Morgunblaðið - 20.07.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.07.1984, Blaðsíða 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1984 Stephen Jones í hattaverslun sinni í Soho. Turban fyrir samkvæmi í Buckingham Palace. Síðasta hónd lögð ó verkið fyrir sýninguna í París. sem sló í gegn Honum tókst að verða aðalumræðuefnið í tízkuheiminum í París eftir aðeins átta daga sýningahald í frönsku höfuðborginni: Hvað er vitaö um manninn? Eruð þið búin að fá boðskort fyrir morgundaginn? Hann er nefnilega með kvöldsýningu á Palace. Loksins höfðu tízkunnar börn, sem alltaf eru á höttun- um eftir hinu nýjasta nýja, eitthvaö verðugt til þess að fylgja eftir. Sýningar- vörurnar höfðu hitt í mark. Viðburður hafði átt sér stað. Tízkuhattarinn Steph- en var fæddur. iginlegt lífshlaup Stephens byrjaði hins vegar fyrir 26 árum, þegar hann fæddist inn í enska miðstéttarfjölskyldu í Liverpool. Og þrátt fyrir tiltölulega ungan aldur veröur því ekki á móti mælt, aö maöurinn er allrar athygli veröur. Útlitiö er stílfært og kurteisin af hjarta bresk. Viöurnefni hefur hann öölast — sumir myndu kalla þaö titil: Brjálaöi hattarinn. Snemma á ævinni stigu hattar honum til höfuös ... eins og sjá má af flótta hans frá hinum viröulega Lundúna- skraddara Lachasse yfir til ónefnds nágranna, sem bjó til og seldi kvenhatta. Hann haföi veriö í læri hjá Lachasse, en var oröinn leiöur á eilífum eltingaleik viö títuprjóna (sem var auðvitaö hluti af náminu) og fór alfariö yfir í límiö. „Hattageröin var miklu skemmtilegri,” hefur hann sagt. „Og auöveldari. Miklu nær klippimyndum æskuáranna." Hjá sama hattaranum hélst hann í þrjú ár. Stephen Jones, en svo heitir hann fullu nafni, átti eftir aö veröa hattari meölima brezku krúnunnar og síöar þeirra Jean-Paul Gaultier og Thierry Mugler. Þaö þýddi, aö „hattari drottningar" haföi hlotiö nokkurs konar krýningu í París. Hennar náö, prinsessan af Wales, veröandi drottning af Engiandi, lætur sig ekki muna um aö stikla tvær hæöir upp viösjárveröan hringstigann, sem liggur aö bækistöövum Stephens í Soho- hverfinu, í þeim tilgangi einum aö panta meö helzt níu mánaða fyrirvara hatta fyrir næstu opinberu heimsóknir. — Snyrtingin er á vinstri hönd, þegar komiö er upp á stigapallinn. — Aörir Englendingar hlaupa meö. Ekkert skrýtiö viö þaö, þar sem hrifn- ing enskra kvenna á höfuðfötum er mjög almenn. „Hér fara konur ekki út hattaiausar,“ segir meist- arinn. „Sérstaklega ekki aö sumarlagi. Og hattar mega ekki missa sig viö giftingarathafnir. Sem dæmi skal tekiö, aö kona í hlutverki svaramanns viö borgaralega giftingu vekti jafnmikiö hneyksli, ef hún mætti án hatts og heföi hún komiö berfætt og skólaus." Af augljósum ástæöum hafa ekki allir yfir aö ráöa rými Buckingham-hallar. (hverja garöveizlu er boöið um fimm þúsund manns og hattar prýöa flesta. Svo ekki sé talað um Ascot-veðreiöarnar, en í tengslum viö þær keppa lafðir innbyröis um feg- urstu höfuöfötin. Raunar eru útstillingagluggar Harrods i júnímánuöi allir helgaöir Ascot og ... Stephen Jones. „Já, á síöasta keppnistímabili bjó ég til meira en sex hundruö hatta fyrir Ascot-veð- reiðarnar, alla mismunandi aö gerö aö sjálfsögöu." En þaö er ekki bara fyrirfólk, sem er í hattaleik. Rokkstjörnur, eins og „The Thompson Twins“, frægir fatahönnuðir á borö viö Zandra Rhodes (háralitur: rauögulfjólublár), næturkóngar i líkingu í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.