Morgunblaðið - 20.07.1984, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚLl 1984
Elizabeth Taylor
Joan Crawford
í glæsilegum búningum
Kvikmyndastjömur fimmta áratugarins höfbu og hafa enn í augumfólks einhvem Ijóma. Þær eru ímynd glæsileika,
fegurðar og ríkmannlegs útlits, sem ekki er lengur aÖ finna meðal nútíma Hollywood-leikara, sem líta margir hverjir
ósköp venjulega út. Afimmta áratugnum var ekki nóg að vera fallegur og hæfileikaríkur leikari, þú varst líka að hafa
umbúðimar í lagi Sá maður, sem átti st&ran þátt í því í ein JjO ár að klæða fegurstu og vinsælustu kvenstjömur
Hollywood heitir Jean-Louis og erfranskur að þjóðemi. Árið 19H hélt hann til kvikmyndaborgarinnar þá ungur að
árum og komst á samning við Colombia-kvikmyndafyrirtœkið. Var honum trúaðfyrir stærstu stjömum versins. Hann
reyndist þeim trúnaði verðugur. Kvikmyndhússgestir gátu líka verið vissir um að efað Jean-Louis sá um búningana í
viðkomandi kvikmynd þá var eitthvað æsilegt á ferðinni; gegnsœir kjólar eins og við sjáum Marlene Dietrich í á
meðfylgjandi mynd eða svartir silkikjólar, sem undirstrikuðu fagran vöxt Ritu Hayworth. _____
Bráðlega mun koma út bók þar sem Jean-Louis rifjar upp liðna tíð bæði í myndum og máli. Við ætlum að gefa
lesendum okkar svolítið forskot á sæluna og birta hér nokkrar myndir úr Ijósmyndasafni hans af hinum iðafögru
kvikmyndadísum fimmta áratugarins eins og þær litu út ífatnaði hans.