Morgunblaðið - 04.12.1983, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 04.12.1983, Qupperneq 44
92 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 ,, þú átí at> venx meb í rétt'muryi. V(<£ byggjuM vörrurvo. á. „ geggjun ‘ ... að hætta veiöum ef harm fær ekkert. TM Rao U.S Pat Ott - all rights reswved c1983 Los Angetes Times Syndicate Sálfræíiini!urinn sagði mönnum að refsa mér á þennan hátt. Ég má ekki horfa á litsjónvarpið í tvsr vikur! Með morgnnkaffinu í eitt skipti fyrir öll segi ég þér Þú mátt ekki kalla mig pabba! HÖGNI HREKKVlSI Áhugi er ekki víma H.Kr. skrifar: „Velvakandi góður. Jón óttar skrifar þér um „ofstæki, „áflogahunda", „opin- bert skítkast" og „auðsætt reiði- kast“. Hver skyldi hafa verið í reiðikasti? Hvern skyldi þurfa að aumkva vegna þess? Við það ætla ég ekki að eltast. En mér virðist að Jón óttar komi í skrifi sínu að því sem mér finnst aðalatriði þess, sem okkur ber á milli. Hann segir: „Þeir sem ánetjast ofstækinu þurfa ekki aðra vímugjafa og skilja þar af leiðandi ekki venju- legt fólk.“ Þetta skil ég svo að hann telji að venjulegt fólk þurfi vímu- gjafa. Þeir sem geti lifað vfmu- gjafalaust séu afbrigðilegir. Þetta er fyrir mér aðalatriði málsins. Geta menn lifað heil- brigðu, eðlilegu lífi vímugjafa- laust? Jón Óttar telur að til þess þurfi afbrigðilegt fólk. Jón óttar segist ekki greina liti tilverunnar ódrukkinn. Hann er háður áfengi á þann hátt, að honum finnst hann þurfa þess með til að geta verið í sæmilegu skapi. Ég hef hins vegar svo lengi lifað með bindindissömu fólki, að ég tel slíkt enga nauð- syn. Ég hef þekkt margt fólk sem aldrei neytti áfengis, en lifði langa og farsæla ævi, vímugjafa- laust. Svo neita ég því líka, að áhugamál séu vímugjafi, áhugi er ekki víma. En ég tel það mjög gott, að Jón óttar hefur skilmerkilega sagt á prenti að hann telji venjulegt fólk ekki komast af vímugjafa- laust.“ Hvenær verða lagðar gang- stéttar við Jaðarsel? íbúi í Seljahverfi skrifar: „Velvakandi. Mig langar til að spyrjast fyrir um það, hvenær megi vonast eftir gangstéttum meðfram Jaðarseli í Seljahverfi og upplýstum og nokk- urn veginn barnavagnafærum göngustigum meðfram Seljaskóla og að Kambaseli. Þeir ófrágengnu göngustígar sem eru þar fyrir eru oftast ófærir vegna bleytu, leðju og grjóts, en norðan og austan Kambasels eru gangstígarnir greiðfærari og upplýstir. Umferð eftir Jaðarseli er mjög mikil og hröð. Þar aka strætis- vagnar og langferðabílar sem flytja börn í sundlaugar. Einnig er mikil umferð i sambandi við íþróttahúsið við Seljaskóla. Það er því stórhættulegt að ganga eftir götunni, jafnvel þó að gengið sé á móti umferðinni. íbúar sem búa sunnan og vestan Seljaskóla komast ekki í verslanir eða í strætisvagna nema leggja sig í stórhættu, ef þeir ganga eftir Jaðarseli, að ég tali nú ekki um fólk með barnavagna. Ég veit um tvö tilfelli þar sem fólk með barnavagna hefur næstum því verið ekið niður á Jaðarseli. Ég er viss um að bílstjórar sem eiga leið um Jaðarsel eru mér sammála. Gatan er ein akrein í hvora átt og því erfitt að víkja fyrir gangandi vegfarendum, fólki með barnavagna og fólki á reið- hjólum, vegna umferðar á móti. Vegna margra slysa á gangandi vegfarendum undanfarið, finnst mér ástæða til að benda á fram- angreint með von um úrbætur. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna.“ Hver beit í skjaldarrendur í vígahug? Jón Á. Gissurarson skrifar: „Fyrir nokkrum dögum þurftu lögregluþjónar að taka mann í sína vörslu samkvæmt beiðni frá veitingahúsi hér í borg. Sá hand- tekni telur handtöku þessa með öllu tilefnislausa og segir sig hafa hlotið meiðsli í átökum þessum. Hann hefur kært þetta og er málið í rannsókn. Menn skyldu ætla að beðið hefði verið úrskurðar rann- sóknarlögreglu. Ekki er því að heilsa. Þann 1. þ.m. ritar ólafur Þorsteinsson grein í Mbl. undir fyrirsögninni Lögregla í vígahug? Vekur hann athygli „á þessari hrottalegu og tilefnislausu árás“ lögregluþjóna. Hann setur sig í dómarasæti áður en rannsókn er lokið. Vonandi leiðir rannsókn hið rétta í ljós í þessu máli. Mun þá réttur dómari dæma í því en ekki sjálfskipaður dómari götunnar. Önnur ásökun ólafs er þó.enn alvarlegri, enda beinist hún að stétt lögreglu án undantekningar, þ.e. að lögreglumenn svífist ekki að bera ljúgvitni, megi það verða starfsbræðrum til framdráttar, enda kveður hann „samtryggingu sveitanna... með ólíkindum". Ómaklegt er að draga inn í um- ræðu þessa afglöp lögregluþjóna úti á landi, enda gjalda þeir nú glópsku sinnar. Einkennilegir eru þeir sem „Hentu ... óspart gaman að“ ógæfu annarra. Á þrettánda (ég ætla síðasta árs) hafði lögregla Selfoss viðbún- að mikinn, enda sýndi reynsla lið- inna ára að þess væri þörf. Óspektir urðu og ærsl. Lögregla handtók nokkra óróaseggi. Æsku- lýðsleiðtogi Selfoss ritaði þá grein í Mbl. í líkum dúr og grein Ólafs, munur sá að hann beindi orðum sínum að yfirlögregluþjóni, taldi hann eiga sök á óeirðum og hafa efnt til þeirra, óhæfuverk sem hiklaust hefðu kostað hann starf sitt ef sönn hefðu reynst. Að rann- sókn lokinni kom í ljós að þessi yfirlögregluþjónn hafði bersýni- lega forðað frá óhappaverkum, enda krakkar með heimatilbúnar sprengjur í fórum sínum. Ég bjóst við afsökunarbeiðni vegna rangra ásakana en hún kom ekki. Það er illt verk að veikja það trúnaðartraust sem ríkir og ríkja þarf milli borgara og lögreglu. Reynsla mín er sú að lögregla Reykjavíkur innir störf sín af hendi með lagni og hógværð, en áður fyrr átti ég stundum sam- skipti við hana er skólastrákar brutu eitthvað af sér — oftast af gáleysi og ungæðishætti. Ekki voru þessi brek færð til bókar, svo að þeirra vegna gætu sakaskrár þeirra verið óskrifuð blöð. Annars er grein ólafs skrifuð af fullkomnum dárskap og i henni augljósar þversagnir, eða trúir nokkur að yfirmenn lögreglu gefi um það yfirlýsingu og séu því „sammála að handtaka unga mannsins" hafi verið „með öllu til- hæfulaus“ meðan mál hans er enn í rannsókn? Hver beit f skjaldar- rendur í vígahug?"

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.