Morgunblaðið - 04.12.1983, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983
95
FRÉTTIR ÚR HEIMI
KVIKMYNDANNA
Að þessu sinni skulum viö athuga hvaöa kvikmyndir er veriö aö gera
markveröastar vestur í henni Hollywood.
Þar er nýtekiö til starfa risastórt kvikmyndaframleiöslufyrirtæki sem
nefnist Tri-Star, og ætlar sér greinilega aö gera stóra hluti. Eigendur
þess eru CBS, Home Box Office og Columbia Pictures.
Fyrsta kvikmyndin sem Tri-Star mun dreifa á markaðinn veröur
jafnframt fyrsta myndin sem Robert Redford leikur í um alllangt skeiö,
og nefnist The Natural. Síöan mun vera ætlunin aö frumsýna 10 aörar
myndir á næsta ári, en The Natural mun koma fyrir augu kvikmynda-
húsgesta í mái næstkomandi. Af öörum myndum sem komnar eru á
nokkurn reksþöl hjá þessum nýja „risa“ má nefna:
The Texas Project, gerö af Robert Benton, sem jafnframt skrifar
handritiö aö venju. Meö aöalhlutverkiö fer Sally Field, sem lék sig inní
hjörtu þjóöarinnar í tveim, ágætum sjónvarpsmyndum fyrir skömmu.
Songwriter, meö frægum, langsigldum country-tónlistargörpum,
stórvinunum Kris Kristofferson og Willie Nelson. Myndin er framleidd af
Sidney Pollack, Alan Rudolph leikstýrir.
Jimgrím mun leikstýra Philip Kaufman, sem jafnframt skrifaöi hand-
ritiö. Myndin veröur af svipuöum toga og Raiders of the Lost Ark, en
þaö var einmitt Kaufman sem átti hugmyndina aö henni.
Þá mun Alan Parker leikstýra myndinni Birdy. Burt Lancaster, og
Margot Kidder fara meö aöalhlutverkin í A Little Treasure og Charles
gamli Bronson mun aö öllum líkindum sperra sig í The Evil That Men
Do.
Nú, hin gamalgrónu kvikmyndaver eru heldur ekki af baki dottinn, og
renni ég nú lauslega yfir helstu myndirnar, sem eru í framleiöslu hjá
hverju þeirra 9. nóvember 1983.
Hjá Cannon eru þessar líklegastar til aó gera þaö gott í framtíðinni:
The Ultimate Solution of Grace Quigley, meó stórmerkilegu leikaravali
í aóalhlutverkunum: Katharine Hepburn og Nick Nolte! Anthony Harvey
leikstýrir.
Bryan Forbes mun leikstýra The Naked Face, meö Roger Moore,
Rod Steiger, Elliott Gould og Art Carney.
Tveir gamalkunnir fara meö aöalhlutverkin í The Ambassador, Rock
Hudson og Robert Mitchum. Leikstjóri J.Lee Thompson.
Hjá Columbia Pictures, sem Coca Cola keypti ekki alls fyrir löngu, er
m.a. veriö a vinna aö A Soldier’s Story, meö Howard Rollins Jr.,
(Ragtime), Denzel Washington og David Allan Grier. Myndinni leikstýrir
Norman Jewison.
Ghostbuster, nefnist nýjasta myndin, sem gerö er af „Delta klíku
genginu", leikstjóranum Ivan Reitman, handritahöfundunum Dan
Aykroyd og Harold Ramis, sem jafnframt fara með stór hlutverk, ásamt
Bill Murray, Sigourney Weaver og Annie Potts.
The Karate Kid leikstýrir John Avildsen, (Rocky, Joe), en meö aöal-
hlutverkin i þessari gamanmynd fara Ralp Maccio og Elisabet Shue —
ef þió eru nokkru nær. Columbia hefur byrjaó á 8 myndum á þessu ári,
sem er einni mynd betur en á sama tíma í fyrra.
