Morgunblaðið - 04.12.1983, Qupperneq 1
Ove Rainer 50
Sydney 62/63
Pottarím 68
Þorvaldur Skúlason 70/75
Karnabær 71/74
Á drottins degi 78
Mannlíf 82/83
Sunnudagur 4. desember
Myndasögur 86
Skák/ bridge 86
Á förnum vegi 87
Dans/ bíó/ leikhús 88/91
Velvakandi 92/93
Kvikmyndir 94/95
Almenna bókafélagið hefur gefið út bókina „Bjarni
Benediktsson í augum samtíðarmanna". Þar eru
birtar sextán ritgerðir og svipmyndir úr svi eins
mesta stjórnmálaleiðtoga íslendinga á þessari öld.
Ólafur Egill annaðist útgáfuna. Morgunblaðið hefur
fengið leyfi til að birta kaflann „Bernskuheimili og
uppvaxtarár“, sem ritaður er af Ólöfu Benediktsdótt-
ur, systur Bjarna.
Fjölskyldan á Skólavöröustíg 11A. L'ó*m K,ku'
(F.v.): Sveinn f. 1905, Olöf f. 1919,
Ragnhildur f. 1913, Benedikt
Sveinsson, Bjarni f. 1908, Guðrún
f. 1919, Guörún Pétursdóttir,
Kristjana f. 1910 og Pétur f. 1906.
Bjami Benediktsson
Bemskuheiniili
og uppvaxtarár
Foreldrar mínir bjuggu
allan sinn búskap, rúm
50 ár, á Skólavörðustíg
11A og í því húsi fædd-
umst við systkinin öll.
Höfðu þau keypt húsið af Ólafíu
Jóhannsdóttur, bróðurdóttur
Þorbjargar Sveinsdóttur ljósmóð-
ur. Hafði Þorbjörg látið byggja
húsið sem var úr timbri nokkrum
árum fyrir andlát sitt. Sjálf hafði
hún lengst af búið í steinbænum
neðan við timburhúsið og þar bjó
Benedikt Sveinsson alþingismaður
og sýslumaður, bróðir hennar, oft
meðan hann var á þingi. Hann dó
hins vegar í stofunni heima árið
1899 en þær frænkur voru þá
fluttar í nýja húsið. Húsinu fylgdi
stór lóð er náði frá tugthúsinu upp
að Skólavörðustíg 15, auk annarra
lóða við Klapparstíg, og að hús-
eign Davíðs sem kenndur var við
Stöðlakot og bjó þar sem nú er
Vegamótastígur 9, og aðskildi að-
eins grindverk þessar lóðir. Há-
bær sem nú hefur verið fluttur
upp að Árbæ var við enda Kál-
garðsins norðaustan megin. Auk
timburhússins og litla bæjarins
eins og við kölluðum hann alltaf
fylgdi fjós fyrir 5—6 kýr og sam-
byggð hlaða og hesthús. Aldrei
ráku foreldrar mínir þó neinn
búskap, ef frá er talin rófna- og
kálrækt og fyrr meir hænsnarækt
Stúdent árið 1926.
til heimilisþarfa, en leigðu oft úti-
húsin. Seinast hafði Árni Gíslason
sem þá bjó í kjallaranum á Skóla-
vörðustíg 11A fjósið og önnur úti-
hús á leigu. Var það kringum 1930.
Bærinn var alltaf leigður en for-
eldrar mínir bjuggu þar aldrei
sjálf. Á fjósloftinu var líka búið
þar til fjósið var rifið laust eftir
1930. Fyrstu búskaparárin leigðu
foreldrar mínir hluta af timbur-
húsinu en er börnunum tók að
fjölga bjuggu þau í því öllu. Þetta
væri ekki talið stórt hús á nútíma-
mælikvarða en aldrei fannst mér
þröngt um okkur og alltaf var
SJÁ BLS. 58-59-60.
LJósm. Jón Dahlmann.