Morgunblaðið - 04.12.1983, Page 34

Morgunblaðið - 04.12.1983, Page 34
82 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 leit að hillu í lífinu / Ung fjölskylda í heimavist í húsmæðraskóla í heimavistinni í húsmæöraskólanum á Varmalandi búa 18 stúlkur og ein fjölskylda. Það eru þau Hannes Snorri Helgason og Hulda Björg Víðisdóttir með Víði litla 5 ára. í háskólum er gert ráð fyrir hjónaíbúðum, svo margt fjölskyldufólk sem nú orðið stundar þar nám. En í húsmæðraskóla er það líklega einsdæmi. í húsmæðraskólanum á Varmalandi hafa þau samt litla íbúö, gamla kennaraíbúð. Skólastjórinn Steinunn Ingimundardóttir býr í húsinu, en nú búa þar ekki lengur fast aörir kennarar. Það kom sér vel fyrir þau Hannes og Huldu, þegar þau leituöu þangað. En þau eru eftir sem áður í heimili í skólanum, þar sem Víöir litli unir sér ekki síöur vel en foreldrarnir. Þau fóru heldur ekki troönar brautir þegar þau á sl. hausti tóku aö leita eftir og skipuleggja nám sitt á þessum vetri. Hannes Snorri Helgason er Reykvíkingur og stúd- ent frá Verslunarskólanum 1982 og hann stundar nám viö Búnaöar- skólann á Hvanneyri, sem er í 25 km fjarlaegö frá Varmalandi. En Hulda Björg Víöisdóttir, sem er frá Egilsstööum og stúdent þaöan 1981, er alveg í fullu námi í húsmæðraskólanum. Og Víöir litli er eiginlega í eigin valgreinum um allan skólann. Er alls staðar vel- kominn og hvergi fyrir, og unir sér þar betur en á dagvistunarstofnun í Reykjavík. — Eina óljósa atriðiö þegar viö komum í haust var drengurinn, hvort þyrfti að fá fyrir hann barnfóstru meöan við erum i skólanum, sagöi móöir hans. En jafnvel þaö reyndist óþarfi. Fjöl- skyldan er því í nokkurs konar sjálfskipulögöu fjölbrautanámi undir stjórn beggja skólastjór- anna, á Hvanneyri og Varmalandi. Vilja búa í dreifbýlinu Þegar leitaö er eftir svari viö því af hverju þau lentu í húsmæðra- skóla en ekki háskóla, eins og flestir stúdentar telja sjálfsagt, sögöust þau vera að leita fyrir sér: — Og meö þá menntun sem við veröum komin meö eftir þennan vetur eru svo margar leiðir opnar, segja þau. Og þau bæta því viö aö hvaö sem veröi, þá sé ólíklegt aö þau búi aftur um sig til frambúöar í borginni. Segja aö sú tilfinning hafi enn skerpst eftir aö þau komu aö Varmalandi hve gott er aö vera í dreifbýlinu. Þau kváöust sammála um aö verða sem minnst í borg eöa bæ um ævina. í sveit eöa litlu sveitakjörnunum sé allt annaö líf. Þar sé allt miklu frjálsara, rólegri andi yfir öllu, þótt streita fyrirfinn- ist aö vísu líka. — Og maöur sér til himins, ekki bara í næstu steinhús, bætir Hulda við. Hannes er Reykvíkingur í húö og hár. Fæddur þar og uppalinn. En afi hans, Jón Helgason kaupmaö- ur, átti stóran sumarbústaö í Mos- fellssveit, þar sem var stórt land og trjárækt og þar undi öll fjöl- skyldan sér löngum stundum. í sveit var hann í 4 sumur í Suður- sveitinni og kynntist sveitastörfum. Eftir stúdentsþróf tók hann aö leita fyrir sér um framtíöarstaö í lífinu. Var sl. ár aö þreifa sig áfram meö ýmiskonar vinnu, var í fiski, bygg- ingarvinnu, á lager og á skrifstofu í fyrravetur, en fann aö ekki mundi viö hans hæfi aö koma sér fyrir viö skrifborð um ævina. Hann haföi veriö aö læra aö fljúga og fór aö hugsa til þess aö fara til Bandaríkj- anna og læra flugvirkjun, en venti sínu kvæöi aldeilis í kross og nú er hann kominn í búnaöarskóia og hefur mestan áhuga á aö finna sér starf og viöfangsefni úti á lands- byggöinni. — Væri gaman aö fara út í búskap ef hægt væri, en eins og ástandiö er í dag er þaö ekki svo auövelt, segir hann. Einhvers staöar veröur þó aö byrja. Hulda Björg Víöisdóttir á aftur á móti meiri rætur í sveitinni. For- eldrar hennar búa á Egilsstööum, en faðir hennar er frá Völlum og móöir hennar frá Birkihlíö í Skriö- dal. Þar var hún meö annan fótinn í uþþvextinum. Og þaö haföi ekki svo lítil áhrif á Hannes aö kynnast meö henni sveitalífinu og búskapn- um í Birkihlíð. Sjálf haföi Hulda nokkuö ákveðna hugmynd um hvaöa nám hún ætlaöi í aö loknu stúdentsprófi, þ.e. sálarfræði. Vann svo í eitt ár á heimili fyrir þroskahefta. Kynntist nokkuð störfum sálfræðinga og komst að þeirri niöurstööu aö ekki væri það ævistarfið sem ætti best viö hana. Og þar sem hún