Gamli risinn MGM/UA, hefur haft frekar hægt um sig í ár, þar hefur
veriö byrjað á 7 myndum á móti 15 í nóvember í fyrra. Veriö er aö vinna
aö m.a.:
The Pope of Greenwich Village, en bókin er eflaust mörgum bóka-
orminum kær; meö aöalhlutverkin fara Eric Roberts, Mickey Rourke,
Daryl Hannah og Burt Young. Leikstjóri er Stuart Rosenberg.
The Red Dawn, er nýjasta mynd John Milius, sem bæöi semur
handritiö og leikstýrir, en kappinn fékk ekki aö spreyta sig viö sömu
hluti í framhaldi Conans villimanns, en frummyndin var hans hugarfóst-
ur. Meö aöalhlutverkiö í þessari bandarísku Rauöu sólarupprás fara
Patric Swayze, William Smith og Lea Thompson.
Niöurlag þessarar greinar veröur um næstu helgi, en þá komumst viö
á snoöir um hvaö þeir hafa fyrir stafni um þessar mundir hjá Orion,
Paramount, 20th Centry-Fox, Universal og Warner Bros.
SV
Grískir stríösmenn koma and-fasistum til hjálpar, eöa það ímyndar
Cecelia sér, sex ára gamli sögumaöurinn í La Notte di San Lorenzo.
ar aó viö höfum mann sem í aöra
röndina hefur valiö leiklistina fyrir
atvinnu, veit hvaö leikur er, en á
sama tíma hefur yfir sér ferskleika
sem fæst viö aö vinna viö kvik-
mynd i fyrsta sinn á æfinni.“
Taviani-bræöur hafa unnið tölu-
vert á kostnaö sjónvarpsins á italíu
og allar myndir þeirra síöustu fimm
árin, þar meö talin Padre Padrone,
voru gerðar fyrir fjármagn frá ít-
alska sjónvarpinu aö hálfu leyti
a.m.k. Þeir voru spuröir aö því
hver raunveruleg tengsl væru milli
kvikmynda og sjónvarps á italiu.
„I fyrstunni litu allir á sjónvarp
sem óvin kvikmyndanna. Síöan var
háö mikil pólitísk barátta um
endurbætur á sjónvarpinu sem
tókust og geröu þaö kleift fyrir
Bertolucci til dæmis, Rocha og
okkur sjálfa aö gera kvlkmyndir.
Síðan þá hefur mikiö magn ítalskra
kvikmynda veriö framleitt í sam-
krulli viö sjónvarpiö. Þetta er rétta
leiðin. Endurreisn þýsku kvik-
myndanna sýnir þetta og þaö
sama höfum viö heyrt um fjóröu
rásina í Bretlandi."
Er þaö líka ekki betra aö vinna
Sumt fólk á sér drauma, aörir
deila þeim meö öörum. Joseph
Barbera og félagi hans, William
Hanna, hafa deilt draumum sínum
meö ungum sem öldnum um ára-
tuga skeiö. Þeir hieyptu nýju blóöi í
sjónvarpsmyndir meö teiknimynda-
seríum eins og Tomma og Jenna,
Birninum Jóga og Steinaldarmönn-
unum. Nýlega luku þeir og sam-
starfsmenn þeirra við teiknimynd í
fullri lengd eftir hinni vel þekktu
sögu Jóhönnu Spyri um Heiðu.
Myndir Hanna og Barbera eru
sýndar í 80 löndum. Þrátt fyrir vel-
gengni undanfarinna ár hefur þeim
félögum aldrei vegnaö betur en um
þessar mundir. Þeir hafa um eitt
þúsund manns í vinnu.
Joseph hóf starfsferil sinn á
skattstofunni, en Disney-myndir
heilluöu hann. Hann fékk hugmynd-
ina um köttinn og músina á ferða-
lagi og ( samstarfi sem William
Úr
teikni-
myndinni
„Söngur
Heíðu“
eftir
Hanna og
Barbera
Hanna og Barbera höf-
undar Tomma og Jenna
sömdu þeir nokkra stutta þætti um
þá vini. Vinsældir myndanna uröu
slíkar aö rúmum tuttugu árum síðar
sér ekki fyrir endann á sýningum
þeirra. Þeir stofnuðu eigiö fyrirtæki
og sendu frá sér eina mynd í viku.
