Morgunblaðið - 23.09.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1983
15
Stutt fréttir
16 ára
bankaræningi
Bel((rad, 22. september, AP.
LÖGREGLAN í Belgrad hand-
tók í dag sextán ára gamlan pilt,
nokkrum klukkustundum eftir
aö hann hafði framið rán í
banka í borginni Niska Banja.
Komst pilturinn á braut með
jafnviröi um 220 þús. ísl. króna í
reiðufé. Nafn piltsins hefur ekki
verið birt vegna þess hve ungur
hann er og er búist við að hann
verði settur á einhvers konar
betrunar- eða unglingaheimili.
Lögreglan segir að pilturinn
hafi komið inn í bankann
skömmu fyrir hádegið og var
þá með grímu fyrir andliti.
Hann miðaði riffli á gjaidker-
ann, sem afhenti honum snar-
lega tiltæka seðla. Pilturinn
batt síðan manninn kyrfilega,
skildi riffilinn eftir og gekk út
úr bankanum án þess að nokk-
uð fum eða fát sæist á honum.
Hann var handtekinn á heim-
ili sínu nokkru síðar, hvar
hann sat og taldi peningana.
Fimm létust í
átökum í Delhi
Nýj* Delhi, 22. sept. AP.
FIIVIM manns létu liTið, þegar
vopnaðir lögreglumenn skutu að
tvö þúsund manna hópi sem
hafði gert aðsúg að lögreglustöð
í úthverfi Nýju Delhi.
Ástæðan fyrir að fólkið
réðst til atlögu mun hafa verið
sú að ungur maður sem
grunaður var um að hafa stol-
ið þrjátiu armbandsúrum frá
vinnuveitanda sínum var
pyndaður til dauða við yfir-
heyrslur lögreglu. f átökunum
áður en lögreglan hóf skothríð
slösuðust 20 lögreglumenn en
fæstir alvarlega. Singh, yfir-
maður lögreglustöðvarinnar
sagði blaðamönnum AP, að
það hefði verið atvinnurek-
andinn sem hefði pyndað unga
manninn svo að hann hefði
verið illa leikinn þegar hann
kom i hendur lögreglunnar.
Jarðskjálfti
á Taiwan
Taipei, Taiw an, 22. sept. AP.
JARÐSKJÁLFTI sem mæld-
ist 6,4 stig á Richterkvarða varð
á Taiwan í dag, en að því er best
er vitað mun ekki hafa orðið
manntjón. Jarðskjálftinn varð
kl. 3.20 um nótt, að staðartíma.
Upptök sjálftans eru talin vera
64 mílur út af Hualien, sem er
ferðamannabær um 156 mflur
suðaustur af Taipei.
35 milljóna
getraunavinningur
London, 22. nept. AP.
TOM NOKKUR Williamson,
þungavinnuvélastjóri i Coventry
í Mið-Englandi vann í getraun-
um sem svarar 35 milljónum
ísl.kr., og tilkynnti að hann
myndi aldrei vinna handtak
framar.
Hann kvaðst hafa tekið þátt
í getraunum í fjórtán ár og
hann hefur fyllt reitina á get-
raunaseðlinum sínum út sam-
viskusamlega nákvæmlega
eins i hverri einustu viku.
Williamson er 32 ára og
sagðist hafa kviðið því tölu-
vert að færa eiginkonu sinni,
Sylviu, fréttirnar, þar sem
hann hefði óttast að hún
myndi hreint af göflunum
ganga. „Svo að ég sagði henni
fyrst að ég hefði vondar frétt-
ir að færa; ég hefði sumsé
gleymt að taka matinn úr
frystikistunni, en ég hefði
einnig góðar fréttir; ég hefði
unnið í getraunum. Hún tók
hvorutveggja af stillingu.“
Þing Frjálslynda flokksins:
Samið verði um fram-
tíð Falklandseyja
Harrogate, 22. september. AP.
FRJALSLYNDI flokkurinn í Bret-
landi samþykkti í gær ályktun þess
efnis, að teknar yrðu upp að nju
samningaviðræður við Argentínu um
framtíð Falklandseyja.
Var þetta gert með ályktun sem
samþykkt var með handaupprétt-
ingu af miklum meirihluta þing-
fulltrúa og er þetta í annað sinn á
þessu ársþingi flokksins sem for-
ysta hans er snupruð vegna stefnu
hennar. Russel Johnston, talsmað-
ur flokksins í varnarmálum á
Eiginkona
Marcosar
dregur sig
íhlé
FRÚ Imelda Marcos, eiginkona
Marcosar Filippseyjaforseta hefur
lýst því yfir, að hún hyggist draga
sig í hlé frá stjórnmálum á næsta
ári. Heldur hún þvf fram, að það
traust, sem hún hefur notið, hafi
bcðið mikinn hnekki vegna þess
gruns, sem komið hefur upp um
hlutdeild hennar í morðinu í síð-
asta mánuði á Benigno Aquino,
leiðtoga stjórnarandstöðunnar í
landinu.
Frú Marcos, sem nú fer með
embætti húsnæðismálaráðherra á
Filippseyjum, hefur sagt, að
brezka þinginu, gagnrýndi þessa
ályktun sem „óraunsæja ósk-
hyggju“. Sagði hann, að íbúar
Falklandseyja ættu að fá að lifa
undir brezkri vernd, ef þeim sýnd-
ist svo.
