Morgunblaðið - 04.12.1983, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983
50
Frá Pétri Péturwyni, fréttamanni Morgunblaðains í Lundi.
Undanfarnar vikur hafa fjölmiðlar í Svíþjóð
fjallað mikið um skatta og fjármál
dómsmálaráðherra í ríkisstjórn
jafnaðarmanna sem komu til valda eftir
kosningar sl. haust. Dómsmálaráöherrann,
Ove Rainer, var áöur póstmálastjóri og
á að baki glæstan feril sem embættismaður.
Honum hafa verið falin trúnaðarstörf af
ýmsu tagi og var hann m.a. formaður
stjórnskipaðrar nefndar um kjarnorkuver
þegar þau mál voru efst á baugi
fyrir nokkrum árum.
Vegna þeirra uppljóstrana sem fram
hafa komið, ein eftir aðra, sagði
dómsmálaráðherrann af sér 9. nóvember sl.
Olof Palme forsætisráðherra, sem er
persónulegur vinur ráðherrans fyrrverandi,
fannst of hart gengið að honum, einkum þar
sem allir viðurkenndu að maðurinn hefði
ekki framið neitt lagabrot.
Á grundvelli þeirra upplýsinga sem fyrir
lágu, þá gerði hann Ove Rainer daginn eftir
að dómara í hæstarétti og vildi á þann hátt
sýna aö traust sitt á honum væri það
sama, og koma í veg fyrir að mannorð hans
yrði á nokkurn hátt skert.
Það sem varð honum að falli voru
upplýsingar sem blaðamenn birtu um að
hann hefði árið 1981 ekki borgað nema um
það bil 10% af tekjum sínum í skatt.
Hann hafði fengið 15 milljóna sænskra
króna lán hjá PK-bankanum þar sem hann
sjálfur sat í stjórn og vextina af því
láni notaði hann til frádráttar á skatti
sem hann annars hefði þurft að borga af
sölu mikils magns af verðbréfum.
Rainer skýrir sína hlið á málinu fyrir blaðamanni.
Ove Rainer
Olof Palme og Rainer á blaðamannafundi, þar sem skýrt var frá
afsögn hans sem dómsmálaráðherra.
Þetta fannst mörgum gömlum
og góðum sósíaldemókrötum nóg
um og gagnrýnar raddir heyrð-
ust strax úr röðum þeirra. Blöð
sósíaldemókrata hafa ekki verið
þau mildustu í dómum sínum um
mál fyrrverandi ráðherrans.
Bent var á, að það væri mjög
óhagstætt fyrir flokkinn að sitja
uppi með slíkan ráðherra þegar
ríkisstjórnin er nú að herða
áróður sinn fyrir sparnaði og
betra siðgæði í skattamálum.
Siðferðisreglur bankans voru
einnig settar undir smásjá, eink-
um þar sem Ove Rainer var sem
póstmálastjóri og forstjóri
póstgíróþjónustunnar stærsti
viðskiptavinur PK-bankans.
Bankaeftirlitið tók málið tii at-
hugunar en við það sat í nokkra
daga.
Segir af sér stöðu hæsta-
réttardómara eftir 10 daga
En fjölmiðlar héldu áfram að
hafa áhuga á fjármálum ráð-
herrans sem nú var orðinn dóm-
ari í hæstarétti sem er mjög
virðulegt embætti hér í Svíþjóð
sem annars staðar. Það kom í
ljós, að auður Ove Rainers hafði
ekki komið frá arfi eftir föður-
bróður hans eins og gefið hafði
verið í skyn áður. Hér var á ferð-
inni milljóna gróði af verslun
með hlutabréf í ársbyrjun 1982,
þar sem lánið frá PK-bankanum
var einn liður í því að sleppa við
skatt. Ekki var aðeins um eitt
stórlán að ræða, heldur tvö. Arf-
urinn, sem Ove Rainer hafði
fengið, var aðeins 101 þús. skr.
Þetta var það „startkapital" sem
með hjálp ráðgjafa og PK-bank-
ans gaf Rainer fleiri milljónir í
aðra hönd á nokkrum mánuðum.
Hann keypti upp öll hlutabréf
dánarbúsins af ættingjum sínum
og einnig tengd verðbréf í Sviss
og seldi skömmu seinna með
stórgróða. Þeim gróða tókst hon-
um að koma undan skatti með
því að sýna á skattskýrslu allan
gróðann kominn frá sölu verð-
bréfanna sem fylgdu dánarbúinu
sem aðeins 40% skatt þarf að
borga af. Til þess nú að koma sér
hjá að borga skatt einnig af
þessum 40%, fékk hann stórlán
(til þess að geta dregið vextina
frá skatti sem því nam). Skatta-
málasérfræðingar ræða nú sín á
milli hvort hér sé um að ræða
skattsvik eða ekki. En allt um
það, skattaskýrsla ráðherrans
fyrir árið 1982 var samþykkt af
skattayfirvöldum og ekki hefur
enn verið bent á lögbrot í þessu
sambandi.
