Morgunblaðið - 31.03.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.03.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983 23 sokkana sem voru að hrynja niður um hann. Slógum við hring um ungfrúna og héldum pilsinu uppi á meðan tveir hagræddu nælon- sokkunum. Tvístraðist síðan hópurinn því enginn vildi láta sjá sig nálægt þessum grip. Ég tók strikið í Aust- urstræti, en „ungfrúin" arkaði á eftir mér og ég sá mitt óvænna og stökk ofan í grunn hússins Aust- urstræti 17, sem þá var í bygg- ingu, og var þetta í fyrsta og síð- asta skipti sem ég hef afneitað frænda mínum. Ofan í grunninn komst „ungfrúin" ekki og er ég þar með úr sögunni, en Sigurgeir tek- ur upp þráðinn í frásögn sinni: Mikið brá aumingja manninum helvítlega „Þegar ég hafði gert nóg af mér í kvenmannsklæðunum í Austur- stræti, vatt ég mér niður í Tryggvagötu fyrir framan Bæjar- ins beztu og þar hitti ég að máli sjómann á flutningaskipi. Þetta var stýrimaður skipsins og hann spurði mig hvort ég væri nokkuð vant við látinn. Ég kvað nei við og hann bauð mér um borð. Ég þáði það með því skilyrði að drykkjar- föng yrðu á borð borin. Var því játað og kóssinn tekinn á danska skipið. Ég var nú hálfefins í því hvort ég væri ekki að ganga skref- inu of langt og ég var fljótur að setjast í eina stólinn sem var í klefa stýrimannsins. Tókum við síðan tal saman og ég spurði manninn m.a. að því hvort hann væri ekki giftur. Hann kvað já við en fór þá að tala um það að hann yrði að leita fylgilags við aðrar konur af því að konan hans væri svo slæm í móðurlífinu. Þá fór nú að fara um mig, en það var ríflega borið á borð, svo það vó upp á móti. Stýrimaðurinn fór síðan að leita á mig og ég mátti hafa mig allan við, en líklega hefur hann aldrei hitt svona handsterkan kvenmann, því hann komst aldrei að mér eins og hann mat efni til. Svo fór að ég nennti ekki að standa í þófinu lengur og svipti af mér slæðunni og snaraði skítugum sokkum úr brjóstahaldaranum á borðið fyrir framan stýrimanninn og mikið brá aumingja manninum helvítlega. Ég var mest hræddur um að hann færi í mig, en það hefur líklega bjargað mér að ég var nokkuð stærri en hann. Svo var nú gert gott úr þessu og ég útskýrði málið og í kveðjuskyni gaf hann mér flösku af víni og bjórkassa, en eftir þetta hef ég haldið mig við karlmannsfötin. Það er nú ef til vill á misskilningi byggt, því sumir sem sáu mig þetta kvöld kváðu stórglæsilega konu hafa verið á ferðinni, sem sést náttúrulega á því að danski kaupskipaflotinn lá alveg marflat- ur í einu höggi. Svo fór að dýpka á hugmyndum Svo hætti maður svona barna- brekum, ef svo má segja, og ég flutti heim til Eyja og fór að stunda vinnu eins og almennilegt fólk. Ég hef aldrei tollað mjög lengi í sama starfi, kennt í 5—6 ár í einu, en tekið mér gott frí á milli og þá hef ég yfirleitt farið á sjó. Ég held að það sé hverjum manni ákaflega hollt að skipta um at- vinnu, verða ekki moðsoðinn í sama starfinu of lengi. Ég var til dæmis æskulýðsfulltrúi úti í Eyj- um í nokkurn tíma fyrir nokkrum árum, en það er eitt af þessum störfum sem eru ákaflega eftir- sótt. Mér skilst í dag að menn vildu fórna sálu sinni fyrir að komast í þetta starf. Ég fékk þetta og byrjaði fullur af áhuga. Þetta var ágætt og skemmtilegt að starfa í þessu með hausinn fullan af hugmyndum, bæði góðum og slæmum. Ég byrjaði strax að reyna að koma þeim að, umbylta ákveðnum hlutum og ég var búinn að ákveða þegar ég fékk þetta starf, að ég ætlaði að vera í því í tvö ár, ekki lengur. Það fór nú þannig að ég hætti ekki fyrr en eftir hálft fjórða ár og ég var al- veg sáttur við að hætta þá, búinn að koma mínum hugmyndum í framkvæmd og eitthvað var farið að dýpka á nýjum, en ég hef haft það fyrir grundvallarreglu að þeg- ar maður er orðinn svo íhaldssam- ur að neita því að aðrar hugmynd- ir en manns sjálfs séu góðar og gildar, þá á maður að hætta. Ef maður heldur