Morgunblaðið - 31.03.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.03.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983 engir vottar hafa verið að sjálfum atburðinum. Það er alkunn stað- reynd, að höfundar helgisagnanna og hinna apokrýfu rita hafa jafn- an haft tilhneigingu til að fylla út í eyður og lýsa með nákvæmni því, sem aðeins er dregið stærstu dráttum í fyrstu frásögnunum. Vér sjáum aðdraganda slíkrar þróunar í Matteusarguðspjalli, þar sem farið er að lýsa niður- stigningu engilsins frá himni og hræðslu varðmannanna. í Péturs guðspjalli, einu þeirra guðspjalla, sem ekki voru tekin í helgirita- safnið, er sagan orðin harla ítar- leg. Þrátt fyrir það, hversu von- laust er að reyna að lýsa sjálfum upprisuatburðinum, hafa menn stöðugt reynt að gera sér grein fyrir því, sem gerst hefir. Þannig hefir próf. Hugh Anderson í bók sinni: Jesus and Christian Origins, New York 1964, gert stutt yfirlit yfir þær skýringar, sem gefnar hafa verið. Prófessorinn nefnir fyrst þá skýringu, sem allt frá upphafi hef- ir verið haldið á loft af andstæð- ingum kristninnar. Hún er svo gömul að hennar er getið í Matt. 28:11—15. Skýring þessi er í því fólgin, að lærisveinarnir hafi stol- ið líkama Jesú úr gröfinni og logið því upp, að hann væri upprisinn. Svika-skýringin kom síðast fram á 19. öldinni, en hefir aldrei heyrst á seinni áratugum. Önnur skýringin, sem próf. Anderson minnist á, er hin svonefnda náttúrulega skýring. Hún er á þá leið, að Jesús hafi aldrei dáið á krossinum, heldur aðeins virst vera dáinn, en í hinu kalda lofti grafarinnar hafi hann raknað við, falið sig fyrir yfirvöld- um Gyðinga, en komið til móts við lærisveina sína. — önnur nátt- úruleg skýring er sú, að konurnar hafi farið inn í skakka gröf og ungi maðurinn, sem nefndur er i Mark. 16:7, hafi verið að vísa þeim til vegar að hinni réttu. Þær hafi þá þotið burt í ofboði. Þriðju skýringaraðferðina, sem próf. Anderson nefnir, þekkjum vér vel hér á landi frá tíð próf. Haralds Níelssonar, en það er skýring sálarrannsóknanna. Með- al þeirra, sem athugi frásagnirnar um upprisuna út frá nýrri tíma þekkingu á para-sálarfræði og dulrænum fyrirbærum, nefnir hann M.C. Perry (sjá bók dr. Perr- ys: The Easter Enigma, London 1959). Fjórða skýringin er hin líkam- lega skýring, þ.e.a.s. að Jesús hafi risið líkamlega af gröf sinni, en síðan hafi honum verið gefinn nýr andlegur líkami, sem ekki hafi verið háður takmörkum tíma og rúms. Hin fimmta skýring, sú síðasta, er próf. Anderson nefnir, er sál- fræðilega skýringin, sem rekur allt til þess, sem fram muni hafa farið hið innra með lærisveinun- um sjálfum." Að lokinni þessari upptalningu á yfirliti próf. Andersons segir síra Jakob að það sé fyrir utan verksvið sitt í þessari grein að gera upp á milli hinna ýmsu skýr- inga enda sé hann ekki að ræða um skilning nútímans á uppris- unni, heldur skilning frumkristn- innar. En eftirtektarvert sé það, að þrátt fyrir nær tuttugu aldir, sem liðnar séu síðan upprisuundr- ið átti sér stað, hafi ritskýrendur brotið heilann um það, sem sé þungamiðja málsins frá sögulegu sjónarmiði, þ.e. þá spurningu sem, mjög hafi þjakað guðfræðinga vorrar aldar: Var reynsla upprisu- vottanna eingöngu til orðin í huga þeirra sjálfra, eða voru sýnir þeirra og snerting í raun og veru skynjan hins hlutlæga? Sáu þeir Krist upprisinn, af því að þeir trúðu á hann, eða trúðu þeir á Sólin myrkvast. hann, af því að þeir höfðu séð hann upprisinn? Hyrningarsteinn trúarinnar Því er nú einu sinni þannig farið með okkur nútímamenn, að við viljum gjarnan leita eðlilegra skýringa á fyrirbrigðum sem koma okkur spánskt fyrir sjónir, helst út frá þeirri vísindalegu þekkingu sem við búum yfir enda lifum við á öld vísindanna. Upp- risuundrið verður þó ekki skýrt á þann hátt og eins og tekið er fram hér í upphafi verður hver að trúa því sem honum er eiginlegast í þeim efnum. Á það skal þó minnt, að hvernig svo sem menn vilja skýra upprisuna fyrir sér, þá er það víst, að bæði postularnir og hinir fyrstu kristnu söfnuðir trúðu henni staðfastlega, svo