Morgunblaðið - 31.03.1983, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 31.03.1983, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983 17 Hin heilaga kvöldmáltíð. menn urðu að örmagnast og dóu að síðustu af ofþreytu, vöðva- krampa eða hjartaslagi, ef þeir annars dóu á krossinum, en það var ekki naerri alltaf. Jósefus, sagnaritari, sem uppi var nokkru eftir Krists daga, getur þess, að sér hafi tekist að lífga einn þriggja kunningja sinna, sem sér hefði verið leyft að taka af kross- inum. Það þótti því vissara að brjóta hvert bein í þeim, sem krossfestir voru, svo að þeir yrðu ekki kviksettir, enda var það siður, sem sjaldan var út af brugðið. Jes- ús mun nú hafa grunað, að hann ætti slíkan dauðdaga fyrir hönd- um, ef prestunum tækist að höndla hann og ef þeim tækist að fá veraldlega valdið til þess að dæma hann til lífláts; því var ekki nema von, að hjarta hans skelfd- ist. Samt var hann fullráðinn í því að láta ekki undan og innsigla kenninguna blóði sínu, ef svo skyldi til takast, og því beið hann Júdasar. Krossfestingin Eftir að Júdas hafði svikið meistara sinn með kossi var Jesús handtekinn og færður fyrir æðstu prestana og öldungaráðið. Fyrst var farið með hann til Annasar tengdaföður Kaífasar æðsta- prests, en hann hafði sjálfur verið æðstiprestur áður. Annas spurði Jesú um kenningar hans, en hann svaraði því til, að hann hefði ætíð flutt boðskap sinn fyrir opnum tjöldum í samkunduhúsum eða musterinu og sagði honum að spyrja áheyrendur sína. Einn varðmannanna sló Jesú í andlitið eftir þetta svar og spurði hann hvort honum fyndist viðeigandi að svara æðstaprestinum á þennan hátt. Jesús sagði þá: „Hafi ég sagt eitthvað rangt, ættuð þið að segja mér hvað það er. En hvers vegna slærðu mig ef svo er ekki?“ Ann- ars skipaði þá varðmönnunum að fara með Jesú í böndum til Kaífas- ar. Sagt er að prestarnir og öld- ungaráðið hafi fyrst leitað ljúg- vitna gegn honum þótt hreinsun musterisins væri ærin sök á hend- ur honum og nægilega vottföst. En fyrir hana eina hefðu þeir aldrei fengið Pílatus til að dæma hann til dauða. Til þess urðu þeir að gera hann að uppreisnarmanni. Að lokum þóttust þeir hafa fundið sök hjá honum er nægði til að ákæra hann fyrir veraldlega vald- inu og töldu hann dauðasekan. En þeir þurftu að fá þennan dóm sinn staðfestan áður en hátíðin gengi í garð. Þeir fóru því til hallar land- stjórans og framseldu Jesúm sem uppreisnarmann á þeim forsend- um að hann hafði sagst vera kon- ungur Gyðinga. Samkvæmt frá- sögnunum leist Pílatusi ekki svo á hann og fann enga sök hjá honum. Hann vildi því helst láta hann lausan, en þeir hræddu Pílatus bæði með því að æsa lýðinn gegn Jesú og heimta Barrabas lausan og eins með því að hóta Pílatusi reiði keisarans. Hann lét þá undan og framseldi Jesúm til krossfest- ingar. Nákvæmasta frásögnin um krossfestingu Jesú er í Markúsar guðspjalli en þar segir að Kristur hafi verið krossfestur um 3. stund, eða klukkan níu að morgni. Um 9. stund, þ.e. klukkan þrjú eftir há- degi hafi Jesús kallað hárri röddu: „Elói, Elóí, lama sabaktaní; sem er útlagt: Guð minn, guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig.“ (Mark. 15.: 33—35). Hugðu menn hann vera að kalla á Elía, fylltu njarð- arvött ediki, stungu honum á reyrstaf og gáfu honum að drekka með þessum orðum: „Bíðið við, sjáum hvort Elfa kemur að taka hann ofan. En Jesús kallaði hárri röddu og gaf upp andann. Sam- kvæmt þessu hefur Jesús aðeins hangið sex stundir á krossinum, áður en lífsmörkin hurfu. Frá- sögnin um að spjóti hafi verið lagt í síðu hans finnst aðeins f Jóhann- esar guðspjalli, og er þvf varlega á henni að byggja. Það skal þó tekið fram, að þótt ekki sé minnst á spjótsstunguna í hinum guðspjöll- unum þarf það alls ekki að útiloka hana enda er frásögnin um hana talin afar þýðingarmikil gegn þeim tilgátum efasemdarmanna, að upprisu Jesú megi útskýra með þvi að hann hafi einungis liðið f dá á krossinum. Upprisan Þegar Gyðingaleiðtogarnir höfðu jafnað sig eftir landskjálft- ann og önnur þau ósköp, sem á höfðu dunið f sambandi við dauða Jesú, minntust þeir þess að „að- fangadagurinn" fór í hönd og varð þvf að taka öll lik niður, svo að hin mikla hátfð vanhelgaðist ekki. Jósef frá Arímaþeu, göfugur ráð- herra, er sagður var lærisveinn Krists á laun, gekk fyrir Pílatus og bað um líkama Jesú. En Pilatus furðaði sig á því að hann skyldi þegar vera andaður, og lét því kalla til sín hundraðshöfðingjann og spurði hann, hvort hann væri þegar andaður. Og er hann varð þess vís hjá