Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 22
70 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 Bókaútgáfan Þjóðsaga gef- ur út listaverkabók um ævi og listferil Þorvalds Skúlasonar. Tugir lit- mynda prýða bókina, auk svart- hvítra mynda. Höfundur er Björn Th. Björnsson. Morgunblaðið hefur fengið heimild til að birta kafla úr bókinni. Nefnast þeir Frakklandsdvöl, Flóttinn frá Tours og ísland nýrra tíma, sumar á Húsafelli. Þorvaldur Skúlason í vinnustofu sinni 1981 Þorvaldur Skúlason Þegar hér var komið, undir lok friðartímans milli stríða, hafði mjög lægt þá miklu spennu í listum sem hófst upp úr heims- styrjöldinni fyrri. Dadaisminn var löngu allur, súrrealisminn ekki lengur ríkjandi stefna, heldur bundinn ákveðnum ein- staklingum, Margritte, Delvaux, Dali og Chirico, fútúrisminn og súprematisminn höfðu runnið sitt skeið sem byltingaröfl innan myndlistarinnar, og sjálfur kúb- isminn var hvergi til lengur í hreinni mynd. Nú var tími úr- vinnslunnar hafinn, tími yfir- vegunar í stað sprengikenndrar útrásar. Menn fóru æ meir að endurskoða ýmis grunngildi málverksins, liti, birtu, áferð og ekki síst sjálfa myndskipunina, í því skyni að gera málverkið að tjáningu stöðugra og sammann- legra gilda. Það er alls ekki út í hött þegar sumir listsögufræð- ingar kalla tímabil þetta „klass- ískt“, þar sem það býr yfir mörg- um þáttum innra samræmis sem einkenna slík tímabil. Mjög erfitt er að fullyrða hvort ógnir nazismans í Þýzka- landi, lista- og gyðingaofsóknir, fasisminn á Italíu og villi- mennska hans í Abbesíníu, ásamt ótta manna við nýja tor- tímingarstyrjöld, hafi valdið þessu tilhvarfi til festu. Margir álíta að listin hagi sér einatt þannig: Hún birti stöðugleika til andsvars upplausnar, en upp- reisn gegn samfélagslegri stöðn- un. Að minnsta kosti sýnist svo, þegar yfir er litlð, að myndlistin, þetta óstýriláta vandræðabarn aldarinnar, hafi hér verið að leita nýrrar menningarlegrar kjalfestu. í þeirri endurskoðun voru aðallega tvær stefnur á ferð, hinn hreini flatastíll eða „neo-plasticismi“ Mondrians og Ben Nicholsons, svo nokkuð ólík dæmi séu nefnd, og hinsvegar sú þétting ytri fyrirbæra í lögbund- ið, myndrænt form, sem átti sér að höfuðleiðtogum ýmsa af kúb- istunum gömlu, og ekki síst þann hljóðláta snilling, George Braque. Því hefur löngum verið haldið fram um Þorvald Skúlason, og einn tekið eftir öðrum, að verka hans frá Frakklandsdvölinni 1939—40 sjái naumast stað leng- ur. Þetta reynist þó rangt þegar grannt er leitað. Verk hans frá París, frá vori og fram á haust 1939, eru allnokkur til, en hins- vegar sneiðist nær um þau með öllu þegar kemur lengra fram á haustið og þau Astrid flýja til Tours. Eina hugsanlega skýring þessa er sú, að hann hafi sent verkin frá sér til Kaupmanna- hafnar — þar sem Þorvaldur tók reyndar þátt í samsýningunni Skandinaverne þetta haust, ásamt þeim vinum sínum og löndum, Sigurjóni Ólafssyni og Jóni Engilberts —, eða heim til íslands, þar sem Þorvaldur flutti engar myndir með sér þegar hann flúði að lokum heim frá Frakklandi. Myndirnar frá Parísarsumr- inu eru tvennskonar: Vatnslita- myndir, bjartar og glaðlegar, þar sem hann horfir gjarnan út yfir svalir á hús og tré, eða með samstillingu í forgrunni og frjálslegu litríki götunnar fyrir handan. Líkast er sem myndir þessar — sem allar eru örugg- lega