Hugmyndin um Tomma og Jenna
kom á róttum tíma, segja þeir félag-
ar. En til aó staóna ekki í eilífum
eltingarleik reyndu þeir fyrir sér
meö ólíkar hugmyndir og sögur.
Sjónvarpsáhorfendur um allan heim
þekkja verk þeirra, til dæmis björn-
inn Jóga (Yogi Bear) og Steinaldar-
mennina (The Flintstones).
„Ég byrjaöi að teikna ungur,"
segir Williams. „Ég dró upp myndir
úr blööum og tímaritum og síöar
stundaöi ég nokkra listaskóla en
lauk aldrei námi.
Viö erum alltaf aö. Hvar sem viö
erum og hvaö sem viö gerum, þá
erum viö alltaf að hugsa upp nýjar
sögur. Nýjum hugmyndum lýstur
niöur í okkur svo aö segja daglega.
Þaö hefur oft komi fyrir aö fólk spyr
mig hvers vegna ég sé aó glápa út
um gluggann. Ég segist alltaf vera
aó vinna. Maöur gerir sér ekki alltaf
grein fyrir þessu, en þaö er staö-
reynd engu aö siöur. Ég fæ oft góö-
ar hugmyndir þegar ég ek bílnum
minum."
Þeir félagar hafa eytt miklum
tíma og fjármunum í almennings-
garöa, þar sem fólk á öllum aldri
getur komiö og „gleymt sér innan
um alls konar persónur úr myndum
okkar". í einum garöinum í King Is-
land eru tjarnir, hólar og hæöir og
veitingastaöir, þar sem björninn
Jógi og Steinaldarmennirnir spáss-
era um og heilsa upp á gesti og
gangandi. Tomma og Jenna bregö-
ur einnig fyrir. Þessir garöar njóta
mikilla vinsælda meöal barna.
„Digital Dreams“
fyrir sjónvarp til aö ná breiöari
áhorfendahópi, fólkinu sem
kannski fer aldrei í kvikmyndahús
en horfir á sjónvarp?
„Jú, þetta er satt. Þegar viö vor-
um aö kanna upptökustaöi fyrir
Allonsafan, komum viö í afskekkt-
an bæ á Suöur-Ítalíu þar sem viö
þurftum á fjölda bænda aö halda
fyrir hópatriöi. Þegar viö fórum aö
tala viö þá, bjuggumst viö ekki viö
að nokkur þeirra þekkti okkar fyrri
verk. En þaö var nú eitthvaö ann-
aö. San Michele aveva un galla
haföi veriö sýnd í sjónvarpinu og
allir höföu séö hana og fólkiö haföi
meira aö segja haldiö fund til aö
ræöa hana, sérstaklega unga fólk-
iö. Svo aö þegar viö komum til
þeirra voru þeir boönir og búnir til
aö aöstoöa okkur. Áöur en sjón-
varpiö varö til heföi veriö ómögu-
legt að ímynda sér aö myndir
okkar heföu veriö sýndar á eins
einangruöum staö og þessum.
Þess vegna höldum við aö hinir
jákvæöu þættir sjónvarpsins hafi
haft byltingarkennda þýöingu fyrir
kvikmyndina."
Þess má geta í lokin aö Padre
Padrone var sýnd í íslenska sjón-
varpinu ekki alls fyrir iöngu og olli
nokkrum úlfaþyt þar sem gleymd-
ist að geta þess aö hún væri bönn-
uð börnum.
þýð. - ai.
Kvikmynd eftir
Bill Wyman úr
Rolling Stones
Bill Wyman í „Digital Dreams"
Hugmynd, er byrjaói sem einka-
mynd bassaleikarans og tónsmiös-
ins Bill Wymans úr hljómsveitinni
Rolling Stones, óx og varö að sjón-
varpsþætti, sem nú er orðinn að
leikinni kvikmynd í fullri lengd, sem
þegar hefur verið sýnd í Los Angeles
nógu lengi til aö vera tekin til greina
af Óskarsverölaunanefndinni þar í
landi. Myndin, „Digital Dremas“, hef-
ur nú veriö boöin öllum stóru
dreifingarfyrirtækjunum f kvik-
myndaiónaöinum sem hafa uppá
klassíska sjónvarpsþjónustu og
einkamyndbandadeildir aö bjóöa.
