Morgunblaðið - 15.07.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.07.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 1984 63 heimta gekk hins vegar mjög tregt. Það var fyrst eftir 1970, að sýslunargögn bárust safninu, svo að mark væri að, og varð að senda mann um héraðið til að annast þá innheimtu. Björn Egilsson frá Sveinsstöðum fór um allt héraðið þessara erinda, krafðist skila og varð fengsæll. Um leið fékk safnið hann til þess að kanna handrita- eign á bæjum og fala til varð- veizlu. Fólk brást yfirleitt mjög vel við þeim tilmælum og aflaðist vel. Sætir furðu, hve mikið reynd- ist enn til af hvers konar gömlu „skriferíi" og kom safninu nú til góða, hversu sagnamenn 19. aldar voru fastheldnir á skræður sínar, eins og ég gat um áður. Já, svo ég víki aftur að stofnun héraðsskjalasafnsins, er rétt að geta þess, að ekki var hægt að búa í básinn fyrir það, svo sem hugur manna stóð til. Húsnæði var raun- ar ekkert fyrstu árin. Gögn þess voru geymd í kössum og koffort- um í bókasafninu, allt óskráð, og var skrásetning raunar ekki hafin fyrr en eftir 1970. Laust fyrir 1960 var keypt les- filmusafn það, sem löngum hefur verið kennt við mormóna, þar eð þeir festu hér fyrstir handrit á filmur. { safni þessu var helft kirkjubóka landsins, dómsmála- og skiptabóka, ættfræðirit ofl. í kjölfar þessa framtaks fóru vita- skuld kaup á lesvél, og nú fékk safnið lítið herbergi alveg til eigin nota. Þó var ekki hægt að opna safnið almenningi, en gata þeirra greidd, sem unnu að bókagerð á vegum Sögufélagsins, svo og ann- arra, sem þurftu að nota það.“ „Hvenær var svo safnið opnað almenningi?" „Það var ekki fyrr en í ársbyrj- un 1972, að safnið var opnað al- menningi, eftir að því var komið fyrir í Safnahúsinu nýja. Þá fyrst sköpuðust skilyrði til að efla það. Enda var mjög rúmt um það fyrstu árin og góð lesstofa, þótt nú hafi sótt í líkt horf og fyrr; húsnæði það, sem því var ætlað fyrir röskum áratug er orðið allt of lítið; og handrit geymd á mörg- um stöðum í húsinu. Á þessu verð- ur ráðin bót með haustinu, en þá flytur safnið væntanlega á neðri hæð Safnahússins, og verður þar rúmt um það, að því er ætla má.“ „Þannig eflist það smátt og smátt.“ „Jú, þetta er að sjálfsögðu af- leiðing þess, að hér hefur vaxið viður af vísi." „Hversu stórt er safnið orðið?“ „Skjalasafnið er orðið mikið að vöxtum, handritasafnið slíkt hið sama. Safnið er raunar í þrem deildum, þótt allt sé þetta enn laust í reipum. Eins og ég minnt- ist, held ég, á áðan, eru héraðs- skjalasöfn varðveizlustaður opin- berra gagna, sýslunargagna hvers konar. Þau eru því í raun eins kon- ar útibú frá Þjóðskjalasafni, gögn þar ríkiseign, og söfnin lúta yfir- stjórn þjóðskjalavarðar. Þessu safni er haldið sér og skráð á ann- an veg en handritasafnið. Með handritasafni á ég við safn hvers konar almennra handrita, sem ekki eru afhendingarskyld. Þarna kennir margra grasa, sýn- ishorn af andlegu veganesti geng- inna kynslóða, hugðarefnin, sem spegla líf þjóðarinnar í blíðu og stríðu. Allt er þetta ritað vegna ástar á viðfangsefninu, tjáningar- þarfar. „Fýsnin til fróðleiks og skrifta" knúði á þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður — eða vegna þeirra. Hér gefur að líta sýnishorn þess, sem kynslóðirnar töldu rétt að festa á blað: sagnaþætti, rímna- söfn, ættfræðisyrpur, staðhátta- og þjóðháttalýsingar, annála, af- morskvæði, bænir og þulur, sendi- bréfasöfn, dagbækur, sveitarblöð, galdrakver o.s.frv. Ég þori lítið að segja um stærð handritasafnsins. Handritalýs- ingu og skrásetningu er lokið á um 1500 númerum, 30—40 hillumetr- um, en mikið er aðeins grófflokk- að. Stafar þetta af því, að slík ókjör berast að safninu í einu, að ekki verður komizt yfir að gera öllu til góða um leið, líka vantar hillurými.