Morgunblaðið - 08.04.1984, Page 30

Morgunblaðið - 08.04.1984, Page 30
78 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984 AÐ FERMAST Nú eru fermingarnar byrjað- ar. Og sjást þess gjörla merki. Vísir menn stökkva fram á rit- völlinn og skrifa misjafnlega lærðar greinar um ferminguna. Nýtt líf færist í auglýsingar á síðum dagblaðanna: „Steríósett á aðeins 23.400“ (sem eru næst- um því tvöföld mánaðarlaun hinna lægstladnuðu). „Ferming- arfötin eru komin, full búð, aliar stærðir og gerðir." Og svo þarf að hafa veislu. Já, það stendur sem sagt mikið til. Og er það vel. Við erum nefnilega ekki ein af þeim, sem fussa og sveia ef ná- granninn vill gera sér glaðan dag eða halda upp á einhvern merkisatburð. Því vissulega er fermingin það — svo framarlega sem einhver meining liggur að baki því þegar fólk játar trú á Guð. Það er oft undarlegt að heyra hverjir það eru, sem gagn- rýna fermingarnar mest. Ekki eru það börnin, sem þurfa þó að standa í sviðsljósinu frammi fyrir öllum ættingjunum og játa Krist, sem leiðtoga lífs síns. Og foreldrarnir eru líka með ferm- ingunni, veislunni og því öllu, enda þótt þetta kosti mikla pen- inga. Svo virðist sem að þeir gagnrýni mest, sem standa utan við þetta. Nú vitum við að mikill þorri fólks fermist. Af hverju snýr þá þetta sama fólk við blað- inu eftir nokkur ár og tekur að gagnrýna? Hvað hefur breyst? Jú, afstaöan er önnur. Nokkur tími er liðinn. Það hefur fallið á ferminguna. Hún er orðin óþægileg minning. Eitthvað, sem með tímanum hefur fengið á sig loddarayfirbragð. Og hverjum er það að kenna? Auðmangi kaupa- héðna? Nei, sökin er eigin. Með því að vanrækja trúna eru menn að gefa skít í eigin fullyrðingu á fermingardaginn þegar þeir ját- uðu trú á Guð. Þeir gera sjálfa sig að fíflum og loddurum. Og þá er ekki nema von að þeir sjái eftir fermingunni, finnist hún vera mistök, sem þeir afsaka með barnaskap. Fermingin er engin útskrift eða lokaáfangi. Ekki frekar en giftingin er endir á ástarsam- bandi karls og konu. Heldur er fermingin áframhaldandi. Hún er ekki einhver „serímónia". Fermingin er framhald skírnar- innar, heill vetur þar sem prest- ur eða annar aðili fræðir börnin um kristna trú. En með skírn- inni voru þau einmitt tekin inn í kristið trúarsamfélag. Ferming- in er til marks um það að kirkj- an líti ekki lengur á viðkomandi, sem barn heldur sem fulltíða einstakling sem vill sjálfur og getur ráðið lífi sínu. Núna á þessu vori kallar kirkj- an til sín ungmenni: Komið, dyr standa opnar, það er nóg pláss og nóg að gera. Þannig er kirkj- an trú frelsara sínum. Hún læt- ur orð hans berast: „Komið og fylgið mér. Takið upp krossinn." í tilefni af fermingunum héld- um við út af örkinni og hittum að máli tvo einstaklinga, sem báðir eru nýlega fermdir enda þótt tíu ár skilji þá að. Heyrum hvað þeir hafa að segja. Biblíulestur vikuna 8.—14.4. 1984 Sunnudagur 8.4. Mattheus 5:21—22 — Tungan myrðir! Mánudagur 9.4.1. Jóhannes 3:15 — Hatrið myrðir! ÞriAjudagur 10.4 Markús 12:28—31 — Að elska Guð — og menn. Miðvikudagur 11.4. Matt. 5:43—48 — Að elska — jafn- vel óvini. Fimmtudagur 12.4. Predikarinn 3:1—8 — Tími til allra hluta. Föstudagur 13.4 2. Mósebók 21:13 — Engin lög án náðar. Laugardagur 14.4 Rómverjabréf 12:19—21 — Guðs er að dæma. 5. boðorðið: Þú skalt ekki morð fremja „Hvað er það? — Svar: Vér eigum að óttast og elska Guð, svo að vér eigi meiðum náunga vorn, eða vinn- um honum nokkurt mein á líkama hans, heldur björgum honum og hjálpum í allri líkamlegri neyð.“ M. Lúther, Fræðin minni. „Þér hafið heyrt, að sagt var við forfeðurna: Þú skalt ekki morð fremja .. En ég segi yður: Hver sem reiðist bróður sínum ... hrak- yrðir bróður sinn ... svívirðir hann, hefur unnið til eldsvítis.“ Jes- ús Kristur, Fjallræðan. Þarna höfum við það svart á hvítu, friðhelgi mannlegs lífs er svo mikil að jafnvel það að formæla manninum er brot gegn Guði, skap- ara okkar. En þótt þau séu nú orðin 3500 ára gömul að minnsta kosti, eru þau enn almennt þverbrot- in. Maðurinn skánar ekkert með aldrinum. Þessi lög beinast jafnt til löglegra stjórnenda samfélaga okkar sem hins „aumasta allra aumra", og segja við okkur; „Virtu náunga þinn sem verk Guðs þíns.