Tíminn - 10.08.1965, Page 5

Tíminn - 10.08.1965, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 10. ágúst 1965 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastj.: Steingrimur Gislason Ritstj.skrifstofur i Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur, Bankastræti 7 Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300 Áskriftargjald kr 90.00 á mán innanlands — í lausasölU kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. Slæm Islandskynning á Norðurlöndum íslenzkur menntamaður, sem hefur ritað fréttagrein- ar um íslenzk málefni í útbreidd blöð á Norðurlöndum, hefur lent í ónáð hjá ríkisstjórninni, og þvi orðið m.a. að leita sér starfs erlendis. Ríkisstjórnin hefur einkum fundið það að greinum hans, að hann skrifaði ekki nógu lofsamlega um efnahagsmálastefnu hennar. Ríkisstjórnin vinnur nú sjáíf að því að kynna efna- hagsmálastefnu sína á Norðurlöndum án nokkurrar milli- göngu fréttamanna eða blaðamanna. Innan skamms munu þjóðþingin í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi fjalla um málefni, sem snertir ísland og varpar glöggu ljósi á efnahagsmálastefnu íslenzku ríkisstjórnarinnar og afleiðingar hennar. Eins og kunnugt er hafa þessi fjögur lönd ákveðið að leggja fram fé til þess að byggja norrænt hús í Reykja- vík. Fyrir rúmlega ári síðan var kostnaðurinn við þessa byggingu áætlaður tæpar 17 millj. íslenzkra króna, og voru löndin fjögur búin að skipta þessari upphæð á milli sín eftir ákveðnum reglum- Eftir að verkið hafði verið boðið út, kom hins vegar í ljós, að enginn verktaki, sem var talinn fullgildur, vildi taka það að sér fyrir minna en 38—39 milljónir króna. Þessum tilboðum var hafnað, en ákveðið jafnframt að gera nýja kostnaðaráætlun. Sú áætlun leiddi í ljós, að í hinni fyrri áætlun hafði ekki verið reiknað nægilega með ýmsum greiðslum umfram kauptaxta og því til viðbótar hafði byggingarkostnað- urinn hækkað um 20% á einu ári. Hin nýja áætlun gerir ráð fyrir því, að byggingin muni kosta 30 millj. kr., en síðan hún var gerð, hefur kostnaðurinn enn hækkað um 10%. Miðað við verðlag á miðju ári 1965 er því reiknað með, að byggingin kosti 33 millj. kr. Það telja hinir norrænu sérfræðingar, sem seinast hafa um þessa áætlun fjallað, hins vegar ekki nógu var- lega áætlað. Þeir reikna með, að byggingartíminn verði IV2 ár, og að á þeim tíma megi reikna með 25—30% hækkun á byggingarkostnaði á íslandi samkv. fyrri reynslu. „Aftenposten“ í Osló orðar þetta þannig í frétt síðastl. fimmtudag, en hún byggist á viðtaii við Odvar Hedlund, sem hefur mest fjallað um þetta mál í Noregi: „I löpet av byggetiden pá halvannet ár regner han med en ytterligere prisstigning pá 25—30 prosent hvis inflasjonen fortsetter som hittil.' I samræmi við þessa nýju áætlun verður í haust farið fram á það við viðkomandi fjögur þjóðþing, að þau hækki fjárveitinguna til Norræna hússins í Reykjavík. Hér hafa menn óhlutdrægt mat norrænna sérfræðinga á efnahagsstjórn þeirra dr. Bjarna Benediktssonar og dr. Gylfa Þ. Gíslasonar og afleiðingum hennar. Hvergi í Evrópu hefur átt sér stað svipuð hækkun byggingarkostnaðar og á íslandi síðustu þrjú missirin, eða síðan dr. Bjarni varð-forsætisráðherra. Hvergi ann- ars staðar rei'kna heldur óhlutdrægir erlendir sérfræð- ingar með því, að byggingarkostnaður sé líklegur til að hækka um 25—30% þrjú næstu missirin að óbreyttri stefnu. Það verður því ekki með sanni sagt, að efnahags- stjórn þeirra dr. Bjarna og dr. Gylfa sé góð kynning fyrir ísland á Norðurlöndum, og mun nú áreiðanlega þeim, sem þar hafa lesið greinar Ólafs