merktar, t.d. „Þ.S. Mont- parnasse mai — 39“ — séu fyrst og innst fagnaðarsöngur yfir því að vera hingað kominn, í heita birtuna, með pensla sína og liti á Montparnasse. Þótt myndir þessar séu frjálslegar, og í eðli sínu impressioniskar, — með keim af Matisse-kenndu skreyti — sleppir málarinn samt engu af sínu við fyrirmyndina. Hinsvegar eru svo olíumál- verkin. Þau eru harla ólík vatnslitamyndunum að því leyti, að þar er það lokaður, innri heimur, veröld málverksins, sem hann glímir við. Góð dæmi slíkra verka eru t.d. stilla með ávaxtaskál, glasi, pentu og ösku- bakka, merkt „Þ. Skúlason — 39“. Myndin er mjög þétt og efn- ismikil í litum, sem eru stroknir á með sköfublaði, og hlutirnir sem næst í einum samfelldum fleti. Þungir lithljómarnir móti gráum fleti feia í sér áræði í böndum mikillar festu og minna óneitanlega á svipaða afstöðu í verkum Braques. Hitt dæmið, sem hér má taka, er Kona að lesa í bók, merkt „Þ.S. apríl — 39“, í eigu Lista- safns Háskóla íslands. Þótt kon- an, bókin, borðið og glugginn séu allt auðsæjar staðreyndir, er það samt myndkveikja fremur en frásagnarleg fyrirmynd. Hvar- vetna er það sjálf hrynjandi formanna og eigingildi litanna sem mestu máli skipta. Glugga- karmurinn er til dæmis úthallur, í því skyni að skapa mótvægi við stellingu konunnar og rauðköfl- óttan dúkinn, en ekki síður til andvægis við sterka skálínu ofan frá hægri, niður í gegnum bók- ina og pilsið. Slík skálína, þ.e. milli efra vinstra horns og neðra hægra horns, er í eðli sínu hop- andi og angurvær („regressiv"), og með þungum, hlýjum litunum er þessari innhverfu tjáningu rósemdar og öryggis gerð djúp- tæk skil. Andlit stúlkunnar er mótað með heilum litflötum, enda væri annað stílbrot í þess- ari mynd, og á greinilega ætt að rekja til grímunnar í myndum kúbistanna. Fleiri dæmi eru til frá þessu vori og sumri, og sýna þau öll, hvað olíumyndirnar snertir, að áhugi Þorvalds beind- ist orðið allur að innvirki mál- verksins en ekki ytri sýnd. Þau hjónin höfðu farið til Par- ísar um Kaupmannahöfn, þar sem þau dvöldust um jól.in. í París fengu þau hina ágætustu íbúð við rue Froidevaux, rétt andspænis kirkjugarðinum mikla, Cimitiere du Montparn- asse, og höfðu þaðan vítt útsýni, allt yfir til Montmartre. Þann 1. september 1939 fæddist þeim hjónum dóttir, sem skírð var Kristín, og aðeins tveim dögum síðar brauzt heimsstyrjöldin út. Þar sem mjög var óttazt að þjóð- verjar myndu gera loftárásir á París, ráðlagði vinur þeirra hjóna við danska sendiráðið þeim að flytjast til borgarinnar Tours við Leiru, þar sem hún myndi úr allri styrjaldarhættu. Þar sem hann var þar vel kunn- ur, útvegaði hann þeim húsnæði hjá franskri fjölskyldu þar í borg. Þangað fluttust þau nokkru síðar, og í Tours hélt Þorvaldur áfram verki sínu í nokkrum samskiptum við ýmsa franska og erlenda listamenn sem þangað höfðu flúið. Það stormhlé sem þau höfðu leitað í Tours stóð þó ekki nema tæpt árið. Hersveitir Hitlers muldu undan sér vestur á bóg- inn. Þann 10. júní 1940 flúði franska stjórnin frá París og settist einmitt að í Tours, þaðan sem menn trúðu að veita mætti viðnám. En aðeins nokkrum dög- um síðar, er þau Þorvaldur voru í heimsókn hjá belgísku vina- fólki sínu, bárust þær fréttir, að þýzki herinn stefndi með leift- ursókn inn í borgina. Svo hröð og óvænt var rás atburðanna, að þau