Morgunblaðið - 03.06.1984, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 03.06.1984, Qupperneq 48
OPIÐ ALLA DAGA FRA KL. 11.45 - 23.30 AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTI, SÍM111630 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. 35 rannsókna- leyfi til útlend- inga á þessu ári Sovétmenn ekki við rannsóknir hérlendis í ár UNDANFARIN ir hafa rannsóknir Sovétmanna innan íslensku efnahags- lögsögunnar verið allnokkrar ef marka má fjölda rannsóknarskipa þeirra hér við land. í sumar eru hins vegar líkur á að fátt verði rannsakað af þeirra hálfu hér við land því sam- kvæmt upplýsingum sem Vlorgun- blaðið aflaði sér í utanríkisráðuneyt- inu hefur engu sovésku rannsókn- arskipi verið veitt leyfi til rannsókna innan íslensku efnahagslögsögunnar í bráð. Tómas Karlsson, sendifulltrúi í utanríkisráðuneytinu, sagði að á þessu ári hefði einungis eitt sovéskt rannsóknarskip fengið leyfi til að leggjast hér að bryggju og hefði það verið í janúar. Það hefði staldrað við í þrjá daga til að taka vatn og vistir, en það skip hefði ekki verið við rannsóknir innan íslensku efna- hagslögsögunnar heldur einungis komið í áðurnefndum erindagjörð- um. Sagði Tómas að árið 1982 hefðu 9 sovésk rannsóknarskip verið við rannsóknir innan efnahagslögsög- unnar, í fyrra hefðu 5 sovésk skip verið við rannsóknir hér, en enn sem komið væri hefði engu sovésku rannsóknarskipi verið veitt rann- sóknarleyfi í sumar innan íslensku efnahagslögsögunnar. Hjá Rannsóknarráði ríkisins fengust þær upplýsingar að ekki væri von á neinum sovéskum rann- sóknarhópi í ár. Gunnar Björn Jónsson, skrifstofustjóri hjá Rann- sóknarráði ríkisins, sagði að þegar hefðu verið veitt 35 rannsóknarleyfi til erlendra hópa í sumar en ekki hefði enn borist umsókn frá Sovét- mönnum um að fá að stunda rann- sóknir hér á landi í sumar. Sagði hann að þær þjóðir sem sótt hefðu um rannsóknarleyfi hér í sumar væru þær sömu og undanfarin ár, þ.e. frá Norðurlöndum, Bandaríkj- unum, Frakklandi og V-Þýskalandi. Gunnar sagðist ekki búast við nein- um rannsóknarleiðangri frá Sov- étríkjunum í sumar. Líflegt í lax- Margir hafa notað tækifærið og skoðað aðrennslisgöng Búrfellsvirkjunar. veiðinni LAXVEIÐI byrjar vel í ár, en fyrstu árnar voru opnaðar í fyrradag. Fyrsta daginn veiddist 21 lax í Norðurá í Borgarfírði, eins og sagt var frá í Mbl. í gær, og í Laxá á Ásum byrjaði hún einnig vel. Að sögn Hauks Pálssonar á Röðli veiddust þrír vænir laxar fyrsta daginn, sem telst mjög gott. Var hann bjartsýnn á veið- ina í sumar. „Hún verður örugg- lega góð,“ sagði hann. Magnús Jónasson tók meðfylgjandi mynd við Norðurá í fyrradag. Á henni eru Ólöf Stefánsdóttir og Karl ómar Jónsson með fyrstu stangarlaxa sumarsins. ólöf veiddi þann fyrsta strax eftir opnun árinnar og Karl ómar veiddi fyrsta flugulaxinn skömmu síðar. Murtuhrogn til útflutnings? Fyrirtækið Ora hf. hefur sent sýnishorn af niðurlögðum murtuhrognum til Frakklands. Að sögn Tryggva Jónssonar framkvæmdastjóra liggja engir samningar um sölu hrognanna fyrir en vonast er eftir jákvæð- um viðbrögðum innan tíðar frá kaupendum. Murtuhrogn hafa hingað til ekki verið nýtt og því um nýja afurð og markað að ræða. Tryggvi benti þó á að hrognataka gæti aldrei orðið mikil, enda murtan ekki algengur . /iakur háx.