Morgunblaðið - 31.03.1983, Side 34

Morgunblaðið - 31.03.1983, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983 Francois Mitterand forseti I sjónvarpsávarpi sem beóið var með eftirvænt- ingu. En þótti heldur efnislítið þegar til kom. Til mikillar furðu kom Pierre Moroy úr Elysehöll eftir að hafa fengið lausn fyrir ríkisstjórn sína, með umboð forseta til að mynda nýja. Útkoman að mestu sömu ráðherrar, en nú aðeins 15 sem aðalráðherrar, 8 sem meðráðherrar og 20 undirráðherrar — í stað 34 jafnrétthárra. Takmörkun á ferðagjaldeyri Frakka eftir 3ju gengisfellingu á 22 mánuðum eftir Elínu Pálmadóttur fastur stuðningsmaður forsetans og farsæll flokksmaður í Sósíal- istaflokknum, hafði í lokin verið sá eini sem sátt var um í bili. Og flokkurinn hafði lagst á þá ár. Lagt að forsetanum að varpa hon- um ekki fyrir borð. En alkunnugt er að Francois Mitterand hefur svo lengi lagt allt kapp á að halda vinstri örmum öllum saman, að samheldni í flokknum er honum enn heilagra mál en samheldni meðal þjóðarinnar. Drátturinn á tilkynningunni var til að gefa kommúnistaleiðtoganum Marcais svigrúm til að skýra fyrir sínum mönnum, af hverju þeir ættu að sitja í stjórn þrátt fyrir niður- skurð á aðalráðherrunum 2. Þeir kæmu aftur inn sem undirráð- herrar. En til að stöðva fylgistap kommúnista væri þeim best að sitja enn við völd. Á miðvikudagsmorgun í sl. viku lá fyrir hinn nýi listi frönsku stjórnarinnar undir forystu Pierre Mauroys forsætisráðherra. Nú að- eins 15 ráðherrar í stærstu emb- ættum. Efst og valdamestur fyrir utan forsætisráðherrann trónar Jacques Delor, sem tekur efna- hags- og fjármálin, Beregovoy verður að láta sér nægja félags- málin um sinn. Gaston Deferre heldur áfram að vera valdamikill innanríkisráðherra og takast á við valddreifingaráætlanir. Við höld- um okkar ráðherra, Claude Ceyss- on, segir starfsfólkið í utanríkis- ráðuneytinu sigri hrósandi við mig um morguninn. En Michel Rochard, hættulegasti keppi- nautur Mitterands er settur í landbúnaðarmálin, sumir segja meinlega að ekkert þyki gera til þótt hann verði útsettur fyrir þau erfiðu mál í Frakklandi. Eina kon- an í aðalstjórninni, Edith Cresson, tekur viðskipta- og ferðamál og verður því fyrst fyrir óánægju- bylgjunni þegar nýju efnahags- ráðstafanirnar skella á. Það er út af fyrir sig skiljanlegt að ógerlegt verði að taka ákvarðanir um nauð- synlegar erfiðar efnahagsráðstaf- anir á ríkisstjórnarfundum með Það var mikið um að vera í frönskum stjórnmálum alla síðustu viku. Stutt stórra högga á milli. Mikil eftirvænting ríkjandi og stöðug spenna í þjóðlíf- inu, sem endurspeglaðist í öllum fjölmiðlum landsins. Blöðin og almenningur stöðugt að spá í hvað væri að gerast og mundi verða næst, sem reyndist raunar jafnoft rangt. Það var vissulega fróðlegt fyrir undirritaðan blaðamann Morgunblaðsins að fylgjast með aðgerðunum og ekki síður viðbrögðum Frakka við þeim skref fyrir skref. Jafavel þótt það kæmi niður á því að ógerlegt reyndist að ná í viðmælendur úr hópi ráðherra eða helstu talsmanna þeirra um ákveðna málaflokka. Enda vissi sá varla stundinni lengur hvort hann í rauninni sæti fast í sínu ráðuneyti eða væri þaðan fallinn með áformin, sem hann væri þá að gera grein fyrir við erlendan blaðamann. Svo var um Jack Lang, menningarmálaráöherra, sem við þrír blaðamenn náðum að taka í höndina á kl. 7 að kvöldi þriðjudags, að klukkustundu seinna var þessi umdeildi ráðherra orðinn embættislaus í næstu 24 tímana, skaut svo aftur upp sem ráðherra eða „ministre delegue“ til að sjá ura sömu mál og áður á fimmtudag. En þetta þarfnast allt skýringar við. enn nýja. Pierre Mauroy hafði lýst því yfir að hann mundi ekki sitja í stjórn gegnum þriðju gengisfell- inguna. Hafði verið ósammála for- setanum um hana og hann var heldur ekki sáttur við „róttækar" efnahagsaðgerðir í kjölfarið, eins og aðrir töldu nauðsynlegt. Gamli jálkurinn Michel Jobert, sem kom til íslands sem utanríkisráðherra með Pompidou á sínum tíma, hafði nú hiaupið af skútunni sem ráðherra utanríkisviðskipta, svo og iðnaðarráðherrann og leiðtogi