Morgunblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 14
„Vona að gagnrýni blaðanna verði jákvæð“ „ÉG er ekkert of bjartsýnn á mót- ió í sumar. Ég tel að átta lið í 1. deildinni eigi sömu möguleika og Valur á íslandsmeistaratitlinum í ár. Mótið verður jafnt og spenn- andi alveg eins og í fyrra,“ sagði Klaus Peter, þjálfari Valsmanna. — Vonandi verður knatt- spyrnan skemmtileg og ánægju- leg fyrir áhorfendur. Knatt- spyrnan þarf að opnast meira og það má ekki spila jafn stífan varnarleik og sum lið gerðu í fyrra. KR-ingar fengu til dæmis flest sín stig út úr markalausum jafnteflisleikjum, þar sem þeir lögðu áherslu á stífan varnar- leik. ..— Þá vona ég að gagnrýni blaðamanna verði jákvæðari en hún var í fyrrasumar. Það má Klaus Peter þjálfari ekki bera knattspyrnuna hér á landi saman við knattspyrnu sem leikinn er í Evrópu. Hér búa 200 þúsund manns. Og það er til dæmis verið að bera saman knattspyrnuna hér og í V-Þýska- landi þaðan sem ég kem. Þar búa 50 milljónir manna. Allar að- stæður eru margfalt betri. Sam- anburður er ósanngjarn og gerir engum gott. — Það væri möguleiki á því að reyna að gera leikina skemmtilegri með því að veita aukastig fyrir 3 skoruð mörk eins og gert er í Reykjavíkur- mótinu. Það myndi sjálfsagt auka sóknarleikinn. En mér finnst knattspyrnan hér vera góð miðað við fólksfjölda og þær aðstæður sem boðið er uppá. - ÞR. „Hóflega bjartsýnn á góðan árangur Valsmanna“ „ÉG ER mjög hóflega bjartsýnn á árangur okkar Valsmanna í sumar. Við erum með sterkan og mjög samstilltan hóp og vonandi nær hann langt. Þar sem breiddin er mikil hjá okkur er hart barist um hvert sæti í liðinu og það ætti að verða til þess að hver og einn ein- stakur leikmaður verður að sýna góða frammistöðu í leikjum til þess að halda sæti sínu,“ sagði Grímur Sæmundsen, fyrirliði Vals. — Ég vil engu spá um það hvar við höfnum í deildinni í ár. Það verður án efa hart barist um efstu sætin eins og svo oft áður. Lið Vals í sumar er byggt upp á góðri blöndu af leikreyndum eldri spilurum og svo ungum og efnilegum leikmönnum og þetta ætti að geta farið vel saman. Grímur Sæmundsen — Klaus Peter er nú með okkur annað árið í röð og það er mikill styrkur sem felst í því að hafa sama þjálfara áfram. Hann þekkir orðið leikmenn sína vel svo og þær aðstæður sem við búum við hér. — Knattspyrnan í sumar verður betri en í fyrrasumar. Það hefur orðið hugarfarsbreyt- ing og nú verður leikinn líflegri knattspyrna að mínu mati. Enda hafa fyrstu leikir mótsins þegar sýnt að meira er sótt og ekki er varist eins stíft og sum liðin gerðu sig sek um í fyrra. — Þau lið sem verða sterk í sumar að mínum dómi eru lið Keflavíkur, Akraness. Það sækir enginn gull í greipar þeirra. — ÞR. „Fjögur lið skera sig nokkuð úr í sumar“ „ÞAÐ SEM af er sumri er knatt- spyrnan tvímælalaust betri en hún var í fyrra. Leikirnir eru ekki eins þófkenndir og þeir voru þá. Vals- liðid spilar mun betur og ég ætla að vona að það verði áframhald á því. Liðið er með mikið af bráð- efnilegum knattspyrnumönnum og jafnframt reynda leikmenn sem geta náð langt undir stjórn Klaus Peter, sem nú er með liðið annað árið í röð. Það hefur líka mikið að segja að hann byggir á reynslu frá því í fyrra,“ sagði formaður knatt- spyrnudeildar Vals, Sigtryggur Jónsson. — Nú strax í upphafi mótsins hafa hinsvegar meiðsl sett nokk- urt strik í reikningin, Dýri er meiddur, Brynjar markvörður er meiddur og fleiri eiga við meiðsl Sigtryggur Jónsson að stríða. Hópurinn hjá okkur er stór og breiddin er mikil og ég vona að við lendum ekki í vand- ræðum vegna meiðsla leikmanna í sumar. Mótið verður jafnt í sumar. Ég á þó von á því að fjögur lið skeri sig nokkuð úr og verði í efstu sætunum. Það eru lið ÍA, ÍBK, ÍBV og Valur. Baráttan á botn- inum verður harðari en oft áður. — Nú, við í Val höfum komist mjög vel frá knattspyrnumótum í yngri flokkunum og því erum við bjartsýnir á framtiðina. Við eigum mikið af efnivið sem á eft- ir að gera félagi okkar gagn á næstu árum. Það er því bjart- sýni ríkjandi hvað árangur snertir hjá knattspyrnudeildinni í heild. - ÞR. Brynjar Guðmundsson, Guðmundur Hreiðars- (,uðmundur Kjartans- markvörður, 22 ára son, markvörður, 22 ára son, varnarmaður, 23 hjólb.viðg.maður. nemi. ára framkv.stjóri. lllfar Hróarsson, Magni Blöndal Péturs- Dýri Guðmundsson, varnarmaður, 23 ára son, miðvallarleikmað- varnarmaður, 31 árs trésmiður. ur, 26 ára verslunarm. viðskiptafræðingur. Þorgrímur Þráinsson, Ingi Bjöm Albertsson, Hilmar Sighvatsson, miðvallarleikmaður, 24 framherji, 30 ára, miðvallarleikmaður, 23 ára sölumaður. framkv.stjóri. ára rafvirki. Þorsteinn Sigurðsson, Njáll Eiðsson, Jón Grétar Jónsson, framherji, 23 ára miðvallarleikmaður, 24 miðvallarleikmaður, 17 skrifst.maður. ára kennari. ára nemi. Borgþór Magnússon, Samúel Grytvik, Hörður Hilmarsson, miðvallarleikmaður, 20 varnarmaður, 22 ára miðvallarleikmaður, 30 ára laganemi. verslunarmaður. ára kennari. Guðmundur Þorbjörns- son, miðvallarleikmaður, 26 ára verkfræðingur. Sigurður Sveinbjörns- son, framherji, 22 ára nemi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.