haföi alltaf haft áhuga á matreiöslu og handavinnu og oft dottiö í hug aö gaman væri aö kunna eitthvaö fyrir sér í þeim greinum, tók hún því tveim hönd- um þegar sú hugmynd kom uþþ hjá þeim í haust eftir aö þau komu austan úr sveitinni að Hannes sækti um þúnaðarskólanám á Hvanneyri og hún færi i hús- mæöraskóia skammt frá. — Þar sem ég hefi alltaf haft áhuga á inn- anhúsarkitektúr, bætir Hulda Björg viö, þá kemur sér vel aö hér er ein greinin híbýlafræði og ég fæ þá nasasjón af slíku áöur en ég tek ákvöröun um hvort ég held út á þann vettvang. Þaö var eiginlega sumarfríiö austur í Birkihlíð sem geröi útslag- iö á þaö aö búnaöarnámiö varö endanlega fyrir valinu. Oft höföu þau talaö um aö gaman væri aö búa t sveit, en tilhugsunin veriö eitthvað svo fráleit og vonlaus, sögöu þau. En eftir dvölina fyrir austan hltnaöi aftur í þeirri hug- mynd. Og á örskömmum tíma var allt ákveöiö. Hannes hringdi til Steinunnar Ingimundardóttur og lagöi málið fyrir hana. Hún tók því strax vel aö leysa úr þessu. Magn- ús Óskarsson, skólastjóri á Hvann- eyri, þurfti aöeins aö melta þaö, aðallega hvort hægt yröi aö koma Hannesi í verklegt nám. — En þetta gekk allt eins og í lygasögu, segja Hannes og Hulda. Þau komu heim um verslunarmannahelgina, hringdu 11. ágúst í Varmaland, 15. ágúst sagöi Hulda upp starfi sínu í Verzlunarbankanum og 28. sama mánaðar var Hannes kominn í verklega námiö aö Hamri í Þver- árhlíö. — Viö heföum ekki getaö látið okkur detta neitt betra í hug. Viö erum alsæl meö þetta, segja þau. Á eigin f jölbraut Þar sem Hannes hefur stúdents- próf getur hann tekiö búnaöar- námiö á einu ári. I raun er þaö tveggja vetra nám. Á fyrra ári er önnur önnin verkleg en hin bókleg. Vegna verklega námsins varö hann aö byrja í ágúst aö vinna á búinu á Hamri, fór svo í skólann í október og mun aftur vinna þar um jólin. Skólinn hefur tekið upp þann hátt aö láta nemendur taka verk- legt nám meö vinnu á ákveönum búum, sem hann viöurkennir. Á Hamri er blandaö bú, en nemend- ur eiga nokkurt val. Sem valgrein í skólanum hefur Hannes samt tekið loödýrarækt, til þess að fá innsýn i sem flest. Nokkrir nemendur á Fyrir utan Húsmæóraskólahúsið á Varm Hvanneyri taka afleysinga- og feröaþjónustu sem valgrein og þar skarast námiö viö húsmæðra- fræösluna. Steinunn Ingimundar- dóttir kennir vissa tíma á Hvann- eyri, en síðan koma nemarnir i matreiöslunám í húsmæöraskól- ann á Varmalandi. Hér vekur Hulda athygli á því aö nám þeirra sé á ýmsan hátt ekki svo ólíkt. Til dæmis haföi Hannes setiö yfir verkefni í fóöurfræöi eitt KANARÍEYIAR'TENERIFE EYJA HINS EILÍFA VORS — STÆRST OG FEGURST KANARÍEYJA VIÐ BJÓÐUM KANARÍEYJAFERÐ, SÓLSKINSPARADÍS í SKAMMDEGINU MEÐ NÝJU SNIÐI FJÓRÐA VIKAN ÓKEYPIS - HÆGT AO STANSA í LONÓON í 21/2 DAG Á HEIMLEIÐ ÁN AUKAKOSTNAÐAR OG HÓTEL MEO BAÐI OG SJÓNVARPI INNIFALIÐ. 10 dagar. Tvær ferðir í einni ferð vika í sólsklnsparadís og tveir og hálfur dagur í London. 17 dagar tvær vikur í sólskinsparadis og tveir og hálfur dagur í I-ondon. Einnig hægt að fá 24 o ’ 30 daga ferðir. Já nú getið þér fengið tvær ferðir i einni og sömu ferðinni á ótrúiega hagstæðu verði. Fegursta sólskinsparadisin á Kanaríeyjum og viöburðaríkir dagar í heimsborginni London með heimsins mesta leiklistar- og tónlistarlíf og hagstæðar verslanir. Brottfarardagar: 14. des, 21. des, 30. des. (sérstakar jóla- og áramótaferðir), 6., 13., 20. og 25. jan., 1., 8., 15., 22. og 29. febr., 2., 9., 16., 23., 30. mars, 6., 13., 20. og 27. apríl. Hægt að velja um dvöl á glæsilegum f jögurra stjömu hótelum og íbúðum á stærsta og fjölsóttasta ferðamannastaðnum á Kanarieyjum, Puerto de ia Cruz. Þar eru tugir næturklúbba, diskóteka og hundruð frábærra matarstaöa. Sjórinn, sólskinið og skemmtanalif ið eins og fólk vill hafa það. Aths. Jóla- og áramótaferöir: 14. des., 21. des. og 30. des, (fá sæti laus). Pantiö snemma því plássið er takmark að. Uppselt í sumar ferðirnar og lítið af sætum laust í margar hinna. Flugferdir — sólarflug Vesturgötu 17. Símar 10661, 22100 og 15331. í Kaupmannahöfn F/EST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI Fróóleikur og skemmtun fyrirháa sem lága!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.