Morgunblaðið - 07.10.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.10.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1983 63 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI feu TIL FÖSTUDAGS fí !\r //*-*\ M/w /7 ll Fannst ekki tiltakanlega mikið til um þrengingar Jóns og Gunnu Kristinn Magnússon skrifar: „Það hefur loksins færst fjör í kommakarlana, síðan Þröstur hreiðraði um sig í Dagsbrúnar- skógi í Skuggahverfi, að vísu með skammarlega lág laun, sem Jak- inn ýtti að honum alvörugefinn og mjúkmáll og sló um leið tvær flug- ur í einu höggi; ýtti „bara verka- manni" út í horn með góðmennsku sinni og þungavigt. Og fleiri verkalýðsrekendur rönkuðu við sér eftir svefninn langa og tillitssemina við komma- karlana, sem kyrjuðu um frið á frið ofan á vinnumarkaðnum úr ráðherrastólum sínum, „til að bæta lífskjörin". Kristján Thor- lacius hjá BSRB strauk stírurnar úr augunum og tók fjörkipp eftir að hafa haldið í við sig ásamt öðr- um frammámönnum verkalýðs- rekenda og stökk upp í hinn marg- þekkta vagn víxlhækkana undir nafninu „hringferð-hraðferð". Og það skyggði ekkert á gleðina, þar sem þeir tóku undir hver með öðrum: Nú er hægt að hækka kaup, hafðu það í minni. Drekkum saman staup og staup, stjórnum veröldinni. En nú sjá kommakarlarnir og fóstbræður þeirra, að það er kom- in alvöruríkisstjórn, sem ætlar að taka á honum stóra sínum og hreinsa til, svo að munað verði eftir, þegar næst verður kosið til Alþingis. Þá verða kommakarl- arnir úti í kuldanum eins og í borgarstjórn, sem nú sýnir og sannar, að það er hægt að koma hlutunum í framkvæmd, þegar sjálfstæðismenn láta hendur standa fram úr ermum. Til marks um það hefur Davíð, borgarstjóri vor, skákað þeim svo, að meðan kommakarlarnir reistu eitt biðskýli við Hringbraut og farþegar áttu að sitja uppi með austantjaldsvagna, sem að innan voru eins og bárujárnsbraggar, þá snarsnýr Davíð dæminu við og Þessir hringdu . . . SVR — Breiðholt — Vog- ar og Langholtshverfi — Þorsteinn Laufdal hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég þykist muna það rétt, að áskoranir um strætisvagnaferðir úr Breið- holti niður í Voga og Langholts- hverfi hafi oftar en einu sinni birst í dálkum Velvakanda. Mig langar til að beina þeirri spurn- ingu til stjórnar SVR, hvort þetta sé að verða að veruleika. Á mínum vinnustað sem er við Langholtsveg erum við sjö og eigum öll heima í Breiðholti. Við höfum enga mögu- leika, nema með óskaplegri fyrir- höfn og krókaleiðum, að komast með strætisvagni úr Breiðholti til vinnustaðar okkar. Ef þessi leið opnaðist, yrði brotið blað að þessu leyti hjá okkur. Hér allt í kring eru orðnir fjölmennir vinnustaðir, t.d. niðri í Vogunum við sjóinn, og ætti það heldur að ýta á, að af þessu verði sem fyrst. Oviðeigandi eftirhermur Anna Steinþórsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að láta í ljós vanþóknun Kristinn Magnússon lætur reisa björt og hlý biðskýli í tugatali um alla borgina, og strætóarnir eru traustir og þægi- legir. Þá dróst ekki að koma stóru klukkunni í gang fyrir utan bið- skýlið á Hlemmi. Óg nú er hart deilt á Davíð fyrir að standa við loforðin sem hann gaf fyrir kosn- ingar. Þá er ekki síður gott til þess að vita að fráfarandi forseti borgar- stjórnar, Albert vinur minn Guð- mundsson, skuli ætla að taka á honum stóra sínum og stjórna fjármálum þjóðarinnar af viti og röggsemi. Eins og fleiri vegfarendur fékk ég í hendur rómantískt plagg síð- astliðinn föstudag, útgefið af and- róðrarmönnum ríkisstjórnarinn- ar. Það ber nafnið „Lítil saga af Jóni og Gunnu". Ég nenni ekki að orðlengja um þessa „litlu sögu“, sem soðin er saman og útgefin af forsprökkum ASÍ, en þar stendur m.a., að Jón og Gunna spari við sig myndbandakaup og „hafi ekki far- ið í siglingu síðustu árin“. Ekki hef ég nú sjálfur farið nema einu sinni í siglingu, og það fyrir 20 árum, og myndbandakaup eða annar slíkur óþarfamunaður hefur ekki komið á mitt heimili. mína á útvarpsþætti sem var fyrir hádegi í gær (mánudag), þar sem menn gerðu sér leik að því að herma eftir Gísla á Uppsölum. Þetta átti víst að heita skemmti- þáttur og ég held