hundraðshöfðingjan- um, gaf hann Jósef líkið. En hann lagði það i nýja, úthöggna graf- arhvelfingu, er hann átti f nánd við borgina. Leið svo fram á sunnudagsmorgun þá er Kristur var sagður upprisinn. Frásagnir um upprisu Krists er að finna bæði f guðspjöllunum og i bréfum Páls postula, en því er ekki að neita, að þær eru flestar að ein- hverju leyti ósamhljóða um, hvar og hverjum Jesús hafi birst. Auk þess eru í þeim innskot og viðauk- ar, sem ekki finnast f elstu hand- ritunum. Samkvæmt frásögn Lúk- asar af krossfestingunni er boðuð upprisa til himinsins beint af krossinum, sbr. orð Krists á kross- inum: „Faðir í þínar hendur fel ég anda minn“, — og einnig er Jesús segir við ræningjann: „I dag skaltu vera með mér í paradís". Síra Jakob Jónsson nefnir þetta atriði í áðurnefndri grein, en vek- ur jafnframt athygli á, að sam- kvæmt skilningi guðspjallanna hafi þessi trú (þ.e. kenningin um upprisu beint af krossinum) ekki útilokað þann skilning á uppris- unni, er studdist við upprisuundr- ið þ.e. þær staðreyndir, sem sumir lærisveinar Jesú urðu vottar að og sönnuðu fyrir þeim upprisu hans frá dauðum. Margir telja þó eðlilegast að leggja þá frásögnina, sem fyrst er rituð, til grundvallar, þótt ekki sé hún frá sjónarvotti að upprisunni, en það er frásögn Páls í fyrra Kor- intubréfi sem hljóðar svo: — „Því að það kenndi ég yður fyrst og fremst, sem ég hef einnig meðtek- ið, að Kristur dó vegna vorra synda, samkvæmt ritningunum, og hann var grafinn og að hann er upprisinn á þriðja degi, sam- kvæmt ritningunum og að hann birtist Kefasi, síðan þeim tólf (þarna hlýtur að eiga vera: ellefu, því að Júdas var úr sögunni). Síð- an birtist hann meira en fimm hundruð bræðrum í einu, sem flestir eru á lífi allt til þessa, en nokkrir eru sofnaðir. Síðan birtist hann Jakobi, því næst postulunum öllum. En síðast allra birtist hann einnig mér eins og ótímaburði." Hér gefst ekki rúm til að fara nákvæmlega út í vangaveltur um þær spurningar sem óneitanlega vakna við samanburð á frásögnum af upprisunni, t.d. hvað varðar tómu gröfina, hvort að sá upprisu- líkami sem Jesús birtist í hafi ver- ið sá sami og lá í gröfinni eða hvernig menn hafa hugsað sér sambandið milli jarðneska líkam- ans og upprisulíkamans, svo dæmi séu nefnd enda virðist það ógjörn- ingur að mynda samfellda sögu at- burðanna, sem gerðust í sambandi við upprisu Jesú. Hvað varðar sýn- ingar, sem áður er getið í tilvitn- uðum kafla úr fyrra Korintubréfi Páls, hafa fræðimenn komið fram með ýmsar tilgátur til skýringar og í áðurnefndu riti Campbell eru þær tilgátur taldar vera aðallega þriár: I fyrsta lagi að hér hafi verið um tómar missýnir að ræða. í öðru lagi að Jesús hafi risið upp í anda og hafi þetta því verið anda- sýnir og í þriðja lagi að Jesús hafi birst í holdinu. Hvað varðar fyrstu tilgátuna er ólíklegt, að svo mörgum mönnum, sem eiga að hafa séð Jesúm í senn, hafi öllum getað missýnst. Tilgát- an um að Jesús hafi risið upp i anda þykir mörgum sennileg, einkum andatrúarmönnum, en sá hængur er á, að ef þessi tilgáta er rétt hefði líkami Jesú átt að finn- ast í gröfinni, en hún var tóm, samkvæmt frásögnum guðspjall- anna. Þeir sem hallast að þriðju tilgátunni, um að Jesús hafi birst i holdinu, hafa einkum bent á Lúk- asar guðspjall máli sínu til stuðn- ings þar sem segir: „En þegar þeii* voru að tala um þetta, stóð hann sjálfur meðal þeirra og segir við þá: Friður sé með yður; En þeir urðu skelfdir og hræddir og hugðust sjá anda. Og hann sagði við þá: Hví eruð þér óttaslegnir? Og hvers vegna vakna efasemdir í hjarta yðar? Lítið á hendur mínar og fætur, að það er ég sjálfur. Þreifið á mér og iítið á, því andi hefir ekki hold og bein, eins og þér sjáið mig hafa. Og er hann hafði þetta mælt sýndi hann þeim hendur sínar og fætur. En er þeir enn þá trúðu ekki fyrir fögn- uði og voru fullir undrunar, sagði hann við þá: Hafið þér hér nokkuð til matar? Og þeir færðu honum stykki af steiktum fiski. Og hann tók það og neytti þess frammi fyrir þeim.“ (Lúk. 24:36—43). Af þessari lýsingu verður ekki annað ráðið en hér hafi verið um líkam- lega veru að ræða, burtséð frá hvernig Lúkas hefur hugsað sér að þetta kæmi heim og saman við sjálfa upprisuna. í grein Síra Jakobs Jónssonar, sem áður hefur verið vitnað til segir m.a.: — „Hvernig svo sem vér viljum skilja upprisuna, verð- ur ekki fram hjá því komist, að SJÁ NÆSTU SÍÐU Svik Júdasar. Pétur afneitar Jesú. Jesús hœddur. Pílatus lœtur húðstrýkja Jesúm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.