Morgunblaðið - 04.12.1983, Síða 7

Morgunblaðið - 04.12.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 55 hannaður af Göran Wárff. Kristall og kertaljós — Kyrrlát fegurð Póstsendum KOSTA BODA Bankastræti 10. Sími 13122 ALIiEAFÁ ÞRIÐJUDÖGUM BECKENBAUER FJALLAR UM KNATTSPYRNUNA ÁRSÞING KSÍ ÍÞRÓTTIR HELGARINNAR * Itarlegar og spennandi íþróttafréttir Málverkauppboð annað kvöld: Verk eftir flesta gömlu meist- arana í íslenskri myndlist VERK flestra gömlu meistaranna í íslenskri myndlist eru meðal mál- verkanna 105, sem boðin veröa upp í málverkauppboði Guðmundar Ax- elssonar í Klausturhólum annað kvöld. Uppboðið fer fram í Súlnasal Hótel Sögu annað kvöld, mánu- dagskvöld, og hefst klukkan 20.30. Málverkin eru til sýnis í dag milli klukkan 13 og 18 í húsnæði Klaust- urhóla í Breiðfirðingabúð við Skóla- vörðustíg og á Hótel Sögu á morgun milli 14 og 18. Meðal þekktra listmálara, sem eiga verk á uppboðinu að þessu sinni eru eftirtaldir: Ásgrímur Jónsson, Jóhann Briem, Jóhannes S. Kjarval, Gunnlaugur Blöndal, Jón Engilberts, Sveinn Þórarins- son, Sverrir Haraldsson, Kári Ei- ríksson, Hringur Jóhannesson, Snorri Arinbjarnar, Jón Þorleifs- son, Eyjólfur J. Eyfells, Finnur Jónsson, Jóhannes Geir, Pétur Friðrik, Karólína Lárusdóttir, Eiríkur K. Jónsson, Magnús Jónsson, Gunnar Þorleifsson, Guðrún E. Halldórsdóttir, Gunnar Hjaltason, Ágúst Petersen, Vil- hjálmur Bergsson, Þorvaldur Skúlason, Jónas Guðmundsson og Alfreð Flóki. Meðal sérstakra verka á sýning- unni má nefna blómamynd Gunn- laugs Blöndal, sem máluð er í Par- ís 1933, og einnig sagði Guðmund- ur Axelsson í samtali við Morgun- blaðið, að líklegt væri að nokkrar þjóðsagnamyndir Ásgríms vektu athygli, einnig Kjarvalsmyndirn- ar og verk Jóhanns Briem, sem ekki koma oft á málverkasölur. Blómamynd eftir Gunnlaug Blön- dal, máluð í París 1933, eitt verkanna á málverkauppboðinu ann- að kvöld. Ný kynslóð . . . NEC APC boöar komu nýrrar_______ kynslóðar, vandaðra tölva: hún er fyrsta viðskiptatölvan sem sameinar afl 16-bita örtölvu með miklu diskrými,_________ háupplausnar grafík og góðu úrvali af notendahugbúnaði á verði sem öll fyrirtæki, stór sem smá, hafa efni á. Framtíðartölvan . . . Verð frá 106.313.- ■ Byggö á nýjustu vélbúnaðartækni, en ekki á sparnaðarsjónarmiðum eins og flestar tölvur í sama verðflokki. Hún hefur „alvöru" 16- bita örtölvu, fyrir hraðvirkari vinnslu, stærri og fullkomnari notendahugbúnað og getur haft allt að 640 KB aðalminni. ■ Háþróuð grafísk geta - óviðjafnanleg grafísk upplausn upp á 1024 x 1024 punkta, sem eru innan hreyfanlegra skjásvæða (glugga) þar sem 640 x 475 punktar geta birst í einu. Byggt upp í kringum Nec verðlauna samrásina, 7220, sem er öflugasta grafík stjórnrás sem völ er á í dag, bæði fyrir litagrafík og einlit. ■ Aukið gagnarými með tveim 8" diskettudrifum, sem veita þér tveggja milljón stafa geymslurými. Að auki þá er APC ein af mjög fáum 16-bita tölvum sem bjóða upp á að geta notað alla iðnaðarstaðlana af 8“ diskettum — og hún greinir öll þessi formöt sjálfkrafa. Ef þér nægir ekki 2MB geymslurými getur þú valið á milli 10 og 20MB seguldiska til viðbótar. ■ Val á stýrikerfum. APC getur þjónað CP/M-86, MSDOS og UCSD p-System. Sameinað 8“ diskettunum gerir þetta allan flutning gagna og forrita til APC miklu auðveldari en til nokkurrar annarrar smátölvu á markaðnum. Benco hf. Bolholti 4 - PO Box 5076 -105 Reykjavík - Símar (91) 21945 og 84077.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.