sýning- um bæði í Kóreu og í Kaliforníu! — Það er talsvert merkilegt sem þeir eru að gera þarna í Seoul. „Ljáðu mér vængi“ nefnist þessi mynd Sigrúnar Eldjárn, vatnslitur, blýantur og Hér er Daði við eitt verka sinna, nafnlausa olíumynd. klipp. Kominn tími til að sýna saman! — En hvað var það svo sem dró þessa fjóra listamenn saman á eina sýningu, hafa þau starfað saman áður, eða eiga verk þeirra einhverja sérstaka samleið? „Það er nú erfitt að svara því,“ segir Guðrún, „þetta er líklega mest tilviljun, svona höpp og glöpp, að við sýnum hér saman, en fjórar okkar þekkjast þó vel, við erum allar úr Langbrók." „Ég tel það kost frekar en galla að við skulum sýna hér saman þetta mörg, og með svona ólíka list, það gerir sýninguna bara skemmtiiegri," segir Sigrún. „Ef ég ætti að svara því hvers vegna við erum hér saman komin sjö á einni sýningu," segir Daði, „þá vil ég bara svara því til, að það er sannarlega tími til kominn, og ætli það sé ekki ástæðan!" Árni Páll bætir við: „Það getur verið skemmtilegt að sýna mörg sam- vöru talað, þá er það mín skoðun að það sé ekki endilega mikil- vægast alls, að þessir skúlptúrar fari heim til einhvers fólks. Verkin hafa verið gerð og þau eru og verða til, og þau eru sýnd hér. Það getur vel verið að þau fari bara heim til mín að sýning- unni lokinni, og ég get vel hugs- að mér verri örlög. — Það er ekki verkunum að kenna, heldur fólkinu sem ekki vill kaupa þau vegna þess að það áttar sig ekki á listrænu gildi þeirra!" Guðrún: „Ég get tekið undir þetta. Ég er hér með ofin teppi, sem flest eru það stór, að útilok- að er að þau verði keypt og hengd upp í stofum fólks. Flest hafna þau því líklega uppi á háa- lofti hjá mér! Mér finnst það allt í lagi, þó ég geti nú varla stillt mig um að benda á hve vel þau gætu farið hjá einhverjum bank- anum eða á vegg einhverrar stofnunar sem býr rúmt!“ Guðrún Gunnarsdóttir vió eitt verka sinna á sýningunní. þeir bjóða fólki víða að með verk sín.“ Lifad á listinni? — Og þið lifið á listinni eða hvað? „Ég hef talsvert gert af því að myndskreyta bækur og þess háttar, auk þess sem ég geri af myndum hvers konar, eins og fyrir þessa sýningu, þannig að ég geri lítið annað,“ segir Sigrún. „Ég vinn hjá Álafossi í hluta- starfi við hönnun," segir Guð- rún, „ég lifi ekki af þessu einu!“ „Hvað ég geri?“ spyr Daði, „auk þess sem ég mála er ég við trésmíðar og eitt og annað, það er breytilegt frá degi til dags en ég verð að vinna eitthvað með, það gengur ekki annars." „Og ég er kennari við Mynd- listaskólann, prófessor, nei að- junkt heitir það víst' ég fram- fleyti mér á því að kenna," segir Árni Páll. - AH

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.