Morgunblaðið - 04.01.1984, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.01.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984 Á f t t I £ Langar raðir voru við lyftur í Bláfjöllum í gær er Morgunblaðsmenn flugu yfir svæðið. Margmenni var á skíðum í gærdag. Morgunblaðið/Kristján Einarsson Nægur snjór í Bláfjöllum SKÍÐASVÆÐIÐ í Hláfjöllum hefur nú verið opnað. I>ar er nú nægur snjór og var margt um manninn á svæðinu í gær. Lyfturnar verða opnar sem hér segir: Á mánudögum, föstudögum, laugardögum og sunnudögum frá kl. 10.00 til 18.00, og á þriðjudög- um, miðvikudögum og fimmtudög- um frá kl. 10.00 til 22.00. Göngu- braut verður lögð á svæðinu alla daga. Verð aðgöngumiða í vetur verð- ur sem hér segir: 8 miða kort fyrir fullorðna (tveir miðar í stólalyft- una) kosta 70 kr. og 8 miða kort fyrir börn (einnig tveir miðar í stólalyftuna) kosta 35 kr. Dagkort fyrir fullorðna kosta 175 kr. en 85 kr. fyrir börn. Kvöldkort fyrir fullorðna kosta 130 kr. en 65 fyrir börn. Árskort fyrir fullorðna kosta 2.600 kr. en 1.300 fyrir börn. Barnagjöld gilda fyrir 15 ára og yngri. Þegar nýja stólalyftan, sem nú er fullbúin og verður vígð á næst- unni, hefur verið tekin í notkun verða afköst í lyftum Bláfjalla- nefndar orðin 3.600 ferðir á klst. og skíðafélögin reka lyftur er flyta 2.800 manns á klst. í Bláfjöllum er því orðinn lyftukostur sem flutt getur 6.400 manns á klst. Til við- bótar eru svo nokkrar barnalyftur sem nota má án endurgjalds. Hjálparsveit skáta mun annast öryggisgæslu á Bláfjallasvæðinu um helgar í vetur. f Bláfjallaskála verða seldar veitingar á tímum sem lyftur eru opnar og í skálan- um verða leigð út skíði, skór og stafir. Daglegar áætlunarferðir verða í Bláfjöll frá Reykjavík, Seltjarn- arnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Upplýsingasími fyrir Bláfjöll er 80111. ((Jr rrétUlilkjnningu frá Bláfjnllnnefnd.) Ólafur Jónsson gagnrýnandi látinn Látinn er í Reykjavík Ólafur Jónsson bókmennta- og leiklistar- gagnrýnandi og ritstjóri tímaritsins Skírnis. Olafur var fæddur hinn 15. júlí 1936 í Reykjavík, sonur hjón- anna Ásgerðar Guömundsdóttur kennara og Jóns Guömundssonar skrifstofustjóra. ólafur varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1956 og fil. cand. frá Stokkhólmsháskóla 1962. Hann var blaðamaður við Tímann 1956 til 1960, bókmennta- og leiklistargagnrýnandi við Al- þýðublaðið 1963 til 1969, Vísi 1969 til 1975, Dagblaðið 1975 til 1981 og við Dagblaðið Vísi frá 1981. Ólafur var ritstjóri Skírnis, tímarits Hins íslenska bókmenntafélags, frá 1968, og hann var stundakennari við HÍ frá 1974. Eftir ólaf liggja bækurnar Karlar eins og ég, ævisaga Brynj- ólfs Jóhannessonar, Líka líf, greinar um samtíðarbókmenntir, og Bækur og lesendur, bók um lestrarvenjur. Þá var hann rit- stjóri Dagskrár, tímarits um menningarmál, árin 1957 til 1958 Ólafur Jónsson og Félagsbréfs Almenna bókafé- lagsins 1963 til 1964. ólafur Jónsson var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Vilborg Sig- urðardóttir. Þau skildu. Eftirlif- andi kona hans er Sigrún Stein- grímsdóttir. Ólafur lætur eftir sig þrjú börn. 3 Deilt um skelfiskveiðar og vinnslu við Breiðafjörð NOKKUR óánægja er nú komin upp með fyrirkomu- lag skelfiskveiöa á Breiðafirði. Hingað til hefur skelin aðeins verið unnin á þremur stöðum við fjörðinn, aö mestu leyti í Stykkishólmi. Önnur sveitarfélög hafa nú látið í Ijósi óskir sínar um ýmist aukinn hlut í veiðinni eða að fá að hefja veiðar og vinnslu. Hafa alls 45 bátar óskað eftir leyfi til skelfiskveiða, en nú fyrir áramótin stunduðu 20 bátar veiðarnar. Samkvæmt upplýsingum sjávarútvegsráðuneytisins hefur veiðunum að undanförnu verið háttað þannig, að leyfilegt aflamagn hefur verið 11.000 lestir af hörpudiski upp úr sjó og hafa um 20 bátar haft leyfi til veiðanna. Þrjár vinnslustöðvar eru í Stykkishólmi, ein í Grundarfirði og ein á Brjánslæk. Þá er leyfi til að vinna