Morgunblaðið - 23.09.1983, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1983
Mataræði fólks
verði skipulagt
til þess að forðast krabbamein
Bandarfkjamenn neyta 10.000
sinnum fleiri tilbúinna krabba-
meinsvaldandi efna í venjulegu,
daglegu mataræði sínu en fyrir
hendi eru í þeim lyfjum, sem fram-
leidd eru til þess að vinna bug á
sjúkdómum. Má flnna þessi efni í
alls konar fæðutegundum, allt frá
kjöti til ristaðs brauðs. Kemur
þetta fram í grein eftir Bruce N.
Ames, sem er í fararbroddi
krabbameinssérfræðinga nútím-
ans og forseti lífefnadeildar há-
skólans í Berkley í Kaliforníu.
Grein þessi birtist fyrir skemmstu
í bandaríska tímaritinu Science.
Vísindamenn hafa jafnframt
uppgötvað, að matvæli innihalda
einnig margs konar efni, sem
koma í veg fyrir krabbamein.
Þar sem talið er, að ekki muni
líða langur tími, unz krabba-
meinssérfræðingum takizt að
staðreyna, hverjir krabbameins-
valdarnir eru í fæðu fólks jafnt
sem það, sem þar er og kemur í
veg fyrir krabbamein, þá er sá
tími ekki langt framundan, að
mataræði fólks verði skipulagt
til þess að forðast marga helztu
krabbameinsvaldana.
Bruce N. Ames segir í grein
sinni, að þekktasta orsök
krabbameinsdauða séu tóbaks-
reykingar, en til þeirra megi
rekja um 30% þeirra 350.000
krabbameinsdauðsfalla, sem
eiga sér stað árlega í Bandaríkj-
unum. Mataræði er talið vera
næst helzta orsök krabbameins
en það er þó mismunandi eftir
því hvar er í heiminum. Fólk
sem flyzt búferlum frá einu
svæði til annars, hefur tilhneig-
ingu til þess að taka upp það
mataræði, sem tíðkast í nýjum
heimkynnum og er þá um leið i
hættu fyrir sams konar krabba-
meini og það fólk, sem fyrir er og
þá í sama mæli, en tíðni krabba-
meins getur verið hærri fyrir
sumar krabbameinstegundir en
aðrar.
En vegna þessarar mismun-
andi tíðni þá er fyrir hendi, segir
Ames „sú von, að forðast megi
allar meiri háttar tegundir
krabbameins að miklu leyti".
Þota hrapaði 200 metra
Syracuse, New York, 22. september. AP.
FARÞEGA um borð í tveggja hreyfla
þotu með 17 manns tókst að drepa á
öðrum hreyflinum með þeim afleið-
ingum, að vélin hrapaði 200 metra.
Munaði ekki nema 60 metrum, að
vélin skylli á jörðunni, þegar maður-
inn var yfirbugaður, en þá náði flug-
maðurinn valdi á vélinni á ný. Engin
slys urðu á fólki, nema hvað margir
um borö urðu geysilega hræddir.
Flugvélin var rétt að lenda á
flugvellinum í Syracuse í New
York-riki, er atburðurinn gerðist.
„Maðurinn var örugglega að reyna
að stytta sér aldur,“ var haft eftir
einum farþeganna, David Stanton.
Flugmaðurinn, J. B. Whitehead,
lýsti atburðinum þannig, að mað-
urinn, sem heitir Cristohopher
Bradshaw, hefði skyndilega komið
þjótandi inn í stjórnklefann og
gripið í stjórntæki vélarinnar með
þeim afleiðingum að það drapst á
öðrum hreyfli hennar og hún tók
að hrapa til jarðar. Bradshaw,
sem er 27 ára gamall, hefur nú
verið úrskurðaður í gæsluvarð-
hald, á meðan mál hans er í rann-
sókn.
„American Cup“
Siglingakeppnin fræga, „American Cup“ stendur nú sem hæst úti fyrir
austurströnd Bandaríkjanna. Hér sjást þær tvær skútur, sem keppa til úrslita
í keppninni. Önnur þeirra er bandaríska skútan „Liberty“ og hin er ástr-
alska skútan „Australia Il“. Bandaríska skútan hefur nú forystuna í úrslita-
keppninni með 3:2.