Alþýðublaðið - 21.09.1920, Síða 1
Grefið út ai iUþýðuflokkuum.
1920
Þriðjudagírra 21. september.
216. töiub!.
Verðlagsnefnðiq
ag eigendur Morgunbiaðsins.
Það er fyrir löngu opinbcrt
leyndarmál að Morgunblaðið er
haldið út af auðmannaklíku einni
til þess að berjast fyrir hagsmun-
um þessara auðmanna, og þájafn-
framt á móti hagsmunum alþýð-
unnar, því að allir vita, að slíkt
hlýtur að fylgjast að.
Það er alþekt fyrirbrigði erlend-
is að auðmenn gefi út blöð til
þess að halda fram stéttarhags-
munura sínum, en fágætt mun það,
jafnvel þar sem auðvaldsspillingin
er á hæsta stigi, að auðvaldsblöð-
in gerist svo frek, að þau leyfi
sér að halda fram hagsmunum
?instakra manna — eigenda blað-
anna — gegn hagsmunum al-
mennings.
En þetta á sér stað í Morgun-
ölaðinu!
í fyrradag birtir það ritstjórnar-
grein á fyrstu síðu um verðlags-
nefndarskipunina og þykist blaðið
þar vera mikið með því, að verðlags-
nefnd sje skipuð, en mestur hluti
greinarinnar gengur út á það, að
reyna að sanna, að hún eigi að
eins að ná til Reykjavíkur og
kallar blaðið það fásinnu að vilja
láta nefndina ná til alls landsins.
En hver er meining blaðsins
með þessu r Alþýðublaðið getur
frætt lesendur sína á því.
Svo er mál með vexti að einn
af eigendum Morgunblaðsins í
Hafnarfiði hefir fyrirliggjandi 5000
fimm þúsund — tunnur af rúg-
mjöli, sem hann hefir keypt til
þess að græða á verðhækkun
þeirri á rúgmjöli, sem væntanleg
hefir verið í alt sumar, og skal
þetta nú skýrt nokkuð nánar:
Verðið á rúgmjöli hefir verið
lægra í Danmörku en nokkurs-
staðar þar sem við höfum átt
kost á að fá það, og er orsökin
þess sú, að danska stjórnin
(°g þingið) hefir sett hámarksverð
^ kornið frá bændunum, til þess
an halda niðri brauðverðinu. En
þegar kosningar fóru fram í vor
hétu vinstrimenn þvf — en þeir
byggja aðalstyrk sinn á bændum
— að þeir skyldu afnema há-
marksverðið á korni, ef þeir kæm-
ust til valda, svo bændur gætu
tengið meira verð fyrir korn sitt.
Kosningarnar fóru þannig, að
vinstrimenn sigruðu og komust til
valda, og var þá fyrirsjáanlegt
að rúgmjöl og rúgur mundi hcekka.
Þetta hefir hinn umræddi fé-
sýslumaður og Morgunblaðseig-
andi vitað, og flytur þess vegna
inn 5000 tunnur af rúgmjöli í
brasktilgangi (»spekú!ation«-til-
gangi, því hér er ekki um eigin-
lega heildsölu að ræða). Þegar til
kom þorðu vinstrimenn ekki fyrir
jafnaðarmönnum að nema hámarks-
verðið á korni úr gildi, en hafa
ákveðið til þesss að friða korn-
bændur að hœkka kornverðið að
mun, og mun sú hækkun standa
nú alveg fyrir dyrum.
Munu nú flestir skilja hvers
vegna Morgunblaðið vill ekki láta
verðlagsnefndina ná út fyrir Reykja-
vík.
Það er sem sé til þess, að einn
einstakur maður, af því hann er
eigandi Morgunblaðsins, geti grætt f
einu svona 50 þús. kr. eða þar um bil.
Það er ekki að furða þó Morg-
unblaðið viðhafl sierk orð og kalli
það fásinnu, að láta verðlags-
nefndina ná út yfir Reykjavíkl
Nánar um þetta á morgun.
Úr eigin herbúðum.
A sjómannafélagsfundi á laugar-
daginn gengu inn 20 nýir félagar.
Félagið er nú þegar komið í
samband við sjómannafélög Norð-
urlanda (en þau félög eru í alþjóða-
sambandi sjómanna).
Samninga hefir félagið gert við
H.f. Kvöldúlf, frá 1. ágúst til ára-
móta; eftir þeim er kaupið kr.
316,00 á mánuði og eftirvinna
kr. 1,50 um klst. og S stunda
vinnudagur, þegar skip liggur í höfn.
Skóg’areldur
i Rússlandi.
Réykurinn berst til Svíþjóðar
og Moregs.
Eidurinn er i 9 héruðum.
Um síðustu mánaðamót urðu
menn í Suður-Noregi varir við
allmikinn reyk og var fyrst haldið
að hann stafaði af skógareldi í
Dölunum. Var farið að grenzlast
eftir þessu og menn sendir í allar
áttir, en hvergi fanst skógareldur.
Þegar farið var að grenslast
nánar eftir hverju þetta sætti,
kom það upp úr kafinu, að reyks-
ins hafði lfka orðið vart í Stokk-
hólmi og litlu áður hafði svo
þykkur reykjarmökkur verið inn-
arlega í Eystrasalti og Finska-
flóanum, að skip komust ekki
leiðar sinnar. Var fyrst haldið að
eldurinn væri £ Finnlandi, en nú
er sannfrétt að hann er í 9 hér-
uðum í Rússlandi: Tver, Kostroma,
Jaroslov, Wladimir, Moskva, Ria-
tsan, Arkangelsk, Vologda og
Viatka. Veðurathugunarstöðin f
Kristianíu hefir borið saman för
reyksins við vindstöðuna og kom-
ist að þeirri niðurstöðu, að alt sé
sami rcykurinn.
Eftir fréttum frá Rússlandi breið-
ist eldurinn óðfluga út og hefir
eyðilagt járnbrautarteinana í hér-
aðinu Viatka á löngu svæði. Auk
skóganna brenna heil þorp, mó-
birgðir og kornforðabúr. Eldurinn
er þegar búinn að brenna á annan
mánuð, því 12. ágúst sendi verk-
lýðsstjórnin út ávarp, þar sem
sagt er meðal annars, að svo mikil
hætta steðji að Rússlandi, að til
auðnar horfi, margir tugir þúsunda
fólks séu þegar orðnir húsnæðis-
Iausir. Vetrarbirgðirnar af eldivið
hafa farist í eldinum og geysileg
vinna hefir á fáum dögum farið
forgörðum. Það sorglegasta við
þessi ósköp er það, að fullvíst er '
að andstæðingar stjórnarinnar,
4