“ „Hver er stærsta gjöfin, sem safnið hefur hlotið?" „Handritasafn Stefáns ættfræð- ings Jónssonar á Höskuldsstöðum er stærsta gjöfin, sem safninu hef- ur borizt. Áfhending þess hefur farið fram allt til þessa. Líklega nokkrir hestburðir! Og þar kennir margra grasa auk sagnaþátta Stefáns sjálfs og annarra skrifa hans. Hann var mikill safnari." „Hver eru merkust handrit safnsins?" „Ég treysti mér ekki til að dæma um, hvaða handrit sé merkast. Slíkt er raunar smekks- atriði. En oft fer fólki svo, að því finnst mest til um það, sem elzt er, og hefur óneitanlega nokkuð til síns máls. Ef tekið er mið af þvi, þá skipar Konungsskuggsjá og Sverrissaga fyrsta sæti. Handritið er á einni bók skrifað af Magnúsi stúdent Þórólfssyni um 1660 en eigandi þess var Magnús digri Jónsson í Vigur. Fallegt handrit. Úr myndasafni. Biyggjusmíði á Akureyri um 1930. „ Versjónyfír Homerum". Þetta er titilblað rersjóna, sem gengið bafa milli margra Bessastaðapilta, svo sem sjá má. Flest eru nöfnin þjóð- kunn. Nú, ég sagði safnið þrískipt. Hér er allmikið ljósmynda- og teikn- ingasafn. Á spjaldskrá eru komn- ar um 7.000 mannamyndir, en fjöldi bíður umfjöllunar. Um- hverfis- og atburðamyndir eru enn óskráðar, en sumpart grófflokkað- ar. Um heildartölu mynda veit ég ekki, en ætla þær 10—20 þúsund. Safnið á og allmikið af teikningum (manna- og umhverfismyndir), obbinn eftir kunna listamenn." „Frá hvaða tíma eru þessar mannamyndir?“ „Mannamyndirnar eru lang- flestar teknar á árabilinu 1875—1940 eða þar um bil. Því miður er hér mikið um myndir af mönnum, sem ekki hefur enn tek- izt að nafngreina, þótt mikið sé gert af því að birta slíkar myndir í von um, að einhver beri kennsl á þær. Nokkuð hefur þó á unnizt." „Hvernig er með fjárhag safns- ins?“ „Héraðsskjalasafnið hefur nán- ast engar beinar tekjur, eins og t.a.m. bókasöfn, sem taka nefskatt lögum samkvæmt. Sýsla og bær leggja héraðsskjalasafninu hverju sinni, en ríkisvaldið skýzt hins vegar undan skyldu sinni. Ekki verður annað sagt en þessir aðilar hafi staðið vel í ístaðinu. Hér væri þó mun fátæklegra umhorfs, ef safnið hefði ekki notið mikilla styrkja stofnana og einstaklinga. T.a.m. er mestallur tækjabúnaður safnsins keyptur fyrir gjafafé. Ég reyni ekki að tíunda alla þá, sem reynzt hafa safninu haukar í horni. Skal aðeins nefna nokkrar stofnanir: Menningarsjóð Kaupfé- lags Skagfirðinga, Menningarsjóð Sparisjóðs Sauðárkróks og siðast en ekki sízt Þjóðhátíðarsjóð ís- lands, sem hvað eftir annað hefur stutt safnið svo myndarlega, að fullyrða má, að ekki hefði verið ráðizt í ýmislegt á vegum þess án Stefán Jónsson frá Höskuldsstöð- um. Kristmundur segir, að handrit- asafn bans sé stærsta gjöfín, sem safninu befur rerið gefín. stuðnings frá þeirri stofnun. Nú síðast veitti Þjóðhátíðarsjóður styrk til gerðar lykilskráa, en safnið er orðið svo mikið að vöxt- um, að mjög torvelt reynist að af- greiða safngesti, þar sem þeirra er vant. Á næstu árum ætti að verða mikil breyting á til batnaðar.“ „Einhverjar fleiri tekjulindir?