Morgunblaðið - 20.07.1984, Blaðsíða 32
64
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1984
TtLATHUOMR
Næstum því allt súkkulaði er eins
á litinn. Þess vegna er afar
mikilvægt að geta greint
það í sundur eftir útliti umbúðanna.
Atriðin hér að neðan ættu allir
Capriunnendur að leggja
á minnið.
jmQsSdms
Veldu íslenskt. . . ef það er betra!
Til þess aö varast eftirlíkingar er sérhver
súkkutaöibiti sérstaklega gæöastimptaöur
meö nafni fyrirtækisins. Ef svo er ekki, tekur
Nói Síríus enga ábyrgö á gæöum
súkkulaöisins, enda gæti veriö um að ræða
vöru frá öörum framleiðanda.
Segir til um aö inni i súkkulaðinu leynist
aðalfæöa Kinverja sérstaklega meðhöndluð.
Nafnið er dregiö af hljómrænum eigindum
efnisins, en á enskri tungu nefnist efni þetta
,,rice crisþies”, sem á íslensku útleggst
..sprengd hrisgrjón" eða „litlir Kínverjar"
Að sjálfsögöu er gult auökennislitur
hvellkúlanna.
Haganlega dregnir stafir sem mynda
oröiö Capri. Kunnugir segja að
italskir hafi nefnt eyju suður af
Napoli sama nafni.
Þunnur en vandaður
alsvissneskur álpappír.
Flestum finnst betra
aö fjarlægja hann
áöur en bitið er i súkkulaðið.
Rauði liturinn og orðið rjómasúkkulaöi merkja
ekki aö um aðra súkkulaðitegund sé aö ræöa
heldur að súkkulaðið í þessum umbúðum er
án annarra bragð- og bætiefna.
i grænu Capri eru hnetur sem meðhöndlaðar
eru samkvæmt vandasamri og leynilegri
formúlu. Þetta eru ekta heslihnetur og eru þær
a.m.k. 10% af rúmmáli stykkisins.
Nauðsynlegt er að þekkja nafn og merki
framleiðandans enda er það margsannað
mál að aldrei er gott of gott þótt gott sé
og vel vandað.
OOTT FÓLK