Tíminn - 24.08.1965, Blaðsíða 7

Tíminn - 24.08.1965, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUIt 24. ágúst 1965 FrestaféBag Hólastiftis: Aðaimáié @r e^óuriieimt biskupsstóisins að Héium Aðalfundur Prestafélags Hóla- stiftis var haldinn að Hólum í Hjaltadal 14. ágúst síðastliðinn. Formaður fólaigsins, sira Sigurður Stefánsson, vígslubiskup, setti fundinn með stuttri helgistund. Kvaddi hann síðan tii fundarstjóra dómprófastinn á Hólum, síra Björn Bjömsson, og funda'rritara síra Jón Bjarman í Laufási og síra Ágúst Sigurðsson á Möðruvöllum. Formaður flutti síðan ávarp og yf- irlit um embættaskipan o. fl. í stift inu undanfarin misseri, en endur skoðandi félagsins, síra Pétur Ingjaldsson á Skagaströnd, las og skýrði reikningana í fjarveru gjaldkerans, síra Þorsiteins B. Gísl'asonar prófas'bs í Steinnesi. Þá var gengið til dagskrár og tekið fyrir aðalmál fundarins: Starfshættir kirkjunnar fyrr, og nú. Framsögu höfðu síra Þórarinn Þórarinsson á Staðarfelli í Kinn og síra Bjöm H. Jónsson á Húsa- vík. Fiuttu þeir snjöll og ítarleg erindi. Umræður urðu allmikiar og tóku þar til máls, auk frummæl endanna, síra Pétur Ingjaldsson, síra Jón Bjarman og síra Þórir Stephensen á Sauðárkróki. Engin ályktun var gerð um málið í heild, en samþykkt var að koma á kirkjulegu námskeiði heima á Hólum. Ennfremur lagði fundur- inn til, að messað yrði í Hóladóm- kirkju hvern helgan dag í j.úlí og ágúst hvert ár, þegar gestakomur á staðinn eru hvað mestar. Bein- ir fundurinn þeirri ósk til presta stiftisins, að þeir leggi málinu lið með því að koma til skiptis heim að Hólum með kóra sína og organista og annast guðsþjónust- ur þá sunnudaga, er dómkirkju- pPDSturinn syngur ekki sjálfur messu þar heima. Þá lét fundurinn í Ijósi ánægju sína yfir því, að prestsvígsla fór- fram á Hólum nú í sumar og lagði áherzlu á „að prestsvígslur í Hóla dómikirkju væri mikiilvægur þátt- ur í baráttu Norðlendinga fyrir endurreisn bis'kupsstóls á Hólum“. En aðal stefnuskrármál Prestafé- lags Hólastiftis er endurheimt bi'skupsstólsins. Fundinum var slitið í kirkjunni og annaðist síra Bjartmar Krist- jánsso-n á Mælifelli helgistund og síra Oddur Thorarensen á Hofs- ósi lék á orgel. En um kvöldið sátu fundarmenn í boði prófasts- hjónanna, frú Emmu Hansen og síra Björns Björnssonar á heimili þeirra á Hólum. Daginn eftir Dómprófastshjónin á Hólum, frú Emma Hansen og síra Björn Björnsson. tóku prestarnir þátt í hátíðahpld- um Hólanefndar, hinni ‘árlegu Hólahátíð. Stjóm Prestafélags Hólastiftis, sem er elztu samtök presta á land Auglýsið i TÍMANUM inu, stofnað 1898, skipa: síra Sig- urður Stefánsson vígslubiskup, formaður, síra Bjöm Bjömsson dómprófastur á Hólum, síra Páli Þorleifsson prófastur á Skinnastað, síra Sigurður Guðmundsson pró- fastur á Grenjaðarstað og síra Þorsteinn B. Gíslason prófastur í Steinnesi. Iðnaðarbankahúsinu IV hæð Vilhjálmu? Arnason Tómas Arnasor og TIL SÖLU Danskt útskorið sófaborð og bókaskápur, einnig sófasett. Ódýrt. Upplýsingar í sima 20 1 38. TRAKTOR Er kaupandi að notuðum traktor með ámoksturs- tækjum. Nánari upplýsingar í síma 19, Vogum. íON trYSlfclNSSON iáotr=3B8ingur ögfræðiskrltstot? taugav&gi 11 «'mi 71516 ^iiRlýsið í íímanum Jörð til leigu Jörð á Suðurlandi, hentug fyrir kúabú; til leigu nú þegar eða í vor. Hey fáanlegt á staðnum, ef óskað er. « Tilboð sendist blaðinu fyrir 15. sept., merkt „Jörð á Suðurlandi“- TRULOFUNAR hringir LaMTMANNSSTIG 2 r HALLllOB KKISTINSSON eullsmiðnT — Sími I697V FERÐIR í VIKU BE8INSA LEIÐ IIL LONDON WFLUCFEJLAC EIGENDUR MASSEY - FERGUSON TRAKTOR - SKURÐGRAFA Vér höfum fengið tæknikennara frá Massey-Ferguson véla- skólanum til kennslu á viku-viðgerðanámskeiði, sem hefst í Reykjavík mánudaginn 13. september. Þeir eigendur MF-skurðgrafa eða iðnaðarmoksturstækja, sem óska aðildar að námskeiðinu, eru beðnir að hafa samband við oss sem fyrst. DRÁTTARVÉLAR H.F. KRR EVRÓPUBIKARKEPPNIN KSÍ STÓRL EKURINN ILE ROSENBORG Á LAUGARDALSVELLINUM Ellert Schram, fyrirliði KP KVÖLD KL.KKAN 19.30

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.