“ „Jú, fleiri eru matarholurnar. Má þar nefna, að héraðsskjala- safnið á höfundarrétt að verkum Þorsteins Jónssonar — Þóris Bergssonar. Skilar hann jafnan nokkrum arði. { haust koma út endurminningar Þorsteins á veg- um Bókaútgáfu Odds Björnssonar. Enn má nefna, að ekkja Sigurðar Helgasonar tónskálds, Hildur, sænskættuð, bandarísk kona, gaf safninu höfundarréttinn á laginu „Skín við sólu Skagafjörður" og hefur dropið nokkuð drjúgt af. Þá er þess að geta, að safnið á að hálfu höfundarrétt að öllum verk- um Stefáns Jónssonar á Hös- kuldsstöðum. Birtingarrétt seldi safnið Sögufélagi Skagfirðinga og er fyrsta bindi ritsafns Stefáns væntanlegt á markað með haust- inu. Safnið á líka réttinn að verk- um ísleifs Gíslasonar og hefur nýtt sér hann, sem kunnugt er. Enn fleiri hafa gefið safninu höf- undarrétt verka sinna, og mun þess sjá stað, þegar tímar líða fram. Mér láðist áðan að nefna einn sjóðinn, sem er ætlaður safn- inu til styrktar: Menningarsjóð Magnúsar Bjarnasonar kennara, en Magnús Bjarnason kennari gaf fé til þessarar sjóðstofnunar. Safnamál, bæklingur sem Safna- húsið og söfnin öll standa að, er gefinn út árlega með styrk úr þessum sjóði, sumpart vegna skil- yrða, sem gjafabréf setur um sjóð- inn. Já, safnið hefur blásið út. Fjöl- margir gefa safninu handrit á hverju ári. Drýgst hafa þó dregið safn Stefáns á Höskuldsstöðum og Jóns Sigurðssonar alþingismanns á Reynistað. Annars vil ég ekki fara með nöfn, því hætt er við ég gleymi ýmsum í flýtinum. Þó get ég ekki látið undir höfuð leggjast að minnast á bóka- og handrita- gjöf Sigurðar J. Gíslasonar kenn- ara, sem lézt á Akureyri í fyrra, háaldraður. Sökum þrengsla hefur enn ekki verið hægt að taka við öllu safni Sigurðar og óljóst, hve stórt það er, en trúlega nokkur þúsund bindi. Þar getur fjölda úr- valsrita í bókmenntum og sögu, rita, sem eru nú ófáanleg með öllu. Auk þessa lét Sigurður eftir sig allnokkurt safn handrita og vísna- safn eitt hið mesta, sem verið hef- ur í eigu eins manns hérlendis, að sögn á annað hundrað þúsund vís- ur á seðlum og fylgja skýringar og tilvitnanir. Bæta má þvi hér við, að bókasafn Páls bókavarðar Sig- urðssonar í Reykjavík hafnaði líka hér. Var því skipt til helminga milli bókasafnsins og héraðs- skjalasafnsins. En nú er mál að linni.“ „Er handritasöfnunin bundin við Skagafjörð einan?" „Nei, handritasöfnunin er ekki bundin við Skagafjörð einan, enda hafa safninu borizt slikar gjafir víða að. Fólk á að ráða því sjálft, hverjum það trúir fyrir varðveizlu handrita sinna. Hér gefur handrit líklega úr öllum sýslum landsins, sum forn, önnur nýleg. Þau skipta trúlega hundruðum. Á þessum tímum er auðvelt þeim, er þurfa, að ná til handrita í ljósriti eða á filmu. Hundaþúfu-sjónarmið eiga ekki rétt á sér. Það er ánægjulegt að verða slíks trausts var, og reynt mun að valda gefendum ekki vonbrigðum.“ „Hvernig er aðsókn að safninu?" „Aðsókn að safninu er góð, en það er aðeins opið tvisvar í viku. Eins og sakir standa má hún helzt ekki meiri vera. Safninu berast fyrirspurnir hvaðanæva af land- inu og raunar líka erlendis frá. Oft reynist erfitt og tímafrekt að greiða úr öllu, og stundum koma spyrjendur raunar að tómum kof- unum. Safngestir eru á öllum aldri, engu síður ungt fólk en ellimótt. Margir stunda stefnulaust grúsk, einkum ættfræðilegt, og gætu ef- laust farið verr með tímann. Enn aðrir sækja safnið vegna ritgerða eða bóka, sem þeir vinna að. Stúd- entsefni vinna hér að lokaritgerð- um, háskólanemar í sagnfræði eða skyldum greinum einnig. Það er ánægjulegt, hve mikill áhugi er ríkjandi, þó er svo guði fyrir að þakka, að hann beinist til ýmissa annarra átta. Fjöldinn allur á ekkert erindi i handritasöfn, finn- ur ekkert þar við hæfi. Hann leit- ar á önnur mið eins og vera ber, lífið er svo margþætt og „safna- mennska" er aðeins einn þáttur menningarsamfélags,“ sagði Kristmundur í lokin. — »*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.