Morgunblaðið - 03.06.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 03.06.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚNl 1984 45 Kíkt inní kvik- mynda- húsin Þar sem ég var á kafi í heimilis- verkunum (aldrei þessu vant) einn fagran vormorgun, þá hvarflaði að mér, svona í snögghendingu, hvort ég »tti ekki að láta dagatalið fjúka með í sorptunnuna. Sjálfsagt hef ég þá fengið væga aðkenningu að kuldahrollinn, The Big Chill. En það bráði nú fijótt af mér, tíminn líður og því fær enginn breytt. En hrollurinn grefur um sig í sálum manna, hvort sem er á Rauðalæknum eða Rússíá og í mynd Kasdans, The Big Chill, fylgjumst við með endurfundum bandarískra skólasystkina sem eru að nálgast fertugt. Myndin er prýðisskoðun á mannlífinu markviss og sönn, að ég ætla, en skrambi „amerísk“. Borð fyrir fimm er brosleg mynd fyrir þá sem kynnst hafa raunum einstæðra feðra. Hún er ein af þessum bandarísku vandamála- myndum, sænskættuðum, sem hafa verið að skjóta upp kollinum uppá síðkastið. Hún er nettlega gerð en Zsigmond er í daufasta lagi. Þegar upp er staðið stendur fátt eftir annað en yfirvegaður leikur Richard Crenna og afburðaleikur krakkanna, ekki síst þess sem lék yngri soninn. Voight er prýðis- leikari, en löngu fallinn í vissan farveg, allar götur frá Midnight Cowboy hefur hann farið með hlutverk háttvísra, veiklundaðra undirmálsmanna. Annars er Bíóhöllin með ágæt- ismyndir í öllum sölum, ef undan er skilin Allt í lagi vinur. Nýja bíó sýnir þokkalega eftir- líkingu Poltergcist sem nefnist Ver- an. Meðalmynd, ekki leiðinleg. Fótamenntar fínn er glans í Footloose bæði og Breakdance. Ef einhver hefur misst af einum best gerða þriller síðari ára, má enn lenda í bláum þrumugný í Hafnarfjarðarbíói. Regnboginn lumar á nokkrum góðum. Fyrst skal fræga telja Tender Mercies, með afburðaleik- aranum Robert Duvall í sínu fyrsta óskarsverðlaunahlutverki. Hann, kvikmyndatakan og yfir- lætislaust handrit keyra þennan ljúfmelta vestra, séðan með aug- um snjalls Ástrala, hátt yfir flatn- eskju Texasríkis. í Regnboganum gefst enn kost- ur að sjá þá ágætu mynd, Frances og tvær prýðisafþreyingarmyndir sem ég mæli með sem stundar- gamni á aðgerðarlitlu aftankveldi, þeim Gulskegg og Convoy. Þá má ekki gleyma Silkwood, en rúsínan í pylsuendanum er svo sannarlega Educating Rita sem er einfaldlega besta myndin, sem sýnd er í kvikmyndahúsum borg- arinnar um þessar mundir. SV. Stjörnugjöfin: Tónabíó: It’s a Mad, Mad, Mad World. A ★ V4 Stjörnubíó: Educating Rita. ★ ★ ★ * Stjörnubíó: The Big Chill. ★ ★ ★ Nýja bíó: Veran. ★ ★ Laugarásbíó: Scarface. ★ ★ ★ Haf narfj arðarbíó: Bláa þruman. ★ ★ ★ 'A Bíóhöllin: Borð fyrir fimm. ★ ★ '/í Bíóhöllin: Þrumufleygur. ★ ★ % Austurbæjarbíó: Atómstöðin. ★ ★ ★ Austurbæj arbíó: Breakdance. ★ ★ xk Háskólabíó: Footloose. ★ ★ '/í Regnboginn: Tender Mercies. ★ ★ ★ M> Regnboginn: Frances. ★ ★ ★ Regnboginn: Gulskeggur. ★ ★ xh Regnboginn: Prúðuleikararnir. ★ ★ 31. maí. SV. Kennsla í svif- flugi að hefjast Svifflugfélag íslands hóf sumarstarfsemi sína á Sandskeiöi í fertugasta og sjöunda sinn 1. maí síöastliö- inn. Félagar í Svifflugfélagi ís- lands eru u.þ.b. 150, en á hverju ári eru þjálfaðir upp 10—15 nýir svifflugmenn. Flugfloti félagsins sam- anstendur af þremur tvísæt- um, þar af er ein með hjálp- armótor, og fjórum einsæt- um, tveimur byrjendaflugum og tveimur fyrir lengra komna. Út maí verður aðeins flog- ið um helgar, en í júní hefst regluleg starfsemi, þá verður flogið á hverju kvöldi frá kl. 18.00 og allar helgar þegar veður leyfir. Kennsla hefst 4. júní og er innritun þegar hafin. STIÖRNU reikningar Æskuspamaður / Lífeyrisspamaður Nú er sama á hverju gengur í verðbólgustríðinu. Með fullri verðtryggingu og 5% vöxtum að auki, veita hinir nýju stjörnureikn- ingar Alþýðubankans algjört öryggi og góða ávöxtun. Við förum af stað með tvo sparireikningaflokka undir samheit- inu Stjörnureikningar, annan fyrir æskuna og hinn fyrir lífeyris- þega eða þá sem nálgast eftirlaunaaldurinn. m, Við gerum vel við okkar fólk Alþyöubankinn hf. ÆSKUSPARNAÐUR Hann er ætlaður foreldrum, öfum og ömmum, eða öllum þeim sem vilja gefa barni yngra en 16 ára sparifé. Þegar barnið verður 16 ára er upphæðin, með verðtryggingu og vöxtum laus til útborgunar og gott vegarnesti út í lífið. LÍFEYRISSPARNAÐUR Hann er fyrir 65 ára eða eldri - tryggur bakhjarl þegar aldurinn \ fer að segja til sín og tekjurnar dragast saman. *Verðtryggð innistæða og 5% vextir að auki!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.