Það voru þó ekki svissnesku
hlutabréfin sem fengu hæsta-
réttardómarann Ove Rainer til
að segja af sér, heldur sú niður-
staða bankarannsóknanefndar-
innar að bankastjóra PK-bank-
ans bæri að áminna fyrir að
veita honum þessi lán án þess að
fá til þess heimild bankaráðs
fyrst. Af tillitssemi við stöðu og
hlutverk hæstaréttar tók hann
þá ákvörðun að segja af sér.
Forsætisráðherra
harðlega gagnrýndur
Þetta mál er nú orðið stórpóli-
tískt í Svíþjóð. Flestir eru sam-
mála um að það hafi verið fljót-
færni hjá Olof Palme forsætis-
ráðherra að skipa Ove Rainer í
stöðu hæstaréttardómara svo
fljótt og áður en bankarann-
sóknanefndin hafði kannað lána-
mál hans. Bent hefur verið á, að
Palme hafi svo sterka stöðu inn-
an stjórnarinnar að hann geti
Skattsvik
kostuðu hann
ráðherradóm
og dómarasæti
í hæstarétti
ráðið málum án þess að ráðfæra
sig við samráðherra sína. Úr
röðum sósíaldemókrata heyrast
mjög gagnrýnar raddir og
stjórnarandstöðublöðin hafa
jafnvel gengið svo langt að krefj-
ast þess að hann segi af sér.
Vegna tilmæla frá stjórnar-
andstöðunni hefur stjórnlaga-
nefnd þingsins tekið þessa emb-
ættisveitingu til athugunar.
Palme hefur varið gerðir sínar
með því að segja að á grundvelli
þeirra upplýsinga sem fyrir lágu
hafi ekkert mælt á móti þessari
veitingu — en segir að hefði
hann vitað hvernig í öllu lá,
mundi hún ekki hafa komið til
greina. Segir hann að Rainer
hefði átt að segja sér frá hluta-
bréfakaupunum í Sviss áður, en
það hafi hann ekki gert. Rainer
segir aftur á móti að hann hafi
gert það. Starfsmenn ráðuneyt-
isins sem viðstaddir voru við-
ræður þeirra tveggja styðja
framburð forsætisráðherrans.
Án dóms og laga
Ove Rainer, sem er lögfræð-
ingur að mennt, hefur stöðugt
lagt á það áherslu, að hann hafi
ekki framið neitt lögbrot og
verði ekki dæmdur eftir öðru en
lögunum. Hann taldi í upphafi,
að fjármál sín væru einkamál og
öðrum óviðkomandi, þar á meðal
fjölmiðlum. í kjölfar þessara at-
burða hafa risið umræður um
siðferði í fjármálum og skatta-
málum og margir hafa spurt
hvort ætlast sé til að frammá-
menn í opinberum stöðum og
stjórnmálum séu fyrirmynd
annarra og skuli dæmdir eftir
öðrum siðferðisreglum í þessum
málum en aðrir. Forsætisráð-
herrann hefur gefið í skyn að við
slíku verði menn í ábyrgðarstöð-
um að búast og Ove Rainer segir
í blaðaviðtölum að hann hafi
komist að raun um að skattamál
ráðherra séu ekki einkamál.
Samráðherrar hans hafa gert
honum grein fyrir því nú síðustu
vikurnar. Að frátöldum forsæt-
isráðherranum hafa fáir innan
fylkingar sósíaldemókrata varið
Ove Rainer. Hann á sér heldur
ekki langa sögu sem meðlimur
hreyfingarinnar og er ekki
tengdur neinum sérstökum armi
hennar. Eftir síðustu atburði
stendur hann hinsvegar einn og
óskar nú þess eins að fá að vera í
friði. Hann hefur leitast við að
gera grein fyrir afstöðu sinni til
þessara mála í viðtölum við sjón-
varp og blaðamenn og greinilegt
er að hann hefur ekki gert sér
grein fyrir eða ekki viljað sætta
sig við að prívatmál hans væru
hluti af refskák stjórnmálanna
þar sem fjölmiðlar leika oft að-
alhlutverkið.
Nýi dómsmálaráðherrann er
aftur á móti gamall og gróinn
jafnaðarmaður og hefur starfað
lengi I flokknum. Blaðamenn
hafa gert úttekt á skattamálum
hans og komist að raun um að
hann hefur greitt milli 50—60%
af tekjum sínum í skatt. Hann á
því að öllu óbreyttu fyrir sér
lengri feril á ráðherrastóli en
forveri hans. En hvort hæfni til
að gegna dómsmálaráðherra-
embætti fer eftir skattskýrslu er
aftur annað mál.