Morgunblaðið - 04.01.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.01.1984, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984 Þrír Danir fór- ust í þyrluslysi Kaupmannahöfn 3. janúar, frá Ib Björnbak, fréttaritara Mbl. ÞRÍR Danir, tveir flugmenn og einn verkfræðingur, eru taldir af eftir fyrsta þyrluslysið í tengslum við olíuvinnslu Dana í Norðursjó. Þyrlan, sem er af gerðinni Bell 212, fór frá Esbjerg á sjötta tím- anum í gærkvöldi og stefndi á olíuborpall undan ströndinni en þangað er þriggja stundarfjórð- unga flug. Fyrstu 15 mínúturnar var eðlilegt talstöðvarsamband við þyrluna en nokkru síðar heyrð- ist veikt neyðarkall. Víðtæk leit var þegar hafin og um nóttina tóku þátt í henni 9 skip, 2 þyrlur og ein flugvél. Allir um borð í þyrlunni höfðu á sér neyðarsendi, en aðeins hefur heyrst neyðarhljóð frá einum stað, og sýnt þykir að mennirnir þrír hafi allir farið í sjóinn með þyrl- unni. Mikið óveður var á þessum slóð- um og víðar í Danmörku þegar slysið varð. Neyðarástand í kjöl- far óeirða í Túnis Tunisborg, Tunis, 3. januar. AF. LÝST VAR yfir neyðarástandi í Túnis í dag og er útgöngubann í gildi frá sólarlagi til dögunar eftir að miklar óeirðir brutust út í landinu í kjölfar tvöföldunar á brauðverði. Öeirðirnar hófust í suðurhluta landsins en breiddust í dag út til tveggja stærstu borganna í landinu, Túnis og Sfax. Eftir sumum heimildum er haft, að allt að 25 manns hafi látið lífið. Þegar íbúar höfuðborgarinnar, Túnis, risu úr rekkju í morgun ríkti hálfgert uppreisnarástand í borg- inni. Háskólinn var umkringdur fjölmennu lögregluliði og á helstu götum borgarinnar var engin um- ferð að undanskildum mótmæla- göngum, sem Iögreglu- og hermenn lögðu til atlögu við með kylfum og táragassprengjum. Fyrstu mót- mælin voru á fimmtudag í fyrri viku eftir að stjórnin tilkynnti, að brauðverð yrði hækkað um 115% og að hætt yrði að niðurgreiða hveiti og ýmsar aðra nauðsynjar. Talsmaður frönsku ræðismanns- skrifstofunnar í Sfax, annarri stærstu borg Túnis, sagði í viðtali við útvarpið í Monte Carlo, að ástandið í borginni færi hríðversn- andi. „Fólkið er tekið til við að grýta bíla og verslanir og það er mikil æsingur í mönnum. Menn virðast tilbúnir til að berjast og sumir eru líka vopnaðir," sagði hann. Talið er, að óeirðirnar hafi komið stjórn Habib Bourguiba á óvart en hækkanirnar eru liður í að koma ríkisfjármálunum á réttan kjöl. Síðustu tvo áratugina hefur brauð- verð aðeins verið hækkað einu sinni en laun og annað verðlag hafa þrefaldast síðasta áratuginn. Zhao Ziyang í Ameríkuför Zhao Ziyang forsætisráðherra Kína, á fundi með bandarískum og kanadískum fréttamönnum vegna heimsóknar sinnar til Norður-Ameríku. Kínverski utanríkis- ráðherrann Wu Xueguan er til vinstri á myndinni. AP/símam Tyrkir kalla her- menn frá Kýpur Sjö farast í óveðri á Bretlandseyjum London, 3. janúar. AP. SJÖ manns að minnsta kosti, þar á meðal fjögurra manna fjölskylda, hafa týnt I1T1 í miklu óveðri sem geysað hefur á Bretlandseyjum. Samkvæmt upplýsingum brezku veð- urstofunnar mældist vindhraðinn 186 km á klukkustund þegar