að hann hafi verið frá Ríkisútvarpinu á Akur- eyri. Mér finnst í sjálfu sér ekkert athugavert við að herma eftir stjórnmálamönnum og öðrum frammámönnum í þjóðfélaginu, því að þeir koma fram fyrir al- menningssjónir nærri því dags daglega í blöðum og öðrum fjöl- miðlum, en að leita til afdala til að herma eftir saklausum sveita- manni, sem lifir í gamla tímanum, það finnst mér óviðeigandi. Látum hann í friði. Hafi Ríkisútvarpið ekkert bitastæðara að bjóða hlust- endum sínum, er illa komið fyrir því. Biðskýli vant- ar í Garðabæ Sv.M., Garðabæ, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Og ég get leitt vitni að því, að ég hef ekki púlað minna en Jón og Gunna til að komast undir þak á sínum tíma, í blokk, og ég hef vak- að og sofið undir þessu þaki í 28 ár. Sumarleyfin í 32 ár samfleytt voru ails þrjú í prentverkinu, og það af fjárhagslegri nauðsyn. Svo að mér fannst ekkert tiltakanlega mikið til um þrengingar Jóns og Gunnu. Ég vil svo að lokum skora á alla lýðræðissinnaða launþega að neita að skrifa nöfn sín á kommaskýrsl- una, sem er einungis í gangi til að eyðileggja aðlögunartíma ríkis- stjórnarinnar. Áræði er eina vopnið sem getur lagt verðbólgu- drauginn að velli. Og það hefur þessi ríkisstjórn. „Komdu og skrifaðu á skýrsluna mína“ skrækja nú verkalýðsrekendur hátt. „Við skulum auka við aurana þína; alþingi götunnar skilji sinn mátt.““ Hvernig stendur á því, að ekki eru sett upp biðskýli fyrir Hafnar- fjarðarvagnana gegnt sjoppunni við Ásgarð, skammt frá Vífils- staðaveginum. Þar er biðstöð fyrir þessa vagna á leið í Reykjavík, úr Hafnarfirði, en beint á móti er biðstöð fyrir þá sem eru á leið í Hafnarfjörð. Það er ófremdar- ástand að þurfa að bíða þarna úti á berangrinum í hvaða veðri sem er, ár eftir ár. Margar ástæður liggja til þess, að ekki er hægt að notast við að bíða í sjoppunni handan götunnar. Ein þeirra er sú, að þaðan sér maður vagninn ekki fyrr en hann kemur að stöð- inni, en þá er nú ekki alltaf hægt að hlaupa umsvifalaust yfir þá miklu umferðargötu sem Hafnar- fjarðarvegurinn er, öðru nær. Og ástæðurnar eru fleiri, en þessi nægir. Ég vona að til standi að gera eitthvað í málinu og trúi því ekki fyrr en ég tek á, að maður verði látinn standa þarna úti einn veturinn í viðbót. HEILRÆÐI Áhætta eldra fólks í umferðinni er mun meiri en þeirra sem yngri eru. Sjón og heyrn þeirra hefur daprast, það er stirðara til gangs og eftirtektin lakari en áður. Sýnum öldruðu fólki tillitssemi í umferðinni og réttum því hjálparhönd. Á því er mikil þörf. Glæsilegir bíl- ar til sölu: 1—5 laugardag Arg. Kr. Jeep Wagoneer sjálfsk. 1979 390.000 Ch. Citation 6 cyl. 1980 265.000 Ch. Caprice Classic 1982 650.000 Ch. Malibu Classic 1979 230.000 Ch. Blazer Cheyenne 1979 420.000 Isuzu Pickup 4x4 yfirb. 1981 395.000 Isuzu Pickup 4x4 1981 195.000 Scout 2 diesel Turbo Oldsmobil Cutlass 1980 480.000 2. d. Brougham Opel Kadett 1981 430.000 5 dyra Luxus Opel Record 1982 270.000 Berlina sjálfsk. 1982 530.000 Chevrolet Monte Carlo 1979 320.000 Buick Skylark sjálfsk. 1980 320.000 BMW 520i vökvastýri Peugeot 505 1982 540.000 diesel sjálfsk. 1980 350.000 Volvo 245 GL sjálfsk. 1979 290.000 Honda Accord 4ra dyra 1981 270.000 BMW 320 6 cyl Toyota Carina 1981 330.000 4ra dyra 1800 1982 290.000 Chrysler Le Baron 1979 295.000 Ch. Suburban 4x4 Mitsubishi 1979 600.000 sendibifr. L 300 1982 140.000 Peugeot 505 sjálfsk. Ch. Chevy Van 1982 380.000 beinsk. 6 cyl. 1976 120.000 AMC Eagle 4x4 1981 470.000 Bein lína 39810 Bifreiðadeild Sambandsins Höfðabakka 9 sími 86750. Félagsfundur veröur haldinn sunnudaginn 9. október kl. 14 í lönó. Fundarefni: 1. Félagsmál. 2. Kosning fulltrúa á 11. þing VMSÍ. 3. Viöhorf í kjaramálum. 4. Önnur mál. Félagar, fjölmenniö og sýniö skírteini viö innganginn. Stjórnin. Útsala Seljum í dag og á morgun nokkrar útlitsgallaðar Victor tölvur á niður- settu verði. M a. er aö finna á útsölunni: Victor 9000 eöa kb mnra minni og 2,4 Mb diskarými, einmg tölvur meö 10 Mb hörðum diski. Komið og grípið þetta einstaka tækifæri. TÖLVUBÚDIN HF Skipbolti 1. Simi 2 5410

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.