Morgunblaðið - 04.12.1983, Page 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983
Pottarim
Umsjón: SIGRÚN
DAVÍÐSDÓTTIR
Við náðum ekki langt í máltíð-
inni síðast. Það er hollt að borða
hægt, en kannski ekki alveg
svona. Nú er það meðlætið með
innbakaða hangikjötinu, sitt-
hvað fleira og væntanlega
áframhaldandi góð skemmtun.
Uppskriftirnar eru miðaðar við
sex eins og síðast.
Rjómakartöflur
með piparrót
Kartöflurnar eru afhýddar,
sneiddar þunnt, skolaðar í skál
með köldu vatni, gjarnan í 2—3
vötnum, þeim hellt í sigti og síð-
an á þurrt stykki, svo þær verði
sem þurrastar. Ástæðan fyrir
þessari meðferð er sú, að þannig
þvæst sterkja úr kartöflunum,
sem annars rennur í rjómann
við baksturinn og gerir hann
þunnan og kekkjóttan. Rjóminn
er bragðbættur með piparrót,
sem stundum fæst ný eða frosin,
en annars rifin í litlum grænum
og rauðum pökkum. Svo er til
þurrkað piparrótarduft, en það
finnst mér vita bragðlaust og
lítt brúkanlegt. Og svo er ekkert
á móti því að sleppa piparrót-
inni, ef þið fáið hana ekki góða,
eða kunnið lítt að meta hana.
18 vænar kartöflur, gjarnan
bintje
3 dl rjómi
1 dl mjólk
1—2 msk nýrifin piparrót, eða
rifin í pökkum
nýrifið múskat
1. Afhýðið kartöflurnar, skerið
þær í þunnar sneiðar og skolið
þær í vatni, látið renna af þeim
og þurrkið þær á stykki, eins og
er lýst hér að ofan. Raðið þeim
síðan í fat, gjarnan vítt og
grunnt, því þá er kartöflulagið
þynnra og kartöflurnar þurfa
skemmri bökunartíma. Blandið
sykri í, látið þetta samlagast vel,
bætið kálinu í og látið það hitna
og þekjast af smjörinu. Berið
það fram rjúkandi heitt.
Dalayrja með
möndlufroðu
Með betri viðbótum við ís-
lenzkan ostakost er dalayrjan,
einstakt lostæti. Hér eru sneiðar
af henni bakaðar með eggja-
hvítutoppum og möndlum. Ef
ykkur sýnist svo, getið þið sett
ristað brauð eða bakaða pæab-
otna undir, en þá verður þessi
smáréttur matarmeiri og ef til
vill of þungur á eftir aðalréttin-
um hér.
Nokkur orð um þeytta eggja-
hvítu. Þið hafið e.t.v. tekið eftir
því, að það skiptir öllu máli að
möndlukökur, eiga einkar vel við
þessa rétti, einnig þunnar
blúndukökur, sem Skandínavar
kalla flarn, og svo vísast margar
fleiri.
Sítrónufroðan er fremur súr,
það getur hver og einn sætt
hana frekar ef vill, en hún fellur
vafalaust í smekk þeirra sem
kunna að meta frísklegt sítrónu-
bragðið. Hún er nokkuð óvenju-
leg, því fyrst er útbúinn lögur,
sem matarlím er leyst upp í, síð-
an er lögurinn næstum því lát-
inn stífna, en er þá þeyttur — og
blandað í þeyttan rjóma. Þannig
verður froðan einkar létt, þó
engin séu eggin eða eggjahvít-
urnar. En froðan verður ekki
stíf, eins og venjulegur búðingur,
eða frómas, og því er bezt að
MIÐSVETRARMALTIÐ II
saman rjóma, mjólk, piparrót og
múskati og hitið þetta að suðu-
marki. Hellið heitri blöndunni
yfir kartöflurnar og bakið við
200° í um 45 mín., eða þar til
kartöflurnar eru gullnar og
mjúkar í gegn. Hitastigið á
ofninum getur verið lægra eða
hærra, eftir því hvað hentar
ykkur, tíminn breytist þá auðvit-
að líka. Berið kartöflurnar fram
rjúkandi heitar.
Rósakál í
súrsætu smjöri
Frakkar og aðrar þjóðir sem
hafa vínedik mikið við hönd nota
það á margvíslegan hátt, m.a. í
heita rétti. í litlum skömmtum
gefur það líflegt og ljúffengt
bragð. Hér gefur það kálinu
keim, en greinist vart sem
sjálfstætt bragð.
Kálið er soðið í um 10—15
mín., eða þar til það er mjúkt í
gegn, en engan veginn lint. Edik-
ið er hitað og látið næstum
hverfa, smjöri og sykri bætt í og
kálinu velt í þessum legi. Gætið
þess að hafa góða loftræstingu
þegar edikið er soðið, lyktin af
heitu ediki er vægast sagt frem-
ur hvimleið.
