Morgunblaðið - 31.03.1983, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 31.03.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983 33 Attræður annan í páskum: Björn Finnbogason fv. oddviti í Garði Á páskadag heldur hátíð, eins og við öll, vinur minn Björn Finnbogason, Gerðum í Garði. Hans hátíð er að auki af persónu- legu tilefni, því 3. apríl fyrir 80 árum sá hann fyrst dagsins Ijós þar suður í Garði. Foreldrar Björns voru þau Finnbogi G. Lárusson, kaupmað- ur, Húnvetningur að ætt, og fyrri kona hans, Björg Björnsdóttir, ættuð úr Kjósinni. Foreldrar Björns fluttust að Búðum á Snæ- fellsnesi 1906 og dvaldist Björn þar lengst af til 25 ára aldurs, að árunum 1914—16 undanskildum, og því ári sem hann var við nám í Flensborgarskóla. Árið 1929 snýr svo Björn aftur í Garðinn, þar sem hann hefur haldið sig síðan og sýnir ekkert fararsnið á sér, sem betur fer. Hin mikla athafnasemi sem ein- kennt hefur Björn Finnbogason er öllum kunn. Starfssaga Björns og saga Gerðahrepps um miðbik þessarar aldar eru svo samofnar, að ekki verður sundur slitið. Hvort heldur um hefur verið að ræða fiskvinnslu eða verzlun um hálfr- ar aldar skeið eða forystustörf sveitarfélagsins, m.a. sem oddviti hreppsnefndar í 36 ár. Alls staðar sem Björn Finnbogason hefur staðið að verki, hefur myndar- skapur og framsýni verið í fyrir- rúmi. Myndarlegt verzlunarhús reisti hann á vegum fyrirtækis síns og forystu í fjölmörgum mál- um sveitunga sinna hefur hann haft. Þar má nefna sjúkrahúsmál- ið, vegamálin, símamálin, skóla- málin og síðast en ekki sízt hita- veitumálin. Enginn vissi betur hvar skórinn hreppti heldur en Björn. Hann hefur ævinlega verið fljótur til að veita liðveizlu, enda í dagiegu sambandi við fjölda fólks í sínu hreppsfélagi. Sem þakklætisvott fyrir ómetanleg störf hafa sveit- ungar hans kjörið hann heiðurs- borgara Gerðahrepps. Þegar Björn veitti sveitarfélagi sínu forystu og eitthvað fór úr- skeiðis, var ekki verið að bíða eftir því að einhver annar kæmi og leysti vandann. Ég minnist þess, er ég eitt sinn var á ferð um Garð- inn, að ég sá oddvitann niðri í skurði við gröft. Ég spurði hverju þetta sætti. Svarið var: Það sprakk vatnsleiðsla og sérðu ekki maður, að ég er að gera við? Það er orðið nokkuð langt síðan við Björn Finnbogason kynnt- umst. Ég kom þá í Garðinn til fundar við Sjálfstæðismenn þar, þingmaður þeirra ólafur Thors hafði boðið mér með sér á þann fund. Björn Finnbogason var um langa hríð forystumaður Sjálf- stæðismanna í Garðinum og mik- ill stuðningsmaður og vinur ólafs. Það fór ekkert fram hjá mér frek- ar en öðrum, sérstæður persónu- leiki Björns Finnbogasonar, þegar ég sá hann fyrst. Mér flaug í hug, að erfitt yrði nú að sinna þing- störfum fyrir slíkan sérvitring, en þannig kom maðurinn mér fyrir sjónir i upphafi. Ég hafði orð á þessu við ölaf, sem svaraði: Hann Björn Finnbogason á að vera svona. Hann gæti ekki verið öðru- vísi. Þú verður sammála mér, þeg- ar þú hefur kynnzt honum jafn vel ogég. Samstarf okkar Björns Finn- bogasonar í nærri aldarfjórðung hefur verið eins og bezt verður á kosið. Um leið og Björn hefur sagt mér í hreinskilni og hispurslaust skoðanir sínar og athugasemdir, hefur ætíð vinátta og velvilji verið það, sem á bak við hefur búið. Slíka menn er dýrmætt að eiga að vinum, ég tala nú ekki um þegar um pólitísk störf er að ræða. Það er engum í kot vísað, þegar Björn Finnbogason er sóttur heim. Þar hefur staðið við hlið hans frá 1937 eiginkona hans, frú Auður Tryggvadóttir, trésmiðs Matthí- assonar, og Kristínar Þórðardótt- ur frá Skeggjastöðum í Garði. En börn þeirra eru tvö, þau Björg og Finnbogi, sem bæði eru fjöl- skyldufólk, búsett í Garðinum. Hlutverki sínu hefur frú Auður skilað með miklum ágætum, hljóð- lát