Morgunblaðið - 15.07.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 1984
77
Magnúsdóttur. Kári sagðist
raka, en ekki væru það miklu
fleiri á stofunni sem myndu
vilja gera það. Hann sagði það
vera á örfáum stöðum sem
nemum væri kennt að raka
enda fáir rakarar sem virkilega
kynnu það. Kvaðst Kári raka
með hníf sem að vísu væri með
blöðum og léttari en þeir gömlu
og sápa menn með höndunum.
Ekki sagði hann algengt að
menn kæmu inn til að fá ein-
göngu rakstur, þá helst menn
er væru að hætta með skegg
eða menn sem hafa verið að
skemmta sér. Er nafnið rak-
arastofa bar á góma sagði
hann að það væri gamalt orð
sem enn væri notað og t.d.
flokkað eftir því í símaskránni
en í raun ætti það að vera hár-
skerastofa en ekki rakarastofa.
Oft raka ég
olnboga-
börn bæjarins
Að lokum hittum við fyrir
Pétur hárskera á Skólavörðu-
stíg 10. Hann hefur sett upp
skilti þar sem hann kallar sig
hárskera en aðspurður sagðist
hann allt eins geta kallað sig
rakara þar sem hann rakaði
enn þann dag í dag. Reyndar
sagðist hann hafa rakað einn
þennan dag en það væri annars
ekki mjög algengt að menn
kæmu inn og bæðu um rakstur.
Aðallega væru það þá menn
sem væru að láta raka í kring-
um skeggið sitt, túristar og
olnbogabörn bæjarins sem
kæmu til hans í þessum til-
gangi. Hann sagðist oft þrífa
menn sem hefðu legið í því
lengi. Pétur notar gamaldags
bursta til að sápa með en sagði
að nú væri hann farinn að nota
hníf með blöðum í til raksturs-
ins. Sl. ár hafði Pétur stúlku-
nema sem rakaði og var „þræl-
klár“ í því. Aftur á móti sagðist
hann vita þess dæmi að á sum-
um stofum væri ekki rakað því
að maður hefði komið nýklippt-
ur til hans einn daginn og sagt
honum að eftir klippinguna á
einni stofunni hefði hann beðið
um rakstur en verið synjað þar
sem þeir rökuðu ekki lengur.
Við látum þetta duga, en
menn vita þá núna að ef þeir
kæra sig um eru ennþá staðir
þar sem hægt er að fá rakstur
einvörðungu og gæti það verið
gaman að breyta út af vanan-
um og fá rakstur í leiðinni
næst og farið er í klippingu.
Það er altaf gaman að halda
við gömlum og góðum siðum.
Þakka öUum þeim sem sýndu mér hlýhug og vináttu á 70 ára afmœlisdaginn þann 22. júní sl Kagnar Stefánsson, Skaftafelli. Þakkarávarp Hjartanlegar þakkir færi ég ættingjum, fjölmörgum vinum og félagssamtökum, sem sýndu mér hlýhug sinn á 80 ára afmæli mínu og geröu mér þann dag ógleym- anlegan. Lifið heiU Sveinbjörn H. Árnason
; ^
eV^ ^et
yivet
[\e<3a
GORI 88 viðarvarnarefnið er árangur
langra og strangra rannsókna.
GORI 88 er þróaö til að vernda viðinn
gegn hörðustu veðrum.
GORI 88 VIÐARVARNAREFNI í SÉRFLOKKI.
SLETTIST HVORKI NÉ DRÝPUR, ENDA ER ÞAÐ
LEIKUR EINN AÐ BERA Á MEÐ GORI 88.