Morgunblaðið - 04.12.1983, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983
83
alandi. Steinunn Ingimundardóttir skólastjóri meó einu námsmannafjölskyldunni, sem þar er til húsa.
kvöldið í vikunni og fór eitthvað að
spyrja hana. Þá kom í Ijós að hún
gat flett upp í blööum sinum í nær-
ingarfraeöi fyrir hann. — Við not-
um öll sömu næringarefnin, bæöi
viö manneskjurnar og dýrin. Og
námiö í húsmæöraskólanum býr
Huldu vissulega ekki síöur undir
feröaþjónustu sem aukabúgrein,
ef svo skyldi fara aö þau færu aö
búa.
Hvaö er þaö þá, sem hún lærir
og er svo ánægö meö aö kynnast?
Hún er í hússtjórnarhópnum fram
aö áramótum. Honum er skipt í 3
hópa. Einn sér um allan mat, annar
um bakstur og sá þriðji um þvotta
og ræstingu. Þá er byrjað kl. 7.15
aö morgni og verklegt nám er fram
til 1.30. Síödegis eru bókleg fög í
heilsufræöi, híbýlafræði, félags-
málafræöi, næringarfræöi, vöru-
fræöi og uppeldisfræöi. — Mér
finnst betta ákaflega gott nám,
segir hún. Fyrir mlg sem hefi meiri
undirbúning en hinar er margt
upprifjun, ööru hefi ég aö nokkru
kynnst, en bæti nú viö fyrri þekk-
ingu eins og t.d. þegar um er aö
ræöa híbýlafræöi og næringar-
fræöi, því ég hefi haft efnafræöi
áöur. En félagsmálafræði hefi óg
aldrei lært og hefi mikinn áhuga á
þvi. Eftir áramótin tekur svo viö hjá
þessum hópi vefnaöur og saumar í
staö hússtjórnargreina.
— Ég er ákaflega ánægö meö
þetta nám, geröi mér í rauninni
ekki grein fyrir því hvaö þaö er fyrr
en ég var komin hingaö upp eftir,
segir Hulda. Og ég er þeirrar skoö-
unar aö ásókn í húsmæðraskólana
fari aö aukast aftur. Á tímabili upp
úr 1968 var svo mikill uppreisnar-
andi i konum, sem á sér sínar
orsakir. Þær vildu ekki láta planta
sér alfariö í eldhúsin. Og þaö sner-
ist upp í uppreisn gegn húsmóö-
urstarfinu. Nú er þetta aö breytast.
Þarna er um svo margt annaö aö
ræöa. Það er staöreynd aö konur
vinna úti og hafa því minni tíma til
starfanna á heimilinu. Þá liggur í
augum uppi aö þeim vinnst þaö
einmitt betur og auöveldar ef þær
kunna eitthvaö til verka. Nú er svo
margt keypt tilbúiö til heimilanna.
En maöur getur nýtt svo miklu bet-
ur allt hraefni, ef maöur veit hvern-
ig á aö fara aö þvi. Slíkt hefi ég
aldrei lært fyrr og hefi fundiö þetta
svo miklu betur eftir aö ég kom
hingað. Nýting veröur miklu meiri
og þar meö má mikiö spara meö
kunnáttu.
Daginn sem blaöamaöur kom í
húsmæöraskólann aö Varmalandi
vildi svo til aö hússtjórnarhópurinn
var aö æfa sig á veislumat meö því
aö framreiöa kalt borö fyrir nem-
endur og kennara. Stúlkurnar
skipulögöu, töfruöu fram rétti og
vönduöu sig í framreiöslu. Þetta
leiddi taliö aö þvi aö þær útbúa
einu sinni i viku þríréttaöan veislu-
mat og þjóna til borös og hafa
þannig eftir veturinn þjálfun í aö
standa fyrir veitingum hvar sem er,
þótt ekki fái þær nein vottorö þar
um eöa umbun í launum. Ööru
hverju efna nokkrar til sjálfstæörar
veizlu sem þær sjá alveg um. T.d.
haföi Hulda nýlega veriö í þriggja
stúlkna hópi sem ákvaö og skipu-
lagöi kínverska máltiö og lét boröa
með prjónum, sem gekk mjög vel.