„Við fórum ótroönar slóöir þegar
viö kynntum myndina fyrir dreif-
ingaraðilunum," sagði Eric Gardner,
framkvæmdastjóri Wymans og
framleiöandi myndarinnar. Myndin
er aöeins 72 mínútna löng, en timinn
er lengdur meö stuttri mynd á undan
eins og raunin varö á í Laemmle’s
Monica-kvikmyndahúsinu í Los Ang-
eles þar sem myndin var sýnd. í staö
þess aö fara á milli allra óháöu
kvikmyndafyrirtækjanna í Hollywood
meö eintak af myndinni, leigði
Gardner Monica-kvikmyndahúsiö í
viku. „Viö auglýstum mikiö í sjón-
varpi, útvarpi og blöðum," sagöi
Gardner. „Þannig létum viö LA vita
um myndina. Við höföum sérstakar
sýningar fyrir kvikmyndaiönaöinn í
borginni og viö fluttum inn fólk frá
New York líka. Viö vildum sjá hvaöa
fyrirtæki kæmu og hver ekki. Og viö
sýndum engum einum sérstaklega."
Og Gardner heldur áfram: „Þetta var
einstök aöferö, en þetta er min
fyrsta kvikmynd." Nú bíöur hann
bara eftir tilboöunum.
Upprunalegu hugmyndinni skaut
upp í kollinum á Bill Wyman þegar
hann tók upp á því aó ráöa sér
kvikmyndalið til aö halda sér selskap
þegar hann fór í frí til Austurlanda
fjær og Ástralíu. Haföi hann í huga
að einkakvikmynd myndi eiga eftir
aó verða ágætis hluti af opinberri
sögu Rolling Stones og hans sjálfs.
Seinna komu sameiginlegir vinir
honum í samband viö leikstjóra
myndarinnar, Robert Dornhelm, sem
átti aö baki nokkrar heimildarkvik-
myndir. Eftir miklar bollaleggingar
varö hugmyndin um einkakvikmynd-
ina aó hugmynd aö sjónvarpsþætti.
Sum atriði voru sett á sviö, önnur
skrifuð niöur og loks kom aö því aö
hugmyndin skyldi færö í kvikmynda-
búning. „Viö vorum hvattir til aö
gera kvikmynd úr þessu," sagöi
Gardner. Hann bætti því viö aö þeir
geröu sér grein fyrir því að myndin
ætti eflaust ekki stóran áhorfenda-
hóp.
Leikarinn James Coburn er aöal-
maöurinn í myndinni. „Þegar viö fór-
um að íhuga aö gera fantasíu,“ held-
ur Gardner áfram, „datt Bill
spagettívestrarnir í hug. Hann gat
séö sjálfan sig i hlutverki byssubófa.
Viö hugsuöum mikiö um menn sem
gætu passaö í myndina og upp í
hugann kom James Coburn. Viö
höföum samband við hann og hann
var yfir sig hrifinn og sló til og geröi
hlutverkiö mun stærra en þaö átti aö
veröa í upphafi."
Kvikmyndin, sem Wyman kostar
persónulega, átti ekki aö fara yfir
75.000 doliara markið, en nú er sýnt
aö hún veröur allnokkuö dýrari,
muni kosta á endanum eina milljón
dollara. Gardner leggur áherslu á aö
hún sé ekki um Rolling Stones. Þaö
er aöeins níu mínútna efni í henni frá
Stones og mest af því var tekiö fyrir
20 árum.
Wyman er opinn fyrir fleiri hug-
myndum um kvikmyndir, en um
þessar mundir er hann aö skrifa
sjálfsævisögu sína, sem koma á út á
næsta ári.
Þegar Gardner var spuröur nánar
út i efni myndarinnar „Digital
Dreams“ sagöi hann: „Myndin inni-
heldur fantasíur, teiknimyndir og
heimildarmyndir. Hún var tekin i
rómantískum stíl.“ Ekki orö meira
um þaö.
— ai.