Þið getið látið kálið sjóða
meðan forrétturinn er borðaður,
það tekur enga stund að útbúa
smjörið, ef þið hellið vatninu úr
pottinum og setjið edikið í hann
heitan.
500—700 gr nýtt rósakál
2 msk vínedik, gjarnan rauð-
vínsedik
1 tsk sykur
um 30 gr smjör.
1. Hreinsið yztu blöðin af kálinu
og skerið neðan af því eftir því
sem með þarf. Setjið það í sjóð-
andi vatn eða gufusjóðið það í
um 10 mín. Hellið vatninu af,
setjið edikið í pottinn, látið það
næstum hverfa, bætið smjöri og
skálin og þeytararnir séu hrein-
ir, þurrir og lausir við fitu.
Plastskálar hafa svo hrjúft yfir-
borð, þó þær virðist glampandi
sléttar, að það er ekki hægt að
hreinsa þær nægilega vel til að
þeyta í þeim eggjahvítu. At-
vinnumenn í útlöndum nota
koparskálar, sem þykja ákjós-
anlegar. Annað ílát og auð-
fengnara er stálskál, vendilega
þvegin, e.t.v. strokin með ediki
til að fjarlægja alla fitu. Gler
kemur einnig vel til greina. Ef
þið eigið ekki stál- eða glerskál,
er ljómandi að nota stálpott. Og
svo má ekki vera rauða með í
hvítunni, þó nokkrir dropar af
henni geri minna til en óheppi-
legt ílát. Farið hægt af stað, þeg-
ar þið byrjið að þeyta. Og svo á
hvítan að verða svo stíf og loða
svo vel við ílátið, að þið getið
hvolft því, án þess að hvítan
detti eða renni úr. Það verður
ekki nógsamlega undirstrikað,
að ílátið skiptir öllu máli. Ef þið
þeytið oft eggjahvítu, þá borgar
sig vel að eiga sérstaka stálskál,
sem þið notið eingöngu til að
þeyta í. Bezt þykir, að hvíturnar
séu við stofuhita.
1 stk. daiayrja (eða meira), skor-
in í 6 sneiðar
2 eggjahvítur
(1 msk viskí)
3 msk gróft saxaðar möndlur
eða heslihnetur, eða möndluflög-
ur
1. Setjið ofninn á 250° eða grill.
2. Raðið ostinum á vel smurt fat
eða álpappír. Stífþeytið hvíturn-
ar, blandið viskíi saman við,
setjið toppa á ostasneiðarnar,
stráið möndlum eða hnetum yfir
og bakið í nokkrar mínútur, eða
þar til topparnir og hneturnar
hafa tekið á sig lit og osturinn er
orðinn mjúkur í köntunum. Hér
skipta sekúndurnar máli, svo
það er bezt að hafa augun ræki-
lega á ofninum, þetta tekur
heldur enga stund. Berið strax
fram á diskum fyrir hvern og
einn.
Sítrónufroða
Hugmyndin er að bjóða upp á
tvo eftirrétti, sem reyndar fara
vel saman, en er einnig hægt að
borða hvorn í sínu lagi. Góðar
smákökur, t.d. einhvers konar
bera hana fram í skál, en hvolfa
henni ekki á fat.
Margir verða felmtri slegnir,
þegar minnzt er á matarlím. Það
er nefnilega ein eldhúshjátrúin,
að matarlím eigi það til að
hlaupa i kekki á óskiljanlegan
og óviðráðanlegan hátt. Þetta er
fjarri lagi og hér er alls engin
hætta á slíkum slysum.
safi úr 3 vænum sítrónum og
vatn, svo vökvinn verði 4 dl
7 matarlímsblöð
2—3 dl sykur
3 dl rjómi
rifinn börkur af 2—3 vel þvegn-
um sítrónum
1. Útbúið vökvann, leggið mat-
arlimið í bleyti. Hitið vökvann
ásamt 2 dl af sykri. Þegar vökv-
inn er orðinn vel volgur, kreistið
þá vatnið af matarlímsblöðun-
um og setjið þau í heitan vökv-
ann. Hrærið í, svo blöðin leysist
vel upp og samlagist fullkom-
lega. Látið vökvann kólna, setjið
hann í kæliskáp þegar mesti hit-
inn er rokinn úr honum.
2. Þegar vökvinn er nokkurn
veginn hlaupinn saman, takið
hann þá út og þeytið, — svo
hann freyði vel. Látið hann nú
aftur í kæliskáp í um 15 mín.
3. Stífþeytið rjómann, þeytið
sítrónublönduna og blandið
henni í rjómann. Bætið rifnum
sítrónuberki í, bragðið á og sæt-
ið frekar með flórsykri, ef með
þarf. Hann leysist vel upp í froð-
unni. Látið standa í nokkrar
klst., eða um nótt ef vill.
