Morgunblaðið - 30.10.1983, Blaðsíða 36
84
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1983
werzaltt
Afmæliskveðja:
Guðmundur Jónas-
son frá Hólmahjáleigu
Werzalit er sambland trjáviðar og gerfiefna.
Nánar tiltekið spónarplötur, gagnvarðar og með
húð úr melamin.
Werzalit — melamin — eða innbrenndri
málningu.
Wersalit hentar vel jafnt úti sem inni, sem
sólbekkir, handriðalistar, bekkir, blómakassar og
sem klæðningar á veggi, loft, bílskúrshurðir o.fl.
o.fl.
Werzalit er til í mörgum litum, gerðum og
stærðum.
Timburverslunin
Völundur
Klapparstíg 1 — sími 18430
Skeifan 19 — sími 84244.
Ég hafði varla við að trúa þegar
mér var sagt að Guðmundur Jón-
asson frá Hólmahjáleigu ætti 90
ára afmæli um þessar mundir. En
svo rifjast það upp að Guðmundur
var um tvítugt þegar ég var enn að
kjaga milli þúfnanna í Rima-
kotstúni. Svona líður tíminn. Og
það eru miklar mannlífsbreyt-
ingar sem Guðmundur hefur upp-
lifað á tæpri öld.
Guðmundur fæddist 17. október
1893 á Ljótarstöðum f A-Landeyj-
um. Foreldrar hans, Jónas Jónas-
son og Ragnheiður Halldórsdóttir,
ættuð af Skeiðum, hófu búskap í
Hólmahjáleigu í sömu sveit árið
1895. Fyrir ræktunarbyltingu var
þetta ekki kostajörð, landlítil og
fylgdi ekki fjara sem flestum sjó-
bæjum, sem svo voru nefndir. En
með ráðdeild og vinnusemi var
heimilið jafnan vel bjargálna og
aflögufært þó mannmargt væri.
Þá færði það mikla björg í bú,
bæði í Hólmahjáleigu og öðrum
bæjum, að Jónas var í fjölda ára
aflasæll formaður við Sandinn og
úti í Eyjum. Var það happ fyrir
föður minn að hann réðst í skip-
rúm til Jónasar á julið hans, Svan-
inn. Man ég óljóst að eitt kvöld var
talað um 80 í hlut. Þá var kátt í
kotinu.
í þá daga var ekkert sótt í sjóði
eða tryggingar, en yrði maður
veikur á einhverjum bænum var
óðara kominn maður til að vinna
nauðsynlegustu verkin. Væri
flísar
CERAMICHEspa
Nýr stíll
meö
Cortesía
Stærö: 31x31 cm
Hvítar: Helsinki
M/pálma: Vacanza
Hvaö hefur gert ítalska fyrirtækiö Marazzi eitt virtasta og stærsta flísafyrirtæki í heiminum?
Marazzi-verksmiöjurnar leggja mikla áherslu á listræna hönnun, rannsóknir og gæöaeftirlit. Marazzi
framleiöir eitt mesta úrval flísa í heiminum í dag. Selt í 60 þjóölöndum og 5 heimsálfum. Nýjustu
verksmiöjurnar eru staösettar i Dallas, Texas. Margar nýjungar í flisaframleiöslu koma fyrst frá Marazzi.
Marazzi er í fararbroddi í framleiöslu á einhertum flísum. Marazzi-flísar öörum fremri.
Einkaumboð á íslandi.
Nýborg"
ÁRMÚLA 23 SÍMI 8-67-55
mjólkurlaust var komið með
mjólk frá nágrannabæjum, og svo
mætti áfram telja. Svona var þessi
óskipulagða samhjálp í þá daga.
Ég var ekki hár i loftinu þegar
ég fór að trítla á nágrannabæina
Hólmahjáleigu og Önundarstaði.
Mér, krakkanum, var tekið sem
öllum öðrum af mikilli hlýju og
gestrisni. Þá er ég kvaddi brást
varla að Ragnheiður húsfreyja
rétti mér böggul með góðgæti í og
bað mig að færa móður minni; var
þó aldrei matarlaust i Rimakoti.
Nú henti mig það eitt sinn að fara
án þess að kveðja, fannst kannski
nóg um þessa gjafmildi þó ég nyti
góðs af. Ég hafði ekki farið langt
þegar kallað er til min að nema
staðar. Ragnheiður er komin og þá
í eina skiptið talar hún til mín i
mildum áminningartón: Þetta
mátt þú aldrei gera, að fara án
þess að kveðja og fáðu henni
mömmu þinni þetta frá mér. —
Svona var Ragnheiður i Hólma-
hjáleigu, sú góða kona. — Ragn-
heiður andaðist 29. sept. 1932, 71
árs að aldri, Jónas dó i september
1935. -
Þá tóku við búinu bræðurnir
Guðmundur og Magnús og var fé-
lagsbú til 1945, en þá fluttist
Magnús og Sesselja frá Skiðbakka,
kona hans, að Seífossi. Guðmund-
ur hélt nú áfram búskap fram á
árið 1953, er hann fluttist að Núpi
í Fljótshlíð til Katrínar systur
sinnar, sem er nýlátin. —
Guðmundur er nú einn eftir sjö
systkina og er þeirra elstur. Hon-
um hefur ekki heldur verið fisjað
saman, maður mikill að vallarsýn
og hörkuduglegur fram á efri ár.