á landi_—-- Fæöast glasabörn á íslandi eftir 3 ár? — „Ekki óraunhæft," segir Auðólfur Gunnarsson, kvensjúkdómalæknir „Glasabarnagetnaður er alls ekki ómögulegur hér á landi og ég tel ekki óraunhæft að ætla að hann verði reyndur á íslandi eftir 3 ár svo fremi það fáist mannafli og fjármunir til tilraunastarfsemi,** sagði Auðólfur Gunnarsson, kvensjúkdómalæknir á Kvenna- deild Landspítalans, í samtali við Mbl. í gær. Hann er nýkominn heim af alþjóðlegri ráðstefnu kvensjúkdómalækna, sem haldin var í Finnlandi, en auk hans sóttu hana þrír aðrir íslenskir læknar, Sigurður S. Magnússon, prófessor og forstöðumaður Kvennadeildar- innar, Jón Aifreðsson, sérfræðing- ur í kvensjúkdómum við deildina, og Anna Salvarsdóttir, aðstoðar- læknir. „Þessir hlutir eru á tilrauna- stigi ennþá víðast hvar í heimin- um, en í nokkrum löndum er þetta komið á fastari grundvöll. Flestir eru þó enn að þreifa fyrir sér og það þarf langan og mikinn undirbúning til þess að koma þessu af stað. Arangurinn er ekki meiri en svo enn sem komið er, að getnaður með þessum hætti tekst ekki nema í tiltölu- lega fáum tilvikum. Þegar best lætur er árangurinn aðeins 10% ef aðeins er notað eitt egg,“ sagði Auðólfur. Glasabarnagetnaðurinn fer þannig fram, að konu er gefið egglosandi lyf og eggið eða eggin síðan frjóvguð með sæði karl- manns í tilraunaglasi. Sagði Auðólfur venjuna þá, að reynt væri að ná eins mörgum eggjum hverju sinni og kostur væri. Ný- verið væru hafnar tilraunir með frystingu frjóvgaðra eggja, sem væru notuð við sfðari tilraunir ef sú fyrsta mistækist. Að frjóvgun lokinni er eggjunum, sem oftast eru 3—4, komið fyrir I legi kon- unnar. Við þennan fjölda eru lík- urnar á að konan ali barn komn- ar upp í 25—30% þegar best gengur. Um leið og eggin eru orðin fleiri en eitt aukast líkurn- ar á fjölburum. Að sögn Auðólfs eru tilraunir með getnað af þessu tagi komnar nokkuð á veg á Norðurlöndun- um. Fyrsta glasabarnið fæddist t.d. í Finnlandi hálfum mánuði áður en ráðstefnan hófst og siíkt barn hefur einnig fæðst í Sví- þjóð. Glasabarn hefur enn ekki fæðst í Noregi. „Þetta er rétt að byrja í þessum löndum en þó hafa tilraunir staðið yfir í meira en 2 ár,“ sagði Auðólfur. Nokkur hópur kvenna hér á Tilraunir meó frystingu eggja eru skammt á veg komnar en hér get- ur að líta fyrsta barnið sem fædd- ist af eggi, sem hafði verið frjóvgað og síðan fryst. Atburðurinn gerðist í Melbourne í Ástralíu. landi getur ekki eignast barn með öðrum hætti en þessum að sögn Auðólfs. Hann sagði jafn- framt, að lítið hefði verið spurt um möguleika á glasabarnagetn- aði hér á landi, a.m.k. enn sem komið væri. óskuðu konur þess að verða þungaðar með þessum hætti yrði það að gerast erlendis og hann vissi ekki til þess að slíkt hefði gerst. Bjarnarlón þurrt Bjarnarlón vió Búrfellsvirkjun I ísristir sem eru fyrir að- I metra löng og 10 metra há. var tæmt í síðustu viku og fram- rennslisgöngunum að virkjun- Margir hafa lagt leið sína upp leiðir virkjunin því ekki raf- inni eru margar gjörónýtar. að göngunum sakir forvitni og magn. Vatni verður hleypt í lón- Aðrennslisgöngin líta hins stöðugur straumur fólks inn ið aftur í dag. I vegar vel út, en þau eru 1100 I og út.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.