verst var. Saknað er fjögurra sjómanna, þar af tveggja bræðra, frá bænum Sligo á vesturströnd írlands. Óttast er að þeir séu ekki lengur í lifenda tölu eftir að bát þeirra hvolfdi á vatninu Gill. Fjögurra manna fjölskylda í Arklow á austurströnd írlands fórst er tré, sem rifnað hafði upp með rótum, skall á bifreið hennar. Tveimur konum var bjargað stór- slösuðum úr bifreiðinni og liggja þær þungt haldnar á sjúkrahúsi. Þrír menn til viðbótar fórust af völdum veðursins í Skotlandi og Norður-Englandi. Veðrið raskaði samgöngum stórlega og tepptust helztu þjóðvegir í norðurhéruðum Bretlandseyja af snjó, þök rifnuðu af húsum, rafmagnslínur slitnuðu, bátar slitnuðu upp frá bólfærum og fresta varð ferjuferðum á ír- landshafi og Ermasundi. Um 20 Gjaldþrota- met í Englandi London, 3. janúar. AP. ALDREI hafa jafnmörg ensk fyrir- tæki verið lýst gjaldþrota á einu ári og í fyrra, en þá voru 12.466 fyrirtæki lýst gjaldþrota. Gjaldþrotaskiptum fjölgaði 1983 um 12% frá 1982, og miðaö við 1981 er fjölgunin 51%. Um 70% fyrirtækjanna sem lýst voru gjaldþrota 1983 voru smásölu- verzlanir, bílasölur, byggingafyrir- tæki, fyrirtæki í vefnaðariðnaði og hönnunarfyrirtæki. Sambærilegar tölur fyrir Skotland liggja ekki fyrir. þúsund manns voru án ljóss og hita. Björgunarþyrlur brezka flug- hersins björguðu 11 sjómönnum og einni konu af norska gasflutn- ingaskipinu Eva Tholstrup við strendur Wales við erfiðar að- stæður. Þyrlurnar urðu að at- hafna sig í vindhraða sem mældist 120 km á klst. Einnig björguðu þær slösuðum manni af ferju í Ermarsundi. Ankara, 3. janúar. AP. Tyrkir munu draga 1500 hermenn frá tyrkneska hluta Kýpur til að styðja tilögur valdhafa í tyrkneska hlutanum um friðsamlega lausn Kýpurdeilunnar, samkvæmt upplýs- ingum utanríkisráðuneytisins í Ank- ara. Brottflutningur hersins fer fram í janúar og febrúar. Samtals eru 25 þúsund tyrkneskir hermenn á Kýpur, þar sem þeir hafa verið frá innrás Tyrkja 1974, sem leiddi til klofnings eyjarskeggja. Rauf Denktash leiðtogi Kýpur- Tyrkja bauðst til þess á mánudag að útborgin Varosha í Famagusta yrði sett undir stjórn Sameinuðu þjóðanna til að grískir Kýpurbúar gætu snúið aftur til heimila sinna og fyrirtækja þar. Jafnframt bauðst Denktash til að opna flugvöllinn í Nikósíu, sem verið hefur lokaður frá innrásinni 1974 og setja hann undir yfirráð íkveikjusprengjur sprungu í borg- unum Dungannon og Armagh City á Norður-írlandi í morgun og hlaust af Sþ. Hvatti Denktash Kýpur- Grikki að samningaborðinu til að freista þess að ná samkomulagi um friðsamlega sambúð, þar sem forsjónin ætlaði þjóðarbrotunum tveimur að búa hlið við hlið á eynni. þeim talsvert tjón. Lögreglan skellti skuldinni á hinn ólöglega írska lýðveldisher, IRA. Herinn lýsti hróðugur ábyrgð á morði á sjálfboðaliða í yarnar- sveitum brezka hersins í N-lrlandi, UDR. Sjálfboðaliðinn, sem var 25 ára rafvirki, var veginn úr launsátri á mánudagskvöld skammt frá heimabæ sínum Castlederg nærri írsku landamærunum. í árásar- hópnum voru margir menn, að sögn lögreglunnar, og komust þeir und- an suður yfir landamærin. Skutu þeir