Guðmundur var í fjölda ára
formaður við Landeyjasand og
einskonar flotaforingi í austur-
hluta sveitarinnar, Guðjón í Hall-
geirsey að vestan.
Guðmundur tók við formennsku
á Svan 1924 af föður sínum. Um
1930 fékk hann vorbát með tveim
öðrum, sexróinn, og aflaði oft vel.
Báturinn hét Bára og var gott sjó-
skip. Bára fauk í ofsaveðri og
brotnaði í spón. Ekki lét Guð-
mundur þetta á sig fá, heldur fékk
sér bát í Eyjum. Þetta var léttbát-
ur sem sá nafnkunni skipasmiður
Ólafur Ástgeirsson breytti í sex-
æring.
Einn róður fór ég með Guð-
mundi. Það var einn fagran vor-
morgun í maí. Skammt undan
landi hlóðum við bátinn. Var þá
farið í land til að „kasta af sér“
sem kallað var. Formaður sendi
mig til bæja til að safna hestum
og flytja aflann úr sandi. Mér er
sagt, að þá er ég kom á glugga í
Hólmahjáleigu fyrir rismál, hafi
ég tekið svo til orða: Góðan dag.
Það eru aflabrögðin. Það voru orð
að sönnu því Guðmundur þríhlóð
þennan dag og fékk 52 í hlut af
vænum þorski.
Guðmundur fór síðastur for-
manna í Landeyjum á eigin bát til
Vestmannaeyja vorið 1940. Og síð-
astur formanna við Landeyjasand
setti hann bát sinn í naust. Loka-
róðurinn var farinn 30. júní 1948.
Ekki er ég frá því að ýmsum
sem ekki þekktu Guðmund í
Hólmahjáleigu hafi þótt hann
obbolítið hrjúfur við fyrstu kynni,
talaði öngva tæpitungu og dró
ekki af rómnum ef svo bar undir.
En þetta var bara ytra borðið,
hann er sama ljúfmennið og
systkini hans voru, greiðvikinn
með afbrigðum og vill öllum vel.
— Á góðri stund datt Guðmundi
varla í hug að forsmá gjafir Bakk-
usar, en aldrei gerðist hann þeim
kóngi undirgefinn.
Guðmundi var víðs fjarri að
tvínóna við hlutina. Ég nefni eitt
dæmi. Haustið 1918 vildi svo vel
til að sandur fauk á Rimakots-
engjarnar, svo faðir min áleit þær
ónýtar um sinn og brá á það ráð
að verða sér úti um annað jarð-
næði. Guðmundur fréttir þetta
fyrstur manna, leggur á hest að
liðnum degi og ríður sýsluna á
enda þá um nóttina og léttir ekki
fyrr en hann hittir jarðareiganda
og falar kotið til kaups og það
semst með þeim. Þannig vannst
tvennt: Faðir minn fékk betri og
stærri jörð til ábúðar, raunar með
ótryggum leigumála. Hólmahjá-
leigumenn fengu góða aukningu á
landrými til eignar og rekafjöru
að auki. —
Guðmundur hefur hin síðari ár
átt heimili í Hveragerði. Um leið
og ég óska honum velfarnaðar á
þessum merku tímamótum, vil ég
jafnframt láta í ljós þá ósk að
hann megi eiga allnokkur góð ár
enn í ríki Gísla í Ási, hins óbilandi
forsvarsmanns okkar sem skipum
hina öldruðu sveit.
llaraldur Guðnason
RAFHITARAR
Sjálfvirkir, nákvæmir, vel einangraöir.
Hagkvæm og heppileg lausn við
rafhitun húsnæðis Vatniö hitað upp i
geymi og því slðan hleypt út I ofnana.
Ymsar stæröir fáanlegar.
NEYSLUVA TNSHITA RA R
Fljótvirkir, sparneytnir — og pú velur
hitastigið sjálfur.
Fást I mismunandi stærðum.
KYNNTU ÞÉR VERD OG GÆDI.
RAFHA —VÖRURSEM ÓHÆTTERAD TREYSTA.
Verslunin Rafha, Austurveri, Héaleitisbraut 68.
Simar: 84445,86035
Hafnarfjöröur, simar: 50022,50023,50322.