hjónin áræddu ekki að fara heim til sín, heldur hröðuðu sér á járnbrautarstöðina í því sem þau stóðu og með tíu mánaða gamla dóttur sína, — Þorvaldur meira að segja frakkalaus í sumarhitanum. Það var enda rétt með naumindum að þau náðu síðustu lest út úr borginni áður en hún yrði umkringd. Þau komust til hafnarborgarinnar Bordeaux, þangað sem stjórnin hafði flúið daginn áður, og með góðra manna hjálp komust þau á skipsfjöl til Englands. Sá dagur skrifaðist 22. júní, eða sami dag- ur og franska stjórnin lýsti formlega yfir uppgjöf Frakk- lands fyrir þjóðverjum. Heimferðin til íslands tók þau hjón fimm vikur. Þann 2. ágúst segir Morgunblaðið frá heim- komu Þorvalds og telur hann hafa verið síðasta íslendinginn sem sloppið hafi frá Frakklandi áður en þjóðverjar lokuðu öllum undankomuleiðum. Þannig lauk, a.m.k. um sinn, því áformi Þor- valds að setjast að og hasla sér völl í Frakklandi, og var nú „dæmdur til“ — sem unnendum listar hans var ekkert hryggðar- efni — að starfa heima fram yfir stríðslok. Svo sem ljóst er af framan- sögðu, urðu öll málverk Þorvalds og aðrar eigur þeirra hjóna eftir í Tours, og munu þau aldrei hafa gert sér neinar vonir um aftur- heimt eftir þau fimm ár sem stríðið stóð. Því sæi verka Þor- valds frá borginni við Leiru heldur hvergi stað lengur, nema fyrir þá eindæma heppni, eða þetur sagt vongleði og fram- takssemi dr. Gunnlaugs Þórð- arsonar, er honum tókst árum síðar að hafa upp á málverki eft- ir Þorvald, merktu og ársettu í Tours. Það er stilla, 80x61,5 sm, með hárri vatnskönnu, ávaxta- skál og glasi á litlu borði við glugga. Hlutunum er stillt þétt saman, og til þess að draga fram formeðli þeirra fremur en hluta- eðli, er öll rýmiskennd sem næst þurrkuð út. Allnokkuð ber á flataskreytingu, svo sem í dúkn- um, gluggatjaldinu og raunar rúðunum sjálfum. Málverk þetta er að því leyti svipað Konu að lesa í bók, sem þó er gert nokkr- um mánuðum áður, að í báðum ríkir djúp rósemi og hægiæti tímans, líkt og málarinn leiti fyrst og fremst að innri festu. Af viðtölum við Þorvald hefur oft mátt ráða, að hann hafi á tímanum í Tours unnið talsvert í algerlega óhlutbundnum stíl. Þótt verk hans frá sumrinu í París og þetta síðastnefnda mál- verk frá Tours, sem er þó málað um haustið, beri því ekki vitni, er samt engan veg fyrir slíkt að synja. Hann átti enn eftir fimm mánaða starf þar í borg, og svo huglæg sem málverk hans voru orðin, var skrefið yfir í hreina abstraktlist að sönnu ekki langt. Svo beint sé vitnað til orða hans sjálfs, segir hann síðar í samtali við Þjóðviljann: „Eigandi íbúð- arinnar (í Tours) seldi allt dótið þegar við vorum horfin og hefur trúlega ekki fengið mikið fyrir það. — Þessar myndir mlnar voru allar afstraktar." í öðru viðtali, sem hann á við Morgun- blaðið í tilefni af yfirlitssýningu á verkum sínum í Listasafni Is- lands 1972, segir hann: „Ég byrj- aði að snúa mér að abstrakt- myndum síðustu tvö árin sem ég var úti í París. En svo kom stríð- ið og ég hrökklaðist hingað heim, en í fyrstu fann ég ekki hér heima þessa „atmosferu" sem ég þurfti til að mála abstrakt, svo ég málaði bara það sem ég sá.“ Fyrst eftir heimkomuna til Is- lands sumarið 1940 bjuggu þau Astrid og Þorvaldur hjá Theó- dóri fornvini hans á Hótel Vík, en fengu brátt inni í húsi Eiríks

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.