Gunnarssonar, fremur finnast, að hann hafi verið mjög varfærinn í frá- sögnum sínum en hið gagnstæða. TÍMINN • i Sigurður Vilhjálmssori, Hánefsstöðum: Ef við virðum fyrir okíuir auðsuppsprettur íslands, verð- ur fyrst fyrir augum gróður- lendið, vatnsaflið, sem lýsir sér í fossum, jarðhitinn, þar sem hans nýtur og hafið um- hverfis landið með öllu því lífi og bjargræði scm það býð- ur upp á. Hvar eru nú þessar auðlindir mestar? Eg ætla, að þær séu dreifðar um allt land ið, og það hendist á munum, hvar þær eru mestar og beztar. Þær eru þó mismunandi árviss ar og gjöfular. Hvers vegna er þá ástæða til að vera að tala um jafnvægisleysi í byggð landsins Ekki af því, að Ing- ólfur Arnarson settist að í Reykjavík. Það var tilviljun ein, sem réði því eða ef til vill eitthvað annað, sem við skiljum ekki. Það hefur um langt árabil verið haldið þannig á málum þjóðarinnar, að mikill meiri- hluti þeirrar fjárveltu, sem auðlindir landsins leggja til, fer fram á tiltölulega litlum bletti í Reykjavík. Þessi stað- ur sogar svo í æ ríkara mæli til sín arðinn af þeim auði, sem náttúra landsins leggur þjóðinni til. Afleiðingin af þessu er svo aftur sú, að í krinig um þennam arðskjarna þarf aukinn mannafla saman- ber fjölda bankamanna, opin- berra starfsmannaogkaupsýslu manna og þjónustuliðs þeirra. Þessi stjórnun fjármagns og þjónustu leiðir svo aftur til þess, að fólkinu, sem vinnur við hinar dreifðu auðlindir smáfækkar og sumar þeirra verða ónýttar þess vegna. Hins vegar veldur ný tækni því, að ekki hefur orðið samdráttur í framleiðslu verðmæta. Með vél væðingunni er harðar gengið að náttúruauð landsins, þvátt fyrir fækkun þess fólks, sem vinnur að hagnýtingu hans. Bændum og öðru því fólki sem nytjar gróðurmátt lands- ins, hefur fyrir löngu skilizt, að samstarf við þessi náttúru- gæði er heppilegra en barátta við þau. Á þeim skilningi bygg ist öll ræktun &g vegna henn- ar vex afrakstur landsins. Til eru þeir menn, sem líta þessa viðleitni skjálgu auga og jafnvel, að þeim finnist óþarf lega margir bændur vera á landinu. Hins vegar virðast þeir ekki sjá neitt athugavert við það, að lífinu í hafinu sé engin vægð sýnd, a.m.k. eru ekki eins gjallandi raddirþeirra um þá hættu, sem stafar af því, eins og hættunni af of mörgum mönnum, sem hagnýta gróðurmoldina og hjálpa henni til aukins afraksturs. Þar sem samskipti mannanna eru við jafn gjöfula náttúru eins og hér á íslandi, getur verið nauðsynlegt að breyta einhverju af þeim efnum, sem framleidd eru, í vörur, sem henta betur annars staðar en hér á landi. Á þetta við um framleiðsluna, hvort sem hún er fengin af sjó eða af landi. Eins og kunnugt er, eru af- urðir landsins, sem auðveldasi er að framleiða hér og náttúru legast ull, slcinn, kjöt og mjólk og alls konar feiti, og af afurð Sigurður Vilhjálmsson um sjávarins alls konar tegund ir fiskjar, sem gefa af sér auk sjálfs bolsins allskonar önnur efni, mest lýsi af ýmsum teg- undum eftir því, af hvaða fisk um það er fengið. Nú er það staðreynd, að mik ið af ull og gærum og öðnim skinnum er flutt úr landinu sem hráefni, ennfremur mest- ur hluti lýsisins. Þá er mikið af saltaðri síld flutt út sem hráefni handa öðrum þjóðum, sem framleiða úr síldinni miklu verðmeiri vöru, sem svo aftur keppir við þá vöru, sem framleidd er í landinu. Það sýnist því, að íslenzk náttúruauðæfi bjóði framtaks- sömum mönnum upp á næg verkefni og kalli á hugkvæmini manna og þekkingu til' þess að hagnýta enn betur auðlind- ir landsins og sérstaklega með úrvinnslu þeirra hráefna sem fyrir hendi eru. Það er margt talað um jafn- vægisleysi í