Eins og sjá má er ekkert því
til fyrirstöðu að búa þennan rétt
til daginn áður en hann er bor-
inn fram. Lokið þá skálinni vel
með álpappír, svo engin lykt,
bragð eða smekkur úr kæli-
skápnum komist í matinn.
Apríkósur í
hunangsvínlegi
Hér eru notaðar þurrkaðar
apríkósur, sem eru annars miklu
sjaldséðari en ýmsir aðrir þurrk-
aðir ávextir. Þær eru frísklegar
á bragðið og ekki eins dlsætar og
þurrkaðir ávextir eru gjarnan.
Hér er einnig hægt að nota
blandaða, þurrkaða ávexti, eða
einhverja aðra eina tegund.
Apríkósurnar eru soðnar í
hvítvínslegi, en í stað vínsins er I
hægt að nota ávaxtasafa. App-
elsínusafi á t.d. einkar vel við
apríkósur. Einnig þennan rétt er
hægt að útbúa daginn áður en
hann er borinn fram, jafnvel
2—3 dögum. Og svo er hægt að
búa til stærri skammta en er
gert hér.
250 gr apríkósur
4 dl hvítvín (eða vín og vatn til
helminga)
4 dl vatn
4 negulnaglar
um 2 cm biti af vanillustöng
1 kanelstöng
(2—3 msk apríkósulíkjör, koníak
eða annað viðeigandi áfengi)
Vi dl hunang.
1. Setjið allt í pott, nema hun-
ang og 2—3 msk apríkósulíkjör
eða annað áfengi, ef þið notið
það. Látið suðuna koma upp,
takið pottinn af og látið ávext-
ina standa í leginum, þar til þeir
eru næstum kaldir. Takið ávext-
ina upp með sigti eða ámóta
áhaldi, setjið þá í skál, dreypið
áfengi á og látið standa.
2. Sjóðið nú löginn í pottinum
ásamt hunanginu, þar til aðeins
um 2 dl eru eftir. Látið mesta
hitann rjúka úr leginum sem nú
líkist þykku sírópi, og hellið
honum á ávextina. Nú á þetta
allt að kólna. Berið fram við
stofuhita, en geymið í kæliskáp,
ef þið látið þetta standa lengur
en nokkrar klst.
Jólaskraut og
kertaljós
Haustið hefur verið svo fá-
dæma gott, a.m.k. hér á suð-
vesturhorninu, að blóm standa
víða enn í görðum, þurr og visin,
tilvalin í jólakransa og hvers
kyns annað skraut. Fyrir
skömmu mátti enn tína lokasjóð
(peningablóm), vatnsbera og
önnur blóm. Þessar jurtir eru
einkar fallegar í kransa, einar
sér með könglum, rauðum kúl-
um, greni eða öðru skrauti. Látið
þá jurtirnar liggja hálfan eða
heilan sólarhring útbreiddar á
dagblöðum, svo rakinn rjúki úr
þeim. Ef vill er hægt að sprauta
á þær gylltri málningu, sem
fæst í handhægum sprautubrús-
um. Og það eru ekki aðeins blóm,
sem henta vel í skreytingar,
heldur einnig greinar af trjám
og runnum. Heimatilbúnar
skreytingar úr þessum efnum
eru fallegar á að líta. Ef fram-
leiðslan er mikil, er þetta
skemmtileg gjöf, t.d. í staðinn
fyrir blóm.
Nú þegar aðalkertatíminn
gengur í garð, þá er ekki úr vegi
að muna eftir þessum stórfal-
legu og ilmandi bývaxkertum,
sem vistmenn að Sólheimum í
Grímsnesi steypa sér og okkur
til yndis og ánægju. Lionsklúbb-
urinn Ægir dreifir þeim og þau
fást víða í búðum, t.d. stórmörk-
uðum. Hafið augun hjá ykkur
eða spyrjið eftir þeim. Það er vel
þess virði.
s#nar^Sienö
téfn
AUCLYSINCASTOFA
MYNDAMÓTA HF
Rafverktakar og umsjónar-
menn kirkjugaröa
Höfum til sölu perur, 32 volt, 5 w. Litaðar.
Eyravegi 29 - Selfossi
Sími 99-1160 Nnr. 0599-8514
RAFLAGNIR OG RAFTÆKJAÞJÖNUSTA
LÖGG RAFVERKTAKI
©
fecximE
SEM TRYOGIR
OÓDAR VÓRUR
OO VIDOIRDA'
WÓNUBTU
1« lu limUTMl
J.H. Parket
auglýsir:
Er parketið
orðið ljótt?
Ptis.sum upp og Iðkkum
PARKET
FJnnig póssum við
upp og Iðkkum
hverskyns viðat gótf.
Uppl. í síma 12114 eftir
kl. 2 á daginn.