Alþýðublaðið - 17.09.1920, Blaðsíða 3
uppástungu landsstjórnarinnar
"m að skipa verðlagsnefnd, og
stakk bæjarstjóm upp á £ hana
Birni Sigurðssyni fyrv. sendiherra
í London, Héðni Valdimarssyni
cand. polyt. og Guðjóni Guðlögs-
syni alþm.
Flótti bolsivíka. Morgunblaðið
flytur í dag mynd af flótta bolsi-
víka. Eftir rnyndinni að dæma er
bolsivíkaherinn tveir róssneskir
bændur vopnlausir, tvær kerlingar
á millipilsunum og 3 pokar af
kartöflum, alt á Ijórhjóluðum vagni
með tveim hestum fyrir, sem standa
jafn kyrrir og Gráni hans Jóns,
sem ekki komst úr sporunum í
Morgunblaðinu um daginnl
Islands Falk kom að norðan
í morgun. Meðal farþega Björn
O. Björnsson, stud. theol.
Éiealar jréttir.
Kosningasigrar bolsivíka i
Jugoslavín.
Fregn frá Belgrad, höfuðborg
Jugoslavíu, hermir, að við bæjar-
stjórnarkosningar er fóru þar fram
nýlega, hafi bolsivíkar komið að
30 bæjarfulltrúum og fengið þar
með yfirgnæfandi meiri hluta. Af
þessu leiðir, að borgarstjórinn í
Belgrad verður að vera úr flokki
boisivíka. Auk þessa hafa bolsi-
víkar fengið meiri hluta í 7 öðr-
um borgum í Jugoslavíu.
Rosta.
Kol frá Ameríku til Rússlandg.
Um síðustu mánaðamót kom
3000 smálesta kolaskip við í
Vardö í Noregi. Var það á leið
til Rússlands með farminn og er
það fyrsti kolafarmurinn frá Ame-
ríku er þangað fer eftir að verk-
lýðsstjórnia tók við völdum.
Tímarnir breytast.
Prinsar og prinsessur Htaka
niður fyrir sig“. Tengdadóttir Vil-
hjálms keisara, ekkja Jóakims
Prins sem fyrirfór sér i Potsdam
fyrir 2 mánuðum síðan, er trúlof-
uð verksmiðjueiganda einum stór-
auðugum í Brandenburg, Guerard
nafni. Einnig hefir krónprins-
af Saxlandi nýlega gifst dótt-
ALÞYÐUBL AÐIÐ
ur bankastjóra eins er Heinemann
heitir. Hefðu slík undur sem þessi
skeð fyrir 6—7 árum, mundi það
hafa þótt hið mesta hneyksli. Öll
stærstu blöð £ heiroi hefðu þá
fengið næg orð að fást við um
nokkurn tíma, og veslingarnir sem
hefðu orðið sekir um slíkt athæfi
hefðu verið gerðir rækir úr öllu
samfélagi við þjóðhöfðingja og
hirðir þeirra. En tímarnir breytast.
Framtíð flugvélaflutninga:
Álit H. Gr. Wells.
Nýlega hélt hinn heimsfrægi rit-
höfundur og visindamaður H. G.
Wells ræðu i Birmingham um
framtið flugflutninga. Hann kvað
ástandið í heiminum vera þannig
nú, að eigi liti glæsilega út með
flugflutninga. Væri fjandskapur
þjóðanna innbyrðis því til hindr-
unar. En samt myndi ekki takast
að spyrna á móti. Gufuskipin,
sem brezka heimsveldið bygði
sitt veldi á, væru að hverfa úr
sögunni fyrir framgangi flugvél-
anna. í framtiðinni kvað hann
flugleiðirnar myndu liggja um hin
stóru meginlönd, og verzlun og
það vald sem henni fylgdi færast
«m leið frá hinum gömlu slóðum
á nýjar. En hindranir hinna ein-
stöku Ianda gegn flugferðunum
yrðu að hverfa, og nú sæist bet-
ur og betur hver nauðsyn væri á
allsherjarstjórn fyrir allan heiminn
í þessu máli sem öðrum alþjóða-
málefnum.
Herforingjar úr liði Koltjaks
sjálfboðaliðar í ranðhernnm.
Margir af herforingjunum úr liði
Koltjaks hafa gerst sjálfboðaliðar
í her bolsivíka í stríðinu gegn
Pólverjum. Áður en þeir fóru til
herstöðvanna héldu þeir fund í
Moskva og sendu kveðjuskeyti til
3. alþjóðasambands verkamanna,
til rauðhersins og foringja verk-
lýðsins. Rosta.
Caruso kominn í leitirnar.
Fyrir nokkru síðan var sagt frá
því, að Caruso hefði hoifið er
hann var á leið milli tveggja borga
i Ameríku; var ýmsum getum
leitt að því hvað orðið hefði um
hann. En engin þeirra var rétt.
Söngmanninn langaði blátt áfram
til þess, að vera laus við leiksviðið
lítinn tíma, svo hann gæti skemt
sér við veiðar, er vinur hans hafði
__________________3__
Samtal.
Hvar verzlar þú?
Eg verzla við Theodór
Sigurgeirsson á Grundar-
stíg 11.
Er gott að verzla við
hann?
Já. Sízt er hann verri
en hinir. Hann er líka
alþýðumaður.
Nú, já. já. Eg held eg
fari þá þangað.
boðið honum á. Og vegna þess
að konan hans var í þvi sálará-
standi, að hún hafði enga löngun
til að sjá hann, stakk hann af á
millistöð svo lítið bar á og mút-
aði járnbrautarþjóninum. Þegar
hann var svo búinn að skemta scr
sem hann lysti, kom hann aftur £
leitirnar. :
Clemenceau á ný fram á
sjónarsviðið.
Þegar Clemenceau náði eigi að
verða forseti, dró hann sig i hlé
úr hinu pólitfska Kfi, en nú er
hann að vakna afíur, gamli mað-
urinn. Hann býður sig nú fram
við aukakosningar, sem fara fram
í kjördæmi einu í Bretagne, og
er talið víst að hann muni kom-
ast að þingmensku þar.
Stærstn loftskeytastöð í heimi
hafa Svíar í hyggju að reisa. Á
stöð þessi að ná til allra stöðva
heimsins og vera meðal annars i
stöðugu sambandi við stöðvar í
Norður-Ameríku.
Svissneskir járnbrantarþjónar
hafa nýlega samþykt yfirlýsingu
þess efnis að þeir myndu eigi
rétta út hendi til hjálpar við flutn-
ing á hergögnum yfir Svissland.
Eins og getið hefir verið um hér
í blaðinu áður, hefir það marg-
sinnis komið fyrir að verkamenn
í hinum ýmsu löndum hafa gert
slíkt hið sama, og væri vel farið
ef alþýðan um allan heim bindist
þannig samtökum um að vinna á
móti stríði.