Morgunblaðið - 08.04.1984, Side 45

Morgunblaðið - 08.04.1984, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1984 93 Boða sparnað og aukagöt á sultarólarnar: En haga sér sjálf- ir eins og kóngar „Því er mér það eilff ráðgáta að þeir skuli ekki sjá og skilja að það er lítil búmennska að slátra bestu mjólkurkúnni úr fjósinu, en það er einmitt það sem þeir eru að gera, og hver á þá að borga næstu árshátíð þeirra?“ „Þarfasti þjónninn" skrifar: „Kæri Velvakandi. Nú fæ ég ekki lengur orða bund- ist. Svo gjörsamlega hafa þeir menn, sem nefnast alþingismenn og voru einu sinni háttvirtir, gengið fram af mér. Hingað til hef ég lagt metnað minn í að standa í skilum með allar mínar skuldir og hef þar að auki verið svo ósvífin að vera heimavinnandi húsmóðir, sjómannskona og alið upp mín fjögur börn. Ekki nóg með það, heldur hef ég líka reynt að fæða og klæða allt liðið, þó þetta með klæðin hafi nú stundum verið nokkuð snautlegt, en þeirri gömlu kenningu trú, að neyðin kenni naktri konu að spinna, get ég full- yrt að hér á bæ hefur oftar verið spunnið úr því sem spunnið var í fyrra, heldur en keypt nýtt. Allt er þetta nú gott og blessað. Síðan líða tímar og börnunum er komið óbrjáluðum til fullorð- insára og meira að segja í gegnum æðri menntastofnanir. Fer þá ekki hin heimavinnandi að fyllast ein- hverjum stórmennskugrillum, haldandi að hún geti farið að spinna klæði úr nýjum og ónotuð- um þræði og jafnvel gert húskof- anum eitthvað til góða. En æ, ómögunum fækkar, skattakruml- an stækkar. Og það er ekki að sökum að spyrja, hin heimavinnandi gerist ræstingakona og alþingismönnum til fróðleiks er starfið fólgið í að þrífa skít eftir aðra utan heimilis. Að vísu hefur hún stundað þetta starf í 25 ár, en af ykkur ekki verið talið starf nema það sé gert í öðr- um húsum. Hún er farin að vinna. Og er ekki að orðlengja það, hún gerist bjartsýn, nú ætti þó fjanda- kornið að vera hægt að laga glugg- ana sem hafa lekið í mörg ár og laga hitt og þetta sem kallar á aðgerðir. Henni dettur jafnvel í hug að afgangur verði til að sinna andanum svolítið. „Engan asa góða, þú ert nú bara að verða fimmtug svo að einhver mergur ætti að vera eftir í þér sem við getum sogið áður en þú ferð að hugsa um svona hégóma. Veistu ekki að það kom gat á fjárlögin og þú átt eftir að stoppa í það og okkur finnst hentugast að þú gerir það meðan við skreppum suður á Sögu og höldum upp á vel unnin verk á liðnu ári. Og gleymdu nú ekki að rétta okkur budduna þína svo við getum borg- að okkur inn, væna mín.“ Á Ströndum var fólki kennt að skammast sín. Menn gætu haldið að þetta væru gamanyrði en mér er rammasta alvara. I barnaskap mínum hélt ég að eftir að vera búin að sjá og heyra og finna alls konar stjórnir, værum við nú að minnsta kosti búin að fá einn fjár- ráðherrar séu verri en aðrir al- þingismenn. Einn þeirra lét sig ekki muna um að segja í sjónvarpi sl. vor að „alþingismenn væru að gáfum og gjörvileik hátt yfir lýð- inn hafnir". Snyrtilegt. Því er mér það eilíf ráðgáta að þeir skuli ekki sjá og skilja að það er lítil búmennska að slátra bestu mjólkurkúnni úr fjósinu en það er einmitt það sem þeir eru að gera og hver á þá að borga næstu árs- hátíðina þeirra? Að þeir skuli ekki sjá og skilja að það er ekki pólitísk stjórn- kænska að boða sparnað og auka- göt á sultarólarnar en haga sér svo sjálfir eins og kóngar. Visku- legra þætti mér að þeir reyndu að hafa lýðinn (þann heimska) með sér og sýndu það sem þeir spör- uðu. En hingað til hefur það alltaf verið viðkvæðið ef einhver frétta- maður gerist svo djarfur að ýja að eyðslu þeirra og flottræfilshætti að: Þetta dragi nú ekki langt, eða þetta hafi nú lengi verið venja, (eins og þá sé það orðið náttúru- lögmál), eða við skulum nú ekki vera með neinn kotungsbrag (Framkvæmdastofnun) eða að hann sé þeirrar skoðunar að ráð- herra eigi að vera á góðum bíl. Svo tala menn um rök! Ef alþingismenn eru dæmi um gáfumenn þá er það greinilega eitthvað annað en gáfur sem þarf til að stjórna þessu landi. Og þeg- ar götin þeirra eru orðin opiitber og ógnvekjandi, þá er vandinn og mistökin allt í einu orðinn þjóðar- innar allrar, þ.e.a.s. lýðsins. En hefur vandinn nokkurn tíma verið nema lýðsins? Og ekki minnkar vandinn þegar hinir svokölluðu menn lýðsins sitja í stólunum. Þá fyrst byrjar nú froðufallið og virð- ist heldur ekki langrar stundar verk að skóla hina ungu, galvösku sjónvarpsmenn til svo þeir fari flótlega að lepja sama vaðalinn og þeir sem fyrir voru. Og það skulu þeir vita að það er okkur einksis virði þó þeir glamri með að „við alþýðubandalagsmenn, við alþýðu- flokksmenn, við sjálfstæðismenn, og við allir hinir menn leggjum til og bendum á og leggjum áherslu á hitt og þetta". Ef þeir geta ekki stjórnað þessu fyrirtæki sem í eru nú ekki nema þessar 200 þúsund sálir án þess að þær verði reisa á miðjum aldri þá munu þeir hafa verra af fyrr eða síðar. Finnst engum það undarlegt að í fyrra þegar húsbyggingarlánin voru að gera unga fólkið að öreigum með- an alþingismennirnir göptu þá var boðað ti! fundarins fræga í Sig- túni og eftir þann fund urðu hinir gáfuðu smeykir um sinn hag og þá var allt í einu hægt að gera sitt- hvað þessu fólki til bjargar, þá en ekki fyrr. Því auglýsi ég hér með eftir einhverjum úr röðum lýðsins til að halda annan fund til bjargar öllu því fólki sem nú getur hvorki lifað eða dáið en hefur þó alla sína tíð unnið myrkranna á milli til að þurfa ekki að láta aðra borga árshátíðina sína. Kærar þakkir." SlGeA V/GGA £ l/LVtRAU Tökum a Ríkissjóður hefur ákveðið að bjóða út ríkis- víxla til 90 daga. Ef áhugi er fyrir hendi mun Kaupþing h.f. gera tilboð fyrir hönd viðskiptavina sinna. Dæmi um samband tilboðsverðs (gengis) og ávöxtunar Ávöxtun 22,77% 28,08% 33,68% Hver víxill er að upphæð kr. 50.000,00. Þeir eru skattfrjálsir eins og spariskírteini ríkis sjóðs. Hafið samband vegna nánari upplýsinga. Tilboð (gengi) 95 94 93 Verð eins víxils 47500 47000 46500 Eigendur spariskírteina! Höfum kaupendur að öllum flokkum spariskírteina ríkissjóðs. Sölugengi verðbréfa 9. april 1984 SPARISKÍRTEINIRÍKISSJÓÐS: sðlugengi midad við 5,3% vexti umfram verðtr. pr. 100 kr. 1. FLOKKUR 2. FLOKKUR Útg. Sölugengi pr. 100kr. 5,3% vextir gilda til Sölugengi pr. 100 kr. 5,3% vextirgildatil 1970 1971 15.372 15.09 1985 D 1972 13.807 25.01.1986 - 15.09.1986 1973 8.695 15.09.1987 11.435 25.01.1988 1974 5.460 15.09.1988 8.224 - 1975 4.056 10.01.1985 3.026 25.01.1985 1976 2.795 10.03.1985 2.274 25.01.1985 1977 2.027 25.03.1985 1.723 10.09.1984 1978 1.374 25.03.1985 1.100 10.09.1984 1979 930 25.02.1985 715 15.09 1984 1980 618 15.04.1985 479 25.10.1985 1981 410 25.01.1986 303 15.10.1986 1982 285 01.03.1985 211 01.10. 1985 1983 163 01.03 1986 103 01.11.1986 1) InnlausnarverðSeðlabankanspr. 100NYKR.S.febrúar 1984 17.415.64 2) InnlausnarverðSeðlabankanspr. 100NÝKR. 10. janúar 1984 4.002.39 3) InnlausnarverðSeðlabankanspr. 100NÝKR.25.januar 1984 3.021,25 4) InnlausnarverðSeðlabankanspr. 100NÝKR. 10.mars 1984 2.877.97 5) InnlausnarverðSeðlabankanspr. 100NÝKR.25.januar 1984 2.273.74 6) InnlausnarverðSeðlabankanspr. 100NÝKR 25.mars 1984 2.122.16 7) Innlausnarverð Seðlabankans pr. 100 NÝKR. 25. mars 1984 1 438,89 8) Innlausnarverð Seðlabankans pr. 100 NÝKR 25 februar 1984 951,45 VEÐSKULDABRÉF VERÐTRYGGÐ ÓVERÐTRYGGÐ Með 2 qjalddöqum á ári Með 1 gjalddaqa a ári Láns- Ávöxtun Söiuqen 3' Söluqen 3' tími Sölu- umfram 18% 20% 18% 20% ár: gengi Vextir verðtr ársvextir ársvextir HLV" ársvextir ársvextir HLV" 1 95,54 21/2 9 94 95 96 91 92 93 2 92,76 21/2 9 83 85 86 79 81 82 3 91,71 31/2 9 73 75 76 68 70 71 4 89,62 31/2 9 65 68 69 60 63 64 5 88,41 4 9 59 62 63 54 56 57 86,67 91/4 7 84,26 4 91/4 Athugið að solugengi veðskuldabrefa er hað 8 82,64 4 91/2 gjalddogum þeirra og er serstaklega reiknað ut 9 81,10 4 91/2 fyrir hverl bréf sem tekið er i umboðssölu 10 78,13 4 10 1) Hæstu leyfilegu vextir Kaupþing hf. reiknar gengi verðbréfa dagiega KAUPÞING HF Husi Verzlunarinnar. 3. hæd simi 86988 s.86988 málaráðherra sem kæmi úr at- vinnulífinu og hefði þar að auki fjármálavit, en ekki einhvers kon- ar menn sem aldrei hafa difið hendi í kalt vatn en getað gert sitt til að reikna okkur til andskotans. Viti menn. Svo bregðast krosstré sem önnur. Beiskust þóttu mér svikin um skattalækkun eða finnst honum ekki komið nóg þegar allt að 70% af tekjum heimilisins fara í skatta í einhverri mynd? Þýðingarlaust að krafsa yfir þessa staðreynd. Og þar fór hann. Ekki svo að skilja að fjármála- HF Wl ÞÚ HEFUR ÞETTFl RLDREl NEMR RÚ LEGó-lR Rló flllH FRPM^

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.