á sjálfboðaliðann með hríð- skotarifflum. Sjálfboðaliðinn er sá fyrsti sem fellur í valinn á þessu ári í ofbeldis- átökum mótmælenda og kaþólskra, sem staðið hafa í hálft fimmtánda ár. Genscher beinbrotnar Nonnweiler, 3. janúar. AP. Hans-Dietrich Genscher, utanríkis- ráðherra Vestur-Þýzkalands, bringu- beinsbrotnaði er bifreið hans var ekið út af hraðbraut með þeim afleiðingum að hún fór þrjár veltur áður en hún staðnæmdist á hvolfi. Atvikið átti sér stað skammt frá bænum Nonnweiler í Saarland er Genscher var á leið frá Saarbruck- en til Bonnar. Bifreiðinni var ekið á miklum hraða er hún rann til á hálkublettum. Ásamt Genscher voru í bifreið- inni einkabílstjóri hans og lífvörð- ur. Hlutu þeir aðeins smáskrámur. Genscher nýtur umönnunar lækna á heimili sínu og er óvíst að hann þurfi að leggjast inn á sjúkrahús. Fyrrverandi hermenn úr Víetnamstríðinu: Útilegumenn í Washingtonfylki Fork.s, Washington 3. janúar. AP. í AUÐNUM Washingtonfylkis í Bandaríkjunum eru í felum nokkr- ir fyrrverandi hermenn úr Víet- namstríðinu, sem forðast allt sam- neyti við annað fólk og afla sér lífsviðurværis með þeirri tækni sem þeir lærðu í frumskógum Víet- nams. Þessar upplýsingar koma frá bandarískum hermálayfirvöld- um sem segja að hermennirnir fyrrverandi hafi ekki treyst sér til að hefja á ný eðlilegt líf eftir það taugaálag sem stríðið reynd- ist verá og vegna þeirrar stríðs- andúðar sem þeir mættu þegar þeir sneru heim. Þeir hafi þess í stað kosið að gerast útilegumenn í óbyggðum. „Þarna í skógunum er yndælt og geðþekkt fólk sem vill bara fá að vera í friði og segist ekki vilja búa í heimi þar sem hrækt er framan í það,“ segir Bruce Webster sálfræðingur sem kann- að hefur þetta mál. Vitað er um 85 fyrrverandi hermenn sem snúið hafa á ný til byggða eftir að hermálayfirvöld hófust handa um að gera eitt- hvað í málum þeirra. Ekki er vit- að hve margir dvelja þar enn. Yfirvöld hafa veitt eitt hundr- að þúsund dölum í verkefni sem miðar að því að hjálpa útilegu- mönnunum í Washingtonfylki og öðrum þeim sem á aðstoð þurfa að halda til að komast í sátt við þjóðfélagið á ný eftir Víet- namstríðið. Marvin, 33 ára gamall fyrrver- andi sjóliði, sem ekki vildi að ættarnafns síns yrði getið, sagði í viðtali við AP að hann hefði lifað í hellum og holum trjábol- um af og til í áratug, veitt sér til matar og klæðst fötum úr hjart- arskinni. Hann sagðist hafa þjáðst af ofsóknaræði og fengið martrað- ir, og farið á fund sálfræðingsins Webster sem taldi sig finna hjá honum merki um ákveðna teg- und hugsýki sem brýst út nokkru eftir að það álag er horfið sem er orsök hennar. Marvin sagðist hafa verið fjögur ár í sérsveitum Banda- ríkjahers í Víetnam, en komið heim þegar hann særðist árið 1971. Þá þegar hefði hann kosið að hverfa úr mannhafinu og dvaldist í skógum Colorado, Wy- oming og Montana og loks í Washingtonfylki. Hann kvaðst hafa forðast öll tengsl við annað fólk, „því ég þoldi ekki að láta snerta mig“, sagði hann. IRA byrjar árið með sprengingum og vígum Belfast, 3. janúar. AP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.