í ályktuninni er skorað á stjórn
frú Margaret Thatchers að hefja
umræður við Argentínumenn und-
ir eftirliti Samtaka Ameríkuríkja
(OAS) í því skyni að freista þess
að finna samkomulagsgrundvöll
um framtfð þessa eyjaklasa i
Imelda Marcos
ákvörðun sín sé óhagganleg. Hún
vísaði algerlega á bug þeirri
hugmynd, að hún tæki við af eig-
inmanni sínum sem forseti lands-
ins og kvaðst ekki verða í fram-
boði í fyrirhuguðum þingkosning-
um i maímánuði á næsta ári.
Suður-Atlantshafi, sem Bretar og
Argentínumenn háðu 10 vikna
stríð um á árinu 1982. í ályktun-
inni segir ennfremur, að það skuli
vera skilyrði fyrir sérhverju sam-
komulagi, að trygging verði veitt
fyrir jafnt persónulegu frelsi sem
framtíðaröryggi þeirra 1.800
manna af brezkum uppruna, sem
búa á Falklandseyjum.
Kanada:
Tveir Rússar
reknir fyrir
tækninjósnir
Ottawa, 22. september. AP.
TVEIR sovézkir sendistarfs-
menn voru reknir frá Kanada
12. september sl. fyrir tilraun
til þess að komast yfir mjög
mikilvæg tæknileyndarmál.
Skýrði talsmaður kanadíska
utanríkisráðuneytisins frá
þessu í dag. Tók hann það sam-
tímis fram, að Allan MacEach-
en, utanríkisráðherra Kanada,
hefði af ásettu ráði ekki látið
skýra frá þessu fyrr en nú til
þess að koma í veg fyrir, að
litið yrði svo á, að samband
væri milli brottvísunar sendi-
starfsmannanna tveggja og at-
burðarins, er suðurkóreska
farþegaþotan var skotin niður
fyrir þremur vikum, en með
henni fórust 10 Kanadamenn.
T..> TWP'I ■ I. » .1,^ WJt
SUZUKI
kr. 95.000,-
útborgun
I tilefni þess aö viö afhendum þúsundasta
Suzuki-bílinn þessa dagana, seljum viö nokkra
Suzuki Alto árgerö 1983 meö 95.000,- króna útborgun.
Verö kr. 185.000,-
Útborgun 95.000,-
Missiö ekki af upplögöu tækifæri til að eignast nýjan bíl á góðum kjörum.
Suzuki Alto — Sterkur — Sparneytinn
Eyösla: minna en 5 I. pr. 100 km.
^ Sveinn Egi/sson hf.
skeifan 17. Sími 85100
AMERÍKA
PORTSMOUTH/
NORFOLK
City of Hartlepool 4. okf.
Bakkafoss 14. okt.
City of Hartlepool 25. okt.
Bakkafoss 4. okt.
NEW YORK
City of Hartlepool 3. okt.
Bakkafoss 13. okt.
City of Hartlepool 24. okt.
Bakkafoss 3. nóv.
HALIFAX
City of Hartlepool 7. okt.
City of Hartlepool 28. okt.
BRETLAND/
MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 25. sept.
Álafoss 2. okt.
Eyrarfoss 9. okt.
Álafoss 16. okt.
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 26. sept.
Álafoss 3. okt.
Eyrarfoss 10. okt.
Álafoss 17. okt.
ANTWERPEN
Eyrarfoss 27. sept.
Álafoss 4. okt.
Eyrarfoss 11. okt.
Álafoss 18. okt.
ROTTERDAM
Eyrarfoss 28. sept.
Álafoss 5. okt.
Eyrarfoss 12. okt.
Álafoss 19. okt.
HAMBORG
Eyrarfoss 29. sept.
Álafoss 6. okt.
Eyrarfoss 13. okt.
Álafoss 20. okt.
WESTON POINT
Helgey 4. okt.
Helgey 18. okt.
LISSABON
Skeiösfoss 14. okt.
LEIXOES
Skeiösfoss 15. okt.
BILBAO
Skeiösfoss 17. okt.
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Mánafoss 23. sept.
Dettifoss 30. sept.
Mánafoss 7. okt.
Dettifoss 14 okt.
KRISTIANSAND
Mánafoss 26. sept.
Dettifoss 3. okt.
Mánafoss 10. okt.
Dettifoss 17. okt.
MOSS
Mánafoss 27. sept.
Dettifoss 30. sept.
Mánafoss 11. okt.
Dettifoss 18. okt.
HORSENS
Dettifoss 21. sept.
Dettifoss 5. okt.
GAUTABORG
Mánafoss 28. sept.
Dettifoss 5. okt.
Mánafoss 12. okt.
Deftifoss 19. okt.
KAUPMANNAHÖFN
Mánafoss 29. sept.
Dettifoss 6. okt.
Mánafoss 13. okt.
Dettifoss 20. okt.
HELSINGJABORG
Mánafoss 30. sept.
Dettifoss 7. okt.
Mánafoss 14. okt.
Dettifoss 21. okt.
HELSINKI
irafoss 28. sept.
Irafoss 24. okt.
GDYNIA
Irafoss 30. sept.
Irafoss 27. okt.
ÞÓRSHÖFN
Deftifoss 15. okt.
VIKULEGAR
STRANOSIGLINGAR
-fram ogtil baka
frá REYKJAVlK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP