Morgunblaðið - 03.06.1984, Side 2

Morgunblaðið - 03.06.1984, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 1984 Nýir innlánsreikningar í Alþýðubankanum: Stjörnureikning- ar með verðtrygg- ingu og 5 % vöxtum ALÞYÐUBANKINN hefur stofnað til nýrra sparireikningaflokka, sem bera samheitið stjörnureikningar, með verðtryggingu auk 5 % vaxta. í fréttatilkynningu frá Alþýðu- bankanum hf. segir að farið verði af stað með tvo flokka sem nefndir eru „æskusparnaður“ og „lífeyr- issparnaður". „Æskusparnaður er ætlaður foreldrum, öfum, ömmum eða hverjum sem er, sem vill spara handa ákveðnu barni sem yngra er en 16 ára. Þegar barnið er orðið 16 ára og þar með sjálfráða er sparn- aðurinn laus til útborgunar og vonandi gott veganesti út í lífið,“ segir í fréttatilkynningunni. Um lífeyrissparnaðinn segir: „Lífeyr- issparnaður er fyrir þá sem orðnir eru 65 ára eða eldri. Er hann hugsaður sem tryggur bakhjarl þegar tekjurnar minnka eða heils- an bilar. Þeim sparnaði verður þó að segja upp með ákveðnum fyrir- vara, sem styttist eftir því sem eigandi reikningsins verður eldri." t fréttatilkynningu Alþýðu- bankans segir að væntanlega séu hér stigin fyrstu skrefin í raun- hæfum sparnaðarleiðum sem Al- þýðubankinn undirbýr að bjóða, en raunhæfur geti sá sparnaður einn talist sem býður upp á raun- vexti. Þá er sagt að í undirbúningi séu næstu skref og þá stefnt að sparnaðarformi með lántökurétti, en slík réttindi eða loforð verði að byggjast á því að lausafjárstaða bankans sé í viðunandi horfi, en sparnaðurinn sé undirstaða þess að svo geti orðið. Guðlaugur á þrekhjólinu í Lífeðlisfræðistofnun Háskóla fslands í fyrradag, ásamt Stefáni og Kristínu, starfs- mönnum þar. Ljósm. Mbi. rax. Guðlaugur rannsakað- ur í þágu vísindanna Prófessorarnir Jóhann Axels- son og Sigmundur Guðbjarnason munu standa fyrir ýmsum rann- sóknum á Guðlaugi Friðþórs- syni, stýrimanni frá Vestmanna- eyjum, sem vann það frækilega afrek, sem kunnugt er, að synda 6 km á 6 klst. í 6—7 stiga heitum sjó til Heimaeyjar eftir að skip hans, Hellisey, hafði farist fyrir austan Eyjar 11. marz sl. Vís- indamenn munu rannsaka þol Guðlaugs, ýmsa líffræðilega starfsemi og uppbyggingu. M.a. mun hann fara til London vegna þessara athugana sem eru gerð- ar í þágu þess að hugsanlega er hægt að læra af afreki Guðlaugs hvernig unnt er að lifa af kulda í vatni. Hrólfur Ingólfsson fyrrv. bœjarstjóri látinn HRÓLFUR INGÓLFSSON, fyrrum bæjarstjóri, lézt á Vífilsstöðum á fimmtudaginn, 66 ára að aldri. Hann var fæddur að Vakursstöðum í Vopnafirði, N-Múl., sonur hjónanna Ingólfs Hrólfssonar og Guðrúnar Eiríksdóttur. Hrólfur starfaði í Útvegsbanka Seyðisfjarðar frá 1932 til ársloka 1945, að hann gerðist bæjargjald- keri í Vestmannaeyjum og gegndi því starfi til ársins 1954. Hann var gjaldkeri hjá ísfélagi Vestmanna- eyja 1956—60, framkvæmdastjóri Fiskivers Vestmannaeyja 1960 til 1963, bæjarstjóri á Seyðisfirði 1963—70 og sveitarstjóri í Mos- fellssveit 1970—74. Hann varð þá starfsmaður byggingardeildar Menntamálaráðuneytisins, þar sem hann vann til ársloka 1974, en þá lét hann af störfum vegna heitsuleysis. Hrólfur vann síðan við bókhald og frá 1979 starfaði hann á umboðsskrifstofu fyrir sýslumann Kjósarsýslu. Hrólfur starfaði alla tíð mikið að félags- málum. Hrólfur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans, ólöf Andrésdóttir, lézt Nýr lands- forseti JC 23. landsþingi JC-hreyfingar- innar á Islandi, sem haldið var í Bifröst í Borgarfirði, lauk í gær. Þingið sóttu um 300 fulltrúar og gestir. Þingið þótti takast vel en JC Vík í Reykjavík annaðist und- irbúning þinghaldsins. Ingimar Sigurðsson var kosinn landsfor- seti á þinginu í stað Steinþórs Einarssonar. Morgu n blaöiö/HBj. Ingimar Sigurðsson, landsforseti JC. 1959. Eftirlifandi eiginkona hans er Hrefna Sveinsdóttir. Hrólfur eignaðist sjö börn og ól upp eina fósturdóttur. Aðlögunartími lengdur við lækkun afurðalána VEGNA erfiðleika sem komið hafa fram vegna lækkunar á endurkaup- um Seðlabankans á afurðalánum hefur bankastjórn Seðlabanka ís- lands ákveðið, að höfðu samráði við ríkisstjórnina, að láta lækkunina koma til framkvæmda á lengri tíma en fyrirhugað var. Seðlabankinn hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þetta kemur fram. Segir þar að lækkun endurkaupahlutfalls afurðalán- anna komi aðeins til framkvæmda gagnvart nýrri framleiðslu hverju sinni en ekki gagnvart lánum sem þegar hafa verið veitt. Þá kemur fram að ríkisstjórnin hefur í við- ræðum við viðskiptabankana, sem afurðalán veita, óskað eftir þvl að þeir raski ekki almennt krónutölu viðbótarlánanna. Viðbótarlánin verði sem fyrr breytileg eftir að- stæðum og mati viðskiptabanka. Síðan segir í fréttatilkynningu Seðlabankans: „Á næstunni munu Seðlabankinn og viðskiptabank- arnir hafa með sér samráð um, hvernig aðlögun að frekari breyt- ingum á endurkaupafyrirkomu- laginu geti farið fram, svo að upp- fylltar séu óhjákvæmilegar láns- fjárþarfir framleiðslustarfsem- innar um leið og gætt sé þess að- halds í peningamálum, sem efna- 1. í _i „ ,11' A 1 Vioi mtie Morgunblaðiö/KÓE. Fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1984 ANNA MARGRÉT Jónsdóttir var Miss Young International, sem bjuggu Vilhjálmur Ástráðsson og kjörin Stjarna Hollywood og Fulltrúi fram fer í Kóreu. Kristjana Geirsdóttir. ungu kynslóðarinnar 1984 á fóstu- Auk sigurvegaranna eru á dagskvöld í veitingahúsinu Broad- Sex stúlkur tóku þátt í keppn- myndinni Kolbrún Jónsdóttir, way. Við sama tækifæri var Arn- inni og fá þær allar vikuferð til fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1982, björg Finnbogadóttir kjörin Sólar- Ibiza, nema sigurvegararnir sem Rósa Bjamadóttir, Kristrún stúlka Úrvals. fá þrjár vikur. Auk þess fá þær Jónsdóttir, Rannveig Kristjáns- Anna Margrét verður fulltrúi ilmvötn, fatnað og fleira. dóttir, Sigríður Guðlaugsdóttir og íslendinga í keppninni um titilinn Keppnina skipulögðu og undir- ólafur Laufdal. Beint útvarp frá Norrokki ÁKVEÐIÐ hefur verið að útvarpa beint frá norrænu rokkhátíðinni, sem fram fer í Laugardalshöllinni í kvöld. Kormákur Bragason, einn umsjónarmanna útsendingarinnar, tjáði Mbl. í gær að hugmyndin væri að útvarpa öllum tónleikunum í gegnum útsendingarkerfi rásar 2. Á millí atriða yrði rætt við hljómsveit- irnar og gesti í Laugardalshöll. Þursaflokkurinn, sem átti að koma fram fyrir íslands hönd á tónleikunum ásamt hljómsveit- inni Vonbrigði, hætti í gær við þátttöku að sögn Ásmundar Jónssonar, sem séð hefur um und- irbúning Norrokks. Sagði Ás- mundur ekki fyllilega ljóst hvað hefði valdið ákvörðun Þursa- flokksins en verið væri að athuga hvort Baraflokkurinn gæti tekið sæti hans. Tækist það ekki yrðu Vonhrigði einu fulltrúar íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.