byggð landsins. Það virðist svo sem flestum þyki nóg orðið um aðstreymið að Faxaflóa. Það er talað um það hlutverk að stuðla að svo- kölluðu jafnvægi í upbyggingu iandsins. Vissulega gæti það verið gagnlegt, að til væri sjóð ur, sem hægt væri að verja til stuðnings framtaks i dreif- býlinu. Mest veltur þó á, að fólkinu, sem býr í hinum dreifðu byggðum sé alvara með að búa þar áfram. Ef þeim, sem ráða, er alvara með, að landið sé albyggt, ætti að mega vænta stuðnings þeirra við þá viðleitni, sem sýnd er til þess, að svo megi verða. Bankamönnum þarf að skiljast, að fjármagn þarf til hagnýtingar auðlindanna. Og að hagnýting þeirra er einmitt undirstaða allrar fjárhags- myndunar. Nú er það svo, að mikill hluti íslenzki>Mr fram- leiðslu er hráefnaframleiðsla, og mikið vantar á, að verð- gildi hennar notist til fulls. Verulegt magn er flutt óunnið úr landi og selt öðrum þjóðum sem taka hagnaðinn af að fuil- vinna þessar vörur. Til þess að notfæra sér möguleikana, sem felast í þeim hráefnum, sem til falla, þarf að koma á fót verksmiðjum við hæfi þess ara hráefna. Ef möninum er annt um að auka möguleikana á að halda jafnvægi í byggð landsins ættu að rísa verksmiðj ur víðs vegar í dreifbýlinu hér og þar sem hráefnin falla til eða auðvelt er að afla þeirra fyrir iðnaðimn. Svo dæmi séu nefnd t.d. ullar- og skinnaiðn- að á Fljótsdalshéraði, sem er stórframleiðandi á sauðfjáraf- urðum. Sfldariðnað á Aujst- fjörðum og á Norðurlandi. Lýs. is- og feitmetisiðnað eftir því sem aðstæður leyfðu, o.s.frv. Það er verðugt verkefni mennt- aðra mairna að beina þekkingu sinni að þessum viðfangsefn- um. Næstu kynslóðir þurfa ekki að hafa áhyggjur út af því, að verkefni vanti. Fyrirkomulag þess iðnrekst- urs, sem um væri að ræða, gæti verið með ýmsu móti. Til dæmis væri eðlilegt, að kaup- félögin á Austurlandi bindust samtökum um að koma ullar- og skinnaiðnaði á fót og starf rækja þær verksmiðjur, sem til þess þyrfti. Annars mætti hafa ýmiss konar form á þessu eftir því, sem ástæður leyfðu, eða einstakir athafnamenn legðu sig fram um að ráðast í. Eitthvert mikilvægasta at- riðið í þessum iðnaðarmálum er þó markaðsmálin og myndi þar þurfa til dugmikla menn að fitnna markaði og afla þeirra fyrir þær vörur, sem unnar væru. í raun og veru er engin vara neins vlrði fyrr en kaup- andi að henni er fenginn. Ríkið þarf að reka markaðsleit og könnun á markað^möguleik- um um alla jörð og má ekki horfa í. nokkurn kostnað til þess að leita uppi möguleika í þeim efnum. Að þessu verður að vinna milliliðalaust og al- hliða. Það verður að kynna sér þá möguleika, sem eru í lirácfn unum sjálfum og hvaða efni það eru, sem væntanlegir kaup endur vildu fá. Stóriðjan og erlent fjármagn eru lokkandi hugarfóstur. At- vinnulausri þjóð myndi koma sér vel slíkir kostir ef i boði væru. Þar myndu vera bundnar glæstar framtíðarhorfur. Nokk uð öðru máli gegnir um þjóð, sem vantar mannafla til að hag nýta þau hráefni, sem til falla við þanm atvinnurekstur, sem fyrir liendi er. Þess vegna má stóriðja ekki verða til þess, að menn missi sjónar á nauð- synlegum athöfnum, sem sam- rýmdust betur uppbyggingu og þroskaferli þjóðarinnar. Þjóð ir eins og einstaklingar verða að læra þá list að „sníða sér stakk eftir vexti“. Stórhugur og glæsimennska heilla ekki síður en stóriðja. Þetta eru mjög skemmtileg orð og hljóma vel hjá öllum, sem hafa manndóm til að gera þessi hugtök að veruleika. Við íslendingar þekkjum vel orð eins og „nýsköpun“ og „við- reisn“ og þann stórhug og stór Framhald á bls. 7

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.