skel í Flatey, en það hefur enn ekki verið nýtt. Ráðuneytið hefur nú fyrirkomulag veiða og vinnslu í athugun og var í því skyni auglýst eftir umsóknum um veiðar í desember. Alls bárust 45 umsóknir. Ákveðið hefur verið að gefa út bráöabirgðaleyfi til veiða út janúarmánuð og mega veiðarnar hefjast í dag, mið- vikudag. Aðeins þeir bátar, sem veiðar stunduðu á haustvertíðinni, mega stunda veiöarnar í janúar, en búizt er við að ákvörðun um framhaldið vcrði tekin um næstu mánaðamót. Hér fara á eftir viðtöl við fulltrúa sveitarfélaganna í Stykkishólmi, Eyrarsveit (Grundarfirði) og Ólafsvík. Kristján Pálsson, Olafsvík: Teljum ekki neinn geta helg- ad sér ákveðinn veiöiskap fyrir fullt og allt „VIÐ teljum okkur nú hafa rétt á hlutdeild í veiðum og vinnslu á skelfiskinum vegna þess að við erum náttúrlega við Breiðafjörð. Við teljum ekki að neinn geti helgað sér einhvern ákveðinn veiðiskap fyrir fullt og allt og um alla framtíð. Okkur finnst það álíka, að Vestfirðingar, sem byrjuðu á að veiða þorsk við Vestfirði, ættu að eiga þau mið fyrir sig eða að einhver bóndi hefði virkjað einhvern mikilvæg- an foss og því mætti enginn koma nálægt honum nema hann,“ sagði Kristján Pálsson, atvinnunefndarmaður og útgerð- armaður í Ólafsvík. „Þar að auki hafa Ólafsvíkurbátar stundað veiðar á skel frá upphafi og þangað til 1981, en þá var komið í veg fyrir að þeir fengju að veiða lengur af skelvinnslunni i Stykkishólmi. Við höfum því frá upphafi vega verið þátttakendur í þessari veiði. Við höfum reynd- ar ekki verið þátttakendur í vinnslunni nema rétt í upphafi en höfum verið að reyna að kom- ast inn í hana að undanförnu. Á síðasta ári óskuðum við eftir vinnsluleyfi, en þá taldi ráð- herra sig ekki geta afgreitt það mál á þeirri forsendu að búið væri að veita slík leyfi annars staðar. Við vitum að leyfi til skelfiskvinnslu hafa verið veitt víðast hvar við Breiðafjörðinn, meðal annars í Flatey, og okkur finnst nú eðlilegt, að svona sér miðum eins skelmiðunum eigi að skipa þannig, að allir geti notið góðs af og bætt upp lægðir, sem koma í aðra veiði og aukið fjöl- breytni í atvinnulífinu. Því höfum við farið fram á það við sjávarútvegsráðherra að fá 25% af heildaraflanum og því verði skipt á milli fimm báta héðan. Þeir bátar, sem leyfin fái, eigi síðan að skila minnst þrem- ur dögum til rannsókna á Breiðafirði hver fyrir sig endur- gjaldslaust með fullri áhöfn, en ríkið greiði fiskifræðingi, sem stjórni leiðöngrum, laun. Á þennan hátt bjóðumst við til þess, að útvega 15 daga á ári til rannsókna og þá ekki endilega fyrir skelfiskrannsóknir, heldur til þeirra rannsókna, sem Haf- rannsóknastofnun óskar. Þetta var nú tilboð okkar til þess að sýna fram á, að við værum til- búnir til að koma eitthvað á móti því, sem við fengjum. Við höfum ekkert svar fengið enn við þessu. Þá finnst okkur mikil rýrnun í þorskveiðum að undanförnu og framundan styrkja þessa ósk okkar. Það er ljóst, að á öllum útgerðarstöðum þar sem mikil þorskveiði er eins og er hér í Ólafsvík, þá erum við að tapa nálægt 40% af meðal þorskveiði síðustu þriggja ára og það þýðir um 40% rýrnun á tekjumögu- leikum hér í plássinu. Við sjáum ekki neina ástæðu til þess, að nánast eitt byggðarlag sitji að 11.000 lesta skelveiði meðan aðr- ir þurfa að gefa eftir 40% af sínu vegna sameiginlegra nota allra landsmanna. Ein forsendan fyrir því, að við höfum ekki fengið leyfi fyrir báta okkar, hefur ver- ið sú, að við erum ekki með vinnslu, en ráðuneytið hefur neitað okkur um vinnsluleyfi vegna þess hve mörg þau eru við Breiðafjörð. Þess vegna er málið nánast í sjálfheldu, við fáum ekki að veiða vegna þess við höf- um ekki vinnsluleyfi og við fáum ekki vinnsluleyfi. Við höfum sótt um vinnsluleyfi fyrir Hrað- frystihús Ólafsvíkur, en því hef- ur ekki verið svarað. Við teljum okkur hafa lagt fram fullnægj- andi rök, en engin svör fengið," sagði Kristján Pálsson. Sturla Böðvarsson, Stykkishólmi: Skelin er okkar „skuttogari“ „HJÁ okkur snýst málið náttúr- lega um það vandamál, sem við höfum við að glíma hér og hefur verið, það er nokkuð atvinnu- leysi hjá þeim, sem stunda fisk- vinnslu og sjómennsku. Við höf- um bent á þá sérstöðu okkar, að við 1 Stykkishólmi höfum bæði byggt upp og þróað vinnslu og veiðar á skelfiski, þó síðan 1979 hafi lítilsháttar verið unnið af skel í Grundarfirði. Hér er eng- inn skuttogari og því höfum við litið svo á, að skelin væri okkar „skuttogari", sagði Sturla Böðv- arsson, sveitarstjóri í Stykkis- hólmi. „Okkar vandamál er það, að hráefnisöflun hingað hefur verið afar takmörkuð, sem sést meðal annars á því hve lítill bolfiskur hefur verið lagður á land hér. Við sjáum fyrir okkur, að ef leysa á vandamál togaraútgerð- ar á utanverðu Nesinu með því að flytja hluta af skelveiðinni þangað, leiði það ekki til neins annars en atvinnuleysis hér án þess, að það bæti svo verulega stöðu þeirra á útnesinu. Það er nauðsynlegt að vekja athygli á því, að skelveiðarnar hafa ekki verið neinn dans á rósum. Sveifl- ur í verði og sveiflur á markaðn- um hafa verið geysilega miklar og valdið okkur vandræðum. Við leggjum mikla áherzlu á, að þetta leiði ekki til neins ófriðar á milli staðanna. Þetta er sameig- inlegt vandamál okkar hér hvernig útgerðinni er komið og við verðum að reyna að leysa þetta hér á svæðinu og viljum því ekki vekja upp neinar deilur. Ég vil undirstrika það, að til- flutningur á skelveiðinni leysi ekki vanda útgerðar á útnesinu, sem ég dreg ekki í efa að er veru- legur og atvinnuleysi yfirvofandi er togararnir stöðvast," sagði Sturla Böðvarsson. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði: Hagsmunamál alls sveitar- félagsins að fá aukna veiði „VIÐ viljum náttúrlega fá skel- fiskveiðileyfi og vinnslu. Það er ein vinnsla hér á staðnum og með því að nýta þessa möguleika á vissum tímum fylla þeir vel upp í atvinnuástandið hér, en þetta hefur ekki alfarið verið heils árs veiðiskapur. En hér hafa verið uppi hugmyndir um það að veita til dæmis einstökum bátum leyfi til veiða á 60 til 70 lestum á mánuði og þeir gætu þá hagrætt öðrum veiðiskap með. Þetta er hagsmunamál alls sveitarfélagsins, ég tala nú ekki um ef fara á að minnka heildar- þorskveiðina, þarf að fá eitthvað í staðinn," sagði Guðni Hall- grímsson, Grundarfirði og hreppsnefndarmaður í Eyrar- sveit. „Skelfiskurinn hefur gefið vel af sér undanfarin ár og því verið litinn hýru auga. Við vonumst til þess, að fá að vera þátttakendur í nýtingu þessara veiðimöguleika því þetta er veitt hér fyrir fram- an nefið á okkur og okkur finnst súrt í broti að fá ekki að veiða þetta að sama skapi og aðrir. Aflamarkið hefur verið aukið ár frá ári og aukningin hefur eig- inlega öll komið í Stykkishólm. Fyrir þremur til fjórum árum, þegar Soffanias Cecilsson var að berjast fyrir því að fá að veiða skelfisk, var sagt að hann væri að verða búinn, en það er eins og alltaf finnist fleiri mið og skel- fiskveiðin aukist. Þetta virðist koma þannig út, því alltaf hafa þeir verið að auka þetta. Við eru fyllilega í stakk búnir til að taka við aukinni veiði, það er hér nægilegt húsnæði og fyrirtæki til þess að vinna skel- ina. Á því eru engin vandkvæði og ekki er lengra fyrir okkur að sækja á miðin en Hólmara og meðal annars þess vegna teljum við þetta ekki síður okkar en þeirra. Ég tel að réttur okkar sé ótvíræður, að við fáum að nýta það, sem fiskast hér í Breiðafirð- inum, það á náttúrlega að vera hlutfallslegur réttur okkar, sem hér búum. Það getur skipt sköp- um fyrir okkur hvort við fáum þetta eða ekki. Það geta auðvitað komið sveiflur í skelfiskveiðina eins og aðra veiði, en þetta myndi engu að síður bæta upp haustmánuðina og fyrstu mán- uði ársins, sem alltaf hafa verið rýrastir hjá okkur, þannig að þeir gætu jafnvel orðið góðir líka,“ sagði Guðni Hallgrímsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.