og örugg. Samhliða því, að veita bónda sínum mikinn styrk í því umfangsmikla starfi, sem hann hefur sinnt, hefur hún ekki látið sitt eftir liggja, í þátttöku í félags- og menningarlífi sveitunga sinna og m.a. gegnt organista- starfi kirkju sinnar um áratuga skeið. Á þessum afmælisdegi vinar míns, Björns Finnbogasonar, sendi ég og konan mín, Birni og frú Auði og fjölskyldu þeirra beztu árnaðaróskir og undir þetta taka fjölmargir. Ég þakka vináttu og ómetanlega liðveizlu. Auðvitað hafði Ólafur Thors rétt fyrir sér hér, eins og oftar. Björn Finn- Eggjabúið á Vallá Kjalarnesi Símar 66033og 66032 bogason á að vera eins og hann hefur verið og öðruvísi ekki, svo lengi sem Guð lofar. Matthías Á. Mathiesen. Björn Finnbogason, fyrrum oddviti í Gerðahreppi, er 80 ára 3. apríl 1983. Björn Finnbogason er fæddur 3. apríl 1903 að Gerðum í Garði, son- ur hjónanna Finnboga Guðmund- ar Lárussonar kaupmanns þar og Bjargar Bjarnadóttur. Björn var kosinn í hreppsnefnd Gerðahrepps árið 1934, hann var kosinn oddviti hreppsins 1938 og var það til árs- ins 1974, eða í 36 ár. Björn var fiskverkandi í Garði frá 1930 til 1937 og kaupmaður í Gerðum frá 1937 til 1979. Nú er hann heiðurs- borgari Gerðahrepps fyrir 40 ára starf í þágu hreppsins. Björn kvæntist 17. desember 1937 Auði Tryggvadóttur frá Skeggjastöðum í Garði, gæðakonu, og eiga þau 2 börn, Finnboga og Björgu. Það væri ekki óeðlilegt að mað- ur sem var svo lengi í forystusveit í Gerðahreppi, sem Björn var, hefði orðið fyrir gagnrýni. Það var þó afar lítill minnihluti sem gagn- rýndi störf hans, flestir íbúar hreppsins treystu forystu hans. Ég undirritaður kynntist Birni lít- ið á byrjunarárum hans í hrepps- nefnd. Mér fannst hann hrjúfur í viðmóti og ekki samstarfsþýður. En eftir að ég kom í hreppsnefnd og fór að vinna með Birni fann ég þar góðan mann. Hann var mjög samvinnuþýður þegar þurfti að leysa vandamál fyrir þá sem höfðu orðið undir í lífsbaráttunni, þá var gott hjarta sem undir sló. Ég minnist þessara ára í sam- starfi við Björn með hlýhug og þakklæti. Þar sem ég veit að af- mælisbarnið er ekki hrifið af að lesa hrós um sjálft sig skal hér staðar numið. Við hjónin óskum Birni og konu hans til hamingju með daginn, og væntum þess að sjá hann á ferðinni enn um ókom- in ár. Njáll Benediktsson Á páskadag verður kunningi minn og nágranni áttræður. Það eru aðeins sex eða sjö ár síðan leiðir okkar Björns lágu saman, þá er ég flutti í Garðinn. Þá strax myndaðist með okkur kunnings- skapur. Ég var ekki hár í loftinu þegar ég heyrði fyrst talað um Björn og þá ætíð vel og satt að segja fýsti mig að kynnast honum. Björn er sérstakur maður á marga lund. Hann er mjög vel að sér. 1 þjóðmálum sem hann hefir fylgst með og hrærst í alla sína ævi. Þá finnst mér hann víðsýnni og frjálslyndari en flestir menn er ég hefi samskipti við og er það með ólíkindum því oft vill það verða svo þegar aldurinn færist yfir að fólk verður þröngsýnt og ein- strengingslegt. Þá er ekki að sjá að aldursmunur okkar skipti neinu þegar við ræðumst við og má kannski segja að það megi ekki á milli sjá hvor er yngri enda þótt 45 ár skilji á milli okkar. Fjölskyldurnar í Gerðum óska Birni Finnbogasyni, konu hans og fjölskyldu allra heilla um kom- andi framtíð. Arnór Ragnarsson GEFURPÚ FERMCNGARGJÖF IAR? Ef svo er.þú viljum vió benda þér á ad værdarvoðir okkar eru vin - sælar fermingargjafir. Værdarvod er hlý og mjúk, og til margra hluta nytsamleg - sem rúm- ábreida, til þess að halia sér undir þegar komid er inn úr kuldanum, og til þess að bregða yfir sig og halda á sér hita i útilegum - svo nokkur dæmi séu nefnd. VÆRÐARVOÐ- FERMINGARGJÖFIN SEM HLÝJAR. A\díoss- búöin Vesturgötu2 simi 13404

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.