hinnar vinstri sinnuðu Ceres- grúppu Jean Pierre Chevenument og lauk þar með bandalaginu við Mitterand. Allir vissu að nú yrði hreinsað til í stjórninni og skipt um. Yrði forsætisráðherrann Bér- egovoy eða Delor? Mundi þessi ráðherra sitja eða falla? Spenn- andi. FORSETINN FLYTUR BOÐSKAP Orðrómurinn gekk. Blaðamenn vöktuðu ráðherra. Mitterand for- seti er sagður vera að hugsa málið. Á mánudag og þriðjudag segja all- ir: Forsetinn ætlar að flytja ræðu í sjónvarpi á miðvikudagskvöld. Þá fáum við að vita. Þetta verður þá ljóst! segja menn. En á þriðju- dagskvöld kom skyndilega fregnin um að í kvöldfréttum muni til- kynnt hver taki við stjórnarmynd- un af Mauroy forsætisráðherra, sem hefur setið á löngum fundum með forseta. Þykir svolítið skrýtið fyrir boðskap forsetans. Blaðafull- trúi Jack Langs menntamálaráð- herra segir mér kl. 7 að hún verði að ná ráðherra sínum að sjónvarp- inu fyrir kl. 8 til að heyra fréttirn- ar um nýja stjórn. En líður og bíð- ur til kl. 11.45 um kvöldið er loks kemur fréttatilkynning úr for- setahöllinni. Pierre Mauroy hefur fengið lausn fyrir sína ríkisstjórn. Pierre Mauroy hefur verið falið af forseta lýðveldisins að mynda nýja ríkisstjórn. Nú vissu menn ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Seinna komu þær skýringar að Mauroy, sem hefur reynst stað- láðherrarnir 15, sem skipa „átakastjórnina“ frönsku, en hún á að vinna upp greiðsluhalla. Allt þetta umrót hófst á mánu- dag, 21. marz, eftir seinni umferð- ina í sveitarstjórnarkosningum í Frakklandi viku fyrr, sem allir fylgjendur Mitterands forseta og stjórnmálamenn úr meirihlutan- um viðurkenndu að hefðu orðið al- varleg aðvörðun frá þjóðinni. Hún væri hreint ekki ánægð með tveggja ára sósíalska stjórn Francois Mitterands forseta og hans manna, enda féllu sumir af vinstri borgarstjórum í landinu, en aðrir sluppu með skrekkinn, þar á meðal helstu ráðherrar hans, eins og Deferre innanríkis- ráðherra og borgarstjóri í Mar- seille og Pierre Mauroy forsætis- ráðherra og borgarstjóri í Lille. Hann var snarlega kallaður á fund forsetans, sem kvaðst mundu stokka upp sína stjórn. Það lá í loftinu að Mauroy yrði að víkja og nýr forsætisráðherra, líklega Bér- egovoy, látinn mynda nýja stjórn. Sem sagt, Mauroy var um það bil afskrifaður í upphafi þessarar afdrifaríku viku. En ýmislegt þurfti að afgreiða fyrst. Franski frankinn stóð höllum fæti. Mikill halli á utanríkisviðskiptum. Stjórnarandstæðingar sögðu að hin slæma staða í efnahagsmálum hefði verið falin viljandi fram yfir sveitarstjórnarkosningar, sem dugði þó ekki til. Nú varð ekki lengur undan vikist. Pierre Mauroy forsætisráðherra hafði fyrir kosningarnar „algerlega hafnað" nýrri gengisfellingu, þeirri þriðju á tveggja ára valda- ferli sósíalista og Mitterands, sem frönskum almenningi þótti erfið hremming að gleypa. Og var hon- um síðan rækilega núið um nasir ummælunum: „Við erum stjórn sem heldur gefin loforð." Nú varð forsætisráðherrann að viðurkenna að meðan verðbólgan í Frakklandi héldi áfram að vera meiri en í nágrannalöndum (hún er innan við 10%), þá væri gildi frankans stöðugt ógnað af dollaranum og þýska markinu. Og á miklum fundum Efnahagsbandalagsins í Bruxelles um helgina tókust ráð- herrar landanna á um gengisfell- ingu franska frankans. Átti öll gengisfellingin 8% að koma niður á Frökkum, eða fengjust Þjóðverj- ar til að hækka gengi marksins á móti? Af blöðum að dæma þótti Frökkum greinilega heiður sinn liggja við að sitja ekki einir í súp- unni. Og í Bruxelles náðist loks samkomulag, sem bjargaði að nokkru að þeir mættu andlitinu halda, gengisfall á frankanum 5,5% og hækkun á þýzka markinu 2,5%. En ekki voru allir ánægðir með þessi úrslit. Mikið talað um og hneykslast á því að eftir tvær ríkisstjórnir kæmi þriðja gengis- fellingin síðan sósíalistar komust til valda í landinu 21. maí 1981 og menn töluðu jafnvel um að ráð- herrarnir kæmu nú frá Bruxelles sigraðir eins og forðum við Water- loo. Og nú lá fyrir að varpa síðari stjórn þeirra fyrir borð og mynda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.