stað- fastlega að þeir gerðu hana að hyrningarsteini trúarinnar á Jes- úm Krist. Það var hún sem gerði hann dýrlegan í augum þeirra og sannfærði þá um, að hann væri æðra eðlis og undirstrikaði í þeirra augum að hann var það sem hann sagðist vera. Um gildi páskaboðskaparins fyrir kristna trú þarf því ekki að deila. Hann er í raun söguleg for- senda kristninnar auk þess sem upprisan styður framhaldslífið, en einmitt á því byggja kristnir menn þá trú sem gefur hinu jarð- neska lífi gildi. Því má segja, að páskaboðskapurinn fjalli öðru fremur um sigur lífsins yfir dauð- anum. Teikningar eftir Gustave Doré úr bókinni „Biblían í myndum“ útg. 1978, Auðunn Blöndal. m Jesús hnígur niður undan þunga krossins. Krossinn reistur. Jesús lagður í gröfina. Konurnar við gröfma. Minnisblað lesenda MORGUNBLAÐIÐ hefur að venju leitað upplýsinga, sem handhægt er fyrir lesendur að grípa til um bænadagana og um páskahátíðina. SlysadeiJd Slysadeild Borgarspítalans er opin allan sólarhringinn og er síminn 81212. Slökkviliðið Slökkviliðið í Reykjavík hefur símann 11100, Slökkviliðið í Hafnarfirði 51100 og Slökkvilið- ið á Akureyri 22222. Lögreglan Lögreglan í Reykjavík hefur símann 11166, upplýsingasími er 11110. Á Akureyri er síminn 23222, í Kópavogi 41200 og í Hafnarfiði er síminn 51166. Sjúkrabflar Sjúkrabílar í Reykjavík hafa símann 11100, í Hafnarfirði 51100 og á Akureyri 22222. Læknavarsla Helgarvakt hefst kl. 17 á föstudaginn og lýkur kl. 8 á mánudagsmorgun. Síminn er 21230. Tannlæknavarsla Neyðarvakt verður alla dag- ana í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg kl. 14 til 15. Síminn er 22417. Lyfjavarsla I dag, skírdag, er nætur- og helgidagavarsla í Borgar- og Reykjavíkurapóteki, en frá föstudegi til þriðjudags í Holts- og Laugavegsapóteki. Messur Tilkynningar um messur, guðsþjónustur og fermingar eru birtar á öðrum stað í blaðinu. Útvarp og sjónvarp Dagskrá útvarps og sjónvarps er einnig birt á öðrum stað í blaðinu. Bilanir Hitaveitu- og vatnsveitubilan- ir skal tilkynna til Vélamið- stöðvar Reykjavíkurborgar í síma 27311. Símabilanir tilkynn- ist í síma 05. Söluturnar og verslanir Söluturnar verða opnir eins og venjulega á skírdag, laugardag og annan páskadag, en lokaðir á föstudaginn langa og páskadag. Verslanir verða lokaðar allan tímann nema hvað opið verður á milli 9 og 12 á laugardag. Bensínafgreiðslur Bensínafgreiðslur verða opnar á skírdag og annan í páskum frá kl. 9.30 til 11.30 og á milli 13 og 16. Lokað er á föstudaginn langa og páskadag. Venjulegur opnun- artími er á laugardag. Kvöldsala á bensíni og öðrum olíuvörum fer fram á bensínstöðinni við Umferðarmiðstöðina um páska- helgina. Á skírdag er opið frá kl. 20— 23.30, lokað föstudaginn langa, á laugardag er opið frá kl. 21— 23.30 og á páskadag er lok- að. Annan í páskum er opið frá kl. 20-23.30. Strætisvagnar Reykjavíkur, Kópa- vogs og Hafnarfjarðar Á skírdag verður ekið sam- kvæmt tímatöflu sunnudaga á öllum leiðum. Á föstudaginn langa verður ennfremur ekið eft- ir tímatöflu sunnudaga, nema hvað aksturinn hefst ekki fyrr en eftir hádegi, á milli 13 og 14. Á laugardag er ekið eftir venju- legri laugardagstímatöflu. Á páskadag verður ekið eftir sunnudagstímatöflu, en akstur hefst ekki fyrr en á bilinu 13—14. Á annan í páskum verð- ur ekið eftir venjulegri sunnu- dagstímatöflu. Snjómokstur Þær upplýsingar fengust hjá vegaeftirlitinu að ráðgert er að ryðja margar leiðir 1 dag, m.a. á Snæfellsnes og vestur í Dali, til Hólmavíkur og norður í land, til Siglufjarðar og sennilega Ólafsfjarðar, til Húsavíkur og þaðan með ströndinni til Þórs- hafnar. Þá er ætlunin að reyna að opna með suðurströndinni allt austur til Egilsstaða. Ekkert verður rutt eða aðstoðað á veg- um á föstudaginn langa eða páskadag, en á laugardaginn verður mokað á þeim vegum sem daglega eru ruddir. Vegaeftirlitið hefur upplýs- ingaþjónustu í síma 21000. Frá 9—12 í dag og laugardag svarar vaktmaður í símann en annars veitir sjálfvirkur símsvari helstu upplýsingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.