“ Guð er helgur, sköpun hans er það líka. Það dugir ekki að fara illa með hana. Samt viðgangast í kristnum þjóðfélögum allskonar mannrétt- indabrot, frelsissvipt- ingar, jafnvel dauða- refsingar. Kristin þjóð- félög hafa átt í stríð- um, innbyrðis og við heiðin. Af hverju? Jakobsbréfið svarar: Vegna girnda okkar, vegna brotlegs eðlis okkar. Vegna þess að maðurinn, þú og ég, hefur í lífi sínu snúið sér frá Guði (4:1—3.) Því verður stundum að bregðast við gjörðum manna á sársaukafull- an hátt. En boðorðið stendur óhaggað: Þú sem ert í þeirri stöðu að þurfa að bregðast við athöfnum manna á ákveðinn hátt, mundu að þeir eru af Guði gerðir, rétt eins og þú, og að þú, þegar allt kemur til alls, ert í raun ekki betri sjálfur. Ragnar Magnússon Við ræddum við Ragnar Magnússon, 13 ára. Hann fermd- ist seinasta sunnudag í Áskirkju, en hún var vígð þriðja sunnudag í aðventu, og var Ragnar því í fyrsta hópnum sem fermdist í henni. Hvers vegna ákvaðstu að láta ferma þig? Vegna þess að ég var að játa kristna trú, sem ég ætla að tileinka mér. Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig í lífinu að tileinka þér Krist? Hann styður mig í öllu lífinu, í erfiðleikum mínum og ég fæ að eiga samfélag við hann, m.a. í bæninni. Hvernig upplifirðu Guð? Ég upplifi nærveru hans, hann er alltaf með mér. En hvernig upplifðir þú ferminguna? Einstaklega vel þrátt fyrir að vínið væri vont. Hún var sérstakari vegna þess að það var altarisganga strax á eftir. En þetta var í fyrsta skipti sem við gengum til altaris. Á kirkjan eitthvert erindi til þín í dag? Já, það er gaman að vera við guðsþjónustur, eiga samfé- lag við Guð og hitt fólkið. Einnig er gaman að hlusta á góðar ræður hjá prestinum. En mér finnst vanta meiri fjölbreytni innan kirkjunnar. Hvert var fermingarversið sem þú valdir þér? Það stendur í sálmi 121:8: „Drottinn mun varðveita út- göngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu." Carlos A. Ferrer er 23 ára guðfræðinemi sem hefur búið hér á landi í 15 ár, en það er eitt ár síðan hann fermdist. Hvers vegna fermdistu ekki þegar þú varst 13 ára? í fyrsta lagi fluttist ég milli hverfa í Reykjavík á þessum tíma og gerði ekki mikið af því að leita uppi prest í því hverfi sem ég þekkti ekki. í öðru lagi fannst mér allt fermingarstandið hallærislegt og var ekki mjög trúaður og átti ekki von á neinum „stólpa-gjöfum". Þess vegna fannst mér enginn tilgangur í því að fermast. Ég notaði mér þá staðreynd að gera grín að vinum og kunningjum sem ég vissi að fermdust upp á gjafirnar, eflaust hefur mér þótt ég betri en þeir. Á næstu árum var ég sjálfsyfirlýstur guðleysingi. En hvers vegna ákvaðstu að fermast níu árum seinna? Þegar ég var 18 ára lifði ég þann vendipunkt í lífi mínu að ég „upplifði" Guð og játaðist honum. Ég gerði mér grein fyrir því að hann var stærð í tilverunni og hafði réttmæta kröfu á líf mitt. Það má því segja að á þeim tíma hafi ég byrjað að „ganga á Guðs vegum". Þeir vegir lágu í gegnum stúdentspróf og upp í guðfræðideild HÍ. Má segja að ég hafi komið þangað játandi kristinn en að öllu ófermdur. Mér þótti tilhugsunin svolítið skemmtileg að verða prestur án þess að hafa sjálfur fermst en í raun var eins og það vantaði punktinn yfir i-ið. Því játaðist ég Guði á ný í þessari athöfn. Þótt ég gengi að þessari fermingu minni sem hreinasta formsatriði má segja að Guð hafi komið mér á óvart: mér var eins og ég játaðist Guði á nýjan hátt og Guð játaðist mér upp á nýtt, alveg eins og hann gerði í skírn minni. Mér fannst eins og Guð gæfi mér grænt ljós á framtíðina. Finnst þér að fermingin ætti að fara fram seinna en nú tíðkast? Nei, fólk á aldrinum 13 ára er fullfært um að geta sagt já við Guði, gallinn við allt þetta stand er sá að við erum búin að gera Guð að smásmugulegum, þröngsýnum, ströngum gömlum kalli sem gerði þá kröfu til okkar að við hættum að njóta lífsins þegar við ætluðum að fylgja honum. Þess vegna er þrýstingurinn á unglingana sá, að njóta lífsins og ná sér í lífsreynslu áður en þeir gefast Guði. Að lifa með Guði er hins vegar alls ekkert „helvíti" þótt hann kalli menn til ábyrgðarfulls lífernis. Hitt er líka að með öllum þeim gjöf- um sem fermingum fylgja freistum við unglinga okkar oft til að játast Guði vegna gjafanna, í hugsunarleysi eða því verra. Hér má tala um afhelgun fermingarinnar, hún verður vegna gjafanna, ekki vegna heilsteyptrar afstöðu til lífs með Guði. Mér finnst líka oft vanta að gera fólki grein fyrir því að fermingin sé aðeins upphafið að einhverju nýju og stórkostlegu, einhverju sem varir alla ævi, og er í nánum tengslum í samfélagi við annað fólk í kirkjunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.