Stúlkurnar voru sjálfar búnar aö
æfa sig áöur og kenndu gestum.
— Þaö var ákaflega gaman, segir
hún. Af eölilegum ástæöum segj-
ast þau Hannes og Hulda ekki taka
mikinn þátt í félagslífinu í skólun-
um, sern er allblómlegt, einkum í
fjölmenninu á Hvanneyri. Ósjaldan
býöur annar skólinn hinum á
diskótek á laugardagskvöldum.
Jafnvel kenndir gömlu dansarnir.
En þau taka ekki þátt í því nema
þegar skemmtunin er á Varma-
landi, fara ekki frá drengnum.
— Víöir litli er ákaflega ánægö-
ur meö þetta fyrirkomulag allt á
Varmalandi. Móöir hans segir aö
hann hafi lifnað viö eftir aö hann
kom aftur í sveitina. Ekki haföi liöiö
nema ár frá því aö hann kom úr
sveitinni og frelsinu hjá ömmu
sinni fyrir austan og þurfti aö venj-
ast nýjum aöstæöum á barna-
heimili í höfuöborginni og nýjum
pabba á heimilinu. Þaö var því eina
áhyggjuefniö þegar ákvöröunin var
tekin um aö setjast aö í hús-
mæðraskólanum hvernig hann
mundi falla þar aö aöstæöum. En
þaö reyndist óþarfi, því drengurinn
valsar um skólann eins og hann
eigi alls staðar heima, feginn end-
urheimtu sveitafrelsi. Hann fékk aö
velja um þaö hvort hann vildi
vakna meö mömmu sinni kl. 7 eða
lúra áfram og koma sjálfur niður
þegar honum hentaöi. Þaö kaus
hann aö gera. Fyrst í haust fékk
hann aö vera svolítiö meö Hannesi
á Hamri meöan hann var aö vinna
þar. Haföi áöur verið dálítið
smeykur við dýrin, en nú talar
hann um kýrnar sínar og hundinn
sinn þar. — Á honum sér maöur
vel muninn á því aö ala upp barn í
sveit eöa í Reykjavik, segir Hulda,
þótt vitanlega fari þaö nokkuö eftir
aöstæðum á báöum stöðum.
Þaö var fróölegt aö koma í hús-
mæöraskólann á Varmalandi og
hitta fjölskylduna sem er aö leita
sér aö réttri hillu í lífinu. Veit aö sú
hilla er í dreifbýlinu, en er aö þreifa
fyrir sér meö sem fjölbreyttustu
námi í búnaðarskóla og hús-
mæöraskóla um hvar og hvernig
þau veröi þar ánægöust í lífinu.
Hvaö sem verður eru þau a.m.k.
ákaflega ánægö meö veturinn í
vetur. — Heföum ekki getaö tekiö
betri ákvöröun, segja þau í kór
þegar blaöamaöur kveöur þau.
Leiðir liggja til allra átta.
— E.Pá.
Bakkabræður
GÍSLI, EIRÍKUR, HELGI 1
GÍSLI U I EIRÍKUR, I HELGI 1
Nú eru allar skemmtilegu Bakkabræörasögurnar
komnar á hljómplötu í frábærum flutningi Sig-
uröar Sigurjónssonar, leikara.
Þórir S. Guöbergsson bjó sögurnar til flutnings
og Þórhallur Sigurösson leikstýröi.
Þetta er plata fyrir alla krakka, mömmur og
pabba og ömmur og afa.
Nú geta allir hlegið í kór.
FALKIN N
Laugavegi 24, sími 18670,
Suöurlandsbraut 8, sími 84670.
©