Morgunblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1983 57 Um 8,1% tap varð í prjóna- iðnaðinum ’81 AFKOMA fyrirtækja í prjónaiðnaði hefur verið mjög mismunandi á liðn- um árum, eins og meðfylgjandi tafla, sem birt er í nýjasta fréttabréfi Iðn- tæknistofnunar íslands, ber augljós- lega með sér. Ef skoðaður er hreinn hagnaður eftir skatta og framlegð í hlutfalli við framleiðslutekjur kemur fram, að í ullariðnaði var hagnaður 1,2% árið 1972. Er síðan breytilegt rétt- um megin við rauða strikið fram til ársins 1979, þegar það er nei- kvætt um 3%. Um 2,7% tap er síðan árið 1980 og um 2,3% árið 1981. f prjónaiðnaði almennt er af- koman nokkuð misjafnari. Um 0,6% hagnaður er árið 1972, en ár- ið 1973 er um 2,7% tap af rekstrin- um. Hagnaður er síðan af rekstri AFKOMUÞRÓUN í PRJÓNAIÐNAÐI HREINN HÍÖIÖfiUR EFTIR SKATTA 06 FIWUGB Í HUJTFALLI VB FWUIflSUJTBOUR: UUARBNMUR PRJÚWflwajR HAÖIðflUR HUWfiUR 1972 1.2 0.6 1973 0.0 -2.7 1974 2.0 1.4 1975 5.6 3.3 1976 1.2 2.3 1977 0.3 -0.4 1978 1.7 -3.9 1979 -3.0 -3.3 1980 -2.7 -0.9 1981 -2.3 -8.1 fram til ársins 1977, þegar 0,4% tap verður. Tap hefur síðan verið af rekstri allar götur síðan. Mest árið 1981, eða um 8,1%. VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF Umsjón: Sighvatur Blöndahl Methagnaður Chrysler á 1. ársfjórðungi 1983 Chrysler-bílaverksmiðjurnar banda- rísku tilkynntu á dögunum, að hagnað- ur fyrirtækisins á fyrsta ársfjórðungi hefði verið um 172,1 milljón dollara, sem er mesti hagnaður af rekstri fyrir- tækisins á einum ársfjórðungi fyrr og síðar. Hagnaður þessi jafngildir um 1,97 dollurum á hvern hlut i fyrirtækinu. Mesti hagnaður af rekstri Chrysler á einum ársfjórðungi áður var á 1. ársfjórðungi ársins 1976, þegar hagnaður af rekstri varð um 155,1 milljón dollara. Til samanburðar við hagnað Chrysler á 1. ársfjórðungi í ár má geta þess, að rekstrarhagnaður fyrirtækisins á 1. ársfjórðungi 1982 var um 149,9 milljónir dollara, eða sem svaraði til 1,95 dollara á hvern hlut. Lee Iacocca, aðalforstjóri Chrysl- er, sagði á blaðamannafundi, að hin síbatnandi afkoma fyrirtækisins væri fyrst og fremst því að þakka, að tekizt hefði að hagræða verulega í rekstri fyrirtækisins, lækka kostn- að og fá fram meiri framleiðni og ættu starfsmenn fyrirtækisins þar stóran hlut að máli. „Án samstillts átaks allra starfsmanna hefði þessi uppgangur ekki verið mögulegur." Heildarsala Chrysler á 1. árs- fjórðungi var samtals um 3,1 millj- arður dollara, borið saman við 2,5 milljónir dollara á sama tíma í fyrra. Söluaukningin milli ára er því liðlega 24%. eldast milli 27 og 28 fiskibátar ár- lega á næstunni (þ.e. 27,63), eða 1.446 brúttólestir. Ennfremur, að áætlað úrfall í Reykjaneskjördæmi verður langmest, enda flotinn þar til muna eldri en í öðrum landshlut- um. Þannig verður úrfallið í Reykjaneskjördæmi 32,6% af heild- arúreldingu, talið í brúttórúmlest- um og 26,6% í fjölda skipa. Þar á eftir kemur Suðurlandskjördæmi með 20,5% í brúttórúmlestum og 16,1% í fjölda skipa. Stjórn Félags dráttarbrauta og skipasmiðja var öll endurkjörin, en hana skipa Jón Sveinsson, formað- ur, Þorgeir Jósefsson, varaformað- ur og meðstjórnendur þeir Guð- mundur Marsellíusson, Gunnar Ragnars og Þórarinn Sveinsson. Málverkið; Hver er í Krísuvík eftir Ásgrím Jónsson. Sumarsýning Ásgrímssafns MIÐVIKUDAGINN 1. júní verður hin árlega sumarsýning Ásgríms- safns opnuð og er hún 58. sýning safnsins. Á sýningunni eru mestmegnis vatnslitamyndir og kolateikn- ingar. Málverkin á sýningunni eru máluð víðsvegar á landinu þ.á m. í Krísuvík, á Þingvöllum, Mý- vatnssveit, Húsafelli og Horna- firði. Einnig eru sýndar allmargar blómamyndir málaðar á árunum 1937 og 1946. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, verður opið júní, júlí og ágúst daglega kl. 1.30 til 4.00, nema laugardaga. Aðgangur er ókeypis. \ “ i< Hf, SKRIFSTOFUVELAR H.F. % ___ Hverfisgötu 33 Simi 20560

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.