áfram með slfkan hugsunarhátt, þá eru menn orðnir kerfiskallar. Ég sagði af mér i fullri vinsemd, en margir heima áttu erfitt með að skilja að maður kastaði svona fínu starfi frá sér. Einhverjir komu náttúrulega með þá kenningu að ég hefði verið rekinn úr starfi og sú sök m.a. fundin að ég hefði verið á fylliríi í starfi þótt ég hefði náttúrulega aldrei haft vín um hönd í félags- heimilinu. Mín ástæða var sú að leyfa nýjum manni að spreyta sig og taka við. Ég tel víðs fjarri að slíkt starf eigi að vera pólitískur bitlingur í skjóli þess að þarna sé um þægilega vinnu að ræða. Þetta getur verið óhemju þægilegt starf, ef maður ætlar að liggja í leti, en mér fannst þetta ekkert þægileg vinna, enda er útkoman náttúru- lega engin ef menn stíla upp á þægindin. í þessu eiga að vera frjóir menn, hugmyndaríkir, sem eru ekki allt of hræddir við að gera mistök, sízt þeir sem eru hræddir við að kippt sé í spottann. Madur var hvorki betri né verri Það er ógurlega mikið í tízku í dag, bæði hjá leikum og lærðum, að þjóðin búi við eitthvert ungl- ingavandamál. Ég er orðinn fjári leiður á þessu fjasi, því krakkar í dag eru ekkert verra fólk en annað í þessu landi og ég sé sjálfan mig í flestu sem þessir krakkar í dag eru að gera, maður var hvorki betri né verri. Einhverjir þeirra byrja ef til vill að drekka brenni- vín fyrr en tíðkaðist fyrir nokkr- um árum og verða ef til vill svolít- ið kjaftforari, ef það er þá hægt að segja að það sé einhver galli á fólki að svara fyrir sig. í dag þykir aftur á móti óhemju fréttnæmt að krakkar í Reykjavík skuli vilja hittast á kvöldin á Hótel ísland- planinu, jafnvel svo fréttnæmt að sjónvarpið fer með tæki á vett- vang og ræðir jafnvel við sálfræð- ing um málið þótt ekki sé um ann- að að ræða en það að ungt fólk vill hittast. Það hefur ekki hingað til þótt ástæða til þess hjá fjölmiðlum að fara í Broadway eða Þórskaffi til þess að fjalla um eitthvert eldra fólk sem er að gera nákvæmlega það sama og unga fólkið, nema að það eldra er innan fjögurra veggja. Meira en hægt er að segja um alla fullorðna Sömuleiðis er því slegið upp sem ógurlegri frétt fyrir skömmu að tveir eða þrír strákar lenda í áflogum við lögregluna, og þetta þykir ógurlegt mál i sumum blöð- um. Hvað ætli það komi oft fyrir að lögregian þurfi að hafa afskipti af fullorðnu fólki á skemmtistöð- um borgarinnar, án þess að það sé vaðið með það í blöðin. Þetta virð- ist þannig að ef krakkar eða ungl- ingar eiga hlut að máli, séu mál blásin upp ef það er á einhvern hátt hægt að tengja þau neikvæð- um atriðum. Ég er búinn að um- gangast börn og unglinga i bráð- um 20 ár i mínu starfi og get ekki sagt að ég hafi nokkurn tíma átt i vandræðum með að umgangast þetta fólk. Auðvitað er fólk mis- jafnt, en ef þú sýnir því traust þá sýnir það þér traust á móti og það er meira en hægt er að segja um alla sem eru fullorðnir." íslandsmet í íslenzku Ég vék talinu að íslenzku- kennslu og íslenzkri tungu. „Ég var mjög snemma læs og er sagt að fjögurra ára hafi ég lesið reiprennandi, þannig að ég man ekkert eftir því hvernig ég lærði að lesa. Ég var orðinn læs þegar ég fór að fá minningatilfinning- Sjá bls. 26. Gjöfin sem stœkkar meó námsfólkinu.... r; Verðkr 1.790. Verð!2.530.- PE 83 — borðið er nýjung. Borðið má hækka og lækka að vild og halla borðplötunni eftir því sem best hentar hverju sinni. PE83 — borðið er tilval- ið til náms og tómstunda. PE 82 stóllinn hefur skapað sér fastan sess hér á landi vegna gæða sinna og hagstæðs verðs. PE 82 fæst bæði með og án arma og hægt er að stilla setu og bak eftir hentugleikum. Og til að hafa rétta birtu við námið eða tómstunda- störfin eigum við mikið úrval LUXO — lampa. GEFÍÐ GÓÐA GJÖF — GEFIÐ GJÖF SEM STÆKKAR MEÐ NÁMSFÓLKIWU. Sendum gegn póstkröfu. ipssntiifft %mSKRIFSIÖFU HÚSGÓGN. HALLARMÚLA 2 - SlMI 83211

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.